Tíminn - 17.07.1993, Blaðsíða 11

Tíminn - 17.07.1993, Blaðsíða 11
Laugardagur 17. Júlí 1993 Tíminn 23 Síðasta embættis- verk lögfræðingsins Miðvikudagsmorguninn 1. júlí 1992 hófust störf með hefðbundnum hætti í dóms- húsinu í Fort Worth, Texas. í húsinu er starfræktur sérstakur áfrýjunardómstóll og er með öðrum orðum einungis tekið á málum á síðari dómsstigum. Þetta var síð- asti dagurinn fýrír sumarfrí og starfsmenn hlökkuðu til þess með óþreyju. í réttar- salnum sátu 3 dómarar við réttarpúlt og hlýddu á hefðbundið áfrýjunarmál. Fyrir framan þá stóð sækjandinn í málinu og flutti ræðu sína. Þau mál, sem tekin eru fyrir í dómshúsinu, eru alltaf á efri dóms- stigum og því verða sjaldan uppþot eða róstur í réttarsalnum. Það er að- allega við fyrstu réttarhöld sem geð- sveiflur bera einstaka aðila ofurliði þannig að vandamál geti skapast. 100 ára saga hússins hafði verið frið- sæl, aldrei hafði komið til neinna vandræða og því var öryggisgæsla í lágmarki og engir starfsmenn ráðn- ir sérstaklega til að sinna öryggi starfsmanna. Yfirdómari þennan dag var Chris Marshall, sem sat í miðið með Alfred Sanford á hægri hönd og Carl Bellows á þá vinstri. Um tugur sækjenda sat frammi í sal og biðu þeir eftir að mál þeirra yrðu kölluð upp. Skipulögö aftaka Rétt eftir kl. 10 gekk lágvaxinn maður í svörtum jakkafötum inn í dómssalinn. Hann var í hvítri skyrtu með rauða þverslaufu og hélt á brúnni skjalatösku og svörtum skó- poka. Hann settist niður á meðal lögfræðinganna og enginn virtist gefa honum sérstakan gaum. Svo virtist sem hann væri í sömu stöðu og aðrir lögfræðingar við hlið hans, að hann biði eftir því að hans mál yrði tekið fyrir. Þannig sat hann í nokkrar mínútur. Skyndilega stóð hann upp og lyfti upp skammbyssu, beindi henni í átt að dómurunum þremur og hóf skot- hríð. Hið virðulega andrúmsloft dóms- salarins vék fyrir skelfingaröskrum og hryllingi. „Guð minn góður, ég varð fyrir skoti," öskraði einn lögmannanna yfir salinn og hné niður. Lykt af blóði og púðurreyk fyllti salinn og enn hélt martröðin áfram. Þeir sem ekki lágu á gólfinu sáu rauðlituð leiftur koma frá einu sætinu og lág- vaxni maðurinn skaut aftur og aftur úr sæti sínu. Skotmaðurinn virtist sá eini í salnum sem var fullkomlega rólegur. Einn sækjendanna skýrði frá því síðar að helst hefði litið út fyrir að maðurinn væri leigumorð- ingi að atvinnu, svo ískaldur og svipbrigðalaus var hann. Sækjandinn, sem var að halda ræð- una þegar skothríðin hófst, slapp undan kúlnaregninu með því að kasta sér samstundis niður. Chris Marshall dómari var ekki eins hepp- inn. Hann hné niður særður með fossandi blóðið úr nösum og munni. Sanford dómara tókst að kasta sér í tíma í gólfið og varðist þannig kúlnahríðinni bak við réttarpúlt sitt. Bellows fékk skot í hægri mjöðm, en þrátt fyrir meiðslin stóð hann aftur upp og virti fyrir sér árásarmann- inn. Byssumaður og dómari horfð- ust í augu eitt sekúndubrot og þá var aftur hleypt af og Bellows fann sáran verk í kviðarholi. „Þú ert dauður, ég skal drepa þig,“ kallaði byssumaðurinn. Ný von kviknaði hjá fólkinu í rétt- arsalnun þegar skothríðin hætti og daufúr smellur heyrðist í þrígang sem táknaði að skotgeymir byss- unnar væri tómur. Þær vonir urðu þó að engu, þar sem skotmaðurinn fór leiftursnöggt niður í vasa sinn, náði í nýjan hlaðinn skotgeymi og hóf aftur skothríðina. Einhverjir náðu samt að sleppa út úr lokuðum réttarsalnum á meðan. Lögmaður að nafni Edwards ákvað að læðast inn í hliðarsal og þar gerði hann til- raun til að hringja á lögreglu. Hann Dómshusiö I Fort Worth - :"'***&*+, - - •%. náði aldrei að velja númerið, því skyndilega horfðist hann í augu við skotmanninn sem skaut Edwards sex skotum í magann og lést hann samstundis. Þar með yfirgaf byssu- maðurinn vettvang án þess að nokk- ur þyrði, af eðlilegum ástæðum, að reyna að hefta för hans. 17 byssukúlur Þegar lögreglan kom á staðinn lágu tveir í valnum og þrír voru særðir, þar af einn lífshættulega. Leitað var að vitnum sem hefðu séð andlit morðingjans greinilega og gáfu all- margir starfsmenn dómshússins sig fram. Meðal annars hafði ritari séð til morðingjans þegar hann yfirgaf vettvang og minntist hún sérstak- lega á hversu rólegur maðurinn hefði verið. Hann hafði gengið löt- urhægt, með bros á vör og engum hefði getað dottið í hug að maður- inn hefði nýlokið við að fremja því- líkan glæp. Lögreglan fann sautján 9 mm byssukúlur úr sjálfvirkri skamm- byssu í dómshúsinu. Á sama tíma og vettvangur glæpsins var rannsakað- ur í þaula, hófst ítarleg leit að morð- ingjanum. Gefin var út tilkynning til alls mannafla lögreglunnar í ná- grenninu, ásamt ítarlegri útlitslýs- ingu. Þar sem maðurinn var vopn- aður var hann álitinn stórhættuleg- ur og lögreglumönnum var skipað að taka ekki neina áhættu ef til hans sæist. Þyrlur sveimuðu yfir borg- inni, tugir lögreglubfla óku um, en dagurinn leið án þess að nokkuð fyndist annað en fatapinkill í ná- grenni dómshússins. Alitið var að morðinginn hefði strax haft fata- skipti eftir verknaðinn til að villa um fyrir þeim sem Ieituðu hans. Ákveöin skot- mörk Því var strax slegið föstu að byssu- maðurinn hefði haft ákveðna ástæðu fyrir morðunum. Tálið var að aðalskotmarkið hefði verið dóm- aramir þrír, þótt honum tækist að- eins að drepa einn þeirra, Marshall. John Edwards lét llfiö er hann reyndi aö hringja á lögregluna. Hann hafði ýmist hæft aðra í dóms- húsinu af slysni ellegar til að verja eigið öryggi. I ljósi þessa var bakgrunnur dóm- aranna þriggja skoðaður. Chris Marshall var einn af virtustu lög- mönnum ríkisins. Ekki var vitað til að hann ætti neina óvini, en hann hafði dæmt í ótölulegum fjölda mála og hafði á sér orð fyrir að vera rétt- sýnn en strangur dómari. John Edwards, sem látist hafði í árásinni, var ungur lögmaður, að- eins 33ja ára gamall. Hann hafði ný- lega hafið störf í dómshúsinu, var fjölskyldumaður og átti tvö ung böm. Talið var að hann hefði verið skotinn fyrir slysni og ástæða morð- anna væri algerlega honum óvið- komandi. Svipaða sögu var að segja um Sanford. Hann var nýlega búinn að forframast í dómarastöðu áfrýjunar- dómstólsins og ekki var hægt að tengja fortíð hans á neinn hátt við glæpinn. Bellows var 69 ára gamall og löngu kominn með rétt til að draga sig í hlé. Hann var hins vegar vinnu- þjarkur og ef eitthvað var þótti vinnuharka hans stundum keyra úr hófi fram. Hann hafði oft orðið fyrir gagnrýni í þýðingarmeiri málum, en það er óhjákvæmilegur fylgifiskur þess sem tekur stórar ákvarðanir. Tálið var líklegast að morðinginn teldi sig hafa harma að hefna gagn- vart Bellows. Þrátt fyrir tvö skotsár var Bellows ekki mjög illa særður. Leit aö lögfræöingi Þegar leið á kvöldið vom yfirvöld búin að fá grunsemdir um hver morðinginn væri. Vitni höfðu borið kennsl á hann af myndum og reynd- ist hann heita George Douglas Lott, 45 ára gamall fyrrum lögmaður. Hann var þekktur fyrir að vera ein- staklega bitur út í kerfið eftir að hann hafði lent í skilnaðarmáli við fyrrum eiginkonu sína fyrir mörg- um árum. Dómarinn í því máli hafði verið sá sami og sat í réttarpúltinu í Fort Worth dómshúsinu fyrr um morguninn, nefnilega Carl Bellows. Hann hafði misst lögmannsréttind- in eftir að dæmt hafði verið í máli þar sem konan hans ásakaði hann um kynferðislega misnotkun á ung- um syni þeirra og krafðist skilnaðar í kjölfarið. Hann hafði svarið að hefna sín á kerfinu og hafði nefnt nafn Bellows ítrekað í því sambandi. Kærurnar, sem konan lagði fram á hendur honum, voru mjög alvarleg- ar. Hann átti að hafa hótað syni sín- um með hnífi og byssu og m.a.s. hleypt skotum af upp í loftið í ein- staka tilfellum með þessum orðum: „Þú veist hvað kemur fyrir mömmu þína ef þú segir henni frá litlu leynd- armálunum okkar." Það þótti ekki einungis sannað fyr- ir dómstólum að Lott hefði misnot- að son sinn kynferðislega, heldur báru ummerki á líkama drengsins merki um sadískar tilhneigingar föðurins, þar sem Lott hafði brennt hann á höndum og fótum og bundið með snæri. Lott varði sig sjálfur í réttarsal og reyndi hvað hann gat til að bera af sér sakimar. Eigi að síður var hann George Lott fannst embættisverkum slnum ekki lokiö, þrátt fyrir aö búiö væri að svipta hann lögmannsrétt- indunum. dæmdur sekur, til sviptingar for- ræðis, meinaður umgengnisréttur við soninn og í 18 mánaða fangelsi. Játning í beinni útsendingu Á sama tíma og lögreglan lýsti eftir Lott, gekk maður inn í húsakynni Stöðvar 8 í Dallas sem er skammt frá Fort Worth. Hann kynnti sig fyr- ir móttökuritara sjónvarpsstöðvar- innar. „Ég er maðurinn sem skaut lögmennina í dómshúsinu." Ritaranum tókst að halda ró sinni og bað hann að skrifa sig inn. Hann gerði það, G. Lott Hinn eftirlýsti morðingi vildi fá að hitta fréttastjóra stöðvarinnar og var það leyft Rétt áður en frétta- stjórinn tók á móti honum, var haft samband við lögregluna. Síðan byrj- aði fréttastjórinn að spjalla við Lott um ástæður þess að hann hefði framið þennan glæp. Hann sagði að kerfið hefði farið illa með sig og sérstaklega hvað varðaði son hans. Þar sem dómskerfið hefði brugðist, kerfi sem hann hafði sjálf- ur tekið þátt í að starfa við og byggja upp, hafði honum fúndist rétt að vekja athygli á málstað sínum. ,J4aður verður að framkvæma ljóta verknaði til að fá fólk til að taka eftir sér,“ sagði Lott. Fréttastjóranum og starfsliði hans brá í brún, þegar Lott dró skammbyssu upp úr brjóstvas- anum og fálmaði eftir skotfærum sem hann geymdi í sokknum. „Þú þarft ekki að vera hræddur við mig, ég er bara að sýna þér áhaldið sem ég notaði," sagði Lott og brosti. Hann féllst á að fréttastjórinn geymdi vopnið og skömmu seinna voru lögreglumenn úr víkingasveit Dallasborgar búnir að handtaka hann. Áður en lögreglan fór með Lott í handjámum frá sjónvarpsstöðinni endurtók hann játningu sína fyrir framan kvikmyndatökuvélar og hélt reyndar að hann væri í beinni út- sendingu. Hann sagðist sérstaklega hafa ætlað sér að „uppræta" Bellows, en þegar hann hóf skot- hríðina „fannst honum sem hinir væru ekkert betri". „Dauöalistinn“ Við leit í bfl hans fundust ítarleg gögn um Bellows og fleiri lögmenn. Þeir voru auðsjáanlega allmargir á „dauðalistanum" og hann hafði afl- að sér gífurlegs magns af skotfærum eða rétt um 700 skot. Ekki var ljóst hvað olli því að hann gaf sig fram og lét staðar numið. Forsaga Lotts var ljót allt frá því að unglingsárunum sleppti. Hann hafði verið rekinn úr hemum eftir að hafa hótað yfirforingja sínum. Þá kynntist hann konu sem hann bjó með um skeið, en hún skildi við hann eftir 6 mánaða sambúð og sak- aði hann um barsmíðar og óeðli og meðal annars um að hafa valdið því að hún missti fóstur. Síðan virtist rofa til er hann ákvað að læra lög- fræði og næstu ár á eftir voru tíð- indalítil. En eftir að hann kynntist eiginkonu sinni og eignaðist bam, missti hann aftur stjóm á sér.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.