Tíminn - 16.02.1994, Blaðsíða 11
Mibvikudagur 16. febrúar 1994
11
Ástríður Gróa
Gubmundsdóttir
Fædd 22. mars 1900
Dáin 8. febrúar 1994
Þegar œviröðull rennur,
rökkvar yfir sjónum þér,
hraeðstu eigi hel né fortjald,
hinumegin birtan er.
Höndin, sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar. — Drottinn vakir
daga og naetur yfir þér.
(Sig. Kr. Pétursson)
Okkur langar aö mirinast
elskulegrar föðursystur okkar og
mágkonu. Ásta var fædd á Haf-
urhesti í Önundarfiröi, næst elst
af ellefu systkinum. Er hún var
um tvítugt missti hún móöur
sína og fjómm árum síöar fööur
sinn. Þá varö það hlutskipti Ástu
að annast yngri systkini sín, þar
á meðal fööur okkar Daníel. Þau
vom alla tíö mjög samrýnd.
Minningar tengdar Ástu
frænku em margar, en þó helst
þær stundir er hún og Ingi-
mundur maöur hennar dvöldu
hjá okkur á Efra-Seli, eöa í sveit-
inni hjá Danna bróöur, eins og
Ásta sagöi svo oft. Þá var tekiö
til hendinni viö heyskapinn,
fariö í gönguferöir, kýmar sóttar
með okkur krökkunum, sagðar
sögur, farið meö vísur, alltaf
glens og gaman. Ásta kunni
t MINNING
nöfn á nánast öllum fjöllum,
hæöum og hólum, fugla-,
blóma- og jurtanöfn. Hún var
afskaplega mikil útivistarkona,
enda ferðuðust þau hjónin mik-
iö um landið og höföu unun af.
Ásta og Ingimundur reistu sér
hús á Langholtsvegi 96 í Reykja-
vík. Garöurinn hennar Ástu var
sælureitur; þar undi hún sér við
aö laga og fegra. Mikill gesta-
gangiu var á Langholtsvegin-
um, enda vinir og ættingjar
margir. Alltaf var frændfólkiö úr
sveitinni svo hjartanlega vel-
komiö og móttökumar rétt eins
og kóngurinn væri í heimsókn.
Vinnudagurinn var langur,
enda hjónin mjög atorkusöm
og dugleg, eins og títt var um
fólk af þeirra kynslóö. Ásta var
ákaflega hlý og yndisleg kona,
sem veitti mikið af sjálfri sér og
mátti ekkert aumt sjá.
Þegar aldurinn færöist yfir og
veikindi herjuðu á Ástu og Ingi-
mund, önnuöust bömin þeirra
þau af einstakri hlýju og um-
hyggju. Ingimundur lést fyrir
nokkrum ámm, en Ásta hefur
dvalið á Hjúkmnarheimilinu
Skjóli undanfarin ár.
Fyrir allt þaö, sem Ásta veitti
okkur, þökkum viö af alhug. Nú
em þau öll látin, systkinin frá
Hafurhesti. Eftir lifa yndislegar
minningar. Guösblessun fylgi
þeim. Bömum Ásm og fjöl-
skyldum þeirra vottum viö inni-
lega samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Ásta mágkona og
böm, Efra- Seli
Móttökustjórinn
The Concierge 1/2
Handrit: Mark Rosenthal og
Lawrence Konner.
Framleibandi: Brian Grazer.
Leikstjóri: Barry Sonnenfeld.
Abalhlutverk: Michael j. Fox,
Gabríelle Anwar, Anthony Higglns,
Michael Tucker og Bob Balaban.
Háskólabíó.
Öllum leyfb.
Doug (Fox) er móttökustjóri
á stjömuhóteli í New York og
sér um aö kúnninn sé gerður
hamingjusamur meö öllum
ráöum. Draumur hans er að
eignast sitt eigið hótel, en
hann vantar fjármagn. Andy
(Anwar) er stúlkan, sem
Doug er ástfanginn af, en
hún á í sambandi við giftan
milljónamæring (Higgins).
Doug smjaörar fyrir honum
meö hótelið sitt í huga, en
eitt af verkum hans er að
eyða tíma sínum meö Andy
þegar milljónerinn er upp-
tekinn. Doug verður enn ást-
fangnari af Andy og veröur
aö velja á milli peninga og
ástar. Hvort skyldi hann
velja? Þarf einhver ab hugsa
sig um?
Þessi formúlusaga er meö
afbrigðum vitlaus og bama-
leg. Það er hreint ótrúlegt aö
hægt sé aö gera heila kvik-
mynd sem hefur ekki eina
ögöu af frumleika aö geyma.
Það er ekkert í söguþræöin-
um sem kemur á óvart og
fyrir hlé em allir búnir aö sjá
endinn fyrir. Myndin er frá-
KVIKMYNPIR
bært dæmi um þaö versta í
bandarískri kvikmyndagerö.
ÖIl fyrirbæri tilverunnar em
einfölduö og síðan matreidd
ofan í áhorfendur með til-
heyrandi vellu og ofurham-
ingjusömum endi, sem á ekki
aö koma neinum á óvart.
Barry Sonnenfeld, sem áöur
hefur gert ágætar myndir um
Addams-fjölskylduna, er hér
á miklum villigötum. Hvaö
var maðurinn að spá í? Eða
Michael J. Fox (Back to the
Future, Casualties of War
o.fl), sem hefur sýnt að hann
er frambærilegur Ieikari?
Hann hefur ekki valið hlut-
verk sín vel upp á síðkastið og
áframhaldandi þátttaka í
verkum eins og Móttöku-
stjórinn ætti að tryggja hon-
um fastan sess í B-mynda-
flokknum. Fox leikur svo sem
ekkert illa hér, heldur er það
hvaö hann er aö leika sem er
vandamálið. Gabrielle Anwar
er með fallegustu konum
þessa heims, en því miður er
þaö sorgleg staöreynd aö hún
er vitahæfileikalaus leikkona.
Móttökustjórinn er alveg
fjallleiöinleg kvikmynd, sem
ber aö foröast. Þaö er
skemmtilegra aö þvo bílinn
en aö sitja undir henni.
Öm Markússon
„ Hong Kong 94"
Asía er sífellt að koma
sterkar inn í mynd ftí-
merkjasöfnunar í heim-
inum. Nú virðast safnarar þar
hafa uppgötvað hin svoköll-
uöu Vesturlönd og tekiö held-
ur hressilega viö sér. Er það
ekki aðeins um að safna
heimafrímerkjum og selja þau,
heldur hafa þeir þegar gert
með nokkrum árangri út á
þennan vestræna markaö og
selt á honum. Má þar nefna
Ævintýraútgáfu Norður-Kóreu
og til dæmis frímerkjamynd-
ina þar sem drottningin ríður
smalamanni sínum til jóla-
halds.
Nú halda Asíuríki mikla frí-
merkjasýningu og bjóða Vest-
urlöndum til fagnaöar. Frí-
merkjasýningin er haldin í
njhrí funda- og sýningahöll í
Hong Kong, sem er stærsta
bygging þeirrar heimsálfu.
Hún er haldin af Félagi frí-
merkjasafnara í Hong Kong og
póstmálastofnun þessarar
bresku nýlendu. Helstu þátt-
takendur og stuðningsaðilar
eru svo Félag frímerkjasafnara
í Hong Kong, Landssamband
Merki sýningarínnar.
FRIMERKI
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
kínverskra frímerkjasafnara á
meginlandinu í Beijing,
Landssamband frí-
merkjasafnara á
Taipei, frímerkja-
safnarar á Macau,
Samband frí-
merkjasafnara í As-
íu og félög á meg-
inlandinu og í suö-
austurhluta álf-
unnar. Þá taka
kaupmenn og
póststjómir vítt of
veröld þátt í sýn-
ingunni. Central
Plaza, byggingin
mikla sem áður var
minnst á, Hong
Kong bankinn og
Cathay Pacific
flugfélagiö em svo
stubningsmenn
meö gagnkvæman
áhuga, þar sem
þessi félög og
stofnanir fá mikil viðskipti af
gestunum.
Þetta er fyrsta svæðissýningin
sem haldin er í Hong Kong.
Þess vegna var búist viö miklu,
bæöi í þátttöku og svo ekki
síður í absókn og verslun. All-
ar slíkar væntingar hafa hins-
vegar fariö svo langt fram úr
því sem ætlaö var, aö kalla hef-
ir oröið til aðstoð hvaðanæva.
Þetta sjá Asíubúar sem mjög
jákvæðan þátt, þvi það eykur
samstarf og samheldni og
kynnir betur frímerkin þeirra.
Sýningin „Hong Kong 94"
verður svo haldin dagana 18.
til 21. febrúar 1994 og em nýj-
ustu áætlanir aö aðsóknin
verði um tvö hundmö þúsund
gestir. Þeir kaupmenn, sem
hafa leigt sér bás í 7/F, Efri höll
Wanchai í þing- og sýningar-
höllinni, em orönir ýfir 130,
erlendar póstmálastjómir em
áttatíu og koma margir um
Frímerkjasöguhefti póstsins í Hong Kong.
Hildur álfadrottning þeysir á
smalamanni sínum til jólafagnab-
ar í álfheimum.
langan veg á sýninguna fyrir
þriggja daga sölu.
Auk hinnar hefðbundnu sýn-
ingar, sem dómarar úr F.I.A.P.
munu dæma, verður innan-
hússamkeppni milli hinna
ýmsu asísku skipuleggjenda.
Svo verður auðvitað ftímerkja-
sala af öllu svæöinu og frá
kaupmönnum víöa að, ásamt
sérstöku homi fyrir börn, þar
sem þau fá meðal annars byrj-
endatöskur fyrir frímerkja-
söfnun, sem póstmálastofnun
Hong Kong hefir útbúið.
Þá skulum viö koma aö
nokkmm þeim útgáfum, sem
koma í sambandi við sýning-
una. Þar má fyrst nefna frí-
merkjahefti, sem inniheldur
eins konar sögu hinna al-
mennu brúkunarfrímerkja í
Hong Kong. Skiptast þar á 60
síöur með sögu og texta á
ensku og kínversku og frá-
sögnum ásamt 30 myndum
gamalla málverka, ljósmynda
og mynta, ásamt seölum sem
segja prentunarsögu frímerkja
landsins. Þrjár síöur mismun-
andi frímerkja með samprent-
unum og myndum annarra
frímerkja, em einnig í heftinu.
Þama em myndir frímerkj-
anna sem notuö vom á póst
dagsins, allt frá 1862. Þetta
hefti kemur út í janúar 1994.
Loks er svo ab nefna blokkina
sem kemur út þann átjánda
febrúar. í henni er í raun að-
eins eitt frímerki, en jafnframt
er prentun þess sýnd meö lita-
pmfum frá upphafi til loka
prentunar í fjómm litum.
Ekki er mér kunnugt um aö
ísland hafi þegiö aö vera með,
né að nokkur umboðsmaður
hafi veriö skipaöur eða nokkur
íslendingur sýni þar. Því er nú
verr, því að þarna hefðum viö
margt getaö lært. Fulltrúi Póst-
málastofnunar mun þó verða
þama.