Tíminn - 01.04.1993, Page 8

Tíminn - 01.04.1993, Page 8
8 Tíminn Fimmtudagur 1. apríl 1993 FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF Vesturland — Borgarnes Fundur með Steingrimi Hermanns- syni, fbrmanni Framsóknarflokksins. og Ingibjörgu Pálmadóttur alþingis- manni verður haldinn I Félagsbæ, Borgamesi, laugardaginn 3. april kl. 16. Fundarefni: Átak til endurreisnar I at- vinnu- og efriahagsmálum. Allir velkomnir. Framsóknarfélögln I Mýra- og Borgarfjarðarsýslu Inglbjörg 30 ára afmælishóf Freyju Mánudaginn 5. april n.k. eru 30 árfrá þvl að Freyja, félag framsóknarkvenna I Kópavogi, var stofnað. I tilefni afmælisins verða Freyjukonur með opið hús að Digranesvegi 12 á afmælisdaginn kl. 19.00-22.00. Þangaö ere allir hjartanlega velkomnir. Góðar veitingar. Stjóm Freyju Framsóknarfélögin í Hafnarfirði Opið hús aö Hverfisgötu 25 alla þriðjudaga kl. 20.30. Komiö og fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö. Framsóknarfólögln Kópavogur — Opið hús Opiö hús eralla laugardaga Id. 10.00-12.00 aö Digranesvegi 12. Kaffi og létt spjall. Sigurður Geirdal bæjarstjóri veröur til viðtals. Framsóknarfélögln Slguröur Reykjavík — Létt spjall á laugardegi Laugardaginn 3. aprll kl. 10.30-12.00 að Hafnarstræti 20, 3. hæð, mætir Finnur Ingólfsson alþingismaöur og ræðir stjóm- málaviðhorfiö og svarar fyrirspumum. Fulltrúaráðlð Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœrþurfa að vera vélritaðar. Flnnur Nýkomin haröviöarsending Mahogany Brazil — Mahogany Utile Nigeria. Hnota USA — Iroco — Askur — Eik — Beyki. Einnig Mexi steinflísar, hvítar, gular, rauðar. Fúgusement m/sama — Tidaholm flaggstengur m/öllu. Austurlensk gólfteppi, handofin — Gólfparkett (Tarkett). Arinofnar, mjög vandaðir. BYGGIR hf., Lynghálsi 9. Sími 677190. Móðir okkar, tengdamóðir og amma Guðbjörg Hannesdóttir fyrrverandi Ijósmóölr Jörfa verður jarösungin frá Kolbeinsstaöakirkju laugardaginn 3. aprll kl. 14. Ólafur Agnar Jónasson Guörún Jónsdóttir Hanna Jónasdóttlr Helgl Jónasson Erla Slgurjónsdóttir Ingibjörg Jónasdóttir Baldur Ólafsson og barnabörn _________________________II_________________________________/ Uppfærsla Máfsins á Höfn. I leit að lífshamingju Leikfélag Homaijarðar sýnir um þessar mundir leikritið Máfínn eftir rússneska skáldið Anton Tsjekhov (1860-1904) í leikstjóm Hlínar Agn- arsdóttur, en verkið var fmmsýnt í Sindrabæ föstudagskvöldið 12. mars við fádæma góðar undirtektir áhorf- enda. Frumsýningargestir klöpp- uðu, stöppuðu og hrópuðu af hrifn- ingu í lokin og var mál manna að aðrar eins undirtektir hefðu félagar í Leikfélaginu ekki fengið áður. Hrifning sýningargesta var ekki að ástæðulausu. Máfurinn er sígilt verk sem fjallar um okkur sjálf, vonir okkar og þrár. Hið mannlega er við- fangsefni Tsjekhovs, leitin að því sem gefur lífinu gildi. Leit mannsins að sjálfum sér, að hamingju, lífsfýll- ingu, er ævagömul. Fyrir þær sakir er unnt að horfa á aldargamalt leik- rit og þekkja þau vandamál sem per- sónumar eiga við að glíma, skilja leitina að einhverju sem ekki er áþreifanlegt, skilja örvæntinguna þegar vonimar bregðast, skilja hvers vegna lífið sýnist einskis vert. Aðalpersónur Máfsins eiga sér drauma, sem þær leitast við að upp- fýlla til að höndla hamingjuna. Stóra spumingin er hins vegar hvað er hamingja, hvað gefur lffinu gildi. „Er það ástin, framinn, frægðin, æskan?“ spyr Baldur Kristjánsson í ágætum pistli í leikskránni. Eða em hugmyndir okkar um hamingjuna byggðar á röngum forsendum? „Mikið hljótið þér að vera hamingju- samur,“ segir Nína Mikhailovna við rithöfundinn fræga TVigorin. Nína lítur á frægð og hamingju sem eitt og hið sama og að frægð Trigorins og stundarhrifning á Nfnu gefi henni sjálfri allt sem hana dreymir um. Hamingjan er hins vegar ekki endilega fylgifiskur frægðar, pen- inga eða velgengni í starfi. Hamingj- an kemur innan frá, hún er tilfinn- ing sem við eigum sjálf þátt í að skapa, en er ekki rétt að okkur af ut- anaðkomandi aðilum eða atburðum. „Maður verður að rækta garðinn sinn,“ segir Birtingur í samnefndri bók Voltaires, eftir að hafa þeyst um heiminn þveran og endilangan. Kannski er það einmitt þetta sem Máfurinn segir okkur, við verðum að rækta kosti okkar sjálfra, en ekki fóma þeim á altari hégómans. Tsjekhov vekur ótal spumingar í Máfínum, en þegar allt kemur til alls svarar hann fáum. Áhorfendur geta hver um sig komist að niður- stöðu um boðskap verksins, en eng- in ein þarf að vera sú eina rétta. Kosturinn við Máfínn er ekki síst sá að hver getur séð sjálfan sig í ein- hverju hlutverkanna, og þrátt fýrir alvarlegan undirtón verksins er stutt í gamansemina og sýningin full af hnyttnum atriðum og tilsvör- um. Á sýningum áhugaleikhópa, þar sem iðulega er skortur á hæfileika- fólki, vill brenna við að einn eða tveir leikarar valdi ekki hlutverkum sínum og dragi þannig sýninguna niður. Svo er ekki að þessu sinni, því allir leikarar sýningarinnar stóðu sig með miklum ágætum. Það á bæði við um þá, sem árum saman hafa tekið þátt í uppfærslum Leikfé- lagsins, og hina sem minni reynslu hafa. Margrét Jóhannesdóttir átti stór- góðan leik í hlutverki hinnar ofdekr- uðu leikkonu Arkadínu, sem er áhugalaus um allt annað en það sem henni sjálfri er til framdráttar. Jón Guðmundsson leikur Pétur, aldrað- an bróður hennar, af öryggi. Ingvar Þórðarson á ágætan leik að vanda, nú sem Dom læknir. Dom horfir raunsæjum augum á lífið og tilver- una, hefur fýrir löngu fundið sinn stað í lífinu. Þorvaldur Viktorsson leikur rithöfundinn Trigorin af miklu öryggi. Trigorin er ástmaður Arkadínu, sem, eins og aðrir, dáist að honum fýrir frægðina. Trigorin væri því ekkert án frægðarinnar, sem veitir honum litla hamingju. Kristín Gestsdóttir fer ekki með mikinn texta sem Pálína, en hrein unun er að fýlgjast með hreyfingum hennar og svipbrigðum þar sem hún fer á kostum. Geir Þorsteinsson og Kári Sölmundarson vom skemmti- legir í hlutverkum sínum, einkum Kári í hlutverki hins uppburðarlitla kennara Médvédenkos. Björk Páls- dóttir var sannfærandi sem hin þunglynda Massja, en hún þrífst á eigin óhamingju. Björk þurfti, líkt og Kristín, að sýna tilfinningar sínar með svipbrigðum og látæði og tókst henni ekki síður vel upp. Snæfríður Hlín Svavarsdóttir á góðan leik sem hin saklausa Nína. Nína hrífst af frægð TVigorins og er tilbúin að fóma öllu til þess að þóknast hon- um. „Geti líf mitt orðið þér til gagns, þá komdu og taktu það,“ eru skila- boð hennar til hans. TVigorin tekur hana á orðinu og leggur líf hennar í rúst „sér til dægrastyttingar". Leik- ur Snæfríðar í lokaatriðinu, þrung- inn tilfinningum, var sérlega góður. Guðmundur Heiðar Gunnarsson túlkar Konstantín, son Arkadínu. Konstantín vill verða rithöfundur, en gengur illa að fá viðurkenningu þeirra sem hann þráir að veiti sér eftirtekt. Konstantín er tilfinninga- ríkur og hlutverkið því erfitt, en Guðmundi tekst mjög vel að koma tilfinningum hans til skila. Leikmyndin er geysigóð og skemmtileg. Hún er unnin á nýstár- legan hátt, ljósrituð á stóra fleka sem standa uppi alla sýninguna, þó fremri leikmynd sé breytt á milli at- riða. Leikmyndin sýnir fagurt lands- lag og með notkun ljósabúnaðar er unnt að breyta ásýnd þess þannig að áhorfandinn hefur á tilfmningunni að hann horfi á raunverulegt stöðu- vatn í fjarska, sem seiðir hann til sín. Sannarlega skemmtileg og áhrifarík leikmynd. Búningar eru vel valdir, einfaldir og falla vel að leikritinu. Tónlistin í verkinu er sérlega falleg. Einkar skemmtilegt þótti mér að leikið var á píanó í anddyri Sindrabæjar áður en sýningin hófst. Leikskráin er vel unnin, falleg, einföld og hefur á sér gamalt yfirbragð. Leikstjórinn, Hlín Agnarsdóttir, hefur unnið geysimikið verk að þessu sinni. Hún hefur gert miklar kröfur til leikaranna og uppsker eft- ir því. Sýningin er sigur íýrir hana og ekki síður Leikfélag Homaíjarð- ar, sem með þessu sýnir svo ekki verður um villst að litlir áhugaleik- hópar úti á landi eru fullfærir um að takast á við verk gömlu meistar- anna, þegar saman fer samstilltur hópur leikara og leikstjóri sem hef- ur þann hæfileika að ná því besta fram í hverjum einstaklingi. Skaftfellingar og aðrir þeir, sem tækifæri hafa til að sjá sýningu Leik- félags Homafjarðar á Máfínum, em hvattir til að láta hana ekki fram hjá sér fara. Tíminn hf. óskar eftir umboðsmanni í Vestmannaeyjum frá T. maí 1993. Upþlýsingar gefur Marta Jónsdóttir í síma 98-12192 Erla Hulda Halldórsdóttir

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.