Tíminn - 28.04.1994, Qupperneq 6
Fimmtudagur 28. apríl 1994
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Björgunarsveitinni voru færbar margar góbar gjafir. Bæjarfélögin gáfu
rausnarlegar peningagjafir, svo eitthvab sé nefnt. Hér afhendir Sólveig
Þórbardóttir gjöf frá Njarbvfkurbæ, 100 þúsund krónur.
Kaffihús í Gamla
bæinn
Hjónin María Björk Ingvadótt-
ir og Ómar Bragi Stefánsson
hyggjast opna kaffihús í
Gamla bænum. Væntanlegt
kaffihús er þriöja veítingahús-
iö í Gamla bænum og ætla má
ab samkeppni veröi þar nægj-
anleg. Fyrir eru Hótel Mælifell
og pizzastaöurinn Pollinn,
sem nýlega flutti þar inn sem
Pálmalundur var áöur.
Þau Ómar og María Björk
hafa tekiö á leigu vesturhluta
Aöalgötu 16, þar sem eitt sinn
var til húsa byggingarvöru-
deild kaupfélagsins. Hug-
myndin hjá hjónunum mun
vera aö koma þarna upp vist-
legu kaffihúsi í notalegu um-
hverfi þar sem fólk getur kom-
iö saman í næöi og notaleg-
heitum, aö sögn Maríu Bjark-
ar, sem mun annast rekstur
staöarins. Er stefnt aö opnun
24. maí nk., á afmælisdegi
Króksins.
Kaupfélag Húnvetninga:
Slæm afkoma í
fyrra
„Afkoma félagsins er slæm og
þaö er gert upp meö tapi aö
upphæö 16,7 milljónir króna.
Þetta er verri afkoma en áætl-
anir félagsins gerbu ráb fyrir.
Þeir þrír þættir, sem mest
munar um, eru eftirfarandi:
Framlegö lækkar mikið vegna
mikils afsláttar og afskriftar á
fatnaði, en verulegar áherslu-
breytingar urðu í fataverslun
kaupfélagsins á síðasta ári og
var þar afskrifaö á annan tug
milljóna. Þar var mikill
birgöavandi, sem ákveðið var
aö afskrifa aö mestu. Vaxta-
gjöld voru nokkuö hærri en
gert var ráö fyrir og síöast en
ekki síst afskriftir á stofnsjóð-
um og hlutafjáreignum fyrir-
tækja tengdum Sambandinu."
Svo segir m.a. í skýrslu fram-
kvæmdastjóra Kaupfélags
Húnvetninga, en aöaífundur
félagsins var haldinn nýlega.
Þrátt fyrir þetta tap á rekstri
KH á síðasta ári var afkoman
heldur skárri en áriö á undan,
en þá var tapiö 19,3 milljónir.
Velta KH minnkaði um 3,8%
á síðasta ári, var 473,8 millj-
ónir. Ástæðan er m.a. sú aö
áburðarsala dróst saman og er
þaö bein afleiöing samdráttar
í framleiöslu heföbundinna
landbúnabarvara. Vaxtagjöld
námu 17 milljónum, sem þyk-
ir nokkuö hátt hlutfall af
veltu, en þrátt fyrir þennan
mikla vaxtakostnaö er kaupfé-
lagiö meö tiltölulega hagstæb
lán.
Víkuifréttir
KEFLAVIK
Ýldufýla í abflugi
Fjölmargar kvartanir hafa
borist til lögreglunnar í Kefla-
vík vegna mikillar ýldufýlu og
ólyktar, sem viröist leggjast yf-
ir allt þessa dagana. Lyktin er
af bræöslureyk úr Sandgeröi,
en þar er m.a. veriö aö bræða
síðustu loðnuna af þessari ver-
tíb.
Fjölmargar kvartanir hafa
borist úr Sandgerði, en einnig
hefur verið kvartaö úr öörum
byggöum, bæöi viö lögreglu
og eins hefur verið hringt á
ritstjórn blaðsins. Starfsfólk í
Flugstöö Leifs Eiríkssonar var
ekki hresst meö lyktina, sem
lagði inn um alla flugstöðina.
Flugleiöavélar í aðflugi soguðu
einnig bræðslureyk inn á loft-
ræstikerfi í farþegarými meö
tilheyrandi sælubrosi farþeg-
anna.
Malbikunarstöbin
rís í Helguvík
Nú er unniö að því aö reisa
malbikunarstööina í Helguvík.
Nýlega var um helmingurinn
af búnaöinum kominn upp og
menn búast við að geta farið
að framleiba malbik í Helgu-
vík í næsta mánuði. Stööin,
sem nú rís í Helguvík, mun
framleiða 100 tonn af malbiki
á klukkustund.
Ný björgunarsveit
Björgunarsveitin Suðurnes var
formlega stofnuö á hátíðar-
fundi í Stapa laugardaginn 16.
apríl. Sveitin verður til meö
samruna Björgunarsveitarinn-
ar Stakks og Hjálparsveitar
skáta. Jón Marínó Jónsson
veitir nýrri björgunarsveit for-
mennsku.
Sveitin er sú stærsta á Suöur-
nesjum, meö vel á annað
hundraö manns á útkallslista.
Á stofnhátíöinni var fjöl-
menni og margt góöra gesta.
Þá voru margar gjafir afhentar
hinni nýju björgunarsveit.
Sæplast fékk Út-
flutningsverb-
launin
Sæplast hf. á Dalvík fékk enn
eina skrautfjöörina í hatt sinn
á sumardaginn fyrsta, þegar
forsvarsmönnum fyrirtækisins
voru afhent Útflutningsverð-
laun forseta íslands 1994 aö
Bessastöðum viö hátíðlega at-
höfn. Þetta er í fimmta sinn
sem verðlaunin eru veitt og í
fyrsta sinn sem þau fara út fyr-
ir höfuöborgarsvæðiö.
Guömundur Magnússon pró-
fessor er formabur úthlutunar-
nefndar og sagði hann að
verölaunin gætu þau fyrirtæki,
stofnanir eða einstaklingar
fengiö, sem þættu hafa náö
góöum árangri í markaös-
færslu íslenskra vara og þjón-
ustu á erlendum mörkuðum.
Hann sagöi að sjö mögur ár í
íslensku atvinnulífi geröu þaö
aö verkum aö nauösynlegt
væri að leita meö logandi ljósi
aö nýjum hugmyndum, verk-
efnum, „smugum" og fram-
leiðslu sem til framfara
horfðu.
Guömundur sagöi Sæplast
hf. uppfylla þau skilyröi aö
hafa rutt framleiðslu sinni
braut í haröri samkeppni inn-
an lands og utan, aö hafa fest
sig í sessi, aö hafa sýnt hug-
kvæmni við markaðssetningu
nýrra vörutegunda þegar sala
hafi dregist saman á öörum,
að skila arði og gjaldeyristekj-
um, auka umsvif gegnum árin
og njóta mikillar viröingar.
Þess má geta í lokin að Sæplast
seldi vörur til ríflega 30 landa
áriö 1993.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti
ísiands, afhendir Kristjáni Aðal-
steinssyni, framkvæmdastjóra Sæ-
plasts á Dalvík, Útflutningsverí)-
laun forseta l'slands. Á milli þeirra
stendur Cubmundur Magnússon,
formaður úthlutunarnefndar.
Miöstjórnarfundur Framsóknarflokksins:
Steingrímur hættir,
Halldór tekur vib
Miöstjómarfundur Framsókn-
arflokksins verður haldinn
dagana 29.-30. apríl n.k..
Fundurinn, sem haldinn er í
tengslum við komandi sveitar-
stjórnarkosningar, veröur aö
mörgu leyti frábrugöinn hefð-
bundnum miöstjórnarfundi,
bæbi vegna þess aö sveitar-
stjórnarmönnum Framsóknar-
flokksins um allt land er boöiö
til fundarins og líka vegna þess
aö Steingrímur Hermannsson
lætur af embætti formanns.
Ráögert er aö fundurinn veröi
haldinn aö Borgartúni 6 á
föstudeginum, en í Sambands-
húsinu, Kirkjusandi, á laugar-
deginum. Á laugardagskvöld
veröur árshátíö miöstjómar þar
sem Steingrímur Hermannsson
og frú Edda Guðmundsdóttir
veröa heiöursgestir. Valgeröur
Sverrisdóttir alþingismaöur
verður veislustjóri og þaö er
FUF í Reykjavík, undir stjórn
Guömundar Gíslasonar mat-
reiðslumeistara, sem skipulegg-
ur árshátíöina. í forrétt verður
laxaþrenna meö sinnepssósu,
fersku grænmeti og ristubu
brauöi. I aðalrétt veröur krydd-
hjúpaö lambalæri meö koní-
akspiparsósu, fondant kartöfl-
um og grænmeti. í desert verð-
ur konfektfrómas aö hætti
framsóknarmannsins.
Guömundur Gíslason sagbi í
samtali viö Tímann aö ljóst
væri að mikið af framsóknar-
fólki, sem ekki á sæti í mið-
stjórn, hefði mikinn hug á að
koma á árshátíöina og nota
tækifærib til að kveöja Stein-
grím og þakka honum fyrir
samstarfið. Guömundur vildi
benda þessu fólki á aö síðustu
forvöö væru aö panta miöa á
skrifstofu flokksins, því búast
má viö því aö það verði upp-
selt.
-ÓB
Framsókn á
Sauðárkróki
Framboöslisti framsóknarmanna
á Sauöárkróki hefur veriö lagður
fram og skipa hann etirtaldir ab-
ilar:
1. Stefán Logi Haraldsson skrifs.stjóri.
2. Bjami Ragnar Brynjólfsson mat-
vælafræðingur.
3. Herdís Sæmundardóttir.
4. Gunnar Bragi Sveinsson verslunar-
maður.
5. Guðrún Á. Sölvadóttir fram-
kvæmdastjóri.
6. Sólveig Sigurðardóttir starfsstúlka.
7. Einar Gíslason tæknifræðingur.
8. Linda Hlín Sigurbjörnsdóttir fóstra.
9. Sigurbjörg Gubjónsdóttir kennari.
10. Gunnar Valgarösson bifvélavirki.
11. Edda María Valgarðsdóttir fisk-
verkakona.
12. Ómar Bragi Stefánsson vömhús-
stjóri.
13. Birgir Gunnarsson framkvæmda-
stjóri.
14. Viggó Jónsson rafvélavirki.
Kosningaskrifstofa B-listans á
Sauöárkróki er ab Suöurgötu 3 og
er opinn frá kl. 16-19 alla daga.
Kosningastjóri er Magnús H.
Rögnvaldsson.
-ÓB
H-listinn í
Hvolhreppi
H-listi áhugamanna -um málefni
Hvolhrepps vegna komandi
sveitarstjórnarkosninga hefur
veriö ákvebinn eftir skoðana-
könnun meöal stuöningsmanna.
Listann skipa etirtaldir aöilar:
1. Helga Ásta Þorsteinsdóttir skrif-
stofumabur.
2. Guðmundur Svavarsson rekstrar-
fræðingur.
3. Helgi Jóhannesson verkfræðingur.
4. Sæmundur Holgeirsson tann-
læknir.
5. Ólafía Guðmundsdóttir banka-
starfsmaður.
6. Ámi Valdimarsson bóndi.
7. Guðrún B. Ægisdóttir bankastarfs-
maöur.
8. Ingi Guðjónsson verslunarstjóri.
9. Pálína Björk Jónsdóttir kennari.
10. Ágúst Ingi Ólafsson kaupfélags-
stjóri.
H-listinn er óháöur pólitískum
flokkum og hefur fariö meö
meirihluta í sveitarstjórn Hvol-
hrepps á síðasta kjörtímabili. -ÓB
Framsókn á
Siglufirði
Framboöslisti Framsóknar-
flokksins á Siglufiröi hefur
veriö valinn og skipa hann
eftirtaldir aðilar:
1. Skarphéöinn Guðmundsson
2. Freyr Sigurðsson
3. Guðrún Ólöf Pálsdóttir
4. Kristinn Bogi Antonsson
5. Pétur Bjamason
6. Ásdís Magnúsdóttir
7. Sverrirjónsson
8. Páll Ágúst Jónsson
9. Herdis Erlendsdóttir
10. Aðalbjörg Þórðardóttir
11. Þorsteinn Sveinsson
12. Þorgeir Bjamason
13. Sigríður Björnsdóttir
14. Hilmar Þór Zóphoníasson
15. Sigurður Jón Gunnarsson
16. Þorsteinn Bjarnason
17. Karolína Sigurjónsdóttir
18. Ásgrímur Sigurbjörnsson
-ÓB