Tíminn - 15.04.1993, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.04.1993, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. apríl 1993 Tíminn 3 Það er dýrt að lenda í árekstri: Sex vikur kostuðu kátt í 400 millj. kr. Á sex vikna tímabili skemmdust 3220 bílar í umferðinni og er tjón áætlað 363 millj. króna. Þetta kemur fram í frétt frá Sam- bandi íslenskra tryggingafélaga á fjölda bifreiðartjóna á tímabilinu 22. febrúar til 2. apríl sl. Þá er tekið fram að aðeins sé metið tjón á bflunum sjálfum en slys á fólki eru ekki met- in. Athygli vekur að langflestir urðu fyrir tjóni í næstsíðustu viku mars- mánaðar en þá kostuðu skemmdir 682 bifreiða rúmar 78 milljónir króna. Samband tryggingafélaga telur að þessar tölur séu í heild mun hærri en þær sem oft koma fram í fjölmiðl- um og byggja á upplýsingum lög- reglu. Það er skýrt með því að lög- reglan hafi aðeins afskipti af tiltölu- lega litlum hluta umferðaróhappa þar sem flestir fylli út tjónstilkynn- ingar sjálfir. -HÞ Neytendasamtökin ekki sátt við skipan sam- keppnisráðs: Óska eftir álitium- boðsmanns Rannsókn á vöðvabyggingu íslenska hestsins skýrir hvers vegna hann er kröftugri og út- haldsmeiri en önnur hestakyn: Vöðvar íslenska hestsins öðruvísi en annarra kynja Neytendasamtökin rituðu nýlega umboðsmanni Alþingis bréf þar sem þau óska eftir álitl hans á hæfni þeirra sem viðskiptaráðherra skipaði sem aðalmenn í nýstofnað samkeppnisráð. Samtökin telja að skipan þeirra Þór- arins V. Þórarinssonar, framkvæmda- stjóra VSÍ, og Magnúsar Geirssonar, formanns Rafiðnaðarsambands ís- Iands og fulltrúa í miðstjóm ASÍ, í samkeppnisráð samrýmist ekki vilja Alþingis samkvæmt 6. gr. laganna. En samkvæmt þeim eiga þeir sem sitja í samkeppnisráði að hafa „sérþekkingu á samkeppnis- og viðskiptamálum og vera óháðir fyrirtækjum eða samtök- um sem lögin ná til.“ í upphaflegu frumvarpi til samkeppn- islaga var gert ráð fyrir að ASÍ og VSÍ tilnefhdu sinn fulltrúa hvort í sam- keppnisráð og Hæstiréttur tvo. í með- förum Alþingis var þessu ákvæði hins vegar breytt í áðumefnt form. Fyrir utan Þórarinn V. og Magnús vom skipaðir sem aðalmenn í sam- keppnisráð þeir Brynjólfur Sigurðsson prófessor sem jafnframt er formaður ráðsins, Atli Freyr Guðmundsson, starfsmaður í viðskiptaráðuneyti, varaformaður og Ingibjörg Rafnar hdl. -grh Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar sem gerð var um vöðvabyggingu ís- lenska hestsins gefa ótvírætt til kynna að vöðvabygging íslenska hestsins sé alveg gjörólík flestum öðrum hestakynjum. Ingimar Sveinsson, kennari á Bændaskólanum á Hvanneyri, segir að með þessari rannsókn sé komin líf- fræðileg skýring á því hvers vegna íslenski hesturinn er sterkari og úthalds- meiri en önnur hestakyn. Rannsóknin er samstarfsverkefni á milli Bændaskólans á Hvanneyri og tilraunastöðvar landbúnaðarins á Faulum í Danmörku, en þar em sýnin greind með sérstakri tækni sem er hvergi annars staðar til á Norðurlöndunum. Rannsóknin fór þannig fram að sérfræðingur frá Faulum kom hing- að til lands í fyrravetur og tók vöðvasýni úr 30 íslenskum hross- um, fjögurra og fimm vetra göml- um. Sýnin vom tekin úr óþjálfuðum hestum. Jafnframt vom tekin sýni úr jafhmörgum íslenskum hrossum fæddum í Danmörku. Þessir hópar vom bomir saman, en jafnframt vom hóparnir bomir saman við vöðvasamsetningu á ýmsum erlend- um hestakynjum. Ingimar sagðist ekki hafa fengið í hendur endanlegar niðurstöður rannsóknarinnar, en bráðabirgða- niðurstöður gæfu ótvírætt til kynna að vöðvabygging íslenska hestsins sé alveg gjörólík því sem er í flestum öðmm hestakynjum. „íslenski hesturinn hefur mun meira af svokölluðum þolvöðvum og eins miklu meira af hraðvöðvum eða snerpivöðvum sem nota súrefni. Rannsóknin sýnir einnig að það er miklu meiri fita inni í vöðvum ís- lenska hestsins en öðmm hestakynj- um. Fitan er trúlega aukaorkugjafi. Þá er háræðanet í vöðvum íslenska hestsins miklu þéttara en í öðmm kynjum. Rannsóknin sýnir að hár- æðanet í vöðvum ótamdra og óþjálf- aðra íslenskra trippa er sambærilegt við það sem er í þjálfuðum hrossum erlendis. Allt þetta skýrir það sem við höfum reyndar vitað lengi að ís- lenski hesturinn hefur mun meiri kraft og úthald en önnur hestakyn," sagði Ingimar. Ingimar sagði að þessar niðurstöð- ur sýndu að íslenski hesturinn er um margt einstakur. Mikill munur er á gerð vöðva milli einstakra hesta. Erlendis hafa rann- sóknir á vöðvum hesta verið notaðar við kynbótaræktun, ekki síst við ræktun veðhlaupahesta. f mörgum löndum er ekki reynt að þjálfa hesta sem ekki standast ákveðna staðla um vöðvabyggingu. Ingimar sagði vel koma til greina að þessi rann- sóknaraðferð verði notuð við kyn- bótastarf hér á landi, en fyrst þurfi að rannsaka vöðva í íslenskum hest- um miklu meira. Ingimar nefndi sem dæmi að talið er að öflugir þol- vöðvar geri hestana gangsamari. Ingimar sagði að við fyrstu athug- un hafi svo virst sem ekki væri marktækur munur á vöðvum ís- lenskra hesta hér á landi og ís- lenskra hesta sem fæðst hafa í Dan- mörku. Bráðabirgðaniðurstöðurnar sýndu hins vegar að þegar á allt væri litið væri marktækur munur á þess- um tveimur hópum. T.d. væri mun meiri fita í vöðvum hesta sem fæðst hafa hér á Iandi. „Þetta er hestakyn sem hefur feng- ið að þróast hér í einangrun í þús- und ár. Allt bendir til að kraftur og úthald íslenska hestsins sé tilkomið vegna náttúruúrvals í gegnum erfið lífsskilyrði," sagði Ingimar um ástæður þessa séreiginleika íslenska hestsins. Ingimar sagðist vona að framhald verði á þessum rannsóknum. Hann sagði t.d. fróðlegt að sjá hvaða mun- ur sé á vöðvagerð í þjálfuðum og óþjálfuðum hestum. Endanlegar niðurstöður rannsókn- arinnar verða kynntar á ráðstefnu um hross á norðurslóðum sem hald- in verður í ágúst í sumar. -EÓ Húsbréf Komið með rúmlega fjórðung allra barna á Slysadeild ár hvert: Um 16 slösuö börn á Slysadeild dag hvern Samkvæmt gögnum Slysadeildar Borgarspítalans slösuðust ár hvert að meðaltali um 30% allra bama 14 ára og yngri í Reykjavík, á tímabilinu 1974 tfl 1991. Slysatíðnin fór hækkandi fram undir 1980 en hefur síðan aftur farið lækkandi. Árið 1991 slasaðist rúm- lega fjórðungur (26%) reykvískra bama á þessum aldri. Það jafngildir á sjötta þúsund slysum á ári, eða kringum 16 á dag að meðaltali. Slys á bömum í Reykjavík em hlutfalls- lega mun algengari en þekkist í ná- grannalöndum okkar. Blaðið Heil- brigðismál segir frá þessari rann- sókn á slysatíðni bama í Reykjavík, 1974—1991, samkvæmt gögnum Slysadejldar, sem gerð var af lækn- unum Önnu Stefánsdóttur og Brynj- ólfi Mogensen. Slysum hefur undanfarin ár fækkað verulega í yngsta aldurshópnum (0—4 ára), en hins vegar fjölgað í elsta hópnum (10—14 ára). Heimaslysin eru algengust. Um 9. hvert barn (11%) slasast á heimili sínu árlega. Næst koma skólaslysin. Um 4% barna slasast í skólanum (og þá væntanlega nærri helmingi hærra hlutfall ef aðeins væri miðað við þau böm sem náð hafa skóla- aldri). Um 2% bama lenda í íþrótta- slysum, 1% lendir í umferðarslysum og 1% í brunaslysum. - HEI _______Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1991 3. flokki 1991 1. flokki 1992 Innlausnardagur 15. apríl 1993. 1. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð: 10.000 12.587 100.000 125.874 1.000.000 1.258.743 3. flokkur 1991 Nafiiverð: Innlausnarverð: 10.000 11.200 100.00 112.004 500.000 560.019 1.000.000 1.120.038 1. flokkur 1992 Nafnverð: Innlausnarverð: 10.000 11.032 100.000 110.315 1.000.000 1.103.150 5.000.000 5.515.749 Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS U HÚSBRÉFADEILD ■ SUDURLANDSBRAÚT 108 REYKJAVlK ■ SlMI 696900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.