Tíminn - 16.02.1994, Blaðsíða 5

Tíminn - 16.02.1994, Blaðsíða 5
Mibvikudagur 16. febrúar 1994 5 Arthur Bogason: Urrdan Kristján, bítt'ann Dagana 1. og 2. febrúar s.l. birtust hér í Tímanum tvær greinar eftir Áma Benediktsson, formann Vinnu- málasambands samvinnufélag- anna, undir heitinu „Vakna Kristján, vakna þú". Greinamar ritar Ámi sem „opið bréf til Kristjáns Ragnarssonar", for- manns LÍÚ, og em þær örvænt- ingartilraun höfundar til að siga Kristjáni Ragnarssyni á íslenska trillukarla. Skrif bréfritarans era án vafa einhver þau svæsnustu sem sést hafa í langan tíma á opinberam vettvangi. Undirrituðum komu þau þó ekki á óvart. Frá því ég hóf störf viö réttindabaráttu smábátaeigenda hefur mér ekki dulist að Árni Benediktsson hef- ur trillukarla „á heilanum" og kennir þeim um alla óáran sem sækir að íslenskum sjávarútvegi. Hugmyndaflug Áma í þessu opna bréfi er þó meira en ég hef átt að venjast og afleiöingar þess að trillukarlar gangi yfir- leitt lausir era í hans augum orönar svo miklu alvarlegri en áður, aö ekki dugir minna en tvær breiðsíður í dagblaði til að siga formanni LÍÚ á þá. Þó fagna ég skrifum Árna Benediktssonar. Þau kortleggja nákvæmlega þá formyrkvuðu blindgötu, sem alltof margir áhrifamanna sjáv- arútvegsins era komnir í, og ör- væntingarfulla leit þeirra að undankomuleið. Hana hafa þeir nú fundiö. Hún heitir trillukarl- ar. Löng þvara í lítilli grýtu Tilgangur skrifa Áma er tví- þættur. Annars vegar vill hann sanna almenningi hvers konar þjóðar- böl trillukarlinn sé og hins veg- ar að siga Kristjáni Ragnarssyni, formanni LÍÚ, eins og bitglöð- um rakka á hann. Uppistaða bréfanna er þessi: 1. Ástæða hnignandi afkomu togara og annarra skipaflokka er aukinn afli smábáta. 2. Ástæöur slæmrar afkomu og minna framleiðsluverömætis fiskvmnslunnar er afli smábáta. 3. Ástæða lægri launa (en ella) hjá sjómönnum og fiskvinnslu- fólki er aukinn afli smábáta. 4. Minni, ef þá nokkur arður af hlutabréfum íslandsbanka," hundraða, ef ekki þúsunda milljóna króna afskriftir hans og jafnvel gjaldþrot, fái afli smábáta að haldast. 5. Fiskveiðasjóður mun tapa fé, hækka verður vexti svo allt verður á heljarþröminni hjá viðskiptavinunum, fái afli smá- báta að haldast. 6. Ástæða þess að ekki tókst að hafa hemil á fiskveiðunum var fjölgun smábáta. 7. Erfiðleikar viö að halda uppi stöðugri atvinnu í rfysti- húsum stafa af veiðum smábáta. Furðulegt að Ámi skuli ekki r?kja ástæður jarðskjálftanna í Kalifomíu til þess að skakmenn íslands vora samtímis að lemja landgrunniö með sökkum sín- um. Kjami upptalningarinnar er þessi: Ami fullyrðir aö afli smábáta undanfarin ár hafi valdið ómældum erfiöleikum í sjávar- útvegi og fái hann að halda sér, fara útgerðarfyrirtæki, fisk- vinnslur, bankar og í beinu framhaldi þjóðarbúið beint á hausinn. Amen. íslensk störf skipulögð til útlanda Vandræði fiskvinnslunnar í landi vegna minnkandi hráefn- is stafa af allt öðram ástæðum en Árni sveitist viö að sanna. Fyrst og fremst era ástæðum- ar þær að flotanum, sem land- aði „stöðuga hráefninu", hefur að stóram hluta verið breytt í verksmiðjuskipaflota, sem legg- ur engan afla til landvinnslunn- ar ásamt stórauknum útflutn- ingi á óunnum fiski. Lítum á tölur áranna 1982 og 1991, en það tímabil tekur Ámi Benediktsson sem sönnun þess að aukinn afli smábátaflotans sé að rústa sjávarútveginum og þjóðarbúinu: Árið 1982 var bol- og flatfisk- afli verksmiðjuskipa: 3.366 tonn (Útvegur 1982). Árið 1991 var bol- og flatfisk- afli verksmiðjuskipa (út- hafskarfi ekki mebtalinn): 113.236 tonn (Útvegur 1991). Útflutningur óunnins ísaðs fisks hefur þróast á eftirfarandi hátt á sama tímabili: Árið 1982: 38.341 tonn (Út- vegur 1982). Arið 1991: 95.667 tonn (Út- vegur 1991). Þögn Áma um þessa feikna- legu tilfærslu hráefnis frá fisk- vinnslunni í landi á sér auðvit- að góðar og gildar skýringar. Flest verksmiðjuskipanna vora áður hráefnisöflunartæki í eigu fiskvinnslunnar og hún því sjálf að færa frá sér hráefni land- vinnslunnar. Þá era fiskvinnslu- fyrirtækin sjálf einn helsti út- flutningsabili óimnins ísaðs fisks. Ámi kærir sig ekkert um að kryfja þetta, enda hefur verk- smiöjuskipavæðingin farið fram undir vemdarvæng þess er hann nú ákallar sér til fulltingis til að berja á trillukörlum. Breytt útger&arform veldur atvinnuleysinu Staöreyndin blasir vib. Sé mið tekiö af þessum tveimur áram, er hráefnisfærslan hátt í 160.000 tonn frá landvinnsl- unni. Til að menn geti glöggvað sig á umfanginu, þá jafngildir þessi afli öllu hráefni eftirtal- inna fiskvinnslufyrirtækja í landi á árinu 1991: ÚA Akureyri, Grandi Reykja- vík, Norðurtangi ísafirði, I04SK (nú Borgey) Höfn, Þormóður VETTVANCUR rammi Siglufirði, Fiskiðjan Sauöárkróki, Tangi Vopnafirbi, Hraðfrystihús Grandarfjaröar, Þorbjöm Grindavík, Vinnslu- stöðin og Fiskiöjan Vestmanna- eyjum (nú sameinuð), Fiskiðju- samlag Húsavíkur, Síldarvinnsl- an Neskaupstað (utan loðnu og sjófrystingar), Hjálmur Flateyri, Frystihús KEA Dalvík og Miðnes Sandgerði (Útvegur 1991). Til að hnýta þetta upp skulu afla- og ráðstöfunartölur sömu ára hjá smábátunum tíndar til: Á árinu 1982 veiddu smábátar u.þ.b. 17.000 tonn (nákvæma tölu er erfitt að fá, vegna þess skýrslufyrirkomulags sem var í Útvegi Fiskifélags íslands 1982). Á árinu 1991 veiddu smábátar 53.521 tonn (Útvegur 1991). í Útvegi 1982 er engar tölur ab finna yfir útflutning smábáta á óunnum fiski. í Útvegi 1991 kemur hinsveg- ar í ljós að af smábátum vora flutt út óunnin 1.844 tonn, eða rúm 3% af heildarafla hans það árib. Mismunurinn, tæp 52.000 tonn eöa um 97% aflans, fór beint til fiskvinnslunnar innan- lands. Smábátarnir, plástur á svöðusár stórútgerðar- innar Því blasir þab við að aukinn afli smábátaflotans hefur bein- línis komið í veg fyrir að land- vinnslan ýmist missti eða sendi sjálf í sjófrystingu enn meira af hráefni sínu en nú er. Eða treystir einhver sér til þess að halda því fram af alvöra að hefði stórskipaflotinn veitt aukninguna á smábátaaflanum tímabilið 1982 til 1991, hefði þeim afla verið ráðstafað í ein- hverjum öðram hlutföllum en hinum afla stórskipaflotans? Rök fiskvinnslunnar fyrir því að hún er einn helsti útflytjandi óunnins fisks era að þannig geti hún losað sig vib óhagkvæmt hráefni, jafnvel fyrir sæmilegt verð. Um þettá deili ég ekki. En í tilraun sinni til að siga for- manni LÍÚ á trillukarla hikar Ámi Benediktsson ekki vib að halda því fram að „... afli smá- báta, sem bætist við venjulega hráefnisöflun fyrirtækis yfir sumarið, skilar litlu eða engu í tekjur, en veralegri kostnaðar- aukningu". Og: „... reksturinn árið 1991 hefði verið allur ann- ar og betri ef smábátamir hefðu ekki verið búnir að taka hluta afla togarans, eða jafngildi hans". Alveg er meb ólíkindum að fiskvinnslan skuli þá ekki nota þennan öryggisventil, útflutn- ing á óunnum fiski, til að losna við drasliö sem Ámi telur smá- bátana færa ab landi. Trillukarlinn er gulls ígildi En samræmast fullyrðingar Áma um fánýti smábátaaflans veraleika dagsins í dag? Þann 19. janúar s.l. birtist í sjávarútvegsblaöi Morgunblabs- ins, Verinu, frétt um fisk- vinnslufyrirtækib Fiskkaup hf. í Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu saltfisks handa Katalóníuhéraði Spánar, dýrasta og kröfuharbasta saltfiskmark- aði heims. í fréttinni segir: „Fiskurinn veröur að vera mjög hvítur og þeir vilja einungis línufisk og helst af dagróðrabátum. Þetta era kröfuharðir kaupendur, en þeir borga líka fyrir gæðin." Einnig segir að Fiskkaup keyptu rúm 6000 tonn af fiski úr sjó á síðasta ári og miðað við meðal- afla smábáta þurfi yfir 200 trill- ur til að veiða þann afla. Orörétt segir forstjórinn: „Samtals era þetta um 270 manns sem hafa lifibrauð sitt af veiðunum og vinnslunni. Þetta er afli tveggja skuttogara sem era meb 20 manns um borð hver." Stóra söluaðilunum í saltfiski er fullkunnugt að hágæðasalt- fiskurinn er unninn úr hand- færa- og línufiski og að sá fiskur hefur skapað okkur forskot á dýrastu saltfiskmörkuðunum. Enda sitja þeir ekki uppi með Áma Benediktsson. Einhverskonar bilun Ég vil að endingu víkja að meginforsendu þeirri, er Ámi Benediktsson gaf sér viö út- reikninga þá er hann lagði fyrir Tvíhöfðanefnd á sínum tíma. Hún er sú að reikna heildaraf- komu togara, fiskvinnslu og viðkomandi launþega út frá þeirri forsendu að togaraflotinn hefði veitt aflaaukningu smá- bátaflotans og smábátaaflinn staðið í stað. Með öbram orðum: Ámi gef- ur sér ab stórskipaflotinn hefbi veitt enn meira en þau 400.000 tonn af þorski, sem hann veiddi umfram tillögur fiskifræðinga á áratugnum 1982 til 1991! Samt ritar hann: „... meb til- komu þeirra [smábátannaj var verið að vinna gegn því mark- miði laga um fiskveibistjóm að hafa hemil á veiðunum og reyna fremur að byggja upp fiskistofnana en ab stuöla að of- veiði" (!). Afsakið, mig sundlar, en ég spyr þó: Er Vinnumálasamband samvinnufélaganna einhvers- konar hæli? Höfundur er formabur Landssambands smábátaeigenda.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.