Tíminn - 12.10.1993, Qupperneq 2
8 Tíminn
Þriðjudagur 12. október 1993
Þriðjudagur 12. október 1993
Tíminn 9
Grindvíkingar byrjuðu íslandsmótið af krafti og unnu Hauka 69-83 á útivelli:
Grmdavík í léttum dansi
URSLIT
Körfuknattleikur —
1. deild kvenna:
KR-KeflavCk —64-59 (33-26)
Stig KR: Helga Þorvaldsdóttir 24,
Guðbjörg Norðfjörö 13, Kristín
Jónsdóttir 12, Eva Havlikova 7,
Hildur Þorsteinsdóttir 4, Anna
Gunnarsdóttir 4.
Stig ÍBK: Hanna Kjartansdóttir
26, Anna M. Sveinsdóttir 16,
Björg Hafsteinsdóttír 8, Guðlaug
Sveinsdóttir 4, Olga Færseth 3,
Elínborg Herbertsdóttir 2.
UMFT-Valur
Grindavík-ÍS
UMFT-Valur
70-61
51-41
56-66
1. delid karia
Þór-Léttir.................100-72
Höttur-Leiknir R..........81-53
Þór-Léttir............. 149-52
Höttur-Leiknir R..........76-61
ÍR-ReynirS. .90-38
Biak — Kariar
HK-Þróttur R.,
(15-2,16-14......
ÍS-Þróttur N.....
ÍS-Þróttur N.
....3-0
.15-3)
....3-0
....3-0
Konur
HK-Víkmgur •...................2-3
(13-15, 15-13, 15-13, 9-15, 6-
15)
Handknattieikur —
2. deild karia
UBK-Völsungur ..........28-26
ÍBK-Völsungur...........23-32
Fram-ÍH.................17-24
Fjölnir-HK ..
Fyikir-Grótta
,20-26
...23-30
Staðan
UBK..........321076-675
Grótta ......2 2 0 0 59-43 4
HK...........2 2 0 0 50-394
ÍH...........2110 44-37 3
...3 1 0 2 77-75 2
,.2 1 0 1 49-54 2
..21 0 1 46-51 2
,.2 0 0 2 43-51 0
..2 0 0 2 47-58 0
,.2 0 0 2 37-53 0
Völsungur
Fylkir.....
Ármann...
Fjölnhr
Keflavík...
Fram
— skoruðu 14 þriggja stiga körfur
Grindvíkingar sóttu tvö mikilvæg
stig til Hafnarfjarðar á sunnudag-
inn, þegar þeir sigruðu Hauka
mjög örugglega 69-83 og var
aldrei spurning um hvar sigurinn
myndi Ienda. Munurinn á leik lið-
anna lá helst í vamarieiknum og
þriggja stiga skotum, en á báðum
þessum vígstöðvum höfðu Grind-
vfldngar mikla yfirfourði. Staðan í
hálfleik var 29- 44 fyrir Grindavík
og var þetta án efa einn besti hálf-
leikur sem þeir spila, vamarlega
séð.
Hjörtur Harðarson var að vonum
ánægður með sigurinn þegar Tím-
inn ræddi við hann eftir leikinn.
„Þetta var erfiður sigur. Við börð-
umst mikið í vöminni, en höfðum
fram að þessum leik verið frekar
slappir í vöminni í Reykjanesmót-
inu og töpuðum reyndar leikjum á
því. Vamarleikurinn var aðalmun-
urinn á liðunum, enda skomðu
Haukar aðeins 29 stig í fyrri hálf-
leik, sem er mjög lítið í meistara-
flokki. Það náttúrlega vantaði Jón
Amar hjá þeim, en hann er 20
stiga maður, og það hefur ömgg-
lega komið niður á leik þeirra."
Hjörtur var ánægður með sína
frammistöðu og nefhdi líka góðan
leik Waynes Casey. ,J4ér finnst
Casey falla vel inn í liðið hjá okkur.
Það em margir búnir að segja að
það eigi að reka hann, því hann
skorar aldrei 40-50 stig í leik, og
sú saga gengur reyndar að það eigi
að reka hann. Ég yrði mjög ósáttur
við það, því hann fellur mjög vel
inn í liðið, er einn af liðsheild-
inni,“ sagði Hjörtur Harðarson,
Tímamaður leiksins að lokum.
Haukar sökn
uðu Jón Arnars
Ingvarssonar
sárlega, en
hann var fiar-
verandi vegna
veikinda, og er
óhætt að taka
undir orð
Hjartar að hann sé 20 stiga maður,
en auk þess hefur hann þann eig-
inleika að draga til sín marga and-
stæðinga og skapa þannig færi fyr-
ir samherja sína. Haukar skomðu
þó fyrstu stigin og leiddu í örfáar
mínútur, en Grindvíkingar kom-
ust yfir 6-9 með þriggja stiga körfu
og forystuna létu þeir aldrei af
hendi eftir það. Grindavík beittu
maður á mann vöm af og til í
leiknum og gafst það þeim mjög
vel og ruglaði mjög sóknarleik
Hauka, en sóknarleikur þeirra ein-
Tíma-iiifldi/r leiksins
Hjörtur Harðarson,
UMFG. Spilaði geysilega vel og þá
helst í fyrri hálfleik. Atti nokkrar
stoðsendingar og geröi þijár
þriggja stiga körfur.
kenndist of oft af happa- og
glappaaðferðinni, sem kann ekki
góðri lukku að stýra. Haukar skor-
uðu aðeins 29 stig í fyrri hálfleik,
sem er afspymuslakur árangur.
Leikmenn Grindavíkur em góðar
3ja stiga skyttur. Það kom bersýni-
lega fram í þessum leik, enda skor-
uðu þeir fjórtán þriggja stiga kör-
fur í leiknum á meðan Haukar
gerðu átta kör-
fur, sem er þó
ekki lélegur ár-
angur. Tæplega
helmingur stiga
Grindavíkur
kom úr skotum
utan þriggja
stiga línunnar. í
fráköstunum vom Grindvíkingar
sterkari og grimmari, bæði í sókn
og vörn, en þar bar mest á þeim
Guðmundi Bragasyni og Marel
Guðlaugssyni. Grindvíkingar juku
muninn jafnt og þétt í síðari hálf-
leik og náðu þá mest 21 stigs for-
skoti, en þrátt fyrir margar 3ja
stiga körfur undir lokin tókst þeim
ekki að komast með tæmar þar
sem Grindvíkingar höfðu hælana.
Suðurnesjaliðið var einfaldlega
miklu betra að þessu sinni og má
segja að þeir hafi stigið léttan dans
í þessum leik!
Hjörtur Harðarson var maður
leikins, en auk hans stóð Wayne
Casey sig vel og skoraði m.a. fjórar
glæsilegar þriggja stiga körfur.
Guðmundur Bragason stóð sig
mjög vel í vöminni og Bergur Hin-
riksson skoraði mikilvæg stig fyrir
liðið undir lokin. Um Haukaliðið
má segja að það hafi verið jafhslakt
að þessu sinni; John Rhodes gerði
þó þokkalega hluti af og til, en
bara of sjaldan.
Gangur leiksins: 2-0, 4-4, 6-14,
14- 19,17-33,19-37,29-44- 31-44,
35- 56,46-65,49-66,59-71,61-71,
64- 74, 64-78, 69-83.
Stig Hauka: John Rhodes 20, Sig-
fús Gizurarson 13, Jón Arnar Guð-
mundsson 11, Bragi Magnússon
10, TVyggvi Jónsson 9, Pétur Ing-
varsson 6.
Stig Grindavíkun Wayne Casey
22, Hjörtur Harðarson 19, Guð-
mundur Bragason 17, Marel Guð-
laugsson 10, Bergur Hinriksson 9,
Nökkvi Már Jónsson 5.
Dómaran Helgi Bragason og
Kristinn Óskarsson. I heildina
góður leikur hjá þeim, en of marg-
ir vafasamir dómar hjá þeim.
Áhorfendun 220.
Njarðvíkingar lögðu KR-inga að velli 95-93 í Ljónagryljunni:
„Rosaleg vonbrigði
— sagði KR-ingurinn Guðni Guðnason
'M
Njarðvíkingar sigruðu KR 95-93 í
Njarðvík á sunnudagskvöld. KR-
ingar voru þremur stigum yflr, þeg-
ar aðeins 25 sekúndur voru eftir af
leiknum. Valur Ingimundarson
skoraði þá þriggja stiga körfu fyrir
Njarðvík. KR-ingar áttu svo mis-
heppnað skot og brutu síðan á Val,
sem innsiglaði sigur heimaliðsins
með tveimur bónusvítaskotum, 95-
93.
Fyrri hálfleikur var hraður og
skemmtilegur og hittu liðin vel. KR-
ingar voru sterk-
ari framan af og
höfðu forystu all-
an fyrri hálfleik-
inn, mest sextán
stig. Njarðvíking-
um tókst að jafna
undir lok fyrri
hálfleiks og var
staðan 46-46 í hálfleik. Jafnræði var
með liðunum í síðari hálfleik og
skiptust þau á um að hafa forystuna.
Þegar rúm mínúta var til leiksloka,
var staðan jöfn 88-88. KR skoraði þá
fimm stig í röð og voru með unninn
leik í höndunum. Valur Ingimund-
arson reyndist þó betri en enginn á
lokasekúndunum og skoraði þá
fimm stig, auk þess sem Ástþór
Tíma-mflÖflr leíksins
Ronday Robinson,
UMFN. Skoraði 37 stig og var gíf-
uriega sterirar í fraköstunum, náði
16 svoleiðia. FeQur vel að venju inn
í Njarðvikuriiðið.
Ingason gerði tvö stig. Njarðvíking-
ar stóðu því uppi sem sigurvegarar
en KR- ingar sátu eftir með sárt enn-
ið.
„Þetta eru rosaleg vonbrigði og al-
gjört klúður," sagði Guðni Guðna-
son, leikmaður KR, eftir leikinn.
„Þetta er besti leikur okkar til þessa
og við áttum að vinna hann, en leik-
urinn tapaðist í lokin og er hægt að
kenna reynsluleysi um.“ Valur Ingi-
mundarson, þjálfari Njarðvíkur, var
að vonum ánægður með sigurinn,
-----------------v en ekki að sama
skapi með leik-
inn. „Ég hef ver-
ið að slípa sókn-
arleikinn, en
það hefur ekki
gengið sem
skyldi. Ronday
gerði góða hluti
upp á eigin spýtur. Við eigum eftir að
gera betur, en það er góðs viti að
leika illa en vinna samt leikinn."
Bestur Njarðvíkinga var Ronday
Robinson. ísak Tómasson var einnig
góður og var mikilvægur hlekkur í
spili liðsins. Hjá KR var Davíð Griss-
om bestur, einnig voru Serbinn
Micko Nikolic og Guðni Guðnason
góðir.
Gangur leiksins: 0-4,6-6,11-17,17-
33, 36-38, 46-46- 52-51, 62-62, 67-
68, 71-76, 82-84,88-93, 95-93.
Stig UMFN: Ronday Robinson 37,
Valur Ingimundarson 18, Teitur Ör-
lygsson 12, ísak Tómasson 11, Frið-
rik Ragnarsson 7, Jóhannes Krist-
bjömsson 6, Ástþór Ingason 2, Rún-
ar Ámason 2.
Stig KR: Davíð Grissom 27, Micko
Nikolic 26, Guðni Guðnason 21,
Lárus Ámason 8, Ólafur Ormsson 6,
Hermann Hauksson 5.
Dómaran Leifur Garðarsson og
Kristinn Albertsson og dæmdu þeir
vel.
Guðmundur Bragason, þjálfari og leikmaður Grindavíkur, leiddi liö sitt til sigurs gegn Haukum á sunnudaginn, 69-83. Á
myndlnni er Guðmundur að skora tvö af 17 stigum sínum í leiknum, en Tryggvi Jónsson kemur engum vömum við.
Tlmamynd Pjetur
Skallagrímur byrjar vel með sigri á IBK:
Meistaramir lagðir
Knattspyrna:
Snoni tekur við IBV
Vestmannaeyingurinn Snorri Rútsson var um helgina ráðinn þjálfari
meistaraflokks IBV í knattspymu. Hann tekur við af Jóhannesi Atlasyni.
Snorri hefur lengi verið viðloðandi þjálfun og hefur m.a. þjálfað yngri
flokka ÍBV undanfarið. Þá hefur Snorri þjálfað Einherja frá Vopnafirði og
Reyni í Sandgerði, en hann hefúr aldrei þjálfað lið í 1. deild áður. Allt lít-
ur út fyrir að enginn yfirgefi herbúðir ÍBV, þar sem samningar hafa náðst
við flesta leikmenn liðsins. Þó er eftir að ganga frá samningi við Anton
Bjöm Markússon og Bjama Sveinbjömsson, en þeir komu báðir til Vest-
mannaeyja fyrir síðasta tímabil.
íslandsmeistarar Keflvfkinga lágu í sín-
um fyrsta leik á íslandsmótinu í körfu-
knattieik. Það var Skallagrímur úr Borg-
arnesi, sem Iagði ÍBK að velli á heima-
velli sínum 87-85 eftir æsilegar loka-
mínútur.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálf-
leik, en ÍBK hafði þó yfirleitt nokkurra
stiga forskot. Skallagrímur átti þó góðan
lokakafla í fyrri hálfleik og komst yfir 48-
47 áður en flautað var til leikhlés.
Skallagrímur hélt forystunni í seinni
hálfleik, en vom nærri búnir að missa
hana undir lok leiksins, þegar Alex Ermo-
linskíj meiddist og Birgir Mikaelsson fékk
sína fimmtu villu. Kristinn Friðriksson
fékk gullið tækifæri til að jafna þegar
nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum f
stöðunni 87-85, en brást bogalistin í víta-
skotum, sem ekki er algengt hjá Kristni,
enda þar á ferðinni ein af ömggari víta-
skyttum Úrvalsdeildarinnar. Sigur Skalla-
grims var því staðreynd.
Henning Henningsson og Elvar Þórólfs-
son vom bestu menn Skallagríms, en Al-
bert Óskarsson stóð upp úr jöfnu liði
meistaranna.
Gangur leiksins: 0-2, 4-7, 13-14, 30-29,
41-43,48-47-, 50-47,69-67,78-72,87-83,
87-85.
Stig UMFS: Henning Henningsson 23,
Gunnar Þorsteinsson 18, Alexander
Ermolinskíj 14, Elvar Þórólfsson 13,
Birgir Mikaelsson 11, Bjarki Þorsteinsson
5, Ari Gunnarsson 3.
Stíg ÍBK: Jonathan Bow 17, Albert Ósk-
arsson 16, Kristinn Friðriksson 16, Guð-
jón Skúlason 13, Jón Kr. Gíslason 7, Sig-
urður Ingimundarson 7, Brynjar Harðar-
son 6, Böðvar Kristinsson 3.
Áhorfendun 450 — troðfullt hús.
Snæfell vann Val í fyrsta leik íslandsmótsins: Bárður Eyþórsson,
„Enginn stórleikur,
en sigur samt“
Það voru Vesturiandsmeistararnir úr
Stykkishólmi, Snæfell, sem fóru með
bæði stigin úr Valsheimilinu á laug-
ardag, eftir að hafa sigrað þar ný-
kiýnda Reykjavfkurmeistara Vals
nokkuð örugglega með tíu stiga mun
89-99. Ekki amaleg byijun fyrir
Kristin Einarsson, þjálfara Snæfells.
„Það var fyrst og fremst mikil og góð
barátta sem skóp sigur liðsins. Þetta
var sigur liðsheildarinnar, þar sem all-
ir lögðust á eitt um að standa sig vel.
Þetta var þó enginn stórleikur af okk-
ar hálfu, en sigur samt. Valsmenn
sakna náttúrlega Magnúsar Matthías-
sonar mikið frá því í fyrra, en aftur á
móti virðist það vera að við höfúm tak
á Val, þar sem sigur hefur unnist í síð-
ustu fjórum leikjum gegn þeirn,"
sagði Tímamaður Ieiksins, Bárður Ey-
þórsson, eftir leikinn.
Upphafsmínútur fyrri hálfleiks voru
algerlega eign Snæfells. Þeir skoruðu
fyrstu sex stigin og stóðu sig vel í vöm
og sókn. Valsmenn komust yfir 15-14
á 7. mínútu leiksins með körfu Brynj-
ars Karls Sigurðssonar og eftir það
skiptust liðin á um að hafa forystu, en
góður endasprettur gestanna tryggði
þeim góða forystu í leikhléi.
Snæfell jók jafnt og þétt forskot sitt í
síðari hálfleik, þrátt fýrir að Chip Ent-
wistle þurfti að hvíla í níu mínútur,
þar sem hann var kominn með fjórar
mínútur. Hjörtur Sigurþórsson kom í
staðinn fyrir hann og stóð sig með
ágætum og skilaði hlutverki sínu vel.
Snæfell náði mestu forskoti sínu þeg-
ar átta mínútur vom eftir, en það var
20 stig. Valsmenn áttu góðan enda-
sprett, þeim tókst í tvígang að minnka
muninn í sex stig og skipti þar miklu
máli sterk pressuvöm þeirra, en enda-
sprettur þessi
kom bara of seint
„Við vomm ekki
nægilega undir-
búnir fyrir þenn-
an leik, úrslitin
sýna það. Vamar-
leikurinn klikk-
aði hjá okkur og v—--------------——
þeir náðu alltof mörgum fráköstum.
Ég held líka að við höfúm verið svolít-
ið sigurvissir. En það er nógur tími til
að bæta leik okkar,“ sagði fyrirliði
Vals, Ragnar Jónsson.
Snæfell hefur á að skipa nokkuð
jöfnu liði og liðsheildin var það sem
gerði gæfúmuninn hjá þeim. Bárður
var bestur og Kristinn kom honum
næstur. Hjá Val var Ragnar Jónsson
bestur og átti hann hreint frábæran
seinni hálfleik. Franc Booker var
sæmilegur, en Valsliðið þarf að treysta
of mikið á hann svo vel gangi, og í
Tíma-mflðnr leiksins
Bárður Eyþórsson.
Mjög mikifvægur fyrir Snæfeilinga
og án hans var liðlð ekki netna svip-
ur hjá sjón. Skoraði 30 stig og átti
Qölda stoðsendinga.
þessum leik brenndi hann af mörgum
skotum, þar af öllum sínum vítaskot-
um í fyrri hálfleik, sem er mjög sjald-
gæft
Gangur leiksins: 0-6, 7-12,15-14, 19-
20,26-22,38-39,40-43,42-49-
42-51,49-56,53-65,55-75,63-78,67-
84,83-88, 86-91,89-95,89-99.
Stig Vals: Franc Booker 28, Ragnar
Jónsson 24, Matthías Matthíasson 12,
Brynjar Sigurðs-
Evrópuknattspyrnan:
Frankfurt
langefst
Það virðist sem svo að Frankfurt
ætli að stinga af í þýsku úrvalsdeild-
inni í knattspymu. Um helgina sigr-
aði liðið nýliðana Leipzig, 2-1, og sá
pólski landsliðsmaðurinn Jan Furt-
ok um að gera bæði möridn og kom
seinna markið á 87. mínútu. Sigur-
inn var þó ekki öruggur og hefði
Leipzig átt skilið í það minnsta ann-
að stigið. Frankfurt hefur nú eldd
tapað leik í deildinni og er það jöfn-
un á meti Bayera Munchen frá
1980-1981.
Eyjólfur Sverrisson átti ágætan leik
með Stuttgart en þrátt fyrir það beið
liðið afhroð gegn Kaiserslautem, 0-5
á útivelli. Stefan Kuntz skoraði
þrennu í leiknum en hin mörkin
gerðu Svíinn Jan Eriksson og Marc-
us Marin.
í Skotlandi náði Celtic loks að sigra
eftir lélegustu byrjun í 105 ára sögu
félagsins. Celtic vann Dundee, 2-1.
Gerry Creaney og Pat McGinlay
gerðu mörk Celtic. Fyrrum and-
stæðingar Vals í Evrópukeppninni,
Aberdeen, töpuðu fyrsta leik sínum í
deildinni á þessu tímabili fyrir Partic
3-2.
Knattspyma — Háttvlsi:
Hallsteinn og Gunnar prúðastir
KSf og VISA ísland afhentu í gær þeim ilðum og þeim
leíkmönnum viðurkennJngu, sem sýnt hafa framúrskar-
andi prúðan og drengifegan leik í 7.-12. umferð og 13.-18.
umferð Getraunadeildarinnar og 7.-10. og 11.-12. umferð
1. deildar kvenna.
Prúðasti feikmaður Getraunadeifdarinnar í 7.-12. umferð
var kjörinn Hallsteinn Amarson úr FH og prúðasta liðið var
FH. Keflvíkingurirm Gunnar Oddsson var prúðastur í 13.-
18. umferð, en Fram var kjörið prúðasta fiðið í þeim um-
ferðum. í fyrstu deild kvenna var Guðný Guðnadóttir úr
Stjörnunni prúðust í 7.-10. umferð, en Arney Magnúsdóttir
úr Val f 11.-12. umferð. f sömu umferðum í kvennaflokki
var Þróttur Nes. kosið prúðasta liðið í báðum tifvikum.
í háttvísinefhd KSÍ em Ágúst I. Jónsson formaður, Brynja
Guðjónsdóttir, Tómas Kristinsson, Víðir Sigurðsson og
Steinþór Guðbjartsson.
Þýskaland
Karlsmhe-Leverkusen.....2-0
Numberg-Dresden.........3-0
Werder Bremen-Dortmund 4-0
Frankfúrt-Leipzig.......2-1
Gladbach-Duisburg.......4-1
Köln-Bayem Múnchen......0-4
HSV-Wattenscheid........2-1
Schalke-Freiburg........1-3
Kaiserslautern-Stuttgart ...5-0
Staðan
Frankfurt....119 2 0 30-10 20
W. Bremen....11 7 3 1 24-12 17
Hamburg.....11 713 22-16 15
B.Múnchen ...1154 2 28-1214
Kaisersl.....11 62 324-15 14
Duisburg.....114 6 119-1414
BayerLeverk. .1153 3 21-17 13
B. Dortmund ..1143 417-1711
Karlsruhe....1134413-15 10
Köln ........1142 511-1410
Gladbach.....1133 5 18-22 9
Stuttgart....112 5416-24 9
D. Dresden .....11 3 3 5 13-23 9
Númberg......113 2 6 13-24 8
Freiburg.....112 3 620-25 7
Leipzig......11 15 5 10-20 7
Wattenscheid .11 14 613-20 6
Schalke......11 137 9-21 5
Markahæstin Stefan Kuntz Ka-
iserslautem 10, Anthony Ye-
boah Frankfurt 9 og Sergio
Zarate Númberg 9.
son 9, Örvar Er-
lendsson 6, Guðni
Hafsteinsson 4,
Guðmundur Guð-
jónsson 3, Bergur
Emilsson 3.
Stig Snæfells:
----------------' Bárður Eyþórsson
30, Kristinn Einarsson 28, Chip Ent-
wistle 21, Hjörtur Sigurþórsson 8,
Hreiðar Hreiðarsson 8, Sverrir Sverr-
isson 4.
Dómaran Ámi Freyr Sigurlaugsson
og Héðinn Gunnarsson. Dæmdu af
miklu öryggi og stigu vart feilspor.
Áhorfendun Um 200.
EvRópu; ^ v
í Svíþjóð gekk íslendingunum vel.
Bæði Amór Guðjohnsen og Hlynur
Stefánsson skomðu fyrir lið sín.
England — 1. deild
Bamsley-Charlton Derby-Luton 0-1 2-1
Grimsby-Southend 4-0
Millwall-WBA 2-1
Notts C.-Bristol C 2-0
Peterboro-Portsmouth 2-2
Sunderland-Birmingham . 1-0
TVanmere-Bolton 2-1
Leicester-Crystal Palace fr.
Wolves-Forest fr.
Oxford-Stoke 1-0
Watford-Middlesboro 2-0
Staða efstu liða:
Tranmere......11 72 2 17-1123
C. Palace......9 6 2 120-7 20
Charlton ......11 55 1 13-9 20
Leicester......9 6 12 16-9 19
Middlesboro...10 5 3 2 19-11 18
Derby.........10 5 2 3 17-15 17
Grimsby.......113 7 119-14 16
Millwall......1043311-13 15
Southend......10 4 2 4 15-14 14
Bristol C.....1142 512-1414
Notts C........9 4 14 15-14 13
Wolves .......103 3415-1412
Skotland
Celtic-Dundee.........
Dundee Utd-Rangers....
Hearts-St. Johnstone..
Motherwell-Hibemian ....
Partick-Aberdeen .....
Raith-Kilmamock.......
Staðan
Hibemian ......11 6 3 2
Aberdeen.......114 52
Kilmamock......1145 2
Motherwell ....11 5 3 3
Rangers........11443
Celtic.........113 5 3
StJohnstone ....11353
DundeeUtd .....112 72
Hearts.........11 4 3 4
Partick........11344
Raith..........111 5 5
Dundee ........1113 7
17-9 15
13-8 13
11- 8 13
13- 11 13
14- 13 12
12- 10 11
13-14 11
9-11 11
7-9 11
16-16 10
13-23 7
9-15 5
Svíþjóð
Degerfoss-Frölunda ........3-0
Öster-Halmstad.............2-3
Norrköping-Gautaborg.......0-0
Brage-Helsingborg..........2-3
Örgryte-Trelleborg.........2-3
Malmö-Örebro...............1-1
Hacken-AIK.................5-2
Gautaborg er efst með 55 stig og svo
kemur Norrköping með 53, en tvær
umferðir eru eftir. Neðst eru Deger-
foss með 20 stig, örgryte með 18 og
Brage er neðst með 15 stig.