Tíminn - 29.12.1993, Side 9
Miðvikudagur 29. desember 1993
9
í spegli
tímans
Urð og grjót upp í mót
Þyrluflugmaður og Ijósmyndari fylgdust með afreki Alison, tveggja barna móður, sem kleif einn af sex hæstu tindum
Alpanna og fetaði nýja slóð.
Það eru líklega ekki margar
tveggja barna mæður sem deila
áhugamáli með bresku konunni
Alison Hargreaves, sem hefur
unnið hvert afrekið á fætur öðru
í fjallaklifri.
Það eru þó ekki neinir smátind-
ar sem Alison glímir við og ekki
er hægt að segja að hún klífi þá á
auðveldan hátt.
Sérgrein hennar er einklifur, en
það þýðir að hún klífur tindana
ein síns liðs í broddaskóm með
íshaka á lofti.
Að vísu varð hún að taka sér
hlé í fimm ár á meðan hún eign-
aðist tvö börn, en snéri sér af
fullum krafti að áhugamáli sínu
á þessu ári.
Það eru orð að sönnu, því hún
gerði sér lítið fyrir og kleif sex
hæstu tinda Alpanna ein síns liðs
í sumar sem leið, og var fyrsta
konan sem það gerði. Þá er ekki
allt upptalið, því auk þessa fór
hún ótroðna slóð upp einn tind-
anna, en slíkt þykir jafnan mikið
afrek meðal fjallgöngumanna.
Hér má sjá Alison við eftiriætisiöju
sína, flallaklifur.
Hún var þó ekki ein í allt sum-
ar, því fjölskyldan dvaldi með
henni í Ölpunum. Eiginmaður-
inn Jim Ballard er einnig þekkt-
ur fjallgöngumaður og saman
eiga þau fimm ára dreng og
tveggja ára stúlku.
Alison lætur ekki deigan síga
þó afrek sumarsins séu að baki,
því í nóvember kleif hún norð-
urhlið tinds nokkurs í Ölpunum,
sem heitir Grandes Jorasses, og
þótti með ólíkindum að hún
skyldi ná á tindinn á aðeins sex
klukkustundum.
Hún er ákveðin í að feta áfram
braut afreka í fjallaklifri, en er
fáorð um framtíðaráform sín.
„Það er svo mikil samkeppni
meðal fjallgöngumanna í seinni
tíð og þess vegna læt ég aldrei
neitt uppi um fyrirætlanir mín-
ar," segir Alison.
Það skyldi þó aldrei vera að þau
hjón hugsi með óþreyju til þess
þegar tímabært er að mála þakið
á húsinu þeirra, svo ekki sé
minnst á sjálft þakskeggið, sem
hlýtur að vera sérlega eftirsótt.
aö sjá
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun
óskast til starfa á neðangreinda leikskóla:
Fálkaborg, v/Fálkabakka, s. 78230
Ösp, v/lðufell, s. 76989
Eingöngu í 50% starf e.h. á leikskólann:
Rofaborg, v/Skólabæ, s. 672290
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Flutningshús til sölu
Óskað er eftir kauptilboðum í íbúðarhús á lóðinni nr.
23 við Hverfisgötu til flutnings á lóðina nr. 5A við Vest-
urgötu. Húsið er úr timbri, byggt 1903, ein hæð og ris
auk kjallara. Grunnflötur þess er um 46 ferm.
Nánari upplýsingar ásamt uppdráttum og söluskilmál-
um fást á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2,
Reykjavík, en húsið verður til sýnis miðvikudaginn 5.
janúar nk. á milli kl. 14:00 og 16:00.
Kauptilboðum, sem greina tilboðsverð miðað við sölu-
skilmála, skal skilað til skrifstofu borgarverkfræðings
fyrir kl. 16:00 mánudaginn 10. janúar 1994.
Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík.
ONNUMST ALLAR
ALMENNAR VIÐGERÐIR
Vetrarskoðun kr. 4.950,- m.vsk.
fyrir utan efni.
SÍÐUMÚLA 3-5 • SÍMI 681320
Jólatrésskemmtun
1993
Jólatrésskemmtun fýrir böm félagsmanna verður haldinn í Átt-
hagasal Hótel Sögu, miðvikudaginn 29.12.1993, kl. 15-18.
Miðar verða seldir við innganginn. Verð er kr. 500.00.
Félag jámiðnaðarmanna - Bíliðnafélagið
Félag blikksmiða - Nót, sveinafélag netagerðarmanna
Iðja, félag verksmiðjufólks
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Jólaalmanak SUF
Eflirfarandi viningsnúmer hafa veriö dregin út: Vinninga ber aö vitja innan árs.
1. des. 4964 3563 10.des. 2018 372 19. des. 1527 5658
2. des. 4743 1467 11. des. 650 5508 20. des. 887 730
3. des. 1464 5509 12. des. 5808 104 21. des. 370 5890
4. des. 1217 3597 13.des.2726 4705 22. des. 5364 5995
5. des. 1367 1363 14. des. 5087 3702 23. des. 4187 2544
6. des. 3983 1739 15. des. 719 1937 24. des. 3528 1171
7. des. 3680 1064 16. des. 2710 612
8. des. 1225 5819 17. des. 3262 4965
9. des. 2724 2019 18. des. 1109 649
Upplýsingar á skrifstofu Framsóknarflokksins í sima 91-624480