Fréttablaðið - 03.03.2009, Síða 12
12 3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 75 Velta: 165 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
270 -2,74% 824 -1,87%
MESTA HÆKKUN
FØROYA BANKI +0,50%
MESTA LÆKKUN
ATLANTIC PET. -21,43%
STRAUMUR B. -3,59%
ÖSSUR -2,29%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,70 +0,00% ... Atlantic
Airways 168,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 275,00 -21,43% ...
Bakkavör 1,89 -1,56% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,55 +0,00% ... Føroya Banki 100,00 +0,50% ... Icelandair Group
12,70 +0,00% ... Marel Food Systems 49,95 -1,67% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,61 -3,59% ... Össur 89,70 -2,29%
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is
-15%
-18%
Semdu við okkur um verð
selja gamla
kaupa nýjan
notaðan
Nýtt tákn um gæði
Nýtum það sem við eigum
Komdu í Brimborg í dag
Fjöldi annarra Ford bíla í boði.
Hringdu núna í síma 515 7000.
Áfram Ísland
Smelltu á notadir.brimborg.is
og veldu notaðan bíl fyrir þig
– farðu síðan á bgs.is og
sannreyndu tilboð dagsins.
Komdu í Brimborg í dag.
C
ohn &
W
olfe P
ublic R
elations Íslandi
Við erum á
tánum í dag
– fyrir þig
-27%
eða
* Tilboðsverð er nettóverð með afslætti. Á sumum myndum af nýjum Transit í þessari auglýsingu er sýndur aukabúnaður sem ekki er innifalinn í verðinu. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
-30%
-20%
-15%
Semdu við
okkur um
gott verð
www.ford.is
Nýr
NýrN
ýr
C
h
&
W
lf
P
bli
Notað
ur
Notað
ur
Notað
ur
Ford Transit 220S Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 3,4 m3, 6 dyra, þaklúga
Ásett verð með vsk 3.005.000 kr.
Afsláttur með vsk 545.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 2.460.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.975.903 kr.*
Ford Transit 220L Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 4,4 m3, 6 dyra
Fast númer KZ075
Skrd. 06/2005. Ek. 81.300 km.
Ásett verð með vsk 1.690.000 kr.
Afsláttur með vsk 340.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 1.350.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.084.337 kr.*
Ford Transit 280S Sendibíll
2,0TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 6,55 m3, 6 dyra
Fast númer PA192
Skrd. 08/2005. Ek. 54.300 km.
Ásett verð með vsk 1.990.000 kr.
Afsláttur með vsk 300.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 1.690.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.357.429 kr.*
Ford Transit 300M Sendibíll
2,0TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 9,07 m3, 6 dyra
Fast númer PN789
Skrd. 09/2005. Ek. 91.300 km.
Ásett verð með vsk 2.150.000 kr.
Afsláttur með vsk 645.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 1.505.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.208.835 kr.*
Ford Transit 300M Sendibíll
2,2TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 8,55 m3, 6 dyra
Ásett verð með vsk 4.530.000 kr.
Afsláttur með vsk 680.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 3.850.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 3.092.369 kr.*
Ford Transit 220L Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 4,4 m3, 6 dyra
Ásett verð með vsk 3.397.000 kr.
Afsláttur með vsk 917.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 2.480.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.991.968 kr.*
Gjaldeyrishöft Seðlabank-
ans munu vara áfram, jafn-
vel fram á haust. Forsvars-
menn atvinnulífsins segja
þetta áfall sem sanni að fáir
hafi trú á krónunni.
„Þetta undirstrikar að trú á krón-
una er engin; hún er dauður gjald-
miðill,“ segir Jón Sigurðsson,
forstjóri stoðtækjafyrirtækisins
Össurar. Hann bætir við að þetta
sé enn eitt áfallið sem sanni að
ekki sé mögulegt að láta krónuna
fljóta á ný.
Seðlabankinn greindi frá því í
gær að gjaldeyrishöft yrðu ekki
afnumin að sinni og reglur um
gjaldeyrismál yrðu endurskoð-
aðar eigi síðar en 1. september
næstkomandi. Alþingi samþykkti
reglur Seðlabankans um gjald-
eyrisviðskipti í enda nóvember í
fyrra í kjölfar gengishruns krón-
unnar og átti að endurskoða þær í
byrjun mánaðar.
Í tilkynningu Seðlabankans
segir að skilyrði fyrir afnámi
haftanna séu ekki til staðar. Bank-
inn meti reglubundið skilvirkni
gjaldeyrishaftanna í samhengi við
peningastefnuna og vinni að áætl-
un um afnám þeirra í áföngum.
Svein Harald Øygard, sem
tók við stóli seðlabankastjóra á
föstudag, sagði þá ekki tímabært
að tímasetja einstakar aðgerð-
ir, svo sem um afléttingu gjald-
eyrishafta. Ötullega væri unnið
að þessum málum í samstarfi við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Samtök atvinnulífsins sögðu í
tilkynningu í gær ákvörðunina
skaðlega, höftin engum til gagns
og væri brýnt að losa um þau sem
fyrst.
Greining Íslandsbanka var öllu
jákvæðari enda telur hún höftin
milduð á næstu mánuðum, jafnvel
að fullu aflétt í nóvember að ári.
Annars vegar sé hætta á stórfelld-
um fjármagnsflótta og gengis-
hruni verði farið of geyst í aflétt-
ingu haftanna. Hins vegar sé
þrýstingur á að þeim verði aflétt
fyrr en síðar þar sem þau standist
ekki alþjóðasáttmála um frjálst
flæði fjármagns milli aðildar-
landa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
jonab@markadurinn.is
JÓN SIGURÐSSON Forstjóri Össurar segir
ákvörðun Seðlabankans um að afnema
ekki gjaldeyrishöftin sanna að enginn
hafi trú á krónunni og ekki sé hægt að
láta hana fljóta á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Krónan er dauð-
ur gjaldmiðill
Exista hefur leitað samkomulags
við innlenda og erlenda handhafa
skráðra skuldabréfa og víxla
félagsins um frestun afborg-
ana og vaxtagreiðslna sem koma
munu til gjalddaga á næstunni.
Skuldabréf félagsins voru færð
á athugunarlista eftir að Exista
sendi frá sér tilkynningu þessa
efnis í gær.
Eins og áður hefur fram komið
hefur staða Existu verið í óvissu
eftir þjóðnýtingu bankanna í
haust en félagið, sem var stærsti
hluthafi Kaupþings, hvarf af
hlutabréfamarkaði rétt fyrir
áramótin.
Heildarskuldir félagsins námu
255 milljörðum króna í desember.
Þar af var helmingurinn gagn-
vart innlendum lánastofnunum.
- jab
STJÓRNENDUR Staða Existu hefur verið í óvissu eftir bankahrunið síðasta haust
en fyrirtækið semur nú um skuldir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Exista semur við
lánardrottna
Bandaríski tryggingarisinn AIG tapaði
61,7 milljörðum Bandaríkjadala, rúmum
7.100 milljörðum íslenskra króna, á síð-
asta fjórðungi í fyrra. Þetta er mesta tap
í bandarískri fyrirtækjasögu á einum
fjórðungi. Vísbendingar um slakt uppgjör
láku út í síðustu viku og gætti taugatitr-
ings í röðum fjárfesta.
Tryggingafélagið hefur verið að mestu
leyti í eigu bandaríska ríkisins síðan fjár-
málaheimurinn fór á hliðina eftir þrot
Lehman Brothers í september í fyrra.
Ríkið, sem hefur í þrígang sett fé í
sjóði AIG síðan þá, bætti þrjátíu millj-
örðum dala við í gær. Á móti tók það hlut
í erlendum dótturfélögum AIG auk þess
sem útlit er fyrir að félaginu verði skipt
upp í hagræðingarskyni.
Óvissa um stöðu tryggingafélagsins
er á meðal þess sem skekið hefur alþjóð-
lega fjármálamarkaði síðustu daga en
fjárfestar telja harla óvíst að betri tíðar
megi vænta fyrr en á næsta ári, að sögn
Associated Press-fréttastofunnar.
Hlutabréfaverð tók dýfu víða sökum
uppgjörsins í gær en helstu vísitölur vest-
an hafs hafa ekki verið lægri í tólf ár. Þar
af fór Dow Jones-vísitalan undir 7.000
stigin en hún hefur ekki verið lægri frá
vordögum 1997. Þá hefur Nikkei-hluta-
bréfavísitalan í Japan ekki staðið lægra í
tæp 26 ár. Gengi er nokkuð betra í Evrópu
en þar hafa vísitölur ekki verið lægri frá
2003, eða um það leyti sem bandarískur
her réðst inn í Írak. - jab
ÞUNGT YFIR MARKAÐNUM Fjárfestar telja óvíst
að spár um þíðu á fjármálamörkuðum í haust
gangi eftir en eygja von um betri tíð næsta vor.
Tryggingarisi skilar mettapi
Bandaríska tryggingasamstæðan AIG tapaði tæpum 62 milljörðum dala á síðasta ársfjórð-
ungi í fyrra. Fjárfestar telja óvíst hvort markaðurinn lagist í haust.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P