Tíminn - 11.03.1994, Síða 5

Tíminn - 11.03.1994, Síða 5
Föstudagur 11. mars 1994 m>nitfvi 5 Friörik Jónsson: Eflum íslenska utan- nkisþj onus tu Um tillögur Verslunarráös íslands Atímum þrenginga í ís- lenskum þjóðarbúskap er eðlilegt aö lagðar séu fram hugmyndir um spamað, niðurskurð og hvar megi betur fara í ráöstöfun ríkisfjár. Margar slíkar tiUögur em af hinu góða, en oft er þó farið offari. Sumar tillögur verða beinlínis að teljast varasamar og jafnvel vega beint og óbeint að póUtísku og efna- hagslegu sjálfstæði þjóöarinnar. Verslunarráb meb kutann í Morgunblaðinu föstudaginn 25. febrúar á blaðsíðu 25 er sajjt frá tillögum Verslunarráðs Is- lands um spamað í ríkiskerfinu. Þar er meðal annars kynnt til- laga Verslunarráðsins um fækk- un íslenskra sendiráða úr níu í þrjú og ná þar með að lækka nú- verandi kostnað við sendiráð og fastanefndir íslands, sem sam- kvæmt fjárlögum 1994 er 488,6 milljónir króna, um 200 miUj- ónir. Taka þeir hjá Verslunarráði ennfremur fram að endurskoða þurfi hlutverk sendiráða íslands á þann hátt að þeim „veröi fyrst og fremst ætlað að greiða fyrir milUríkjaviöskiptum íslands, auk þjónustuhlutverks við ís- lendinga erlendis. Sendiráðin hafi umsjón með stærra svæði en nú er og nýti nútíma fjar- skiptatækni frekar til sam- skipta." Verslunarráð í villu Þessa merkilegu umfjöllun og tillögugerð Verslunarráös ís- lands er nauðsynlegt að skoða nánar. í fyTsta lagi má benda á að íslensk sendiráð em einungis í um það bil 4% af þjóðlöndum heimsins, og veröa það að teljast ansi takmörkuð umsvif. Væri heldur réttara að huga að efl- „Af framansögðu er því Ijóst að Verslunarráð ís- lands, þrátt fyrir að meina eflaust vel, virðist því miður einfaldlega ekki búa yfir þeirri þekk- ingu og skilningi á eðli og hlutverki íslenskrar utan- ríkisþjónustu sem þarftil þess að geta fjallað um aðhald, spamað og breytt hlutverk hennar á trú- verðugan hátt." ingu og fjölgun sendiráöa en fækkun. í öðm lagi er rétt að líta á þá fjárhæö sem fer í sendiráð og fastanefndir nú þegar. Þessar VETTVANGUR 488,6 milljónir em að öllu leyti of takmarkaö fé til þess að halda uppi öflugri utanríkisþjónustu, og ef litið er á heildarkostnaö við utanríkisráðuneytið sam- kvæmt fjárlögum 1994 er ljóst aö framlög í rekstur íslenskra ut- anríkismála em skorin viö nögl. í þriðja lagi er vert að fjalla lít- ils háttar um þá hugmynd Versl- unarráðsmanna aö breyta hlut- verki sendiráða þannig aö þeim veröi fyrst og fremst ætlað að sinna viðskiptahagsmunum ís- lendinga erlendis og gegna þjónustuhlutverki fyrir íslend- inga erlendis. Hér mætti benda Verslunar- ráðsmönnum á aö kynna sér hlutverk sendiráða, en þaö geta þeir gert meö því aö glugga í litla bók eftir Pétur J. Thorsteinsson, sem ber heitiö Meðferð utanrík- ismála. í þeirri bók á síðum 24 til 28 er fjallað um hlutverk sendirába og kemur þar fram aö meginhlutverk þeirra er aö ann- ast þjónustu við ríkisborgara sendiríkisins í viötökuríkinu, ásamt því að sinna viðskipta- hagsmunum sendiríkisins! Aö lokum má velta vöngum yf- ir hugmynd Verslunarráðs- manna um að sendiráð hafi um- sjón með stærra svæði og nýti sér betur nútíma samskipta- tækni. Flest íslensk sendiráð sjá nú þegar um mun stærra svæði en þeim er með góðu móti kleift og er erfitt að sjá fyrir hvernig einungis þrjú sendiráð ættu að sinna þeim verkefnum sem nú er sinnt af níu. Reikna kannski Verslunarráðsmenn með því að þau þrjú sendiráö, sem eftir væru, skiptu meö sér heimsálf- um í stað ríkja? í sambandi við betri nýtingu nútíma fjarskiptatækni hjá sendiráðum má benda Verslun- arráðsmönnum á að öll okkar sendiráð hafa bæði síma og myndsendi, sem eru aö sjálf- sögöu mikið notuð til sam- skipta. Af framansögðu er því ljóst aö Verslunarráð Islands, þrátt fyrir aö meina eflaust vel, virðist því mibur einfaldlega ekki búa yfir þeirri þekkingu og skilningi á eöli og hlutverki íslenskrar utan- ríkisþjónustu sem þarf til þess aö geta fjallað um aöhald, sparnaö og breytt hlutverk hennar á trúveröugan hátt. Lýðveldiö ísland og umheimurinn Öflug og góð utanríkisþjónusta er einn af homsteinum sjálf- stæðis þjóöríkja. Án skilvirks og öflugs fulltrúanets gegnum sendiráð og fastanefndir á er- lendri grund, hvort sem er hjá þjóðríkjum eða alþjóðastofnun- um, er hættan sú að lítið eyland í noröurúthöfum týnist og gleymist í ölduróti heimsvið- burða. Það er því ekki til sóma að leggja til hálfgeröa útrým- ingu utanríkisþjónustu íslands á sjálfu hálfrar aldar afmæli lýð- veldisins. ísland á allt sitt undir góöum samskiptum við önnur ríki, og þá einkum sína nánustu ná- granna í Evrópu og Noröur-Am- eríku. Meö öflugri og traustri ut- anríkisþjónustu er góðum sam- skiptum viðhaldið og þau styrkt og þar með greitt fyrir að íslend- ingum öllum skapist aukin tæki- færi á erlendri grund, hvort sem em pólitísk eða efnahagsleg, menningarleg eða menntaleg. í stað vanhugsaðra tillagna um samdrátt í utanríkisþjónustu ís- lands væri réttara að styrkja og auka umsvif utanríkisþjónust- unnar, svo merki íslands verði haldið víðar og betur á loft úti í hinum stóra heimi til hagsbóta fyrir alla íslendinga. Höfundur er M.B.A. í alþjóbavibskiptum. Matarlystarmissir Svar til Gunnlaugs Júlíussonar við grein í Tímanum 2. mars 1994. Það er alveg útþvælt hvemig þið hagib ykkur í samræöum um EES og gæti gert hvem mann brjálaðan að selja landið og landbúnaðinn í hendur þess- ara ráðríku manna sem skipa sér á bekk þama vib Jjetta samn- ingsborð ykkar. Eg er orbin hundleiö á þessari þvælu um ís- lenskan landbúnað. Maður missir gjörsamlega matarlyst- ina. Það væri nær ab láta ykkur upp á hrísgrjón í marga mánuði til að þið gætuð vitaö hve lambakjöt okkar er ljúffengt ef þab er rétt eldað. Við þurfum ekkert jöfnunar- gjald, hvorki á innfluttar né út- fluttar búvömr. Fjallalamb ís- lensku þjóðarinnar er hágæba- vara og á eingöngu að seljast sem slík. Við þurfum frekar menn til að greiða götu þess á fínustu stöðum heimsins, þar „Landakaup skulu vera samkvæmt þeim gömlu samningum sem við höf- um átt og eigum vafalaust enn. Ég vona að Stéttar- samband bœnda haldi þeim til streitu." LESENDUR sem það sómir sér vel. Þab á að afnema jöfnunargjald alveg og gefa mönnum kost á aö byggja innflutning eftir sínu höfði, ef þeir halda upp á eitt- hvað sérstakt. Annars fer allt í graut. Þetta er þegar orðið graut- ur. íslendingar geta bara sneitt hjá allri vöm sem ekki er holl og gæti skaöað þá. Það er erfitt, en það er hægt. Það væri nær að láta fólk kynnast þeim vömm sem bændur hafa upp á ab bjóöa, bæði hér og erlendis, og hlusta betur á hvers vegna það er hverjum manni hollt að éta sínar eigin afuröir. Hvert land ætti að gera þaö sama og skammast sín svolítið. Þar ætti ekki að vera nein und- anþága. Ekki einu sinni vib 9. grein samningsins. íslenskir stjómmálamenn eiga að ákveða hvaða toll skuli leggja á vömr, en ekki viðvaningar úti í bæ. Innflutningur án tolla skal ekki vera leyfilegur nema ef innlend framleiðsla er ekki fyrir hendi. Raforkusamninga ætti aö gera við íslendinga og skapa mönn- um tækifæri á að rækta hér meira. Merkja skal vömmar með íslenska fánanum, svo allir megi sjá að það, sem valið er, sé landi okkar til sóma. Forseti landsins gæti gefib mönnum þetta leyfi, sem yrbi mjög strangt. Landkaup skulu vera sam- kvæmt þeim gömlu samningum sem viö höfum átt og eigum vafalaust enn. Ég vona að Stétt- arsamband bænda haldi þeim til streitu. Þetta þarf að koma skýrt fram í lögum. Hafa skal í hávegum og heiöri hverjir byggðu þetta land og búa hér enn. Það á ekki ab vera auðsótt mál ab kaupa jarbir hér nema ab uppfylla ákveðin skilyrði, þ.e. að vera meb ís- lenskan ríkisborgararétt. Það þyrfti einhvers konar stjóm á óstjóminni. Allt styrkjakerfi á smám saman að fara út úr kerf- inu. Skal sáttasemjari sjá um þá sem ekki geta staðiö á eigin fót- um. Frjálst vinnuafl milli landa skal sérstaklega skoða. Hafðu þökk fyrir furöulega grein þína og vertu ævinlega blessaður. Steinunn Amórsdóttir FÖSTUDAGS- PISTILL ÁSGEIR HANNES KEÐJUBRÉF HÆSTARÉTTAR Hverri þjóð er nauðsynlegt að eiga táknræn gildi fyrir svokallað sjálfstæöi lands og lýðs. Þjóðfáni og þjóðsöng- ur eru helstu tákn íslendinga, en Al- þingi og forseti lýðveldisins koma fast á eftir ásamt Hæstarétti íslands. Pistil- höfundur bar í bamæsku sinni skil- yrðislausa viröingu fyrir Hæstarétti og leyfði sér aldrei að efast. Stafaði jafn- vel meiri lotning af dómstóli þessum en þjóðsöngnum, sem reyndar að- eins atvinnumenn geta sungið. Lotningin entist pistilhöfundi út gelgjuskeiðiö og allt fram til ársins 1976, en þá féll Noregur. í byrjun ársins var saklaust fólk hneppt í gæsluvarðhald vegna svonefndra Geirfinnsmála og pistilhöfundur bið- ur hér afsökunar það fólk, sem á um sárt að binda vegna þeirra mála, að nefna harmleikinn til sögunnar. Sak- laust fólkið undi því að vonum ekki að vera sett í varðhald og skaut úr- skurðinum til Hæstaréttar, eins og lög gera ráð fyrir, en átti ekki erindi sem erfiði. Gagnrýnislaust tók Hæsti- réttur vægast sagt hæpinn málstaö Sakadóms góðan og gildan og stað- festi þetta hörmulega gæsluvarðhald oftar en einu sinni. Dómstóllinn brást þama barnatrú pistilhöfundar og með hruni Hæsta- réttar laskaðist verulegur hluti af ís- lenska þjóðfélaginu í vitund hans. Hæstiréttur var ekki lengur hluti af sannleikanum, eins og þjóösöngur- inn og þjóðfáninn. Heldur aðeins ósköp venjulegur opinber vinnustað- ur þar sem breyskir menn gengu að daglegum störfum samkvæmt ákvöröun kjaradóms og fjáríaga. Enda hefur það tekið landsmenn sárt að fylgjast með úr fjarlægð þegar breyskleikinn ber dómstólinn ofurliði, hvort sem er vegna áfengis eða launamála. í dag virðast þáttaskil í sögu Hæsta- réttar og verður ekki séð að þau auki hróður réttarins sem dómstóls eða rikisstofnunar yfir höfuð. Nú situr í forsæti réttarins maður sem gaman hefur af fjölmiblum og var eitt sinn kallaður í fegurðarsamkeppni karia hjá víðlesnu karlab'mariti, ef pistilhöf- undi bregst ekki minnið. Forseti þessi situr nú við skriftir og sendir frá sér hvert bréfið á fætur öðru, líkt og um sérstök keðjubréf sé ab ræba. Að vísu hefur forsetinn látið fylgja bréfum sínum að hér sé ekki um eiginleg bréf ab ræba í alvöru, heldur eins konar hugaróra mannsins á bréfsefni Hæstaréttar í nafni forsetans. Nokk- urs konar ávísanir á þanka forsetans eða nýja útgáfu af ávísanakebju. Efnib í bréfum eða ekki bréfum for- seta Hæstaréttar er svona í almenn- um nöldurstíl, eins og best þekkist í lesendadálkum blaba og í þjóðarsál Ijósvakans jafnt sem í pistlum á borð vib þennan hérna. Forsetinn dundar vib ab skamma lögfræðingastéttína og vill nú rába hvemig hún um- gengst abrar stéttír í þjóbfélaginu, eins og blaðamenn. Er nú ekki langt að bíða þess að for- seti Hæstaréttar sendir frá sér ábend- ingar um hvernig lögmenn eiga að umgangast tannlækna og pípulagn- ingamenn. Kannski stígur forsetínn skrefib til fulls og semur almennt kver um mannasiði á ári fjölskyldunnar. Sorgbitinn fylgdist pistilhöfundur meb frammistöbu Hæstaréttar í Geir- finnsmálum og þóttí minna á færi- band í verksmibju. Eftir að forseti réttarins hóf ab skrifa keðjubréfin sín hefur færiband Hæstaréttar tekib á sig fasta mynd í huga hansog er þab miöur. I dag sér pistilhöfundur fyrir sér færibandib í Nútíma Chaplins í hvert sinn sem hann heyrir Hæstaréttar getið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.