Tíminn - 30.06.1994, Side 1
Þaö var ekki annaö aö sjá en mótsgestir yndu hag sínum vel á Caddstaöaflötum ígœr. Á hádegi ígcer var fjöidi gesta
oröinn á þriöja þúsund. Mynd þessi er tekin viö Brekkuvöll, en þar var keppt í B-flokki gœöinga. Tímamynd Pjetur
Gestum fjölgar ört
Óhapp á Landsmóti
hestamanna:
Stúlka varð
undir fána-
borg
Það óhapp varð á Landsmóti
hestamanna í gær að ung stúlka
varð undir fánaborg, sem fauk á
hliðina. Fánaborgin, sem sam-
anstendur af sjö fánastöngum,
stendur á milli aðalvallar og
Brekkuvallar. Læknir kom strax
á staðinn og félagar í Flugbjörg-
unarsveitinni á Hellu fluttu
stúlkuna á Heilsugæslustöðina á
Hellu. Stúlkan meiddist á höfði
og fæti, en ekki er talið að
meiðsli hennar séu alvarleg.
Talsverður strekkingur var á
mótssvæðinu í gær og við þær
aðstæður þurfa fánaborgir sem
þessar að vera vel festar. Starfs-
menn mótsins brugðust skjótt
við og ekki voru liðnar margar
mínútur þegar búið var að festa
fánaborgina kyrfilega.
yiðgerð á
Ölfusárbrú
Unnið er að viðgerð á Ölfusár-
brú og er hún því lokuð frá kl.
22:00 til kl. 06:00 að morgni og
verður svo fram að helginni.
Þetta hefur tafiö menn nokkuð
sem nú streyma á Landsmótið,
en þeim er bent á að fara yfir
Óseyrarbrú, ef þeir eiga leið um
á þessum tíma. ■
Öðrum degi Landsmóts hesta-
manna á Gaddstaðaflötum við
Hellu lauk í gær. Að sögn Fann-
ars Jónassonar framkvæmdar-
stjóra mótsins hefur mótið
gengið vel það sem af er. í gær-
kvöldi má gera ráð fyrir að tala
gesta hafi verið orðin á fjórða
þúsund, en á hádegi í gær voru
komnir rúmlega tvö þúsund
gestir. Fannar er ánægður með
aðsóknina og segir hana vera
nokkuö í samræmi við vænting-
ar mótshaldara. Ef framhaldið
verði gott þá megi búast við
miklum fjölda á staðnum um
helgina.
Mótshaldið hefur gengið
óhappalaust ef frá er taliö að
stúlka varð undir fánaborg, eins
og lesa má til hliðar. Dagskráin
hefur gengið samkvæmt áætl-
un, en í gær var keppt í B-flokki
gæðinga og í barnaflokki. Þá
voru einnig hæfileikadómar og
byggingardómar kynbóta-
hrossa. ■
Timamynd Pjetur
Erlendir hrossakaupmenn fylgjast gjarnan meb dómum á kynbótahrossum á landsmótum.
Þrír þekktir hrossarœktendur í Þýskalandi, Andreas Trappe, Bruno Podlech og Klaus Meier spá hér í
spilin, en meöal graöhesta sem þeir virtu fyrir sér ígær var fjögurra vetra brúnn stóöhestur undan
Mekki frá Varmalœk í eigu Reynis Aöalsteinssonar á Sigmundarstööum í Borgarfiröi.
Hestakaup
Wird es ein Cescheft?
Andreas Trappe, Bruno Podlech und Klaus Meier gucken sich ein Hengst an. Die waren z.b. intresiert
fuhr ein 4 jahre alte Hengst von Mökkur von Varmalœk. Der Besitzter ist der gutbekannte Reiter
Reynir Aöalsteinsson.
Horsebusiness?
Three men, who are famous in the business, Andreas Trappe, Bruno Podlech and Klaus Meier from
Germany, are here watching the judging of breeding horses. What is going through their minds is
hárdto say, a'tléa's't'theý were inter'ested.
Þrír keppendur runnu
til í sömu beygjunni í
B-flokkinum í gœr:
Hross og
knapi í
gegnum
grindverk
Keppni í B-flokki gæðinga fór
fram á Brekkuvelli á Gadd-
staðaflötum í gær, en nokkurr-
ar óánægju gætti með völlinn.
Aö minnsta kosti þrjú keppnis-
hross runnu til í sömu beygj-
unni á vellinum og þar af datt
eitt á hliðina og braut grind-
verk við keppnisbrautina.
Það var Akureyringurinn Sig-
urður Matthíasson, sem lenti í
því óhappi að hryssu, sem hann
reið, Kjarnorku frá Öngulstöð-
um í Eyjafjarðarsveit, varð fóta-
skortur í sýningu með þeim af-
leiðingum aö hún hreinlega
skautaði í gegn um grindverkið
umhverfis völlinn. Hvorki
hryssuna né knapann sakaði
þrátt fyrir að þau væru á hrööu
tölti þegar þetta gerðist.
Óhappið átti sér stað í suð-
austurhorni vallarins. Brekku-
völlurinn er mjög vel þjappaður
og brautin þess vegna hörð.
Keppendur og áhorfendur, sem
Tíminn ræddi við í gær, gagn-
rýndu það, að beygjurnar á vell-
inum væm of krappar og eins
að skábrautir á honum
skemmdu fyrir að þessu leyti.
Margir telja að skábraut sem
kemur inn í brautina nái of
langt út og umrædd beygja
verði krappari fyrir vikið. ■
Neisti frá
Hraunbæ
aldrei betri
íslandsmeistarinn í 300 m
brokki Neisti frá Hraunbæ
sýndi það og sannaöi í Pé-
ursey um síöustu helgi að
hann hefur engu gleymt.
Neisti bókstaflega stakk af
aðra keppendur og kom sjö
sekúndum á undan næsta
hesti í mark.
Þessi átján vetra hestur virð-
ist því vera til alls líklegur á
landsmóti en þar mun keppn-
in verða á milli hans og Daða
frá Syðra-Skörðugili, en Daði
veitti Neista harða keppni á
síðasta landsmóti. Guðmund-
ur Jónsson, knapi og eigandi
Neista segir klárinn vera í
toppformi og óttist ekki
keppnina við Daða, því Neisti
sé fljótari í „startinu" og þegar
hann sé kominn á undan þá
hleypi hann engum fram hjá
sér.
En þab eru ekki allir sammála
Guðmundi. Vignir Siggeirs-
son á Stóðhestastöðinni hefur
riðið báðum þessum hestum
og hann segir aö Daði sé fljót-
ari. Þannig að það stefnir í
harða og spennandi keppni
milli tveggja rýmstu brokkara
landsins en úrslitakeppnin
verður seinnipartinn á laugar-
daginn.
Three contesters ran
afoul in the same
turning during ca-
tegories B yesterday:
Rode
through
the fence
The competiton of the favorit-
es in categories B was held at
Brekkuvellir yesterday amidst
some discontent with the
track. At least three of the
competing horses ran afoul in
the same turning of the track,
one of them falling on its side,
crashing the fencing along
the track.
Sigurður Matthíasson of Akur-
eyri experienced the misfortune
of the mare he was riding,
Kjarnorka from Öngulsstabir,
stumbling during the show.
The disastrous results culminat-
ing in her skating through the
fence surrounding the track.
Neither horse nor jockey were
injured, despite the hot trot
they were performing prior to
the incident.
The accident occurred at the
south-east corner of the track.
Brekkuvöllur is extremely sol-
idified, resulting in a hardened
track. Contestants and viewers
unanimously criticize the turn-
ings of the tracks as being to
tight, and that tracks mnning
sidelong on it did it damage.
The general opinion is that the
sidelong track, mnning into the
main track, extends itself too
far, resulting in the steepness of
the turhing. ■'