Tíminn - 29.12.1993, Page 4

Tíminn - 29.12.1993, Page 4
4 tínnlTin Miðvikudagur 29. desember 1993 Eðvald Hinriksson er látinn Verður bilið brúað með láni erlendis? Stjóm Húsnæðismála- stofnunar á fundi með félagsmálaráðherra Sigurður E. Guðmundsson, for- stjóri Húsnæðismálastofnunar, er bjartsýnn á að nægilegt fjármagn fáist til stofnunarinnar í janúar, eftir fund með félagsmálaráðherra í fyiTadag. Hann segir að erlend Ián- taka sé ein leið sem er til skoðunar, en ekki fengust nema um 162 millj. kr. af þeim 2 milljörðum, sem stefnt var að með útgáfu húsnæðisbréfa, þar sem 5% vaxtakjör þóttu of lág. Ríkissjóður veitti stofnuninni lán upp á um 700 millj. kr. fyrir jól, með 5% vöxtum, en eftir er að semja um lánstímann. Sigurður segist vona að lánið verði veitt til langs tíma, en það verður greitt út í dag, að sögn Sigurðar. Ekki fengust nema um 160 millj. af þeim 2 milljörðum, sem stefnt var að með útboði bréfanna, og því verður ekki annað séð en að um 1.140 millj. vanti upp á að stofnun- in fái það fjármagn sem hún þarf á að halda. Sigurður talar um gagnlegan fund með félagsmálaráðherra þar sem skipst var á skoðunum og mál- in rædd. „Þar var skeggrætt um framhaldið og það er ljóst að mikil vinna verður lögð í framhaldið, þ.e. að leggja línumar fyrir næsta ár,' segir Sigurður. Sú leið að taka erlent lán til að brúa bilið, segir Sigurður að hafi verið lengi inni í myndinni. Hann óttast ekki að stofnunin geti ekki staðið við skuldbindingar sínar. „Við höfum staðið við okkar skuldbindingar í um tveggja mán- aða skeið, án þess að hafa fengið neitt teljandi fjármagn annars stað- ar frá, og ég er ekkert svartsýnn á að okkur takist ekki að halda það út,' segir Sigurður. Eðvald Hinriksson (Mikson) sjúkraþjálfari lést í fyrradag á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, 82 ára að aldri. Eðvald fæddist í Tartu í Eist- landi 12. júlí 1911. Hann kom til íslands árið 1946 og hugðist að- eins hafa hér viðkomu á leið til Bandaríkjanna. Hann flentist hins vegar hér og bjó á íslandi til dauðadags. Eðvald kvæntist árið 1949 Sigríði Bjamadóttur og eignuðust þau þijú böm. Sigríður léstárið 1990. Eðvald tók virkan þátt í íþrótta- starfi á íslandi og þjálfaði bæði knattspymu- og körfuknattleiks- menn. Hann opnaði fyrstur manna sauna-nuddstofu í Reykjavík og starfaði sem nudd- ari og sjúkraþjálfari fram á elliár. Ferðamenn sndi sér til Tryggingastofminar Tek ekki undir hræðsluáróður bænda Nýjar reglur um aðstoð við ferðafólk við gildistöku EES Með gildistöku EES-samnings- ins um áramótin geta þeir, sem eiga lögheimili á íslandi, átt rétt á aðstoð vegna skyndilegra veikinda eða slysa í öðm EES-landi, í sam- ræmi við reglur t viðkomandi landi. Tryggingastofnun ríkisins hvet- ur því allá þá, sem ætla að ferðast til EES-lands, að snúa sér til stofn- unarinnar eða umboða hennar áð- ur en lagt er af stað og fá þar sér- staka staðfestingu á því að þeir séu sjúkratryggðir. Framvísun á við- komandi staðfestingu tryggir fram- angreinda aðstoð. Eyðublöð þar að lútandi liggja frammi á ferðaskrif- stofum og á söluskrifstofum Flug- leiða. Þau þarf að koma með til Tryggingastofnunar eða umboða hennar til staðfestingar fyrir brott- för. Staðfesting er hinsvegar óþörf, sé ferðast til Bretlands eða Norður- landa. Áður var greitt fullt verð fyrir aðstoð vegna veikinda eða slysa erlendis og síðan endurgreitt þegar heim var komið, miðað við þær reglur sem giltu hérlendis um greiðsluþátttöku sjúklings. Frá áramótum þurfa erlendir ferðamenn hér á landi að greiða aðstoð vegna skyndilegra veikinda eða slysa fullu verði, framvísi þeir ekki samsvarandi staðfestingu frá heimalandi sínu. Þau lönd, sem eru aðilar að EES-samningnum, eru Belgía, Danmörk, Þýskaland, Grikkland, Spánn, Frakkland, írland, ftalía, Lúxemborg, Holland, Portúgal, Bretland, Austurríki, Finnland, fs- land, Liechtenstein, Noregur og Svíþjóð. -GRH — segir Jóhannes Gunn- arsson, formaður Neyt- endasamtakanna Neytendasamtökin fagna nið- urstöðu GATT-samninganna. Jó- hannes Gunnarsson, formaður samtakanna, segist trúa því að GATT-samningurirm muni skila sér í aukinni hagsæld fyrir íslend- Sala á æðardún hefur gengið treglega í ár þriðja árið í röð. Vegna þessa tók aðalfundur Æðar- ræktarfélags íslands þá ákvörðun að veita stjóm félagsins heimild til að leggja allt að 5% gjald á útflutt- an æðardún til að standa straum af sölu- og kynningarátaki á íslensk- inga, bæði vegna þess ávinnings sem hafi náðst varðandi útflutn- ingsvörur og eins vegna lækkaðs vöruverðs á landbúnaðarvörum í framtíðinni. „Með aukinni samkeppni er nauðsynlegt að til komi hagræð- ing í íslenskum landbúnaði. Við erum sannfærð um að það sé hægt að hagræða í landbúnaðin- um og þá mun hann ekki ein- um æðardún. Sala á æðardún innanlands hef- ur aukist síðustu ár og hefur það að hluta vegið upp sölutregðu á er- Iendum mörkuðum. Nýr formaður Æðarræktarfé- lags íslands er Zophonias Þorvalds- son. -EÓ ungis lifa af erlenda samkeppni, heldur mun lækkandi ríkisstuðn- ingur við landbúnað í heiminum færa íslenskum landbúnaði sókn- arfæri á erlendum mörkuðum. Þess vegna áh't ég að samningur- inn muni bæði færa íslensku at- vinnulífi sóknarfæri og auk þess skila sér í lækkuðu verði til neyt- enda." Jóhannes segist ekki óttast innflutning á kjöti, sem hefur verið framleitt með skaðlegum lyfjum eða hormónagjöf. „Ég tek ekki undir hræðsluáróður þeirra, sem vilja halda íslenska landbún- aðarkerfinu óbreyttu. Ég trúi því ekki að allt kjöt, sem er framleitt erlendis, sé meira og minna eitr- að. Auk þess getum við gert sömu heilbrigðiskröfur til vara, sem við Dytjum inn, og þeirra sem eru framleiddar hér. Það er ekki brot á GATT-samningnum." -GK Sölutregða á æðardún 'f I ‘a;?1 •* MISSIÐ EKKI AF S KATTA FS LÆTTIN U M!! Hjón sem auka hlutabréfaeign sína um 200 þúsund á árinu geta lækkað tekjuskattinn um rúmar 82 þúsund kr. V&ISL BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS » SPARISJÓÐIRNIR OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9:00-16:00 OPIÐ Á GAMLÁRSDAG KL. 9:00-12:00 Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér skattafslátt fýrir árið 1993. Hlutabréfasjóðurirm Auðlind er góður kostur fyrir þá sem vilja tryggja sér skattafslátt. Hann fjárfestir í ýmsum hlutabréfum og skuldabréfum og er því um góða áhættudreifingu að ræða. Auðlindarbréf eru skráð á Verðbréfaþingi Islands og eru auðveld í endursölu. Þau fást í sparisjóðum, Búnaðarbanka íslands, Kaupþingi Norðurlands hf., Akureyri og Kaupþingi hf, Kringlunni 5. KAUPÞING HF Löggi/t verbbréfafyrirtœki Kring/unni 5, sími 689080 í eigu Búnabarbanka íslands og sparisjóbanna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.