Tíminn - 16.02.1994, Page 1
SÍMI
631600
78. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Miövikudagur 16. febrúar 1994
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
32. tölublað 1994
Búvörulagafrumvarpiö veldur enn titringi innan
stjórnarfiokkanna:
Þingmenn
vilja breyta
frumvarpinu
Einar K. Gubfinnsson, alþingis-
mabur og nefndarmabur í land-
búnabamefnd Alþingis, segir
ljóst ab landbúnabamefnd
muni gera tillögur um breyting-
ar á fmmvarpi til búvörulaga.
Landbúnabarrábherra segist
ekki gera athugasemdir vib þab
þó ab frumvarpinu verbi breytt,
en mikil andstaba er innan Al-
þýbuflokksins vib allar hug-
myndir um breytingar á fmm-
varpinu.
Landbúnaðarnefnd hefur farib
ítarlega yfir búvömlagafmmvarp-
ið umdeilda og er meirihluti
nefndarinnar þeirrar skoðunar að
gera þirrfi breytingar á frumvarp-
inu. Nefndarmenn bæöi úr stjórn
og stjómarandstöðu em þessarar
skoðunar. Enn liggur ekki fyrir
hversu víðtækar breytingamar
verða, en það mun skýrast á fundi
í nefndinni á morgun.
Sú skoðun nýtur fylgis innan
nefndarinnar að nauðsyniegt sé
að gera breytingar á þeirri grein
laganna sem fjallar um jöfnunar-
gjöld. Fmmvarpið fjallar ekkert
um. jöfnunargjöld, heldur ein-
ungis um innflutning á búvömm.
Ljóst þykir aö verði gerðar tillögur
um breytingar á jöfnunargjöld-
um, mun það valda titringi innan
ríkisstjómarinnar, en alþýðu-
flokksmenn telja það vera brot á
samkomulagi stjómarflokkanna
ef þessum þætti laganna verður
breytt. Eins og kunnugt er, tók
þaö ríkisstjómina tvær vikur að
ná þessu samkomulagi.
Einar K. Guöfinnsson sagðist
ekki geta svarað því hvort nefnd-
in muni leggja til breytingar á
jöfnunargjöldunum, en þaö sé al-
veg ljóst að nefndin muni gera
einhverjar tillögur um breytingar
á frumvarpinu.
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráöherra sagði aö hann hefði lagt
áherslu á það í framsöguræöu
sinni að landbúnaðamefnd þyrfti
að fara vandlega yfir þetta mál.
Nefndin hafi að sjálfsögðu frelsi
til aö gera tillögur um breytingar
á fmmvarpinu, ef hún telji að
hægt sé að ná markmiðum þess
með öðmm hætti. -EÓ
Crín á öskudaginn
Halldór Blöndal segist vel geta
hugsab sér breytingu á frumvarp-
inu sem samþykkt var í ríkisstjórn.
Öskudagurinn er í dag og því má búast vib miklum fjölda grímuklæddra barna á sveimi um borg
og bí, syngjandi í verslunum og fyrirtœkjum í von um ab fá ab launum sælgœti. Víba um land
munu verba skipulagbar uppákomur í tilefni dagsins og í Reykjavík verba t.d. auk annars skrúb-
göngur frá Austur- og Vesturbœjarskólum kl. 71:00 nibur á Lækjartorg. Sumir krakkar gátu þó
ekki stillt sig um ab halda smá „generalprufu" ígær og á myndinni má sjá sex ára krakka úr Sel-
ásskóla undirbúa sig fyrir grímuball, sem var haídib í skólanum ígœr. Þeim til halds og trausts var
kennarinn þeirra, hún Edda Kristín Reynisdóttir. rímamyndcs
Atvinnuleysi á landinu var 7,7% í janúar. Um 10 þúsund manns hafa enga vinnu:
Um 20% kvenna á Austur-
og Noröurlandi án vinnu
Atvinnuleysi á landinu í
janúar var 7,7% og hefur
aldrei mælst meira í einum
mánubi síðan mælingar hóf-
ust. Um 20% kvenna á Aust-
urlandi og Norburlandi
vestra voru án vinnu. Jó-
hanna Sigurbardóttir félags-
málarábherra segir þetta
nokkrU meira atvinnuleysi
en hún hafi fyrirfram búist
vib. Hún segist svartsýn á ab
spá Þjóbhagsstofnunar um
5% atvinnuleysi á þessu ári
standist.
Verkfall sjómanna í janúar á
mestan þátt í þeim gríðarlega
háu atvinnuleysistölum sem
Kennarafélögin HIK og Kl:
Sameining á vinnslustigi
„Vib erum meb þing strax eft-
ir páska, 6.-8. apríl n.k., og vib
munum ekki táka neinar
ákvarbanir um framhaldib
fyrr en á því þingi, þar sem
stefnan Verbur mótub. Þab
hafa því engar ákvarbanir ver-
ib teknar af okkar hálfu og
allt málib er í raun á vinnslu-
stigi," segir Eiríkur Jónsson,
varaformabur Kennarasam-
bands íslands.
Svo kann ab fara ab kennarafé-
lögin tvö, Hib íslenska kennara-
félag og Kennarasamband ís-
lands, verði sameinað í eitt
kennarafélag. Á abalfundi HIK
sl. haust kom fram mikill vilji
félagsmanna um að félagið
verði sameinað KÍ. Helsta rök-
semd HÍK fyrir sameiningu fé-
lagarina í eitt félag er að það
muni styrkja kennarastéttina,
bæði faglega og kjaralega.
Hinsvegar mun afstaða KÍ til
sameiningar ekki skýrast fyrr en
í byrjun aprílmánabar. Engu að
síður er verið aö vinna að mál-
inu og m.a. hafa fastanefndir fé-
laganna fundað, formenn félag-
anna hafa hist reglulega og í
undirbúningi er ab halda al-
menna félagsfundi run samein-
ingarmálib. í þessari vinnu er
t.d. verib ab kanna hvar snerti:
fletimir em og hvar geti verib
um hugsanlegan ágreining að
ræða o.s.frv.
Félagsmenn innan raba KÍ em
eitthvað um 3900, en um 1200
hjá HÍK. Uppistaðan í HÍK em
framhaldsskólakennarar, þar
sem aðeins um 5% félagsmanna
em gmnnskólakennarar. Af fé-
lagsmönnum KÍ er mikill meiri-
hluti gmnnskólakennarar, en
eitthvab um 25% framhalds-
skólakennarar. -grh
birtast í janúarmánuði. Lokun
fiskvinnsluhúsa olli því að
þúsundir fiskverkunarfólks
misstu vinnuna tímabundið.
Þetta á ekki síst við um konur.
Atvinnuleysi mebal kvenna á
Austurlandi var 21,7% í janú-
ar, 19,1% á Norðurlandi vestra
og 16,8% á Norðurlandi
eystra.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði
að þessar tölur væm hærri en
hún hefði reiknað með að þær
yrðu. Þetta sé sérstakt áhyggju-
efni. Jóhanna lagöi hins vegar
áherslu á ab staðan sé alls ekki
svona slæm í dag. Mjög marg-
ar konur hefðu fengið vinnu
síðustu vikur og daga. Hún
sagbist reikna með að ástandið
skáni nokkuð þegar líður á
vorið og átaksverkefni sveitar-
félaganna fara af stað.
Jóhanna sagði ab reikna megi
með að atvinnuleysi næstu
tvo til þrjá mánuði verði 6-7%,
en fari síðan lækkandi. Jó-
hanna sagði að það, sem valdi
áhyggjum, sé að atvinnuleysi
á höfuðborgarsvæðinu sé að
aukast, en það hafi ekkert með
verkfallið að gera. Fólk í versl-
un, þjónustu, byggingariðnaði
o.fl. sé þar að missa vinnu
sína. Þá sé atvinnuástand á
Vestfjörðum áhyggjuefni, en
þar gengur hratt á þorskkvót-
ann.
Jóhanna sagðist efast um að
spá Þjóðhagsstofnunar um 5%
atvinnuleysi á þessu ári stand-
ist. Líklegra sé að atvinnuleys-
ið verði nær 6%.
Atvinnuleysiö í janúar jafn-
gildir því að tæplega 10 þús-
und manns séu án vinnu.
Mest er atvinnuleysið um
norðan- og austanvert landið,
eöa á bilinu 12-15%. Á Vestur-
landi, Suðurlandi og Suður-
nesjum var atvinnuleysið 8-
9%. Minnst var atvinnuleysið
á Vestfjöröum, eöa 3,1%, en
þar jókst atvinnuleysi samt
mjög mikið milli mánaða og
flest bendir til að það eigi eftir
að aukast þar mikið á næst-
unni, ef þorskkvótinn verður
ekki aukinn. Á höfuðborgar-
svæðinu var atvinnuleysið
5,8% og jókst um 0,4% milli
mánaða. 9,7% kvenna á land-
inu voru án vinnu í janúar o;
6,2% karla. -E<