Tíminn - 11.01.1994, Síða 2

Tíminn - 11.01.1994, Síða 2
2 Þri&judagur 11. janúar 1994 Tíminn spyr... Heldur þú ab Albert Guö- mundsson bjóöi sig fram til borgarstjórnar Reykjavíkur? Ólafur Þ. Þóröarson alþingismáöur „Já. Mér þykir líklegt aö hann verðj forseti borgarstjórnar Reykjavíkur næsta kjörtíma- bil. Hann mun líklega gera kröfu um það embætti í krafti oddaaðstöðu í borgarstjóm. Albert mun hins vegar ekki tilkýnna um framboð sitt fyrr en að loknu prófkjöri sjálf- stæðismanna í Reykjavík. Þá verða sjálfstæðismenn búnir að bítast hæfilega mikið og nógu margir óánægðir." Ámi Sigfússon borgarfulltrúi „Já, ég hef trú á að hann geri það. Eg byggi það á þeim frétt- um að hann sé að afla sér fy lg- is.aÉg vil hins vegar engu spá um það hvort hann nær ár- angri. Það er ekki málefnaleg- ur ágreiningur sem hefur komið fram. Það er fyrst og fremst persónufylgi sem hann væri að fá. Þaö benda hins vegar ýmsir á aö það geti verið tímabært fyrir hann að ljúka sínum pólitíska ferli og ég geri ráð fyrir að það muni togast á í honum hvort hann eigi að gera það." Júlíus Sólnes, prófessor og fyrrverandi formaöur Borgaraflokksins „Ég tel líklégt að hann fari í framboð. Ef hann fer fram geri ég fastlega ráð fyrir aö harin nái góðum árangri í kosningunum." Davíö Oddsson forsœtisráöherra: í gær hófst fundur leiðtoga að- ildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins í Brussel. Fundarins hefur veriö beðib meö mikilli eftirvæntingu, ekki síst af ríkj- um mið-Evrópu sem óskað hafa aðildar að NATÓ. Davíb Oddsson forsætisráöherra, sem situr fundinn fyrir íslands hönd, sagðist ánægður meö samkomulagið sem náðist í gær og hefur fengið heitið Fé- lagsskapur um frið. Davíö sagði samkomulagið opna leið fyrir fyrrverandi kommúnistaríki til ab starfa meb Atlantshafsbandalaginu þó að uppi væm mismunandi túlkanir á því hvort þessi samvinna tákn- aöi raunvemlegan áfanga að NA- TÓ-aðild eða ekki. Forsætisráð- herrann sagði að flestir leiðtog- anna vildu fara varlega í sakimar að draga nýja varnarlínu í Evr- ópu. Það væri ástæöan fyrir því að ekki væri gefiö loforð um fulla aðild aö ákveönum skilyrð- um uppfylltum. Davíð sagði eðlilegt aö miö-Evrópuríkin æsktu aðildar þó að þau viður- kenndu aö Rússland ógnaði ekld öryggi þeirra eins og stendur. Á það bæri að líta að aöildarríkin hefðu á sínum tíma nefnt ákveðna þætti eins og lýðræðis- lega stjómarhætti og markaðs- búskap sem aðgöngumiba aö bandalaginu. Það mætti því segja aö dymar hefðu verið opn- aðar í hálfa gátt ef menn næbu samkomulagi um frib sem leiö að fullri aðild. Davíð sagði ekki rétt að Rússum væri eftirlátið einskonar neitun- arvald í málefnum Mið- Evrópu- ríkjanna en leiðtogamir væm sammála um aö ekki væri rétt ab ögra Rússum að óþörfu. Forsæt- isráðherra taldi aö aðild Rússra sjálffa að NATÓ kæmi ekki til greina. Mikill munur væri á löndum eins og Póllandi, Tékk- landi, Slóvakíu og Ungverjalandi og ríkjunum fyrir utan þau. Maið-Evrópuríkin ættu tvímæla- laust menningarlega samleið með Vestur-Evrópuríkjunum þótt þau hefðu lent austan járn- tjaldsins um tíma. Bosnía rædd á lokub- um kvöldverbarfundi Davíð sagði ljóst aö þolinmæði aðildarríkjanna gagnvart friöa- spillunum í Bosníu, færi nú ób- um minnkandi. Hann sagbist samt ekki eiga von á aö leiötoga- fundurinn myndi senda frá sér sterkari yfirlýsingar um málið en þegar hafa komiö fram. Á það bæri að líta að innan Atlants- hafsbandalagsins væru ríki eins og Grikkland og Tyrkland sem hefðu í grundvallaratriðum ólíka afstööu til borgarastyrjaldarinn- ar. Forsætisráðherra sagði að ræöa ætti um ástandið í Bosníu yfir kvöldmatnum í gær en ekki væri við því að búast að niður- staöa yrði eftir þann fund. Davíð sagöi að sér fyndist mikill munur á andanum á fundinum í Brussel og síðasta leiðtogafundi aðildar- ríkjanna sem haldinn var í Róm fyrir tveimur árum. Þá hefði framtíðarhlutverk bandalagsins verib mjög óljóst en nú væri sýnt að krefjandi verkefni biðu þes að NATÓ sýndi hvað það hefði fram að færa. Bandaríkjaforseti ítrekar mikilvægi tengsla vib Evrópu Davíð taldi yfirlýsingu Clintons Bandaríkjaforseta um mikilvægi tengsla Bandaríkjanna við Evr- ópu sérlega ánægjulega. Það hefðu verið uppi efasemdir um áhuga stjórnarinnar í Washing- ton á gamla heiminum. Forsæt- isráðherra sagðist hafa rætt stutt- lega við Clinton og þá hefði komiö fram aö forsetinn væri vel heima í því samkomulagi um varnir íslands sem gert var í síö- ustu viku. -Sjá einnig frétt á bls. 9 Fjármálaráöuneytiö: Mjólkurvörur; kjötvörur, egg, fiskur og innlent grœnmeti lœkka lítiö: Sætar neysluvörur lækka helmingi minna en aðrar Yfirlit fjármálaráðuneytisins um verðbreytingar vegna lækkunar vsk. á matvöm vek- ur gmn um að sú 8,4% verð- lækkun sem af henni átti að hljótast nái í raun aðeins til minnihluta þess sem algengast er í innkaupakörfum almenn- ings. Þannig verður ekki nema 3-5% verðlækkun á fjölmörg- um algengum matar- og drykkjarvömm, t.d. flestum sykmðum vömm. Og þar á of- an segir ráðuneytið litla sem enga verðlækkun á mörgum matvömm sem áður hlutu niðurgreiðslur á vsk. eða verði, svo sem; mjólkurvörum (öðr- um en smjöri), kjötvömm, eggjum, flestum tegundum fisks og innlendu grænmeti. Lækkun matarskattsins virðist því ekki öll þar sem hún er séð. Á sama tíma og virðisauka- skattur á flestar matvömr var lækkaður (úr 24,5% niður í 14%) vom nefnilega afnumdar endurgreiðslur virðisauka- skatts og niöurgreiðslur af inn- lendum matvömm. Jafnframt var lagt 6% vörugjald á fjöl- margar matvömr. Á hinn bóg- inn var vömgjald lækkað úr 25% niður í 18% á nokkmm vömm sem áfram bera fullan matarskatt. Helstu verðbreyt- ingar sem ráðuneytið segir fólki aö gera ráð fyrir em sem hér segir: Lítil sem engin verðlækkun verður á vörum þar sem vsk. var áður endurgreiddur eða niöurgreiddur í 14%. Mjólkur- vömr (aörar en smjör), kjöt- vömr, egg, neyslufiskur og innlent grænmeti tilheyra þessum flokki. Unnar kjötvör- ur eiga aö vísu aö lækka nokk- uð og því meir sem þær em meira unnar. Og aðeins 3-4% verðlækkun veröur á þeim vömm sem á er lagt 6% vömgjald á móti lækk- un matarskattsins. Þetta á við um fjölda algengra neysluvara svo sem; kaffi og te ásamt sykr- uðum vömm, t.d. sultum, grautum, niðursoðnum ávöxt- um, snakkvömm og ís. Og sama máli gegnir um sykur (á honum hækkar vömgjald úr 25% í 30%). Um 5% verðlækkun verður á gosdrykkjum, ávaxtasafa, sæl- gæti og sætu kexi, sem áfram bera fullan matarskatt, en vömgjald var lækkað úr 25% niður í 18%. Ráðuneytið nefnir síðan kom- og brauðvömr, ferska ávexti, innflutt grænmeti og feitmeti sem helstu dæmi um vömr sem njóta óskertrar lækkunar matarskattsins og áttu því að lækka um 8,4% um áramótin. Varla mun heldur að vænta mikillar verðlækkunar hjá veitingahúsum. Sala þeirra verður með 24,5% vsk. sem þau eiga að fá endurgTeiddan að því marki að skattlagning á matarþáttinn í sölunni svari til 14%. En bæði er, að þau hafa átt þess kost að kaupa innlent hráefni sem bar raunverulega aðeins 14% vsk. og gefur að því leyti ekki tilefni til lækkun- ar. Og einnig, að hráefni er að- eins í kringum þriðjung sölu- verðsins. Ráðuneytið bendir á, að verð- breytingar vegna lækkunar vsk. áttu að koma í ljós strax I ársbyrjun en endanleg áhrif af breytingum vömgjalds geti frestast nokkuð vegna birgða. Verðlag getur því verið að rokka upp og niöur næstu vik- umar. - HEI -Óhlu Ö£ jtirf imi:

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.