Tíminn - 11.03.1994, Page 4

Tíminn - 11.03.1994, Page 4
4 Wiwsiwu Föstudagur 11. mars 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Utgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans ^ Prentun: Prentsmiöja Frjálsrar fjölmiölunar hf. Mánaöaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verö f lausasölu 125 kr. m/vsk. Börnin í brennidepli Frelsi einstaklingsins til að ráða sjálfur gjörðum sín- um og athöfnum telst til mannréttinda. Að hver og einn fái að leita hamingju sinnar eftir eigin leiðum og bera ábyrgð á sjálfum sér þykir sjálfsagt meðal lýðfrjálsra þjóða. Þangað er sóttur sá skilningur nú- tímamannsins sem leyfir honum að staðhæfa at- hugasemdalaust: Ég á mig sjálfur. En taumlaust einstaklingsfrelsi leiðir iðulega til þess að gengið er á rétt annarra og hagsmunir þeirra fyrir borð bornir. Samfélag fær ekki staðist nema réttind- um fylgi einnig skyldur og þegar jafnvægið þarna á milh raskast óhóflega, verður úr ýmist einræði eða upplausn. Slíkt upplausnarástand sýnist nú vera í svo hraðri uppsiglingu að ábyrgir aðilar eru famir að hafa áhyggjur af. Sú ákvörðun Sameinuðu þjóðanna að efna til árs fjölskyldunnar er af þessum toga. Hér á landi hafa stjómmálaflokkar sett fjölskylduvernd inn í stefnuskrár sínar, en hafa óljósar hugmyndir um hvernig á að framfylgja henni. Látið er sitja við þokukenndar ályktanir. Stjórnvöld í Bretlandi reka mikinn áróður fyrir því að gömul gildi varðandi trúmennsku og skyldurækið fjölskyldulíf verði innleidd í huga landsmanna á ný. En ekki tekst betur til en að sömu stjórnvöld verða að athlægi, þegar áhrifamenn og -konur gera sig ber að léttúð og taumleysi og skeyta hvorki um skömm né heiður í hamingjuleitinni. í Bandaríkjunum hafa verið kveðnir upp stefnu- markandi dómar um réttindi barna. Böm, sem em vanrækt af foreldrunum eða þurfa að búa við óþol- andi fjölskylduástand, geta losnað undan áhrifavaldi foreldra, og kosið sér aðra uppalendur eða heimili í þeirra stað. Þetta þýðir að bregðist foreldrar skyldum sínum, eiga' þeir á hættu að missa umráðaréttinn yf- ir börnum sínum. Þeim er afneitað. Hér á landi hafa deilur og dómar um umráðarétt fjögurra barna vakið mikla athygli og eru fjölmiðlar og fólk ófeimið við að taka afstöðu. Það má rekja til þess að við útlendinga er að eiga og em dæmin öðr- um þræði milliríkjamál. En á hverju ári verða 500 íslensk börn að ganga í gegnum skilnað foreldra með öllu því rótleysi og hugarvíli sem því fylgir. Barnaverndaryfirvöld fá ár- lega 1300 ábendingar um að eitthvað sé athugavert við barnauppeldi og verða að hafa afskipti af 800 börnum. Þessar upplýsingar koma fram í grein sem Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra skrifar til að kynna fmmvarp um að stofnað skuli embætti um- boðsmanns barna. Hann á að tryggja að hagur og réttindi barna sé í heiðri hafður. Hér er á ferðinni mál sem ekki á að valda togstreitu milli stjórnmálaflokka. Virðing Alþingis mun síst minnka við það þótt þingmenn láti af þeim vana sín- um að rífast og þrefa hver við annan með lítt rök- studdum ásökunum, þegar fmmvarpið um umboðs- mann barna verður tekið á dagskrá. Það mun aftur á móti gefa tilefni til mikilla um- ræðna um stöðu bama í þjóðfélaginu og það um- hverfi sem þeim er skapað. Þar hljóta fjölskyldumál að vera í brennidepli og þá hvernig þjóðfélagið býr að fjölskyldunni og hvaö má verða henni til varnar á tímum upplausnar og breytilegra siðferðisviðhorfa. Og sú umræða á að ná langt út fyrir veggi Alþingis. Ef það er nokkuð sem kemur allri þjóðinni og fram- tíð hennar við, þá er þaö hvemig við búum að böm- um okkar og tryggjum velferð þeirra. Umhverfisráöherra- veibitímabiliö Svo virðist sem veiðimenn séu búnir að finna sér eitthvaö til dundurs milli veiðitímabila. Enn eru nokkrir mánuðir til sumars, þegar stangveiðin byrj- ar, og bæði gæsaveiðitíminn og rjúpnaveiðitímabilið eru nú að baki. Seinni hluti vetrar hefur því löngum veriö tilbreytinga- lítill hjá sportveiðimönnum: ekkert til að veiða, nema e.t.v. að dorga í gegnum ís. Stang- veiðimenn hafa raunar komist upp á lag með aö nýta þennan árstíma til fluguhnýtinga á meðan skotveiðimenn hafa lát- iö sér nægja að lesa skotveiði- blöð og elda veiðibráöina sem þeir náöu síöastliöið haust. Gamalkunn vopn nú veiöivopn En samkvæmt frétt í Tímanum í gær hafa veiðimenn nú fund- ið sér nýja bráð til að beina spjótum sínum að og virðist veiðitímabilið á því sviði ein- mitt vera í hámarki um þessar mundir. Þetta eru pólitískar umhverfisrábherraveiðar og vopnin sem béitt er, eru gamal- kunn bókaþjóðinni — þetta er stílvopnið sjálft, penninn. Veiöiaöferöin er keðjubréf þar sem þátttakendur senda áskor- anir til formanns Alþýðuflokks- ins, þess efnis að hollast væri fyrir flokkinn að losa sig við Ossur umhverfisráöherra sem fyrst. Þessar umhverfisráð- herraveiöar eru ólíkar öðrum veiöum, sem stundaðar eru í sportmennskunni hér á landi, því þær krefjast mikillar sam- vinnu veiðimannanna og minna að því leyti jafnvel frek- ar á breskar heldrimannaveið- ar, þar sem margir menn sam- einast um að smala bráðinni á GARRI einhvern ákveðinn stað þar sem síðan „veiðimaöurinn" bíður tilbúinn meö veiðivopn sportveiðimannsins, tvíhleyp- una. Einhverjir íslenskir veiði- menn hljóta að stunda um- hverfisráðherraveiðamar, þó tæplega séu þeir margir, enda vafamál hversu mikil sport- veiöimennska felst í keöju- bréfaveiðunum. Hitt er annað mál að sú staðreynd ein og sér að umhverfisráðherraveiði- tímabilið er nú þegar í fullum gangi, bendir eindregið til þess aö veruleg brotalöm sé í sam- skiptum ráðherrans við veiði- menn. Tónninn í keðjubréfinu, þar sem umhverfisráöherra er sakaður um að hafa skoriö upp herör gegn veiöimönnum al- mennt, bendir einnig í þessa átt. Samskiptamál í ógöngum Á sama hátt og draga verður í efa að þessar pólitísku keðju- bréfaveiðar samrýmist þeim sportveiðianda, sem almennt hefur einkennt sérstaklega prúðmannlegt starf skipulagðr- ar skotveiðimennsku hér á landi, verður að draga I efa að samskiptahættir umhverfis- ráðuneytisins og umhverfisráð- herrans sérstaklega gagnvart veiðimönnum veiti ráðherran- um einhvem rétt til að lýsa sjálfan sig alfriöaðan. Því miöur virðist hér á ferðinni enn eitt dæmið um það hvemig ráð- herrar í ríkisstjóminni hafa leitt mál í ógöngur vegna þess „töffara"-starfslags, sem tekið hefur verið upp í Stjómarráð- inu eftir að Viðeyjarbræöur tóku þar völd. Gani Þjóöararfurinn Nú, á tímum alþjóðahyggju og sammna þjóða á efnahagssvið- inu, óttast margir að þjóðar- einkennin hverfi. Þessi ótti kemur einnig í ljós, þegar rætt er um áhrif sjónvarps og þess mikla magns af efni frá hinum enskumælandi heimi, sem blasir við augum dag hvern. Þjóðemistilfinning er lífseig, þótt vissulega geti steðjað hættur að þjóðmenningunni. Sjötíu ára alræði einræöis- stjómar í Sovétríkjunum megnaði ekki að brjóta þjóð- ernistilfinninguna niður í ríkj- um þeim sem vald Kremlar náði til. Vandinn er ab beina þessari þjóbemistilfinningu í jákvæð- an farveg. Hún á ekki að bein- ast að einangrun eöa yfirgangi, heldur að því að varöveita þjóðleg verðmæti. Menningararfur Fyrir smáþjóð eins og íslend- inga er alveg lífsnauösyn að leggja rækt við þjóðmenning- una. Raunar verður heimurinn miklu fátækari ef sérkenni þjóða á menningarsviðinu fá ekki að njóta sín eða hverfa, þar á meðal sérstæb menning smáþjóða. Söfnin Til þess að varðveita menn- ingararfinn og gera hann lif- andi í samfélaginu ber brýna nauðsyn til að undirstaðan sé traust. Sú undirstaða er að varðveita menningarverðmæt- in og skila þeim til komandi kynslóða. Blómlegt menning- Á víbavangi arlíf hvilir á þeim gmnni. Því miöur er það langt í frá aö ástand safnamála sé viðunandi hér á landi. Á sumum sviðum hefur verið myndarlega staðið ab verki, en langt er í frá að söfn séu almennt þær lifandi stofnanir sem þörf er á. Tónlistardeild „ þ jóö bó kasaf n s " Tilefni mitt til þessara hugleið- inga er þingsályktunartillaga Þuríðar Pálsdóttur, sem til um- ræðu var í Alþingi í gær, um varðveislu tónlistararfs íslend- inga. í rökstuðningi með til- lögunni kemur fram að skipu- lag þessara mála er í furðu óskipulögðum farvegi, sem verður til þess að þjóðin er ekki meðvituð um tónlistararf- inn á sama hátt og ella. Þessi þjóðararfur er þó miklu meiri að vöxtum heldur en fram kemur í opinberri umræðu, og tónlistariðkun íslendinga stendur miklu dýpri rótum en flestir gera sér grein fyrir. Afmælisár í ár er 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins. Ekki er óeðlilegt að um það verði umræður hvemig skila skuli þjóðmenn- ingunni til næstu aldar. Það verður áreiðanlega ekki gert á betri veg en þann að efla söfn- in og gera þau að lifandi menningarstofnunum. Þau gætu þannig oröiö undirstaða náms og listalífs á þjóðlegum grunni og aðdráttarafl fyrir er- lenda gesti, sem vilja kynnast íslenskri þjóömenningu. Söfn- in em einnig nauösynleg und- irstaða dagskrárgerðar í fjöl- miðlum, en það er afar mikil- vægt að efla innlendan þátt hennar. Jón Kr.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.