Tíminn - 20.01.1994, Page 6
Fimmtudagur 20. janúar 1994
%
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
„Hvemig fór ég ab því?“ spurbi Ottó Marvin og leit upp úr myndabókinni,
er hann var spurbur hvort hann myndi eftir því þegar hann datt í djúpa
pollinn. Foreldramir, Cunnar Ingi Valgeirsson og Kristín jónasdóttir, koma
hinsvegar aldrei til meb ab gleyma því atviki.
Eystra-|
hornl
Mabur árslns 1993
Maður ársins hér í A- Skafta-
fellssýslu var valinn Gunnar
Ingi Valgeirsson. Þá nafnbót
hlaut hann fyrir björgun
mannslífs, en hann var svo
gæfusamur ab bjarga tveggja
ára syni sínum, Ottó Marvini,
frá dmkknim í mars sl.
Það voru hlustendur Top-
bylgjunnar sem völdu mann
ársins, en Top-bylgjan, Eystra-
Hom og Hótel Höfn stóðu að
kjörinu, sem fram fór á nýárs-
fagnaði Hótels Hafinar.
Atvinnuleysi
Um tvö hundruð manns em
nú á atvinnuleysisskrá hjá
Verkalýðsfélaginu Jökli og enn
fleiri ganga atvinnulausir, þar
sem undirmenn á bátaflotan-
um, sem nú em í verkfalli, em
ekki inni í þessari tölu.
Fiskvinnslustöðvarnar eru
lokaðar og einu bátarnir sem
fá að róa eru smábátar með
kvóta, en þeir komast ekki á
sjó nema þegar best er veður
og blíöast. Þeir hafa þó fengið
ágætan afla 'þá fáu daga, sem
þeir hafa róið síðan um ára-
mót, og verð á mörkubum hef-
ut verið upp á það bésta vegna
mikillar eftirspumar.
Suwwtofea
FRÉTTABLAÐIÐ
SELFOSSI
Áfengisvamanefnd Selfoss:
„Áfengi selt
án leyfis"
Áfengisvamanefnd Selfoss vill
ab ráðinn verði sérstakur vín-
eftirlitsmaður með vínveit-
ingahúsunum í bænum. Þá
telja nefndarmenn sig hafa
rökstuddan grun um að á
tveimur veitingastöðum fari
fram áfengissala án þess að
Ieyfi sé fyrir hendi. Einnig sé
uppi þrálátur orðrómur imi aö
landi sé seldur á vínveitinga-
stöðunum á Selfossi. Þetta em
alvarlegar ásakanir á hendur
veitingamönnum í bænum.
„Það er þörf á róttækum að-
gerðum, ef menn vilja hafa
þessi mál í lagi. Lögregían hef-
ur ekki staöið sig í stykkinu
með eftirlit á þessum stöðum,"
sagbi Þórbur Á. Gunnarsson,
einn nefndarmanna.
Á fundi nefndarinnar flutti
Þórður tillögu þess efnis að
ekki yrði mælt með endumýj-
un vínveitingaleyfa eða nýjum
leyfum, eins og eftirliti meb
vínveitingahúsum væri nú
háttað. Sú tillaga var aðeins
samþykkt af tveimur nefndar-
mönnum af fimm, en tillög-
unni fylgdi harðorð greinar-
gerð í fimm liðum.
í öðrum lið greinargerbarinn-
ar segir m.a. orðrétt: „Nefndin
telur sig hafa rökstuddan grun
um að á tveimur stöðum hér í
bæ fari fram áfengissala án
þess að um leyfi sé að ræða.
Þess má geta að báðir þessir
staðir hafa sótt um leyfi, en
verið synjað." Undir þetta
skrifa fjórir nefndarmenn af
fimm og allir nefndarmenn
skrifa undir þann lið greinar-
gerðarinnar þar sem segir ab í
gangi sé þrálátur orðrómur um
landasölu á vínveitingastöðum
á Selfossi.
Þá er greint frá því í greinar-
geröinni að vitað sé um stað
sem ekki virði reglur um opn-
unartíma og loki ekki fyrr en
,síöasti gestur fer. Á sama stað
séu oft mjög ungir gestir.
SS áformar ab
flytja alla nauta-
slátrun á Selfoss
Sláturfélag Suðurlands áformar
nú að flytja alla nautgripaslátr-
un frá Vík og Kirkjubæjar-
klaustri á Selfoss. Þetta er talið
spara félaginu 1-2 milljónir kr.
á ári. Á móti kemur aö slátmn
eystra hefur skapað dágóðum
hópi sveitafólks eins til tveggja
daga aukavinnu í mánuði
hverjum.
Páll Lýðsson, stjómarformað-
ur SS, sagbi að engin ákvörðun
hefði verið tekin, en beðið
væri eftir áliti atvinnumála-
nefndar í hreppunum. Ab-
spurður um hvort ekki væri
langt að flytja naut austan af
Síbu á Selfoss, benti Páll á að
það væri þó styttra en að flytja
sunnlensk naut norður á
Havmmstanga, eins og gert
var í sumar.
Góbar horfur í
framleiöslu ein-
inqahúsa
„Þab hefur verið samdráttur í
framleiðslunni frá því sem var
fyrir 1985, en hún hefur verið
að stíga uppávið núna upp á
síðkastið," sagði Óskar Jóns-
son, sölu- og ftamleibslustjóri
hjá S.G. einingahúsum hf. á
Selfossi, um horfur í fram-
leiðslu á einingahúsum.
Það var árið 1965 sem Sigurð-
ur Guðmundsson hóf fram-
leiðslu á íbúðarhúsnæði í ein-
ingaformi. Fyrst var aðeins um
framleibslu á timburhúsum að
ræba, en síðan var í kringum
það stofnað innflutningsversl-
un með timburvörur og skyld-
an varning. í tengslum við
S.G. búðina er síðan vélavinna
og önnur vinnsla á timbri fyrir
almenning. Fyrirtækið varð að
hlutafélagi árib 1982.
Skagablaðið
AKRANESI
1993 metár í fæb-
inqum á Akranesi
Faéoingar á Sjúkrahúsi Akra-
ness voru fleiri á nýliðnu ári
en verið hefur allt frá árinu
1979. Alls fæddust 210 böm á
Créta Cubmundsdóttir varb fyrst til
ab fceba bam á hinu nýhafna ári á
Sjúkrahúsinu á Akranesi.
fæöingardeildinni í fyrra, 18
fleiri en árið á undan. Þetta er
9% aukning á milli ára.
Tvennir tvíburar komu í heim-
inn hér á Akranesi í fyrra. Aðr-
ir em Akurnesingar, en hinir
em utan bæjarins.
Hlutdeild Skagamanna í
fjölda fæðinga jókst verulega
frá árinu 1991. Það ár eignuð-
ust Skagamenn 76 nýbura á
móti 116 bömum utan bæjar-
ins.
Carbyrkjubœndur óttast leyfban innflutning á garb-
yrkjuafurbum:
„Sömu lögmál
í garöyrkju
og skipasmíöum"
„í raun gilda sömu lögmál fyrir
afkomu garðyrkjunnar og
skipasmíðaiðnabinn. Okkur
garbyrkjubændum er ókleift að
keppa á sanngirnisgrundvelli
vib niðurgreiddan innflutning
frá Evrópu — rétt eins og hér-
lendar skipasmíðastöbvar geta
ekki keppt við kollega sína er-
lendis, sem fá mikinn stuðning
frá rikinu," segir Kjartan Ólafs-
son, formabur Samtaka garð-
yrkjubænda. Um áramótin,
með tilkomu EES-samningsins,
var opnað fyrir innflutning
nokkurra tegunda grænmetis
og blóma vissan tíma úr ári og
það án nokkurra vemdartolla.
Segir Kjartan að slíkt geti riðið
mörgum garbyrkjustöbvum aö
fullu, en margar þeirra standi
illa.
Varöandi leyfðan innflutning
er hægt að taka tómata sem
dæmi. Innflutningur, án nokk-
urrar verndar gagnvart inn-
lendri framleiðslu, er leyfður
frá 1. nóvember fram til 15.
mars á vetri hverjum. Innlend
framleibsla er á markaðnum frá
15. apríl og fram til loka októ-
ber. Innflutningur á fimm teg-
undum blóma er leyfður frá 1.
desember og fram til loka april.
Misjafnt er hve stóran hluta
ársins hægt er að framleiða
blóm í íslenskum gróðurhús-
um. Þetta er kjarni þess, sem
EES-samningurinn kemur vib
garðyrkjuna.
Að sögn Kjartans Ólafssonar
hafa forystumenn garðyrkju-
bænda átt fundi með ráða-
mönnum í ráðuneytum vegna
þessa. Vilja þeir, ab í málsbætur
við þennan leyfða innflutning
verði felldir niður tollar af ýms-
um aðföngum til garðyrkjubú-
skapar. Einnig hafa þeir átt
fundi með mönnum hjá Raf-
magnsveitum ríkisins um sölu-
skilmála á rafmagni og jafnvel
hagstæðari kjör í kaupum á raf-
orku. Slíkt er mikilvægt fyrir af-
komu greinarinnar, þar sem
raflýsing með sérstökum lömp-
um gerir nú kleift að stunda
ræktun við fullkomna lýsingu
jafnvel í svartasta skammdeg-
inu. Segir Kjartan menn hafa
tekiö þessum málaleitunum
vel, en þorir ekkert að segja um
árangur þess. „Þetta er jafn óút-
reiknanlegt og veðráttan," segir
hann.
„Það verður mjög fljótt hægt
að sjá hvort garðyrkjan lifir
þetta af. Ef ekkert verður að
gert, munu einhverjir heltast úr
lestinni von bráðar, þaö er aö
segja þeir sem verst standa nú
þegar," sagöi Kjartan Ólafsson.
SBS, Selfossi
Erum ein í heiminum
um að fá að borga
McDonald's með korti
Sá sögulegi atburður varð hjá
McDonald's í Reykjavík að tek-
ið var við kreditkorti til greiðslu
fyrir veitingar í fyrsta sinn í
heiminum í þessari stóru veit-
ingahúsakeðju, sem starfar þó
vítt og breitt um veröldina.
Virðist þetta glöggt vitni þess
hvað íslendingar hafa orbið
miklum mun háðari greiðslu-
kortunum en nokkur önnur
þjóð um víða veröld.
Þjónusturit Visa hefur það líka
eftir eiganda McDonald's að
hann vildi með þessu svara
þörfum viöskiptavinanna, þótt
þetta séu óvenjulegir viöskipta-
hættir. Erlendis tíðkist víðast
hvar að fólk greiði lægri upp-
hæöir með peningum, en hér á
landi beri fólk iöulega einungis
á sér kreditkort eða ávísanir.
Væri ekki merkilegt rannsókn-
arefni af hverju Islendingar
hafa orðið öðrum fyrri til að af-
leggja notkim peninga að veru-
legu leyti?
-HEI
\