Tíminn - 17.07.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn. .Frétta-síminn...68-76-48.
Laugardagur
17. p 1993
133. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 125.-
Útgjöld ríksins aukin um röskan einn miljarð króna vegna aðgerða ríkisstjórnar til atvinnuskapandi
aðgerða. 60-80 miljón króna aukaframlag til atvinnnumála kvenna:
vinnuleysistryggingasjóðs er
hér um að ræða alls 1200-1300
störf að mati félagsmálaráð-
herra. Við þetta bætast svo þau
margfeldisáhrif sem þessi verk-
efni hafa í öðrum atvinnugrein-
um.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði að sérstakt fram-
kvæmdaátak í vegagerð sam-
kvæmt yfirstandandi fjárlögum
mundi aðallega hafa áhrif til
aukinnar atvinnu úti á landi en
viðhaldsverkefnin á suðvestur-
hominu. Hinsvegar væm einn-
ig á verkefnalistanum töluverð
verkeíhi og endurbætur sem
unnar yrðu á út um land allt ss...
á skólum og heilbrigðisstofnun-
um auk verkefna á sviði hafna-
framkvæmda.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði að þessar
60-80 miljónir króna sem sér-
staklega verður ráðstafað til at-
vinnumála kvenna ætti eftir að
útfæra nánar í samvinnu við að-
ila vinnumarkaðarins. Hinsveg-
ar væri viðbúið að það yrði snið-
ið að þörfum ófaglærðra kvenna
t.d. í Sókn og Framsókn og þá í
þeim störfum sem lytu að að-
hlynningu og umönnun ýmiss
konar.
Aðilum vinnumarkaðarins var
kynnt þessi ákvörðun ríkis-
stjómar í gær. Hervar Gunnars-
son, fyrsti varaformaður ASÍ,
segir að þar á bæ séu menn
þokkalegar ánægðir með þetta,
enda í samræmi við það sem lof-
að var við gerð kjarasamning-
anna.
Hann sagði að verkalýðshreyf-
ingin legði áherslu á að sem flest
af þessum verkefnum yrðu unn-
in í dagvinnu svo störfin yrðu
sem flest. En ekki þannig að
þessi verkefni yrðu unnin af
sömu einstaklingunum nótt
sem nýtan dag.
„Það em reyndar eftir nokkrir
liðir í yfirlýsingu ríkisstjómar-
innar frá því í vor. Þar á meðal er
allt það sem snýr að nýsköpun
og þróun. Við lítum svo á að það
sé ekki inní þessum pakka og
mér virðist það vera sameigin-
legur skilningur okkar og
stjómvalda.
Við vomm ásáttir að vinna að
því verkefni fram í miðjan ágúst
og setjast síðan yfir það. Það sem
ákveðið hefur verið er aðeins
framkvæmdapakkinn og seinni
hálfleikurinn er því eftir,“ sagði
Hervar Gunnarsson, fyrsti vara-
forseti ASÍ.
-grh
Hlutfall opinberra starfsmanna hæst á
höfuðborgarsvæðinu:
Þriðji hver vinnur
hjá því opinbera
Tæplega þríðji hver maður á vinnumarkaðinum á höfuðborgar-
svæðinu starfar hjá opinbemm aðilum, ríkinu eöa sveitarfölögum.
Þetta hlutfall er hvergi hærra á landinu en á höfuðborgarsvæðinu.
Næsthæst er þetta hlutfall á Fljótsdalshéraöi, en þar starfa 29%
mannaflans hjá opinbemm aðilum.
Það þarf ekki að koma neinum á 30%. Fjölgunin varð álíka mikil á
óvart að flestir starfi hjá ríki og sveit-
arfélögum á höfuðborgarsvæðinu, en
það kemur kannski á óvart að hlutfall-
ið skuli vera svona hátt. Þetta hlutfall
er hins vegar enn hærra á Norður-
löndunum.
Hlutfallið annars staðar á Iands-
byggðinni fer óvíða niður fyrir 20%.
Lægst er það í Skaftafellssýslu, 15%.
Hlutfallið er 17% í Dalasýslu, N-Þing-
evjarsýslu og á Suðumesjum.
Arsverkum í opinberri þjónustu fjölg-
aði um 2.000 á síðasta áratug eða um
landsbyggðinni og á höfuðborgar-
svæðinu. Sú aukning á opinberri þjón-
ustu sem varð á árunum 1985-1990
varð langmest í uppbyggingu fram-
haldsskóla, en þeir voru flestir byggðir
á höfuðborgarsvæðinu. Á fyrri hluta
áttunda áratugarins varð mestur vöxt-
ur í uppbyggingu heilsugæslustöðva.
Þessar upplýsingar koma fram í nýrri
byggðaáætlun Byggðastofnunar sem
lögð hefur verið fyrir ríkisstjómina.
Frá áætluninni er sagt í frétt í Tíman-
um á blaðsíðu 3. -EÓ
Gert klárt á úthafsrækju Garflar Þorgllsson var að gera Pétur Jónsson RE klðrann
tll veifla ð úthafsrækju I gær þegar Ijósmyndari Tlmans ðttl lelfl um Reykjavlkurhöfn. Timamynd Aml Bjama
wm
Ríkisstjómin hefur ákveðið að auka útgjöld ríksins um röskan
einn miljarð króna til atvinnuskapandi aðgerða, elnkum á svlði
flárfestingar og viðhalds, frá þvf sem áöur hafði veríð ákveðið
og verður heimilda aflað til þessa f fjáraukalögum f hausL Þessl
ákvörðun ríkisstjómar er f samræmi viö yfiríýsingu hennar sem
gerö var f tengslum við gerð kjarasamninganna frá þvf f vor.
Þetta mun fela f sér aö heildarútgjöld ríkissjóðs vegna flárfest-
Ingar og viðhalds á árínu 1993 verða um 17 miljarðar króna eða
þremur miljöröum króna meiri en f fyrra.
Við val á nýjum verkefnum
verður einkum lögð áhersla á
brýn viðhaldsverkefhi á hús-
eignum ríkisins og flýta fram-
kvæmdum við verk sem þegar
eru hafin og eru vinnuaflsfrek.
Auk þess mun ríkisstjórnin afla
heimilda fyrir sérstöku 60
miljón króna framlagi til at-
vinnumála kvenna og 20 miljón-
um króna til viðbótar til að efla
heimils- og listiðnað.
Reiknað er með að þessar að-
gerðir rfkisvaldsins geti skapað
allt að 300-400 ný ársverk. Ef
með eru talin hin ýmsu átaks-
verkefhi sem ráðist hefúr verið í
samvinnu sveitarfélaga og At-
Útlit fyrir yfir tveggja milljarða halla á rekstri Landsvirkjunar:
Landsvirkjun hækkar
gjaldskrána um 6%
Stjóm Landsvirkjunar hefur ákveöið að höföu samráði við Þjóð-
hagsstofnun að hækka heildsölugjaldskrá fyrírtækisins um 6% frá
og með 1. ágúst næstkomandi. Ástæðan fyrír hækkuninni er gífur-
legt tap Landsvirkjunar sem orsakast af gengisfellingunni á dög-
unum og óhagstæðrí gengisþróun eríendra gjaldmiðla. Ekki er
Ijóst á þessu stigi hvaða áhríf þessi hækkun hefur á gjaldskrá al-
menningsrafveitna, en Rafmagnsveitur ríkisins áformuðu aö
lækka gjaldskrá sína um 5% þann 1. október.
Við gengisfellinguna 28% júní síðast-
liðinn hækkuðu skuldir Landsvirkj-
unar um 3.500 milljónir króna. Þetta
er til viðbótar við 1.500 milljóna
skuldahækkun sem varð á fyrstu sex
mánuðum ársins vegna óhagstæðrar
gengisþróunar. Samkvæmt sex mán-
aða uppgjöri er rekstrarhalli Lands-
virkjunar á fyrri helmingi ársins 1.500
milljónir. Áætlað er að hallinn á árinu
öllu geti orðið um 2.100 milljónir.
Stjóm Landsvirkjunar telur að
bregðast verði við þessari stöðu og
leggur því til að gjaldskrá fyrirtækis-
ins verði hækkuð um 6%. Hækkunin
dugar þó hvergi nærri til að vinna um
tapið sem fyrirtækið varð fyrir vegna
gengisfellingarinnar. -EÓ