Tíminn - 03.03.1994, Síða 6
6
KJFimmtadagun:3.hrnarsTlí!94
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
YESTFIRSKA
| FRÉTTABLAP1Ö1
ISAFIRÐI
Nýtt verkmennta-
hús vib Fram-
haldsskóla Vest-
fjarba
Allt stefnir í aö fyrsti áfangi
verkmenntahúss við Fram-
haldsskóla Vestfjaröa verði
boöinn út snemma í apríl. Ný-
lega voru byggingarnefnd og
öðrum fulltrúum skólans
kynntar hugmyndir ab bygg-
ingu hússins, en Tækniþjón-
usta Vestfjaröa hefur umsjón
með verkinu í samvinnu við El-
ísabetu Gunnarsdóttur arkitekt.
í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir
um 460 fermetra byggingu, að
mestu á einni hæö, sem rúma á
grunndeild, málmiðna- og vél-
stjómardeild ásamt kennaraað-
stöðu. Húsiö verður byggt upp
á burðarvirki úr límtré, og er
miðað við að byggingartími
geti orðið skammur. Ef allt
gengur að óskum er jafnvel bú-
ist við að hægt veröi að flytja
starfsemi inn í húsiö á þessu
ári.
Verkmenntahúsið verður stab-
sett á lóö á milli Framhalds-
skólans og fyrirhugaðrar tón-
listarskólabyggingar og verður
fyrsti áfanginn næst bílastæð-
inu. Ráðgert er ab til viöbótar
þessum fyrsta áfanga verbi
byggð tvö hús á sömu lóð í
framtíöinni.
Aö sögn Björns Teitssonar
skólameistara er gert ráb fyrir
að öll kennsla í iðngreinum
verði koniin í hús á Torfnes-
svæðinu innan árs. Rafiðnaðar-
deild verður þá flutt á neðstu
hæö heimavistar, nánar tiltekið'
í noröausturenda hússins.
Útlitslega verbur tekiö mið af
núverandi byggingum, m.a.
varðandi lit og þakhalla.
Bygging Verkmenntahússins
er fjármögnuð aö 60% hluta af
ríkinu en 40% af sveitarfélagi.
Þegar er búiö ab veita vemlegri
fjárveitingu til verkefnisins af
báðum abilum, svo menn eru
bjartsýnir á ab dæmiö gangi
upp.
An efa verður þetta mikil lyfti-
stöng fyrir verkmenntanám í
framtíöinni.
Ódýrasti tónlist-
arskóli landsins
í tímaritinu Heimili og skóli, 1.
tölublaöi þessa árs, er gerður
samanburður á tónlistarnámi
vítt og breitt um landib. Það
vekur óneitanlega athygli aö
ódýrast er ab sækja sér sér-
menntun á þessu svibi hjá Tón-
listarskóla ísafjaröar. Ekki er þá
verið aö tala um einhvem titt-
lingaskít, því munurinn er oft á
tíöum allvemlegur.
Samkvæmt könnun blaösins
kostar veturinn hjá Tónlistar-
skóla ísafjarðar 23.000 krónur
og er afsláttur gefinn, sé um
systkini aö ræöa. Dýrast mun
hins vegar að afla sér þekkingar
á tónlistarsviðinu hjá Nýja tón-
listarskólanum, eða 43.000
krónur yfir veturinn. Þarna
munar hvorki meira né minna
en 20 þúsundum króna og er
þetta nærri tvöfalt verð Tónlist-
arskóla ísafjarbar. Sá skóli, sem
næst komst þeim ísfirska, var
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, en
þar kostaði sambærilegt nám
26 þúsund krónur.
Nýtt verkmenntahús verbur stabsett á lób Framhaldsskóla Vestfjarba í
forgrunni myndarínnar.
Misjafnt er þó á milli skóla
hversu marga valmöguleika er
um aö ræða í kennslunni, varð-
andi hljóöfæri og abra þætti.
Tekur tímaritiö reyndar fram að
þessi könnun sé hvergi nærri
tæmandi.
Súgfirbingar í
rútuferb um
Vestfjarbagöngin
Um næstsíðustu helgi fjöl-
menntu Súgfiröingar í nituferð
um nýju jarögöngin til ísafjarð-
ar. Það voru Vesturís og Vega-
gerö ríkisins sem bubu Súgfirð-
ingum upp á skoðunarferö í
rútum um nýju jarðgöngin
undir Botnsheiði. Fyrr um dag-
inn höfðu Súgfirðingar safnast
saman í Sólarkaffi og þótti vel
við hæfi ab fagna um leið þess-
um merka áfanga í samgöngu-
málum á svæðinu.
Hver rútan af annarri, full af Súg-
firbingum, fór um nýju Vest-
fjarbagöngin. Hér er ein rútan á
leib til ísafjarbar ab aka í gegnum
gatnamót ganganna.
Fjölmenni var í skoðunarferö-
inni um göngin og fariö var á
fjórum rútum. Um kvöldið var
síban slegið upp balli og jarð-
gangafagnaði haldið uppi langt
fram á nótt í félagsheimilinu á
Suöureyri meö þátttöku bor-
manna.
VESTMANNAEYJUM
Japanir ánægbin
Lobnan úr Eyjum
sú besta
Stærsti kaupandi á frystri
loðnu í Japan er Michirei Co.
Ltd. og hafa fulltrúar frá þeim
verið í Eyjum ab fylgjast meb
gæöum loðnunnar. Fulltrúamir
heita Yasuno og Fujiya og vom
þeir mjög ánægöir með gæði
loönunnar sem var verið að
frysta.
Þeir sögöu að fyrirtækiö ætlaöi
aö kaupa a.m.k. 1600 tonn af
frystri loönu og 600 tonn af
hrognum í Eyjum. Þeir gátu
þess að lobnan frá íslandi væri
óumdeilanlega sú langbesta
sem þeir hefðu keypt, en hún
væm fulldýr.
Að sögn Yasuno og Fuyija fer
markaöurinn í Japan fyrir frysta
loðnu sífellt minnkandi, en
þeir giskuðu á að hann væri nú
um 21-25 þúsund tonn á ári.
Samkeppnin um markaöinn
væri mjög hörö og kaupendur
yrðu aö treysta á góða lobnu.
„Við kaupum bara frá Eyjum,
því þaöan fáum vib besta hrá-
efnið," sögðu þeir félagar.
Pizzur á haf út
Strákarnir á veitingastaðnum
Pizza 67 létu sig ekki muna um
aö senda pizzur um*borö í
Bylgju VE, þegar ósk þar að lút-
andi barst. Fengu þeir Leiguflug
Vals Andersens í lið meö sér.
Flaug hann meö pizzurnar og
var þeim hent í sjóinn, þar sem
áhöfn Bylgju hirti þær upp.
Gekk allt að óskum og runnu
pizzurnar ljúflega nibur.
Munnleg frá-
sagnarlist lifir
Þaö var fjöl-
menni í
Safnahúsinu
þegar Einar
Kárason rit-
höfundur og
Þráinn Þóris-
son skóla-
stjóri fluttu
fyrirlestur um
munnlega frá-
sagnarlist á
dögunum. Hinir snjöllu fyrir-
lesarar komust að því að munn-
leg frásagnarlist væri enn fyrir
hendi hjá þjóöinni. Eldri fyrir-
lesarinn sagöi frá fömmönnum
í Þingeyjarsýslu, sem fóru bæ
frá bæ og sögðu sögur og jafn-
vel framhaldssögur. Sá yngri
vitnaði í Laxness og Bubba
Morthens máli sínu til stuðn-
ings.
Þessi fyrirlestur var fyrsta
uppákoman í Safnahúsinu í til-
efni af 50 ára afmæli lýöveldis-
ins og fór vel af stað.
Vibar Elíasson ásamt Yasuno og Fujiya.
Frambobslisti Alþýbubandalagsins í Hafnarfirbi:
Magnús og Lúbvík
í efstu sætum
Framboðslisti Alþýðubandalags-
ins í Hafnarfirði fyrir komandi
bæjarstjórnarkosningar hefur
verið samþykktur. Magnús Jón
Ámason bæjarfulltrúi skipar efsta
sæti listans og Lúbvík Geirsson,
blaðamaður og formabur Blaöa-
mannafélags íslands, skipar ann-
að sætið. Alþýðubandalagið á
einn fulltrúa í bæjarstjóm Hafn-
arfjarðar.
Ingibjörg Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri SÍNE, skipaði ann-
að sæti listans viö síðustu bæjar-
stjómarkosningar. Vegna anna
baðst hún undan ab vera áfram í
því sæti, en samþykkti aö skipa
sjötta sæti listans.
í þriöja sæti framboðslistans er
Guðrún Árnadóttir leikskóla-
stjóri, Gunnur Baldursdóttir
kennari í 4. sæti, Hörður Þor-
steinsson viðskiptafræðingur í 5.
sæti, Símon Jón Jóhannsson,
framhaldsskólakennari og rithöf-
undur, í 7. sæti, Lára Sveinsdótt-
ir, starfsmaður Verkakvennafé-
lagsins Framtíðar, í 8. sæti, Sigur-
björg Sveinsdóttir baðvöröur í 9.
sæti og Sólveig Brynja Grétars-
dóttir bankastarfsmaður í 10.
sæti.
Ekkert forval var viðhaft við val
á frambjóöendum á lista Alþýöu-
bandalagsins og var listinn val-
inn samkvæmt tillögum uppstill-
ingarnefndar undir forystu ínu
Illugadóttur húsmóður, sem skip-
ar 14. sæti listans. Aðrir í nefnd-
inni vom þau Þorbjörg Samúels-
dóttir verkakona, sem veröur í
21. sæti, og Árni Björn Ómars-
son. -grh
Minnispening-
ar afhentir
Forseta íslands voru í síðustu
viku afhentir þrír minnispen-
ingar, sem Seðlabankinn gefur
út í tilefni af 50 ára afmæli ís-
lenska lýðveldisins.
Peningarnir bera myndir af
fyrrverandi forsetum lýðveldis-
ins á annarri hlið, en á hinni
hlið þeirra allra er skjaldar-
merki íslands. Peningamir em
slegnir úr silfri og hver þeirra er
30 gr að þyngd. Nafnverö hvers
þeirra er eitt þúsund krónur.
Upplag peninganna er tak-
markað við níu þúsund af
hverjum peningi, þar af eru
þrjú þúsund í sémnninni gljá-
sláttu með mattri mynd og allt
að sex þúsund í venjulegri
sláttu. Þröstur Magnússon, graf-
ískur hönnuður, teiknaði
minnispeningana, en sláttu
þeirra annaðist Royal Mint í
Englandi. Sala myntarinnar
hófst 1. mars. Sölustaðir henn-
ar innanlands eru bankar og
sparisjóðir og helstu myntsalar
um land allt. Þrír sérslegnir
peningar í gjafaöskju kosta kr.
7.800, en meb venjulegri sláttu
kosta þeir 5.200. Stakir pening-
ar em seldir í afgreibslu Seöla-
bankans á kr. 2.900 sérslegnir
og kr. 1.900 með venjulegri
sláttu. Kynningartexti á ís-
lensku og ensku fylgir hverri
öskju. Ágóði af útgáfu minnis-
peninganna rennur í Þjóðhátíð-
arsjóð, en hann veitir árlega
styrki til varðveislu og vemdar
þjóðlegra menningarminja.
-GBK
Lágmarks-
verb á
grásleppu-
nrognum
Utanríkisráðuneytið hefur
ákvebið að lágmarksverð á sölt-
uðum grásleppuhrognum til út-
flutnings skuli vera 1300 þýsk
mörk á hverja tunnu í ár.
Verði verulegar breytingar á
markaði fyrir söltuö grásleppu-
hrogn, getur ráðuneytiö breytt
lágmarksverðinu.
Útflutningur á söltuöum grá-
sleppuhrognum er háður leyfi
utanríkisráðuneytisins og engin
leyfi verða veitt fyrr en grá-
sleppuvertíð hefst og þá aðeins
til tveggja vikna í senn.