Tíminn - 29.12.1993, Side 7
Miðvikudagur 29. desember 1993
timlim
7
BÓKMENNTIR
GRÓA FINNSDÓTTIR
*
Islensk Enid Blyton
Þórunn Sigurðardóttir:
Klukkan Kassíópeia og húsið
í dalnum.
Mál og menning, Í993.
140 bls.
Þórunn 'Sigurðardóttir er fyrir
löngu kunn fyrir vinnu sína við
leiklist, bæði sem leikari, leikstjóri
og leikritahöfundur, en sem bama-
bókahöfundur þreytir hún nú
frumraun síria.
Halla er nútíma borgarbam, sem
á stressaðan pabba sem stundar
innflutningsverslun og .... má aldr-
ei vera að því að tala í alvöm við
nokkum mann' (10), og ekki al-
veg eins stressaða mömmu sem
vinnur sem „sminka' hjá sjónvarp-
inu. Höllu finnst hálfvegis eins og
þau vilji losna við hana þegar hún
er síðan send í sveit „vestur" að
Ytra- Vallholti, gegnum kunnings-
skap föðurbróður hennar og fólks-
ins á bænum. f vegamesti hefur
hún afrit af bréfi sem gamall sjóari,
langafi vina hennar, hefur skrifað
fyrir margt löngu til ástmeyjar
sinnar, sem bjó þá á Kvíslarhóli
skammt frá Ytra-Vallholti, bæ sem
nú er í eyði. Að áeggjan vina sinna
er Halla staðráðin í að kanna afdrif
þessarar ástmeyjar langafans og
einnig klukku einnar portúgalskr-
ar, sem afinn ætlaði að gefa kær-
ustunni samkvæmt bréfinu. Inn í
frásögnina af þessari dularfullu
klukku fléttast síðan sögur af
strönduðu skipsflaki og mörgum
kynlegum kvistum mannlífsfló-
runnar.
Styrkur þessarar bókar felst
fyrst og fremst í eðlilega uppbyggð-
um samtölum og skemmtilegri
persónusköpun (sérstaklega Ás-
mundur og Eyrún), enda er bókin
byggð á leikriti sem var flutt í Rflds-
útvaipinu á liðnu hausti. Samtölin
eru brotin upp með myndrænum
og lifandi náttúrulýsingum þar
sem sterk og dulúðug náttúra Vest-
fjarða (?) skilar sér vel til lesand-
ans. Sömuleiðis er frásögnin vel
upp byggð með hæfilegri stig-
mögnun fyrir unga lesendur, svo
spennan helst alla söguna og í lok-
in, þegar gátan er leyst, eru engir
lausir endar. Heimspekilegs hliðar-
stefs gætir einnig, þar sem fjallað er
um tímann og hvemig hann leikur
okkur mennina og hve smá við er-
um gagnvart óravíddum alheims-
ins og náttúruöflunum. Dular-
mögn vestfirskrar náttúru eru hér
þau leiktjöld sem hæfa vel efninu.
Sem fullorðnum lesanda fannst
mér samt eins og umbúðimar utan
um kjarna sögunnar verði ein-
hvemveginn ofvaxnar og leyndar-
dómurinn kannski ekki alveg í
samræmi við allt það ,dularfulla"
sem kallað er til: Eyðibýli, skips-
flak, óveður, gamalt fólk sem talar
hálfkveðnar vísur úr fortíðinni, af-
skekktur staður, hrikaleg fjöll, úf-
inn sjór... Öll em þessi minni hér til
staðar eins og lifandi komin úr
bókum Enid Blyton, sem em þó
vissulega ætíð ömggir leiðarvísar
þegar gera á spennandi sögu. Ráð-
gátan sjálf, um það hvort afinn hafi
hitt stúlkuna sína og hvað hafi orð-
ið af henni og klukkunni, verður á
einhvem hátt hálf hjákátleg þegar
lesandanum finnst eiginlega það
hafi verið eðlilegast að spyijast bet-
ur fyrir um þetta hjá afanum strax í
upphafi, jafnvel þótt það kostaði
eftirgangssemi og e.t.v. hjartveiki.
Samt verður að telja þessa hnökra
aukaatriði, því þótt sagan feti engar
ótroðnar slóðir í frásagnartækni,
þá er hún spennandi og gefandi
þeim sem ekki em orðnir alltof
miklir unglingar né heldur smá-
böm lengur. Málfar er frjótt, skýrt
og lifandi, í talsverðri andstæðu við
teikningar Katrínar Sigurðardótt-
ur, sem em fremur daufar og mis-
jafnar að gæðum.
Möguleikar íslenskra
framleiðenda á lífrænum
og vistvænum mörkuðum
Væntanlegur er hingað til lands
Carl Haest, einn virtasti sér-
fræðingur í markaðssetningu líf-
rænna og vistvænna afurða í
heiminum í dag.
Haest dvelur hér á landi frá 4. til
9. janúar í boði starfshóps Bænda-
samtakanna, sem hefur verið falið
að kanna markaðsmöguleika ís-
lenskra matvæla á forsendum holl-
ustu, hreinleika og gæða. Haest
mun m.a. hitta að máli framleið-
endur og úrvinnsluaðila í íslensk-
um landbúnaði og matvælaiðnaði.
Þá verður haldinn opinn
fræðslufundur á Hótel Sögu, laug-
ardaginn 8. janúar nk., þar sem
Haest mun m.a. segja frá þróun h'f-
rænna og vistvænna markaða og
markaðshorfum á þeim, vöruþró-
un fyrir þessa markaði, vottunar-
og eftirlitskerfi og möguleika ís-
lenskra framleiðenda á sviði h'f-
rænnar og vistvænnar framleiðslu
og markaðssetningu.
Haest hefur frá árinu 1987 rek-
ið eigin ráðgjafastofu, Haest Cons-
ultancy, sem sérhæfir sig í mark-
aðsrannsóknum og -ráðgjöf á sviði
lífrænna og vistvænna afurða í
Evrópu, Japan og Norður- og Suð-
ur- Ameríku. Áður en Haest sneri
sér alfarið að markaðsráðgjöf starf-
aði hann við bæði framleiðslu,
dreifingu og vöruþróun lífrænna
og vistvænna afurða. Eftir hann
liggur fjöldi greina og ritgerða og
hann er eftirsóttur fyrirlesari um
heim allan.
Petta er í annað sinn sem Haest
kemur hingað til lands, en hann
ferðaðist fyrir nokkrum árum um
landið á reiðhjóh.
(Fréttatilkynning)
Þessi nærtveggja alda eöalvagn meö Islenskum hestum fyrir erboöin Islendingum til aö skreyta hátíöahöld á 50 ára lýö-
veldisafmælinu á Þingvöllum 17. júní nk. Verður Vigdís forseti ef til vill farþegi I honum ásamt erlendum þjóðhöföingja niö-
ur Almannagjá 1 tilefni afmælisins? Ljósmynd: Dr. Dieter H. Kolb
GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON
Hestakerrur á þjóðhátíð
Hinn kunni íslandsvinur og ís-
landshestaeigandi, dr. Dieter
H. Kolb tannlæknir í Saar-
brúcken í Þýskalandi, hefur nú boðið
framkvæmdanefnd lýðveldishátíðar-
innar 17. júní nk. undurfagra 180
ára gamla biskupakerru frá Pýska-
landi til afnota í sambandi við hátíða-
höldin. Eins og fram hefur komið í
Tímanum, koma Dieter og kona
hans hingað til lands í maí með eina
af léttakemim sínum og kaupa 5 til 6
hesta til þess að fara hringinn í kring-
um landið á kerrunni og auglýsa
Landsmót íslenskra hestamanna,
sem fram fer á HeUu í júm', í leiðinni.
Pau hjón eiga 20 íslenska hesta í
Pýskalandi og er hún reiðkennari, en
hann hefur sérhæft sig í tamningum
íslensku hestanna fyrir þýsku létta-
kerrumar, sem hann segir að eigi af-
ar vel saman og fslendingar hafi
reyndar notað þessar kerrur hér á
landi áður fyrr.
Dieter á margar kerrur, meðal
annarra 180 ára gamla biskupakerm
sem hann notar sérstaklega við há-
tíðlegar athafnir, m.a. til að fara með
brúðhjón í giftingu í Saarbrúcken.
Nú býðst hann til að koma með
þessa gersemi hingað til lands og
gera eitthvað skemmtilegt með kerr-
una á Pingvöllum 17. júm' nk., þegar
íslenska lýðveldið verður 50 ára.
Að sögn Mattlúasar Á. Mathiesen,
formanns framkvæmdanefndar, hef-
ur ekki verið tekin ákvörðun um
einstök framkvæmdaatriði í sam-
bandi við hátíðahöldin, en auðvitað
séu allar hugmyndir vel þegnar og
nefndin muni vissulega skoða tilboð
dr. Dieters. Til greina komi að vera
með fombflasýningu í anda Alþingis-
hátíðarinnar 1930 og lýðveldishátíð-
arinnar 1944. Þá geti svona gömul
hestakerra passað inm'. Einnig komi
fleira til greina, en ekki verði mikið
pláss, því búist er við miklu mann-
hafi á Þingvöllum á lýðveldishátið-
inni. Ef til vill eiga landsmenn eftir
að sjá Vigdísi forseta með einhveij-
um erlendum þjóðhöfðingja fara um
Þingvöll á tveggja alda gamalli bisk-
upakerru, fagurskreyttri með ís-
lenskum hestum fyrir. Fer vel á því
að þarfasti þjónninn fái eitthvert
hlutverk við hátíðahöld þar sem
þjóðin minnist fimmtíu ára afmælis
lýðveldisins.
Virðisaukaskattur
afmatvælum
Frá og með 1. janúar 1994 lækkar virðisaukaskattur af ýmsum
matvælum úr 24,5% í 14%.
Lækkun nær ekki til drykkjarvöru, sælgætis og annarrar vöru sem
fellur undir gjaldflokk D í lögum um vörugjald nr. 97/1987, né heldur
til áfengra drykkja og ógerilsneyddrar mjólkur.
Matvæli sem bera áfram 24,5% virðisaukaskatt eru m.a. ávaxtasafar,
gosdrykkir, ölkelduvatn, kakóduft, kakómalt, kaffirjómi í duftformi,
sætakex, smákökur, edik, marsípan, núggatmassi, skrautsykur og
íssósur. Vítamín og fleiri vörur í töfluformi (s.s. lýsistöflur, hvítlauks-
töflur o.fl.) bera einnig áfram 24,5% virðisaukaskatt.
Um veitingahús, mötuneyti og aðra hliðstæða aðila gildir að á sölu
þeirra á tilreiddum mat skal reikna 24,5% virðisaukaskatt sem
endurgreiddur verður að hluta samkvæmt sérstökum reglum.
Gefin hefurverið út reglugerð um virðisaukaskattsskylda sölu á
vörum til manneldis o.fl. og kveður hún nánar á um framangreint
efni.
Virðisaukaskattsskrifstofa ríkisskattstjóra og skattstjórar veita nánari
upplýsingar um virðisaukaskatt af matvælum.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI