Tíminn - 11.03.1994, Side 8

Tíminn - 11.03.1994, Side 8
8 Föstudagur 11. mars 1994 Carl Biildt og Ingvar Carlsson sammála: Abild Norburlandanna ab Evrópu- bandalaginu styrki Norburlandaráb Ágúst Þór Ámason, Stokkhólmi Umraeðum lauk í gær á þingi Norðurlandaráðs og hafa þær verið líflegri en oftast áöur. Ástæðan er fyrirætlun ríkis- stjórna Finnlands, Svíþjóðar og Noregs um aö gera Norðurlönd- in þrjú aö aðilum í Evrópu- bandalaginu. Nokkrar deilur urðu í almennu umræðunum þegar nokkrir þingmenn kröfðu stjómir land- anna þriggja svara við því af hverju ekki væri reynt aö koma á nánara bandalagi Norður- landa í stað þess að gerast aöilar aö Evrópubandalaginu. Flestir sem tóku til máls vom þó þeirr- ar skoðunar aö Evrópubanda- lagsaðild væri eini möguleikinn til aö auka Vægi Norðurlánda- samstarfsins og þá um leið Norðurlandaráðs. Bæöi Carl Bildt, forsætisráð- herra Svíþjóðar, og Ingvar Carlsson, formaður sósíaldemó- krata og forystumaður stjómar- andstöðunnar, tóku þátt í um- ræðunum. Norskir EB- andstæð- ingar sökuðu þá um svik við norræna samfélagsformiö og hugsjónir Noröurlandaþjóð- anna. Carl Bildt svaraði fyrir sig með því aö vísa til sögunnar um Ró- binson Crúsó. Hann benti á að Róbinson hefði verið sjálfstæð- ur þar til Frjádagur kom. Þá hefði hann afsalab sér hluta af sjálfstæði sínu. Þegar þeim var bjargað á skip „siðmenningar- innar" afsalaöi hann sér enn meira af því sjálfstæði sem að- eins er hægt að njóta þegar maður er einn og þarf ekkert að sækja til annarra. Menningin kjarni norrænnar sam- vinnu Sænski forsætisráðherrann gagnrýndi líka harölega þá sem teldu eitthvað óeðlilegt við for- gangsröðina í norrænu sam- starfi. Norðurlandaráð hefur nú tekið upp þá stefnu ab sinna fyrst og fremst menningu, rann- sóknum og menntun. Bildt varði breytinguna og sagði að menningin væri kjaminn í nor- rænni samvinnu. „Sá sem hefur ekki sterkar menningarlegar rætur getur ekki verið sterkur aðöðm leyti." Bildt svaraði gagnrýni um að norræn samvinna yrði í fram- tíðinni alltof óformleg með því að fullyrða að hingað til hefði hún verið of formleg. „Við eig- um að vera stolt af óformleg- heitum í samskiptum okkar. Meb þvi að vera í beinu sam- bandi hvert við annað getum við náð sama árangri og aðrir ná aðeins með skriffinnsku og formlegheitum." Ingvar Carlsson tók undir með Bildt og sagði systkinaást ekki bera skaða af umgengni við frændfólk., Slæmt ef Norður- löndin verða ekki „öll" aðilar að EB Carlson viðurkenndi að það gæti oröiö erfitt að stjórna Sví- þjób ef þjóðin hafnaöi aðild að Evrópubandalaginu. Hann sagði að þó þýddi ekkert að fást um slíkt, sósíaldemókratarnír bæm óvenjulega ábyrgð vegna stærðar sinnar og gætu ekki staðið hjá þótt þróunin yrði önnur en þeir vildu. Margir þeirra sem töluðu í al- mennu umræðunum lýstu yfir áhyggjum sínum vegna hugsan- legs „klofnings" Norðurland- anna vegna fyrirsjáanlegrar Evr- ópubandalagsaöildar sumra þeirra. Esko Aho, forsætisráð- herra Finnlands, sagði að það mætti ekki gerast að ísland yrði útundan í samstarfi Norður- landanna, þótt það yröi eitt Norðurlandanna utan Evrópu- bandalagsins. Flestir hinna 70 þingmanna sem tóku til máls lýstu því yfir að það mætti aldr- ei verða ab Noröurlandaráð yrði aö áhrifalausu „málfundafélagi" um menningu þeirra þjóða sem byggju á Norðurlöndum. Stúdentamótmœli í París í gær mátti sjá gamalkunna sjón á götum Parísar, en námsmenn borg- arinnar voru þá í miklum víga- og mótmœlahug. Ástœba mótmœlanna í gær var ákvörbun stjórnvalda um ab lækka lágmarkslaun ílandinu, laun sem námsmenn sögbu þegar allt oflág. UTLONP í fréttum var þetta helst... Dublin írski lýðveldisherinn lýsti í gær yfir ábyrgð á misheppnuðu sprengjutilræöi á Heathrow flugvelli í gær þegar sprengjum var varpab inn á flugvöllinn en vegna galla í sprengjunum spmngu þær ekki. Vegna þess- arar árásar, þótt hún hafi ekki „heppnast", hefur slegið mikl- um óhug á flugfarþega um heim allan og taliö er nær úti- lokað að friðarviðræður á Norð- ur írlandi muni bera árangur eftir þetta. Caza ísraelskir hermenn skutu til bana paestínskan ungling í gær í uppþoti sem varb á Gaza- ströndinni. Elnnig bmmst út átök í Hebron þar sem 15 Pal- estínumenn særöust þegar á þá varskotið gúmmíkúlum. Tunis Bandaríkjamenn skomöu í gær á- Yasser Arafat, leibtoga PLO, aö hefja á ný samningaviðræð- ur við ísraelsmenn. Ef ekki, myndu Bandaríkjamenn beita neimnarvaldi á álykmn Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem fjöldamorðin í Hebron em fordæmd. Kjarvalsstofa í París Kjarvalsstofa I París er íbúð og vinnustofa, sem ætluð er til dvalarfyrir íslenska listamenn. Reykjavikurborg, mennta- málaráðuneytið og Seðlabanki Islands lögöu fram fé til þess að koma upp slíkri starfsaðstöðu í Parísarborg með samningi við stofnun, sem nefnist Cité Intemationale des Arts, og var samningurinn gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miöborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Sérstök stjómamefnd fer með málefni Kjarvalsstofu, og gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma þar til stjómar Cité Intema- tionale des Arts, er tekur endanlega ákvörðun um málið. Dvalartími er skemmstur 2 mánuðir, en lengst er heimilt að veita listamanni afnot Kjarvalsstofu í 1 ár. Vegna fjölda um- sókna undanfarin ár hefur dvalartími aö jafnaði verið 2 mán- uðir. Þeir, sem dvelja i Kjarvalsstofu, greiöa dvalargjöld, sem ákveðin eru af stjóm Cité Intemationale des Arts og miöast viö kostnaö af rekstri hennar og þess búnaðar, sem þeir þarfnast. Þessi gjöld em lægri en almenn leiga í Parisarborg og er nú Fr. frankar 1400 á mánuði. Dvalargestir skuldbinda sig til þess aö hlíta reglum Cité Intemationale des Arts varð- andi afnot af húsnæði og vinnuaðstööu. Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu, en stjómin mun á fundi sínum í mars fjalla um afnot lista- manna af stofunni timabilið 1. ágúst 1994 til 31. júlí 1995. Skal stila umsóknir til stjómamefndar Kjarvalsstofu. Tekið er á móti umsóknum til stjómamefndarinnar í skjalasafni borgar- skrifstofanna í Ráðhúsinu, en þar liggja einnig frammi um- sóknareyöublöö og afrit af þeim reglum, sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu. Fyrri umsóknir þarf að endumýja, eigi þær að koma til greina viö þessa úthlutun. Umsóknum skal skila í síöasta lagi 28. mars 1994. Stjómamefnd Kjarvalsstofu. V I K I N G A • T Vinningstölur ,------------- miövikudaginn: 9. mars 1994 a m VINNINGAR 6 af 6 5 af 6 +bónus H 5 af 6 1 4 af 6 0 3 af 6 ' ' +bónus FJÖLDI VINNINGA 272 935 UPPH/EÐ Á HVERN VINNING 18.755.000 1.375.127 100.337 1.760 220 Aðaltölur: 6^rÍ2)fÍ6 19X21 )(32 BÓNUSTÖLUR @(37)(40) Heíldarupphæð þessa viku: 39.870.558 á Isl.: 2.360.558 jjhjjl Uinningur fár til: Danmerkur 09 Finnlands. UPPLYSINQAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR LANDSSAMTÖK HEILSUGÆSLUSTÖÐVA Ráðstefna um stöðu og horfur í heima- hjúkrun 22. apríl 1994 Landssamtök heilsugæslustöðva standa fyrir ráðstefriu um stöðu og horfur f heimahjúkrun föstudaginn 22. april n.k. í Borgartúni 6, Reykjavik. Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Starfsfólk í heilbrigöisþjónustu og annað áhugafólk um heilbrigðismál er sérstaklega hvatt til að sækja ráðstefnuna. Þátttökugjald verður kr. 4.000,-, innifálinn matur og kaffi. Ráðstefnustjóri verður Ásta Möller, formaður Félags ís- lenskra hjúkmnarfræðinga. Ráðstefnan hefst með setningu formanns samtakanna og ávarpi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Fjallað verður um framkvæmd heimahjúkrunar, helstu breyt- ingar á undanfömum missemm og horfur á næstunni á höf- uðborgarsvæðinu, í öðm þéttbýli og í strjálbýli. Gerð verður grein fyrir framkvæmd heimilishjálpar á vegum sveitarfélag- anna og tengslum við heimahjúkrun, samvinnu heilsugæsl- unnar og sjúkrahúsanna og kostnaöi við framkvæmd heima- hjúkmnar meö samanburði við legukostnað. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og landlæknisemb- ættið munu fjalla um stefnumótun i málaflokknum til framtíð- ar. Fyrirspumir verða milli einstakra þátta og umræður i lokin. Þátttaka óskast tilkynnt í síma 91- 22400 fyrir 15. apríl n.k.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.