Tíminn - 29.12.1993, Síða 12
íÉtíliðífelfe
FYRIR HESTA
OG HESTAMENN
MR búðin • Laugavegi 164
sími 11125-24355
NÝTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFÉLU 13 -SlMI 73655
ÍSLENSKI HLUTABRÉFASJÓÐURINN HF.
Gó5 leið til að lækka
skattana þina
í ágúst síðastliðnum fengu mörg hundruð hluthafar í íslenska hlutabréfasjóðnum hf.
endurgreiðslu á tekjuskatti.
Ef þú kaupir hlutabréf íyrir áramót getur þú tryggt þér rúmlega 41.000,- kr. endurgreiðslu
á tekjuskatti í ágúst á næsta ári. Hámarksfrádráttur miðast við 100.000,- kr. kaup.
Hjón geta tryggt sér tvöfalda endurgreiðslu eða rúmlega 82.000,- kr.
Fjárhæðir breytast í samræmi við skattvísitölu.
Samkvæmt núgildandi skattalögum mun skattafrádráttur vegna hlutabréfakaupa verða afnuminn
um áramótin 1997 - 1998.
Kaupár Fjárhæð vegna fjárfestingar* Skattafrádráttur* Endurgreiösla frá skattinum
1993 kr. 100.000,- rúmar 41.000,- kr. ágúst 1994
1994 kr. 125.000,- rúmar 41.000,- kr. ágúst 1995
1995 kr. 125.000,- rúmar 41.000,- kr. ágúst 1996
1996 kr. 200.000,- rúmar 41.000,- kr. ágúst 1997
1997 kr. 200.000,- rúmar 41.000,- kr. ágúst 1998
* Mióaö er vlö bámarksíjárhæð sem breytist í samræmi við skattvísitölu
Fjárfestingar í hlutabréfum geta verið áhættusamar. Hlutabréf eru í eðli sínu langtímafjárfesting
og skattafrádráttur miðast við þriggja ára eignarhaldstíma.
íslenski hlutabréfasjóðurinn hf. dreifir áhættu með kaupum á hlutabréfum margra félaga
í ólíkum atvinnugreinum og stuðlar að auknu öryggi hluthafa
með kaupum á skuldabréfum.
Gcngi hlutabréfa
í íslenska hlutabréfasjóðnum hf.
samanborið við Landsvisitölu hlutabréfa 1993
Eignasamsetning
íslenska hlutabréfasjóðsins hf.
1. desember 1993
1% Bankainnstæður
Hlutabréf
31%
Skuldabréf
42%
Hlutdeildarskífteini Hlutdeildarskírteini
á erlendum grunni á innlcndum grunni
Landsbréf eru viðskiptavaki hlutabréfa íslenska hlutabréfasjóðsins hf. og eru ávallt tilbúin
að kaupa og selja hlutabréf sjóðsins.
Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum okkar og umboðsmönnum
í Landsbanka íslands um allt land.
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur meö okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Veröbréfaþingi íslands.
Fyrirtæki
Fáskrúðs-
firðinga
sameinuð
Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar
og Kaupfélag Fáskrúðsfirð-
inga munu sameinast um áramót-
in í eitt félag. Ákvörðun þessa efnis
var tekin í nóvember. Samþykktir
Kaupfélagsins munu gOda um hið
sameinaða félag.
Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar
hf. var stofnað 1940 af Kaupfélagi
Fáskrúðsfirðinga og nokkrum ein-
staklingum, en fljótlega varð
Kaupfélagið nær því eini eigandi
félagsins og hefur Hraðfrystihúsið
frá upphafi verið rekið við hlið
Kaupfélagsins. Kaupfélagsstjórar
Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga hafa
jafnframt verið framkvæmdastjór-
ar Firaðfrystihúss Fáskrúðsfjarðar
hf.
Samkvæmt samstæðureikningi
Kaupfélagsins og Hraðfrystihúss-
ins í árslok 1992 var bókfært eigið
fé félaganna kr. 481,3 milljónir eða
47% af niðurstöðu efnahagsreikn-
ings. Heildarvelta félaganna var
um 1,2 milljarðar og komu 365
starfsmenn á launaskrá, en að
jafnaði eru starfsmenn tæplega
200.
Gísli Jónatansson hefur verið
framkvæmdastjóri félaganna síð-
astliðin 18 ár og verður áfram
kaupfélagsstjóri eftir sameiningu.
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga var
stofnað 1933 og eru félagsmenn
um 200. -EÓ
Iðnnemar
styðja sjómenn
Launafólk hvatt til að vera á
varðbergi
Iðnnemasamband íslands lýsir yf-
ir fullum stuðningi við fyrirhugað
verkfall sjómanna vegna þeirrar
sanngjömu kröfu að samningar
séu haldnir og sjómenn séu ekki
þvingaðir til greiðslu á hráefnisöfl-
un útgerða. Sambandið hvetur allt
launafólk til að vera á varðbergi,
svo það verði ekki látið taka þátt í
hráefnisöflun fyrirtækja, eins og
sjómenn hafa verið látnir gera.
í ályktun fundar kjaramálanefnd-
ar INSÍ er skorað á verkalýðshreyf-
inguna að rísa upp úr þeirri ,lá-
deyðu og aumingjaskap', sem ein-
kennt hefur athafnir hreyfingar-
innar undanfarin ár, og sýna sam-
stöðu með samtökum sjómanna
og hrekja það arðrán, sem verið
hefur á launafólki undanfarin ár.
Jafnframt skorar fundurinn á
stjómvöld að beita sér fyrir laga-
setningu þess efnis að útgerðir,
sem ekki nýta sér úthlutaðar veiði-
heimildir, skuli skila þeim til baka,
í stað þess að braska með þær að
vild. Að mati fundarins hefur
kvótakerfið gengið sér til húðar,
þar sem útgerðarmenn geta stund-
að kvótabrask að vild, þótt lögum
samkvæmt sé fiskurinn í sjónum
sameiginleg auðlind þjóðarinnar.
-GRH