Tíminn - 28.04.1994, Blaðsíða 1
SÍMI
631600
78. árgangur
Barnaheill skora á
menntamálaráöherra
aö heröa mjög viöurlög
viö ofbeldismyndum:
Ofbeldi í
tölvuleikjum
vaxandi
áhyggjuefni
„Fjölmargar erlendar rann-
sóknir benda til þess aö of-
beldi í kvikmyndum og
myndböndum hafi meiri
áhrif á sálarlíf bama en hing-
ab til hefur verib talib. Nauö-
synlegt er því aö heröa eftirlit
meö því sem bömum er
sýnt/' segir í greinargerö meö
áskomn landsþings Bama-
heilla til menntamálaráb-
herra.
Skorað er á ráöherrann aö end-
urskoða og heröa mjög reglur
og viöurlög um sýningar og út-
leigu á ofbeldiskvikmyndum til
barna og unglinga. Jafnframt er
skorað á menntamálaráöherra
aö setja reglur er banni sölu á
ofbeldisefni í tölvuleikjum. Of-
beldi í tölvuleikjum sé nú vax-
andi áhyggjuefni víða um
héim.
Fyrsta landsþing Barnaheilla
telur ekki síður ástæöu til aö
hvetja foreldra til árvekni gagn-
vart því myndefni sem börn
hafa aðgang aö, og tilkynna til
yfirvalda um brot á reglum um
útbreiöslu myndefnis sem sé
skaðvænlegt börnum. „Hér á
landi þarf aö setja skýrar reglur
er verndi börn fyrir ofbeldis-
leikjum í tölvum", segja Barna-
heill. -HEI
Sala ríkis á SR-mjöli:
Greinar-
gerðir á
leiöinni
Búist er vib aö Verbbréfa-
markaöur íslandsbanka
muni jafnvel í dag skila
greinargerö til Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráb-
herra vegna framkominna
athugasemda í skýrslu Ríkis-
endurskoöunar.
Fljótlega eftir að skýrsla Rík-
isendurskoðunar var gerð op-
inber í fyrradag óskaði Þor-
steinn eftir greinargerð frá
VÍB og einnig frá Starfshópn-
um um sölu hlutabréfa ríksins
í SR-mjöli. Viðbúiö er að
Starfshópurinn muni einnig
eiga auðvelt með að skila
fljótlega sinni greinargerð um
málið.
Þann sama dag sendi sjávar-
útvegsgráðuneytið Fjárlaga-
nefnd Alþingis bréf þar sem
óskað var eftir því að VÍB og
Starfshópurinn fengju tæki-
færi til að skýra sjónarmið sín
fyrir nefndinni þegar viðkom-
andi greinargerðir lægju fyrir.
-grh
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
STOFNAÐUR 1917
Fimmtudagur 28. apríl 1994
79. tölublað 1994
Óþekkts sjúkdóms hefur orbib vart íhrossum í Víbidalnum og afþeim sökum eru útreibar bannabar á Fákssvæbinu um óákveb- TímamYnd cs
inn tíma. Ingibjörg Cubmundsdóttir hestaeigandi var ab vonum óhress meb ab komast ekki í útreibartúr í gœr þótt hún vœri ánœgb meb vibbrögb yfir-
dýralœknis ímálinu. Sjá nánari umfjöllun á bls. 2.
Fjölmörg sjávarpláss munu veröa illa úti ef sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar nœr fram aö ganga:
Hrun blasir víba við
Þab er ekki ab undra þótt menn setji sig óvart í bœnastellingar eins og
þeirséu ab bibja œbri máttarvöld um styrk íbaráttunni gegn sjávarút-
vegsstefnu ríkisstjórnarinnar. í þab minnsta líst þeim ekki á blikuna þeim
félögum HalldóriÁrnasyni, framkvœmdastjóra Borgeyjará Höfn, t.v. og
Sighvati Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Vinnslustöbvarinnar í Eyjum og
stjórnarformanni SÍF. Tímamynd c s
Aö óbreyttu blasir viö hrun á
Tálknafiröi ef tillögur meiri-
hluta sjávarútvegsnefndar
veröa samþykktar á Alþingi.
Aörir staðir eins og t.d. Bíldu-
dalur, Flateyri, Grenivík, Vest-
mannaeyjar, Seyöisfjöröur,
Hornafjörbur, Þorlákshöfn og
Akranes munu einnig veröa
iUa úti aö mati andófshópsins
gegn frumvörpum stjóm-
valda.
Á Tálknafirði hafa menn selt
togarann og haldið eftir hálfum
kvótanum. Ætlunin var ab láta
skip á svæðinu veiða kvótann
og fá einnig kvóta á móti svo aö
svipað magn yrði unnið í fisk-
vinnslunni í landi. Kvótanum
átti svo að halda á frystihúsinu
ef fiskvinnslukvótinn hefði orð-
ið að lögum eða á heimabátum.
Samkvæmt þeim tillögum sem
liggja fyrir Alþingi er þetta
óheimilt og því fátt eitt til bjarg-
ar íbúum á Tálknafirði.
í greinargerð sinni tíundar
andófshópurinn, sem saman-
stendur af þungaviktarmönn-
um í fiskvinnslu og útgerð, fleiri
„kolsvört" dæmi ef frjáls við-
skipti með veiöiheimildir verða
að lögum svosem 50% veiði-
skyldan og ekki verði hægt aö
flytja á skip nema 15% af þeim
kvóta sem áður hefur verið
fluttur frá sama skipi. Þar fyrir
utan óttast þeir að meint vinnu-
tilhögun samráðsnefndar sjó-
manna og útgerðar muni leiða
til þess að fiskverð í viðskiptun-
um tonn á móti tonni muni
hækka um fjórðung og þar með
verði þau viðskipti óhagkvæm
og því sjálfhætt.
Afleiðingarnar yrðu þær m.a.
ab bátar myndu hefja gámaút-
flutning ab nýju svo að þeir
ættu einhverja lífsmöguleika og
ennfremur mundi það hafa víb-
tæk áhrif á starfsemi einstakra
fyrirtækja sem hafa getað aukið
landvinnslu sína verulega í við-
skiptum með tonn á móti
tonni.
Einar Svansson, framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar á Sauðár-
króki, segir að líklega mundi
þetta eyðileggja allt það upp-
byggingarstarf sem þar hafi ver-
ið unnið og ekki loku fyrir það
skotið að starfsemi í frystihús-
inu á Hofsósi yrði hætt. Hann
gerir ráð fyrir að fyrirsjáanlegar
breytingar mundu hafa í för
með sér að allt að 100 manns
misstu vinnu í landi.
Andófshópurinn telur einnig
að 15% framsalsheftingin muni
gera það að verkum að t.d.
loðnuskipin gætu ekki miðlað
kvóta eftir þörfum til þeirra sem
þyrftu á kvóta að halda.
Ennfremur mundi skerðing á
framsalinu hafa í för meb sér
mikið óhagræði á komandi
humarvertíð, Vinnslustöðin í
Eyjum yrði að fara að fjárfesta í
skipum og sókn í úthafsveiðar
mundi stórminnka með tilheyr-
andi verðmætatapi og atvinnu-
leysi. -grh
Vinnuslys
viö Laugaveg
Vinnuslys varb vib Laugaveg
118 í Reykjavík rétt eftir hádegi
í gær. Tveir menn voru að vinna
við steyptan pall á vinnupalli í
fjögurra metra hæb þegar um
sjö metra langt stykki brotnaði
úr kantinum. Stykkib lenti á
öðrum manninum og því næst
á pallinum og við það féllu báð-
ir mennimir niöur. Þeir vom
fluttir á slysadeild, annar talinn
axlarbrotinn en hinn talinn
hafa sloppib óbrotinn. -GBK