Fréttablaðið - 03.03.2009, Blaðsíða 8
8 3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
KJARAMÁL Stóru lífeyrissjóðirn-
ir standa sumir illa samkvæmt
tryggingafræðilegri stöðu sem
verið er að leggja lokahönd á. Sam-
einaði lífeyrissjóðurinn og Gildi
hafa til dæmis neikvæða stöðu upp
á meira en tíu prósent og búast við
því að þurfa að skerða réttindi.
Stærstu lífeyrissjóðir landsins
skila tryggingafræðilegri úttekt á
stöðu sinni til Fjármálaeftirlitsins
á næstunni og þá skýrist hvernig
sjóðirnir standa eftir bankahrunið
í fyrra.
Sjóðirnir standa misjafnlega og
fer staða þeirra fyrst og fremst
eftir framvirkum gjaldmiðla-
samningum við bankana og hvort
þeir hafa farið í miklar afskrift-
ir á eignum. Sjóðirnir mega hafa
neikvæða stöðu upp á allt að 15
prósent án þess að þurfa að grípa
til aðgerða en fyrirsjáanlegt er
að margir þeirra munu skerða
réttindi í vor.
Gildi lífeyrissjóður hefur nei-
kvæða stöðu upp á um tíu prósent
og þarf að skerða réttindi en ekki
hefur verið ákveðið hve mikið.
Tryggingafræðileg staða Sam-
einaða lífeyrissjóðsins er nei-
kvæð upp á 13,2 prósent og stefn-
ir í skerðingu réttinda. „Staðan
gæti verið betri,“ segir Þorbjörn
Guðmundsson stjórnarformað-
ur og nefnir sem dæmi að skerða
þurfi réttindi um sex prósent ef
staðan eigi að fara niður fyrir tíu
prósent.
Heildarskuldbinding sem hlut-
fall af eignum er neikvæð um 4,2
prósent hjá Almenna lífeyrissjóðn-
um. Lífeyrisréttindi verða skert
um fimm til tíu prósent.
Staða Lífeyrissjóðs verslunar-
manna mælist neikvæð um 7,2 pró-
sent. Gunnar Páll Pálsson stjórnar-
formaður segir að verslunarmenn
hafi unnið tryggingafræðilegu
útreikningana með þeim sam-
ræmda hætti sem mælt hafi verið
með. Sjóðurinn hafi verið í plús um
4,7 prósent um áramót 2007-2008
og það komi til góða nú.
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
er einn af þeim sjóðum sem standa
hvað best en þar er staðan neikvæð
um 1,4 prósent. Sigurbjörn Sigur-
björnsson framkvæmdastjóri segir
að fjárfestingastefna sjóðsins hafi
verið varfærin.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur
neikvæða stöðu upp á 4,8 prósent.
Ekki er von á skerðingu. Festa líf-
eyrissjóður er með 6-8 prósenta
neikvæða stöðu og ekki er held-
ur búist við skerðingu þar. Kjölur
lífeyrissjóður er lítill og lokaður
sjóður sem mun sýna erfiða trygg-
ingafræðilega stöðu því að hann er
einungis með áfallnar skuldbind-
ingar. Þar er búist við skerðingu.
ghs@frettabladid.is
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
KJARTAN
GUÐMUNDS-
SON
staðgengill
umboðsmanns
neytenda
1. Hversu stór var skjálftinn
undir Vatnajökli um helgina?
2. Hve margar heyrnarlausar
konur útskrifuðust frá Háskól-
anum á laugardag?
3. Frá hvaða landi er kassa-
daman Francisca Mwansa?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
GUNNAR PÁLL
PÁLSSON
ÞORBJÖRN
GUÐMUNDSSON
Stórir lífeyrissjóðir
skerða réttindin
Stóru lífeyrissjóðirnir Gildi og Sameinaði lífeyrissjóðurinn reikna með að þurfa
að skerða lífeyrisréttindi. Stærstu lífeyrissjóðir landsins skila tryggingafræði-
legri úttekt til Fjármálaeftirlitsins innan skamms. Þá skýrist staða þeirra betur.
Erla Magna sendi staðgengli umboðsmanns
neytenda tölvupóst sem minnir á fyrirtaks
fjölskyldumynd frá Disney-fabrikkunni á
þann hátt að hann byrjar illa en endar dás-
amlega vel. Gjörðu svo vel, Erla:
„Það er fátt sem gleður íslenska neytend-
ur þessa dagana og virðist verð hafa marg-
faldast þótt gengið rúlli upp og niður. Við
fáum bara hækkanirnar. En – svo fór ég í
apótekið Lyfjaver á Suðurlandsbraut í gær
og sótti þrjár gerðir lyfja.
Þrátt fyrir lyfjakort hef ég undanfarið
ár borgað um 4 til 5.000 krónur fyrir þessi
lyf, hvar sem ég hef keypt þau. Í Lyfjaveri
á Suðurlandsbraut borgaði ég 1.500 krónur,
og þar af voru sum með 40 prósenta afslætti.
Þar er hugsað um neytendur.“
Það er svo sem alls ekkert nýtt að Lyfja-
ver beri höfuð og herðar yfir önnur apótek
þegar kemur að ásættanlegu verði á nauð-
synlegum lyfjum. En sjaldnast er góð vísa
of oft kveðin. Staðgengill vonar að Lyfjaver
standi áfram vörð um litla neytandann.
NEYTENDUR: Heimsókn í nýtt apótek borgaði sig:
Hugsað um neytendur!?
LYFJAVER Tölvustýrða lyfjaskömmtunarferlið hjá
Lyfjaveri er svalt. Það er líka svalt að vera með gott
verð á lyfjum.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Samvera í Fella- og Hólakirkju í kvöld kl. 20.
Svavar Stefánsson ræðir um sjálfsvíg.
Allir velkomir.
Sorg og sjálfsvíg
Auglýsingasími
– Mest lesið
LÖGREGLUMÁL Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra hefur tekið
skýrslu af Hauki Þór Haraldssyni,
þeim sem millifærði 107 milljónir
króna inn á eigin reikning í aðdrag-
anda bankahrunsins.
Málið mun vera langt komið í
rannsókn, en deildin bíður nú eftir
frekari gögnum frá Landsbanka.
Haukur var framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs gamla bankans.
Þetta er eina málið, sem tengist
bankahruninu beint, sem efnahags-
brotadeild rannsakar.
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota, segir þetta
stafa af því að öllum slíkum málum
hafi átt að beina til sérstaks sak-
sóknara efnahagshrunsins, frá
stofnun þess embættis, 1. febrúar.
Í þá þrjá mánuði sem stofnun
embættisins var til umræðu hafi
efnahagsbrotadeild ekki farið út
í viðamiklar rannsóknir á efna-
hagshruninu, enda hafði þá verið
boðuð stofnun embættis sérstaks
saksóknara. Síðan hafi stofnun
embættisins dregist í meðförum
þings og eins hafi treglega geng-
ið að finna saksóknara til að sinna
því. En hvort fyrrgreint mál fari til
sérstaks saksóknara, sé vafaatriði,
enda barst það deildinni fyrir
stofnun embættisins. Ríkissak-
sóknari skeri líklega úr um þetta.
- kóþ
Saksóknari efnahagsbrota bíður eftir frekari gögnum frá Landsbankanum:
Millifærslumálið langt komið
HELGI MAGNÚS GUNNARSSON Saksókn-
ari efnahagsbrota segir það ekki vera á
hreinu hvort málið verði sent sérstökum
saksóknara bankahrunsins, enda hafi
það borist efnahagsbrotadeild fyrir
stofnun þess embættis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra hélt fyrir-
lestra um íslenskt efnahagslíf
fyrir sérfræðinga Harvard og
Yale háskóla í lok febrúar. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá við-
skiptaráðuneytinu.
Í fyrirlestrum sínum lagði
Gylfi áherslu á endurreisnar-
starfið sem fyrir höndum er. Þá
átti ráðherrann viðræður við
ýmsa sérfræðinga skólanna um
efnahagsáætlun íslenskra stjórn-
valda, auk þess að ræða við fjöl-
miðlamenn, íslenska útflytjendur
sem starfa á Bandaríkjamarkaði
og Bandaríkjamenn sem eiga eða
fyrirhuga viðskipti við Ísland. - kg
Iðnaðarráðherra á faraldsfæti:
Heimsótti Yale
og Harvard
ELDRI BORGARAR Það styttist í að stærstu lífeyrissjóðir landsins skili tryggingafræði-
legri úttekt á stöðu sinni til Fjármálaeftirlitsins.
VEISTU SVARIÐ?