Fréttablaðið - 03.03.2009, Side 20

Fréttablaðið - 03.03.2009, Side 20
16 3. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is JESSICA BIEL ER 27 ÁRA Í DAG „Ég elska að vera einhver önnur en ég er í smá tíma. Ég nýt hverrar mínútu í annarra manna skinni.“ Leikkonan Jessica Biel er af ættum indjána, Þjóðverja, Frakka, Breta og Íra. MERKISATBURÐIR 1200 Bein Jóns Ögmundssonar biskups eru tekin upp. 1879 Fyrsta konan, Belva Ann Bennett Lockwood, kemur fram fyrir hæsta- rétti Bandaríkjanna. 1984 Kristján Harðarson slær 27 ára gamalt Íslandsmet í langstökki og stekkur 7,79 metra. 1991 Lettland og Eistland ganga til atkvæða um sjálfstæði frá Sovét- ríkjunum. 1997 Björk Guðmundsdóttir tekur við tónlistarverð- launum Norðurlandaráðs í Ósló. 2005 Steve Fossett er fyrstur til að fljúga einn umhverfis jörðina án þess að stoppa nema til þess að taka eldsneyti. Réttingaverkstæði Jóa á Dalvegi var stækkað á dögunum og bætti það við sig mannskap. Á þessum síðustu og verstu tímum þykir það tíðindum sæta að fyrirtæki séu stækkuð en Jóhann Örn Jóhannsson, bifvélavirki og eig- andi verkstæðisins, segir einfaldlega meira að gera. „Við höfum frekar bætt við fólki og enginn lækkað í launum eða misst vinnu hjá okkur,“ segir Jóhann. „Í dag er allt annað hugarfar hjá kúnnunum. Nú er gert meira við en ekki keypt nýtt eins og hér áður þegar ekki mátti vera ein rispa á hlut. Fólk tekur því bara að það fáist ekki nýtt og lætur gera við það gamla.“ Jóhann hóf reksturinn einn árið 1993 en árið 1998 voru tíu manns farnir að vinna við fyrirtækið. Það var svo á vor- dögum síðasta ár, á tíu ára afmæli fyr- irtækisins, að ákveðið var að fara út í framkvæmdir og verkstæðið stækkað úr 340 fermetrum í 800 fermetra. „Það var orðið þröngt um okkur því þessi iðnaður er plássfrekur. En fram- kvæmdirnar voru ákveðnar áður en bankarnir hrundu svo ekki var hægt að bakka með þetta og við tókum stökkið,“ segir Jóhann og bætir því við að rekst- urinn gangi mjög vel. „Núna vinna þrettán manns í fyrirtækinu.“ Jóhann segir galdurinn bakvið gott gengi fyrirtækisins í dag þann að rekst- urinn hafi farið stigvaxandi hægt og rólega gegnum árin. Fjölskyldan sinni fyrir tækinu en Jóhann rekur verkstæðið ásamt konu sinni auk þess sem þau reka bílaleigu sem börnin þeirra sjá um. „Maður er aldrei í fríi en er í vinn- unni alltaf einhvern hluta um helg- ar líka. En það er bara eðlilegt þegar maður rekur fyrirtæki. Það er mjög gott að snúast í öllu sjálfur, ég hef alltaf gert það. Ég hef þó haft fólk í þeim störfum sem ég þekki ekki vel, eins og í mót- töku og peningamálum, ég vinn sjálfur alltaf á gólfinu og finnst gott að vinna með strákunum. Ég er mjög ánægður með hópinn og eiginlega hefur sama fólkið unnið hjá mér frá upphafi. Menn hafa hætt ef þeir hafa flutt burt en yfir- leitt ekki út af öðru. Við hjónin skúrum saman á sunnudögum og þá þrífum við líka bílaleigubílana með dótturinni svo það er alltaf í nógu að snúast.“ Starfsemi verkstæðis Jóhanns snýst um bílasprautun og réttingar. Í hugum flestra eru verkstæði grútskítug af smurningu og stórhættulegt að stíga þar fæti inn í sparifötunum. Kunnug- ir segja þó verkstæðið hjá Jóhanni svo snyrtilegt og fínt að þar megi hæglega halda fínustu veislur. „Við héldum nú einu sinni ferming- arveislu hér á gamla verkstæðinu. En það er vissulega okkar aðalatriði að hafa verkstæðið snyrtilegt, að þetta sé engin skítakompa heldur venjulegur vinnustaður. Það líður öllum vel hérna sem er númer eitt tvö og þrjú.“ heida@frettabladid.is RÉTTINGAVERKSTÆÐI JÓA: STÆKKAÐI VIÐ SIG HÚSNÆÐIÐ Í MIÐRI KREPPUNNI Höfum vaxið hægt og rólega MIKILVÆGT AÐ ÖLLUM LÍÐI VEL Jóhann Örn Jóhannsson, eigandi réttingaverkstæðis Jóa, segir sama hópinn hafa unnið hjá sér í mörg ár en nýverið stækkaði Jóhann verkstæðið og réð fleira fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Í tilefni af 400 ára afmæli stjörnusjónaukans eiga framhaldsskólanemar á Norðurlöndum nú möguleika á að komast til eyjunnar La Palma á Kanaríeyjum og framkvæma stjörnuathugan- ir með Norræna stjörnusjón- aukanum sem er fullkominn 2,6 m spegilsjónauki. Hið eina sem þeir þurfa að gera er að skrifa rit- gerð um eitthvað stjarn- vísindalegt og munu höf- undar bestu ritgerðarinnar í hverju Norðurlandanna ferðast saman á vit ævintýr- anna. Sá er lendir í öðru sæti á Íslandi fær svo stjörnu- sjónauka í verðlaun. Rit- gerðin skal ekki vera lengri en 3.000 orð og henni á að skila fyrir 1. maí á netfang- ið keppni@2009.is eða til eðl- isfræði- og/eða stjörnufræði- kennara í hverjum fram- haldsskóla. Góð ritgerð er miði til La Palma STJÖRNUÞOKUR Það verður kannski eitthvað í líkingu við þetta sem nemarnir munu sjá með hjálp stjörnusjónaukans í Palma. Kvikmyndin Atómstöðin eftir samnefndri skáld- sögu Halldórs Laxness, var frumsýnd þennan dag fyrir 25 árum. Leikstjóri var Þorsteinn Jónsson og með helstu hlutverk fóru Tinna Gunnlaugsdóttir og Gunnar Eyjólfsson. Aðalsöguhetjan er Ugla, bóndadóttir sem kemur til Reykjavíkur til að læra á orgel. Hún ræðst í vist hjá þingmanninum Búa Árland og fjölskyldu hans. Sagan segir frá samningum ís- lenskra stjórnvalda við Bandaríkin um herstöð í Keflavík og flutninga beina Jónasar Hallgrímsson- ar til Íslands, þar sem Búi Árland þingmaður fer með lykilhluthverk. Bókin var afar umdeild þegar hún kom út árið 1948 enda fjallaði hún um mikið hitamál í íslensku samfélagi, „sölu Íslands“. Halldór var harður andstæðingur herstöðvarinnar og er bókin jafnan sögð framlag hans til þeirrar umræðu. Inn í söguna fléttast einnig ástir þeirra Uglu og Búa og samband hennar við börn hans. Einnig kemst Ugla í kynni við litríka karatktera og kynlega kvisti eins og Organistann, sem Ugla nemur hjá, og ýmsa gestir sem sækja hann heim. Fyrirmyndin að Organistanum er jafnan talin vera Erlendur í Unuhúsi en Halldór tileinkaði bókina minningu hans. ÞETTA GERÐIST: 3. MARS ÁRIÐ 1984 Atómstöðin frumsýnd í bíó M YN D /N A SAÁstkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorvaldur Ólafsson Hæðargarði 33, Reykjavík, lést á Landakoti föstudaginn 27. febrúar. Siggerður Þorvaldsdóttir Baldur S. Baldursson Guðbrandur Þór Þorvaldsson Bryndís D. Björgvinsdóttir Júlíana P. Þorvaldsdóttir Guðmundur M. Björgvinsson Atli Þór Þorvaldsson Hafdís Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Þorlákur Jónsson frá Kiðjabergi, Kistuholti 3, Biskupstungum, lést 26. febrúar. Útförin fer fram frá Skálholtskirkju föstudaginn 6. mars kl. 14.00. Jarðsett verður á Stóru- Borg. Fyrir hönd samferðamanna og vina, Sigríður Stefánsdóttir, Bræðratungu. Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Þorbjörn Friðriksson, Boðagranda 7, Reykjavík, andaðist að hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 25. febrúar. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtu- daginn 5. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð KR, sími: 510 5314. Elín Helgadóttir Friðrik Þorbjörnsson Hulda Mjöll Hauksdóttir Helgi Magnús Þorbjörnsson Elín, Anna Björg, Þórunn, Þorbjörn, Haukur og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, Sólborg Marinósdóttir Laugarnesvegi 116, sem lést á Landspítalanum þann 23. febrúar síðast- liðinn, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstu- daginn 6. mars klukkan 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás, styrktarfélag. Sérstakar þakkir fá læknar og hjúkrunarfólk á blóðlækningadeild Landspítalans við Hringbraut fyrir góða umönnun og alúð. Rudolf Ásgeirsson Ásgeir Marinó Rudolfsson Guðbjörg D. Tryggvadóttir Sverrir Þór Rudolfsson Anna Wahlström Anna Rudolfsdóttir Reynir Þór Reynisson Áslaug J. Marinósdóttir Þorsteinn Marinósson og barnabörn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.