Tíminn - 29.12.1993, Page 6

Tíminn - 29.12.1993, Page 6
6 ti minn íþróttlr Umsjón: Krístján Grímsson Miðvikudagur 29. desember 1993 Landsliðið fær erfiðan andstæðing Dregið í bikarkeppninni fyrir leik íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik fær erfiðan andstæðing í kvöld, þegar það mætir „stjömuliði" sem lesendur dagblaðanna, þar á meðal Tímans, sáu um að velja. 500 lesendur blaðanna sendu inn „stjörnuliðið' sitt og er óhætt að segja að landsliðið þurfi að sýna áhorfendum toppleik, ef sigur á að vinnast á sterku „stjömuliði'. Leik- urinn fer fram í Kaplakrika og hefst kiukkan 21, en flugeldasýning verð- ur kiukkan 20.30 á „Hamrinum' og sést hún vel frá Kaplakrika. Pá verð- ur dregið í undanúrslit bikarkeppni HSÍ í bæði karla- og kvennaflokki, fyrir leik og hefst drátturinn um ldukkan 20.20 í Kaplakrika. Leikur liðanna er liður í undir- búningi landsliðsins fyrir tvo mikii- væga leiki gegn Hvít-Rússum í Evr- ópukeppninni í byijun janúar, en þeir leikir verða að vinnast ef mögu- leiki á að vera á að komast í úrslita- keppnina í Portúgal í sumar. Lands- liðshópurinn, eins og hann er skip- aður í kvöld, er engan veginn endan- legur og það er því kjörið tækifæri fyrir leikmenn „stjörnuliðsins' að sanna sig fyrir Porbergi Aðalsteins- syni landsliðsþjálfara. Þorbjöm Jens- son, þjálfari Vals, mun stjórna „stjömuliðinu", sem er þannig skip- að: Sigmar Þröstur Óskarsson, KA og Magnús Sigmundsson, ÍR em mark- menn. Sigurpáll Ami Aðalsteinsson, Selfossi, Konráð Olavsson, Stjörn- unni, Bjarki Sigurðsson, Víkingi, og Jón Þórir Jónsson, Selfossi, em homamenn. Birgir Sigurðsson, Vík- ingi, og Hálfdán Þórðarson, FH, em línumenn. Páll Ólafsson, Haukum, og Jón Kristjánsson, Val, eru leik- stjórnendur. AJfreð Gíslason, KA, Hans Guðmundsson, FH, Sigurður Sveinsson, Selfossi, og Magnús Sig- urðsson, Stjömunni, skipa skyttuhóp liðsins. Þorbergur Aðalsteinsson valdi landsliðshóp sinni fyrir þó nokkru síðan og er hann skipaður eftirtöld- um leikmönnum: Bergsveinn Berg- sveinsson, FH, og Guðmundur Hrafnkelsson, Val, eru markverðir. Aðrir leikmenn eru: Valdimar Grímsson, KA, Gunnar Beinteins- son, FH, Geir Sveinsson, Avidesa, Júlíus Jónasson, Avidesa, Guðjón Ámason, FH, Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni, Dagur Sigurðsson, Val, Ólafur Stefánsson, Val, Gústaf Bjamason, Selfossi, og Héðinn Giis- son, Dússeldorf. í kjöri á „stjömuliðinu" fékk Sig- urður Sveinsson langflest atkvæði, eða alls 360, en næstur kom Bjarki Sigurðsson með 260 atkvæði. Páll Ólafsson, Alfreð Gíslason og Sigmar Þröstur komu næstir þar á eftir. Páll Ólafsson verður I „stjörnuliðinu' og er eini leikmaður Hauka sem er i liðinu. Með Páli I liði verður Sigurður Sveinsson, en hann hefur tekið vel i ósk landsliösþjálfar- ans aö leika á ný með landsliöinu. Páll og Sigurður eru báðir gamlir Þróttarar og léku siðast saman með landsliöinu 1989 i undirbúningi fyrir B-keppnina í Frakklandi. Tímamynd Pjetur Þorvaldur orðaður við Celtic Þorvaldur Örlygsson hefur staðið sig mjög vel með Stoke í ensku 1. deildinni í knattspymu og skorað m.a. 6 mörk. Blöð í Skotlandi greindu frá því að Lou Macari, framkvæmdastjóri Celt- ic, hefði mikinn áhuga á að fá Þorvaid í sínar raðir. Macari var stjóri hjá Stoke í bytjun keppnis- tímabilsins, en var svo fenginn til Celtic. Joe Jordan tók þá við Stoke-liðinu. Þá hefur enska úr- valsdeildarliðið West Ham Unit- ed einnig sýnt áhuga á Þorvaldi. Macari vill fá Þorvald í skipt- um fyrir markvörðinn Gordon Marshall, sem er í láni hjá Stoke frá Celtic. Þorvaldur færi því til Celtic, en Marshall yrði eftir hjá Stoke. Þorvaldur hefur lýst því yfir að hann sé ekki að hugsa um að yfirgefa Stoke, heldur snúist allt um að koma liðinu upp í úr- valsdeildina. Stoke er nú ofar- lega í 1. deildinni, sem er með eindæmdum jöfn. Stoke mætir Charlton í kvöld í deildinni. Svali þjálfar Val Chelsea sigraði Newcastle Svali Björgvinsson var í vikunni ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs Vals í körfuknattleik. Hann tekur við af Franc Booker, sem þjálfaði liðið fram að jólafríi, en var látinn fara sakir slaks árangurs liðsins, eins og Tíminn greindi frá ekki alls fyrir löngu. Booker mun þó leika áfram með Val. Svali er ekki ókunnugur í herbúðum Vals, því að hann lék með Val til margra ára og þjálfaði liðið í fyrra, þá aðeins 25 ára gamall. í vetur hefur Svali leik- ið með ÍS í 1. deild, en ákvað að taka þessu boði Valsmanna, þegar það bauðst. Mark Stein færði Chelsea jóla- gjöfina, sem liðið hefur langað svo í í langan tíma. Hann skoraði eina mark leiksins gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í gær á 11. mínútu og færði Chelsea þar með fyrsta sigurinn frá því 25. septem- ber eða í 12 leikjum samfleytt. Þetta var fyrsta mark Stein fyrir Chelsea síðan hann kom til liðsins í október frá Stoke City fyrir 1,5 milljónir punda. Með sigrinum lauk versta gengi Chelsea í ensku deildinni í áraraðir, en þeim hafði fram að þessum leik aðeins tekist að innbyrða 2 stig af 33 möguleg- um og þeir höfðu dottið úr sjötta sæti í það næst neðsta á þeim tíma. Sigurinn lyfti Chelsea úr fallsæti. Tap Newcastle var hins vegar það fyrsta í níu leikjum og fyrsti leikur- inn síðan í fyrstu urnferð, sem liðið skorar ekki mark. Andy Cole brenndi af úr dauðafæri undir lok leiksins. Tottenham gengur upp og ofan í ensku deildinni. Á mánudag tapaði liðið fyrir Norwich, en vann svo í gær West Ham á útivelli þrátt fyrir að hafa lent undir í byijun Ieiksins. Leik Coventry og Ipswich var frestað vegna mikillar snjókomu. Beckenbauer til Bayern Franz Beckenbauer hefur verið ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeild- arliðsins Bayem Múnchen. Erich Ribbeck hefur verið sagt upp störf- um hjá liðinu í kjölfarið og ástæð- an sú sama og oft áður, þegar þjálf- arar eru reknir: slakt gengi. Líklegt þykir að Beckenbauer verði ekki lengur hjá Bayem en til loka þessa tímabils, þar sem þjálfari Mónakó, Frakkinn Arsene Wenger, er efstur á óskalista forráðamanna Bayem Múnchen. Kristján næsti þjálfari Bayer Dormagen? Lýkur væntanlega leikferli sínum í vor Góður árangur Kristjáns Ara- sonar sem þjálfari pH-Iiðsins í 1. deildarkeppninni hér heima í handknattleik og í Evrópukeppn- inni undanfarin tvö ár gegn þýsk- um liðum hefur greinilega vakið áhuga forráðamanna þýska úr- valsdeildarliðsins Bayer Dormag- en, því Kristján er ofarlega á óska- lista þeirra sem þjálfari liðsins næsta keppnistímabil. Eins og kunnugt er, lék Kristján í fjölda- mörg ár sem atvinnumaður í Þýskalandi og ætti því að þekkja þýskan handknattleik vel. En hvemig stóð á því að for- ráðamenn Dormagen höfðu sam- band við Kristján? „Það hefur sjálfsagt haft sitt að segja að við höfum lent tvisvar í Evrópu- keppnum á móti þýskum liðum og komið ágætlega út úr þeim leikj- um, þar sem FH-liðið spilaði vel." Kristján segir að þeir hafi einn- ig þekkt hann sem leikmann á sín- um tíma. „Dormagen ræddi líka við mig fyrir ljórum árum til að fá mig til liðs við sig sem leikmann, þannig að þeir vita af mér. Svo get- ur líka verið að einhver hafi bent á mig. Ég veit til þess að þýskur þjálfari hafi bent Dormagen á að fá sér íslenskan þjálfara. Þeir hafi síð- an rennt yfir þjálfaralistann hér heima og útfrá því kem ég inn í dæmið. Þjálfun Jóhanns Inga Gunnarssonar á sínum tíma í Þýskalandi hefur líka haft mikið að segja. Hann ruddi brautina að mörgu leyti og stóð sig vel þama úti." Kristján sagði heiðurinn vera mikinn. „Þetta er mjög spennandi, en þetta er ekki einungis heiður fyrir mig heldur líka fyrir íslenska þjálfun. Menn þama úti em að spyrja sig af hverju íslenskur handknattleikur sé í fremstu röð í gegnum svo langan tíma, þrátt fyr- ir mannfæðina. Við hljótum því að vera gera eitthvað rétt héma heima. Það er ekki nóg að vera Kristján Arason kemur til greina sem næsti þjálfari þýska úrvalsdeildarliös- ins Bayer Donnagen. Hann hættir llk- lega I vor aö leika handknattleik. Timamynd Pjetur fæddur héma á klakanum! Síðan er ég sannfærður um að bæði leik- menn og þjálfarar, sem hafa verið hjá erlendum liðum, hafa skilið eftir sig gott orð. Liðin úti þurfa oft að velja milli þess að fá þjálfara og leikmann frá Norðurlöndunum eða frá austantjaldsþjóðunum. Þjálfarar frá Norðurlöndunum verða æ eftirsóttari." Dormagen er þessa stundina í 6. sæti í þýsku deildinni og byggt á jöfnum mannskap sem á framu'ð- ina fyrir sér. Andreas Thiel, lands- liðsmarkvörður Þjóðverja, er þekktastur leikmanna liðsins, en einnig leikur sænska stórskyttan Robert Andersson með liðinu. Kristján sagðist ekki ætla að leika með Dormagen-liðinu ef af samningum yrði, og þó svo að samningar tækjust ekki, þá byggist hann við því að ljúka ferlinum sem leikmaður í vor með FH. „Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart, þar sem skothöndin er kannski al- veg í lagi," sagði Kristján að lok- um. ÚRSLIT England Everton-Sheffield Wed...0-2 (Bright 35., Palmer44.) Chelsea-Newcastle.......1-0 (Stein 11.) Liverpool-Wimbledon.....1-1 (Scales 29. - sjálfsmark) - (Fashanu 40.) Man. City-Southampton....1-1 (Phelan 29.) - Dowie (26.) West Ham-Tottenham.......1-3 (Holmes 11.) - (Dozzel 34., Hazard 42. og Anderton 77.) Staðan Man. Utd....22 16 5 144-18 53 Leeds...........22 11 7 4 37-25 40 Blackbum.....21 11 6 4 29-18 39 Arsenal .....22 10 7 5 24-13 37 Newcastle ...22 10 6 6 38-21 36 Norwich .....20 9 7 4 33-22 34 QPR ........21 10 4 7 36-28 34 Liverpool.....22 9 6 7 34-27 33 AstonV.......21 87 6 24-23 31 Sheff.Wed.....22 7 9 6 37-29 30 Tottenham.....23 7 9 7 33-28 30 Ipswich .....22 7 9 6 21-25 30 West Ham ....23 8 6 9 20-29 30 Wimbledon ....22 7 8 7 25-29 29 Coventry......21 6 9 6 23-25 27 Everton......22 7 4 11 20-28 25 Man. City....22 4 8 10 20-28 20 Oldham ......22 4 7 11 16-34 19 Chelsea......21 4 6 11 14-25 18 Southampt. ...23 5 3 15 23-35 18 Sheff. Utd ..22 3 9 10 18-33 18 1. deild Birmingham-WBA 2-0 Bristol City-Forest 1-4 Derby-Leicester 3-2 Portsmouth-Bolton 0-0 Sunderland-MiUwall 2-1 Watford-Peterboro 2-1 2-1 Staöa efstu liða Cr. Palace 22 13 4 5 42 24 43 Tranmere 23 12 5 6 35 24 41 Millwall 24 11 7 6 33 28 40 Charlton 22 11 5 6 27 20 38 Leicester 23 10 7 6 38 26 37 Southend 22 11 4 7 38 29 37 Portsmouth 23 9 10 5 31 29 37 Forest 22 10 6 6 36 27 36 Detby 22 11 3 8 35 35 36 Bristol C 24 10 6 8 29 29 36 Stoke 22 11 3 8 34 35 36 Skotland Dundee Utd-Aberdeen .... 0-1 Hibemian-Partick 5-1 Rangers-Hearts 2-2 NBA Charlotte-Detroit ..109-94 Orlando-Sacramento 122-110 Mlwaukee-Washington .. ....87-96 Phoenix-Boston 118-102 Utah Jazz-Minnesota ....97-93 L.A. Clippers-Philadelphia ...96-86

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.