Tíminn - 02.11.1993, Page 9
Þriðjudagur 2. nóvember 1993
Tíminn 13
Frú samlestri i Evu Lunu.
Jólaverkefni Leikfélags Reykjavíkun
Eva Luna efftir Isabel Allende
Æfingar eru nú hafnar á jólaverkefni Leikfélags Reykjavíkur, Evu Lunu, leikriti með
söngvum. Frumsýning verður á stóra sviði Borgarleikhússins milli jóla og nýárs. Þetta
verður viðamesta sýning leikársins og í henni taka þátt á fjórða tug leikara, dansara og
hljóðfæraleikara.
Höfundar leikritsins, sem unnið er upp úr skáldsögu Isabel Allende, eru þeir Kjartan
Ragnarsson og Óskar Jónasson. Tónlistina semur Egill Ólafsson, en útsetningar eru
eftir Ríkarð Öm Pálsson, sjö hljóðfæraleikarar annast undirleikinn. Óskar Jónasson
gerir leikmynd, en búningagerð verður í höndum Guðrúnar S. Haraldsdóttur og Þór-
unnar E. Sveinsdóttur; alls munu um 250 búningar verða í sýningunni. Lýsingu hann-
ar Lárus Bjömsson, en hreyfingar og dansa semur Mikhaela von GeggenifeldL Hljóm-
sveitarstjóri í sýningunni er Ami Scheving. Aragrúi hlutverka er í verkinu og fara
margir leikarar með fleiri en eitt hlutverk. Titilhlutverkið er í höndum Sólveigar Am-
ardóttur, en í öðmm aðalhlutverkum em þau Edda Heiðrún Backman, Þór Tulinius,
EHert Ingimundarson, Egill Ólafsson og Pétur Einarsson. Kjartan Ragnarsson setur
Evu Lunu á svið.
Skáldsaga Isabel Allende var gefin út í íslenskri þýðingu Tómasar R. Einarssonar árið
1989 og hefur síðan komið út í fjölda prentana á íslensku. Bækur hennar hafa reynst
einstaklega vinsælar meðal fslenskra lesenda, en alls hafa fjögur af verkum hennar
komið út á íslandi. Nýlega var Hús andanna kvikmynduð og á liðnu sumri var sú saga
leikgerð fyrir enskt leiksvið. Fátítt er að Isabel heimili sviðsgerðir af sögum sínum og
er það mikill heiður fyrir Leikfélag Reykjavíkur að hún skuli hafa heimilað þessa leik-
gerð.
Eva Luna er kynblendingur og alin upp á trúboðsstöð. Hún missir ung móður sína og
er komið fyrir í visL Sagan rekur síðan hrakninga hennar um samfélag í Suður-Amer-
íku og kynni hennar af ógleymanlegu fólki af háum stigum og iágum og kostulegum
uppátækjum þess. Allstaðar skín hlýleg kímni í gegnum frásögnina, náttúran blómstr-
ar þótt hún sé barin með lurk og Isabel kann að semja sögu sem heldur áhorfandanum
í spennu uns yfir lýkur.
Kjartan Ragnarsson og félagar hafa unnið að undirbúningi Evu Lunu í hartnær ár og
væntir Leikfélagið að þessi litríka og spennandi saga öðlist langlífi á sviði Borgarleik-
hússins á nýju ári.
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Leshópur um Sturlungu kl. 17 í dag í
Risinu. Sigvaldi stjómar þriðjudags-
hópnum kl. 20 f kvöld.
Kvenfélag Bessasta&ahrepps
heldur fund kl. 20.30 í kvöld í íþrótta-
húsinu. Fyrirlestur, græna fjölskyldan,
kaffiveitingar.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30
á kirkjuloftinu. Kynntar verða vörur ffá
Klassý og kaffi drukkið.
Afmælis- og
minningar-
greinar
Þeim, sem óska
birtingar á afmælis-
og/eða minningar-
greinum í blaðinu, er
bent á, að þær þurfa að
berast a.m.k. tveimur
dögum fyrir
birtingardag.
Þœr þurfa að vera
vélritaðar.
Opinn fundur um ffamboðsmál:
Ungt fólk krefst árangurs!
Á morgun, miðvikudaginn 3. nóv., mun
verða haldinn opinn fundur með fulltrú-
um þeirra stjómmálaafla sem nú þegar
hafa boðað framboð til borgarstjómar,
gegn meirihluta Sjálfstæðisflokksins.
A fundinum verður afstaða manna til
sameiginlegs framboðs rædd og leitað
leiða til að tryggja raunverulegan árang-
ur félagshyggjuaflanna.
Til fundarins er boðað af vaxandi hópi
ungs fólks, sem að undanfömu hefur lát-
ið til sín taka í framboðsmálum til borg-
arstjómar og vinnur að sameiningu
framboða gegn Sjálfstæðisflokknum.
Ungt fólk er sérstaklega velkomið á
fundinn, en hann er opinn öllum og
hefst klukkan 20.30 á Komhlöðuloftinu,
bakhúsi veitingahússins Lækjarbrekku
við Bankastræti.
Byttingarmynd Eisensteins
sýnd 7. nóvember
„Október", hin fræga kvikmynd Sergeis
Eisenstein um verkalýðsbyltinguna í
Rússlandi 1917, verður sýnd í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10, nk. sunnudag 7. nóv-
ember kl. 16. Kvikmyndin var gerð f til-
efni 10 ára afmælis byltingarinnar, byggð
á frægri bók eftir bandaríska blaðamann-
inn John Reed, „Tíu dagar sem skóku
heiminn", og frumsýnd í ársbyrjun 1928.
Þetta var þögul kvikmynd, en síðar var
hún hljóðsett og samdi þá Dimitri Sho-
stakovitsj tónlist við hana. Er myndin
sýnd í þeirri útgáfú í MÍR og með skýr-
ingum á dönsku.
Aðgangur að kvikmyndasýningum MÍR
er ókeypis og öllum heimill.
Astkær systir okkar
Málfríður Þorkelsdóttir
dvaiarheimilinu Höfða
áöur Háholti 30, Akranesi
sem lést 23i október verður jarðsungin frá Safnaöarheimilinu Vinaminni
fimmtudaginn 4. nóvember kl. 14.00. Þeir, sem vildu minnast hinnar
látnu, eru beönir aö láta dvalarheimiliö Höföa njóta þess.
Sigríður Þorkelsdóttir
Jón Þorkelsson
-----------------------------------------------------------/
Hún var vinkona
Grace Kelly
— er nú heimilislaus
Hún var ein nánasta vinkona
Grace Kelly, ein sex brúðarmeyja
þegar brúðkaup Grace og Rainiers
fursta var haldið í Mónakó 1956.
Grace skírði eldri dóttur sína í
höfuðið á henni, elstu vinkonu
sinni, Caroline. Og Grace var guð-
móðir eldri dóttur hennar.
Carolyn Scott Reybold var fræg,
falleg og dáð fyrirsæta sem birtist
reglulega á forsíðum tískublaða og
allir vildu vera með henni. Undan-
farin 20 ár hefur Carolyn Reybold
hvergi átt heima. Núna heldur hún
til í skýli fyrir heimilislausa í New
York. Hún hefur sjálf valið þennan
kost eftir að hafa orðið fyrir ýms-
um áföllum í lífinu, konan sem
virtist fá bandaríska drauminn
uppfýlltan í vöggugjöf.
Carolyn fór frá heimabæ sínum,
smábæ í Ohio, eftir að hafa unnið
verðlaun í fyrirsætukeppni, og
kom sér fyrir á hóteli fyrir ungar
konur sem voru að feta sig áfram á
framabraut. í þeim hópi var ung og
efnileg Ieikkona, Grace Kelly, og
þær urðu bestu vinkonur. Þær
Carolyn í fínum félagsskap á frumsýningu á Broadway 1954. Lengst t.v. er
maöur hennar, Malcolm Reybold, tískuhönnuöurinn Oleg Cassini sem var tm-
lofaöur Grace Kelly um skeiö, þáverandi filmstjarna og veröandi furstynja
Grace Kelly og Carolyn Scott Reybold, eftirsótt fyrirsæta og feguröardís.
v ‘
urðu nokkuð samferða á framabrautinni og sólin
skein í heiði. Carolyn giftist auglýsingaforstjóranum
Malcolm Reybold 1949. Hann var næstum 20 árum
eldri en hún, en sagði aldursmuninn ekki vera nema
12 ár. Þetta var upphafið að óheilindum hans, sem
hún átti sífellt verr með að þola og leit Ioks svo á að
hann hefði bara viljað nota sér vináttu hennar við
prinsessu. Þau skildu fyrir um 30 árum.
Dætumar í hjónabandinu urðu þrjár, en ein þeirra
fórst uppkomin í bflslysi. Þá var móðir þeirra þegar
orðin altekin trúarrugli, hafði tapað öllu sínu fé á
hlutabréfamarkaði; reyndar grunaði fjölskyldu hennar
að hún hefði gefið það útvarpstrúboðum. Heilsan
versnaði og Carolyn ákvað að hætta að búa hjá dóttur
sinni og leita skjóls í skýli kaþólikka fyrir heimilis-
lausa. Þá leituðu dæturnar til furstynjunnar í Món-
akó.
„Hún bauðst til að gera allt sem í hennar valdi stæði.
En þá dó hún,“ segir önnur dóttirin.
Carolyn fæst ekki til að snúa aftur til fyrra lífs. En
hún heldur góðu sambandi við dætur sínar og önnur
brúðarmeyjanna í Mónakó hefur þær fréttir af henni
að hún fylgist vel með menningarviðburðum í New
York og kvarti aldrei undan örlögum sínum.
Carolyn Scott Reybold eyðir miklum tíma í skrúð-
görðum New York-borgar og kirkj-
120 árhefur um- Hún er engum háð og hefur
Carolyn Scott fundið frelsi í veröld sem krefst þess
Reybold ráfaö ekki af henni að hún lagi sig að við-
um göturnar tekinni hegðun góðborgarans.
meö því sem
næst aleiguna f .... ,
pinklum sínum.
Hún viröist ekki
hafa áhuga á
að snúa aftur til
fyrra lífs.
Carolyn Scott var ein besta vinkona Grace Kelly. Hér þarf brúöurin Grace Kelly aö laga hatt brúöarmeyjar sinnar,
Carolyn.