Tíminn - 19.01.1994, Blaðsíða 6

Tíminn - 19.01.1994, Blaðsíða 6
6 Siíiiiiww Mi&vikudagur 19. janúar 1994 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Rusl af öskuhaugum á ísafirbi í fjörunni vib flugbrautina gegnt flugstöbvar- byggingunni. Austurland Vopnafjörbur: Öllu starfsfólki Tanga hf. sagt upp Öllu starfsfólki Tanga hf. var sagt upp störfum fyrir áramót vegna hráefnisskorts. Ekki var ákveöiö hvenær vinna hæfist aftur þar sem unfangsmiklar breytingar eru fyrirhugaöar á vinnslukerfi fyrirtækisins og þá einnig vegna sjómanna- verkfallsins. Sett veröur upp ný flæöilína í húsið og krefst þaö verulegra breytinga innan- húss þar sem færa þarf til veggi og byggja nýja og færa til vélar. Næg atvinna var í húsinu allt sl. ár og er þaö ekki síst aö þakka Rússafiskinum. Sam- kvæmt níu mánaöa ársupp- gjöri var afkoma fyrirtækisins á síöasta ári því nokkuö góð. Seyöisfjöröun Fjögur störf fyrlr fatlaða Fyrirtækiö frú Lára var stofnað 1987 og hóf rekstur ári síöar. Stjórnarformaður er Þórdís Bergsdóttir. Þar hefur ýmis starfsemi verið undanfariö s.s. minjagripagerð og annar smá- iönaður og sala þeirrar fram- leiöslu. Undanfarin tvö ár hef- ur fastráðinn framkvæmda- stjóri unnið þar, Loise Heite. Hún er bandarísk og kenndi um árabil viö Seyðisfjarðar- skóla. Nú er unniö að undirbúningi ullarvinnslu á vegum fyrirtæk- isins og hafa verið fest kaup á húshæði að Öldugötu 9. Rann- sóknaráö ríkisins hefur lánað endurgjaldslaust til tveggja ára ullarvinnslufyrirtæki, tætara og spunavél. Markmið ullar- vinnslunnar er að framleiða band úr alíslenskri ull fyrir handverks- og listafólk og til vefnaðar. Slíkt band er ekki til á öllu landinu utan þess sem örfáir einstaklingar eru aö vinna í höndunum. Síðan er markmiðiö að í tengslum viö ullarvinnsluna verði starfrækt vefstofa. í ullarvinnslurmi og vefstof- unni er í framtíöinni gert ráð fyrir 10 störfum, þar af verði 5 störf fyrir fatlaða. Nú þegar hafa fjórir fatlaðir hafið hluta- starf vib undirbúningsvinnu, s.s. við að taka ofan af ull (skilja tog frá þeli). Þess má geta að miklir mögu- leikar eru á að skapa fleiri og fjölbreyttari störf fyrir fatlaða í þessu húsnæöi vegna stærðar þess. Landssamtökin Þroska- hjálp hafa styrkt þetta verkefni og greiba hálf laun umsjónar- manns eöa til verkstjórnar 4 fötluðum starfsmönnum. VESTFIRSKA | FRÉTTABLAÐlol ISAFIRÐI Plastpokaregn yfir fluqbrautina Unaanfarið hefur gríðarlegt magn af stórum plastpokum utan af rækju fokið af rusla- haugum ísafjaröar yfir á flug- brautina. Hefur ruslið setið fast á brautarljósum, í girðing- um og byggingum og starfs- menn flugvallarins hafa haft í nógu aö snúast vib að losa sig við ruslið. „Við emm margbúnir ab tala við bæjaryfirvöld um þessi mál og við getum alveg eins talað hér við vegginn," sagöi einn starfsmannanna. „Það er jafn- vel hætta á að þetta plastdrasl fjúki á flugvélar í flugtaki og þá þarf ekki ab spyrja um af- leibingarnar. Bærinn ber ábyrgð á þessu." Seladrápib í Skjald- bjarnarvík í lok október síðasta haust fundu selveiöimenn frá Dröngum á Ströndum hátt á fjórða tug dauðra útselsskópa í Skjaldbjamarvík á Ströndum. Neðri kjálkana vantaði á selina en þeir em notaðir sem sönn- unargögn þegar hringorma- nefnd greiðir fyrir selina. Sögðu Drangamenn ab að- koman hefði verið heldur sóðaleg og því var málið kært til lögreglu og því haldið fram ab þama væri um veiðiþjófnað að ræða. Á þessum tíma vom Finnbogi Jónasson og Þráinn Arthúrs- son, báðir frá ísafirði, við úts- elskópaveiðar í Bolungarvík á Hornströndum, sem er litlu Finnbogi Jónasson og Þráinn Arthúrs- son, meintir sakamenn ímálinu. norðar en Skjaldbjarnarvík. Voru þeir yfirheyrðir af lög- reglunni á Isafirði vegna þessa máls og teknir af þeim yfir 80 útselskjálkar. Finnbogi hefur sagt að hann hafi aldrei í Skjaldbjarnarvík komið og veiöiþjófhaðurinn væri trúlega svibsetur af Drangamönnum til að koma höggi á þá félag- ana. Að sögn Ríkharðs Mássonar, sýslumanns Strandasýslu, mim Sigurður Richter, rannsókna- mabur á Keldum, bera kjálk- ana saman við hausa sem sótt- ir voru í Drangavík hálfum mánuði eftir að atburöurinn átti sér stað. Þá fundust aðeins tvö selshræ á vettvangi. Samtök selabænda hafa talaö um að kosta DNA-rannsókn, en ekki verður af henni ef hægt er að leysa málið á ódýr- ari hátt. UÐURNESJA I f= R feT-n r=t Metár í Bláa lóninu 108 þúsund gestir komu í Bláa lónið á síöasta ári. Er þetta mesti fjöldi baðgesta á einu ári frá því ab lóniö var opnaö. Aukning er mest í erlendum ferðamönnum að sögn Kristins Benediktssonar, framkvæmda- stjóra baðhússins við Bláa lón- ið, Árið 1992 komu um 80 þús- und gestix í Bláa lónið og 1991 voru gestirnir 89 þúsund og var það metár. Kristinn sagði að áætla mætti að um 130 þús- und manns hefðu á síöasta ári komið á Bláa lóns svæðiö ef taldir væru með allir þeir sem kæmu til að skoða svæðið og lónið. Opiö var um áramótin í lón- inu og í vikunni á eftir komu um 1000 manns í lónið. Þá var töluvert um erlenda ferða- menn sem hér dvöldu yfir ára- mótin. Nýlega tók Heilsufélagið vib Bláa lónið hf. við rekstri bab- hússins og mun annast frekari uppbyggingu ferðaþjónustu á Bláa lónssvæðinu. Suöurnes: Kristján Pálsson maður ársins Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarðvík, var valinn af lesend- um Suöumesjafrétta og hlust- endum Brossins, maður ársins 1993. Fjöldi tilnefninga barst og margir einstaklingar nefnd- ir. Þá var Jón Kr. Gíslason val- inn íþróttamaður ársins. „Undirbúningur að stofnun Eignarhaldsfélags Suðurnesja stendur hæst að mínum dómi á síðasta ári, en síbasta árið er Kristián Pálsson, og Jón Kr. taka á móti viburkenningum sínum. búið að vera einstaklega skemmtilegt. Þá bæði á sam- eiginlegum vettvangi sveitarfé- laganna og hér í Njarðvík," sagði Kristján þegar hann var spurður að því hvað hann teldi bera hæst frá síðasta ári. Kristján varð bæjarstjóri í Njarðvík árið 1990 en hafði ábur verib bæjarstjóri í Ólafs- vík. „Ég er búinn að starfa að sveitarstjórnarmálum síðan 1977. Ég var sveitarstjóri á Súgandafirði í þrjú ár en flutti eftir það til Ólafsvíkur til að taka viö rekstri útgerðarfyrir- tækis." Að sögn Kristjáns var margt ab gerast á vettvangi sveitarstjómanna á síbasta ári. Eignarhaldsfélag Suðurnesja var stofnað og sagöist Kristján telja að stofnun þess hefði ver- ib mikill móralskur ávinningur fyrir Suðumes, enda hafi náðst góð samstaða um það mál. „ Nýjar metsölubœkur" kynntar. Pétur Már Ólafsson útgáfustjóri hjá Vöku-Helgafelli, Ólafur Ragnarsson forstjóri og Helga Þóra Eibsdóttir markabsstjóri. Tímamynd Vaka býbur ódýrar bækur Vaka-Helgafell hefur stofnað sérstakan bókaklúbb, „Nýjar metsölubækur", þar sem boðið er upp á nýjar metsölubækur eftir erlenda höfunda, sem ekki hafa komið út áður á íslensku. Vegna hagstæbra samninga er hægt aö bjóða þessar bækur á meira en helmingi lægra verði en á hliðstæöum bókum fyrir jól* Vaka-Helgafell gekkst fyrir könnun mebal landsmanna þar sem spurt var hvernig bækur þeir vildu lesa. Niðurstaðan varð ab flestir vildu nýjar, þýddar metsölubækur eftir er- lenda höfunda, innbundnar. í kjölfarið var tekin ákvörðun um stofnun bókaklúbbsins. Til þess að geta boðið bækurnar sem ódýrastar var leitað allra leiöa til hagræðingar við vinnslu þeirra. Prentunin var m.a. boðin út og kom hagstæö- asta tilboðið erlendis frá. -ÁG Grundartanga- höfn stækkuö? Stjóm Grundartangahafnar hefur ákveðiö að kanna möguleika á stækkun hafnarinnar. Þegar hef- ur verið óskað eftir því við Haf- rannsóknarstofnun að hún vinni ákveðnar grunnupplýsingar í sambandi vib hafnargerö á Grundartanga. Ástæöan fyrir hugmyndum um stækkun hafn- arinnar er að stór skip, sem flytja hráefni til Jámblendiverksmiðj- unnar, geta ekki lagst ab bryggj- unni eins og best yrði á kosið. Á seinni áram hafa aðföng til Járnblendiverksmiðjunnar á Grandartanga verið flutt með æ stærri skipum. Þau hafa ekki get- að lagst að bryggju nema fyrir enda hafnargarðsins. Þess vegna hafa menn rætt um nauösyn þess að lengja hafnargarðinn. Allt bendir til að stækkun hafnarinn- ar yrði ódýr framkvæmd, því mjög aödjúpt er í Hvalfirði og ekki þarf aö byggja neinn skjól- garb. Nóg er að byggja hafnar- garö beint út í fjöröinn. Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi um frekari uppbyggingu iðnaöar á Grundartanga, sem sumar hverjar myndu kalla á bætta hafnaraðstöðu. Ab sögn Jóns Hálfdánarsonar, formanns stjórnar Grundar- tangahafnar,*er máliö ekki komið á þaö stig að hönnun hafnar- garösins sé hafin, en búast má viö að ákvörðun um að hefja hönnun veröi tekin eftir nokkra mánuði. -EÓ Landsmót ab Laugarvatni: Búist við allt ab 2500 keppendum Búist er við 2.200-2.500 kepp- endum á landsmót UMFÍ, sem haldið veröur aö Laugarvatni dagana 14.-17. júlí nú í sumar. Undirbúningur vegna mótsins er í fullum gangi og ekkert viröist vera í veginum fyrir því að halda megi myndarlegt mót. Að sögn Ólafs Arnar Haralds- sonar, framkvæmdastjóra móts- ins, er búist við á milli 6.000- 7.000 áhorfendum á mótið, en bjartsýnustu menn gera ráð fyrir 15.000 áhorfendum. Er í þessu sambandi horft til landsmótsins sem haldið var á Laugarvatni áriö 1965, en þangað komu um 25 þúsund manns, að því talið er. Ólafur sagði aö framkvæmdum á Laugarvatni vegna mótsins væri að mestu lokib. í haust hefði ver- ið lokið viö gerð íþróttavallar, en á vormánuðum yrðu hlaupa- brautir, sem lagbar era gerviefn- um, kláraðar. Þá er á staðnum nýlegt íþróttahús og sundlaug, sem tekin var í gagnið fyrir tveimur áram. Skráningarfrestur til þátttöku á mótinu er liðinn. Keppnisgreinar á landsmótinu vera með hefð- bundnu sniöi, þ.e. frjálsar íþrótt- ir, sund, starfsíþróttir og bolta- greinar. Nokkur áhersla verður lögö á körfubolta, en átján körfu- boltalið, þar á meðal öll þau bestu í landinu, hafa skráð sig til þátttöku. En landsmótiö er ekki bara íþróttakeppni. Á mótinu í sumar veröur mikil áhersla lögb á fé- lagslega þáttinn, svo sem sam- vera fjölskyldunnar, ræktun lýbs og lands, skógrækt og fleiri slík málefni sem ungmennafélögin settu á oddinn á fyrri hluta aldar- innar. -sbs, Selfossi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.