Tíminn - 08.07.1994, Qupperneq 3

Tíminn - 08.07.1994, Qupperneq 3
Föstudagur 8. júlí1994 3 Olafur Ragnar vill kosningabandalag Ólafur Ragnar Grímsson, formabur Alþýbubandalags- ins, hefur vibrab þá skobun í Mannlífsvibtali og í útvarpi ab eblilegt væri ab „vinstri" flokkarnir gerbu meb sér málefna- og samstarfssamn- ing fyrir kosningar og mynd- ubu þannig skýran valkost vib Sjálfstæbisflokkinn. í vibtali vib Mannlíf segir Ól- afur ab form slíkrar sam- vinnu geti vafist fyrir mönn- um en málefnasátt sé hins vegar abalatribib: „Hins vegar er þab spennandi möguleiki, sem ég er tilbúinn til að beita mér fyrir, ab gefa kjósendum kost á ab kjósa um Sighvatur Björgvinsson sam- starfsráöherra í Norrœnu ráöherranefndinni: Norrænt átak gegn kynþátta- fordómum Á fundi samstarfsráðherra Norburlandanna í Nuuk á Grænlandi á dögunum var ákveðib ab verja um sextíu milljónum íslenskra króna til norræns átaks gegn kyn- þáttafordómum á árinu 1995. „Á árinu 1995 verbur einnig í gangi Evrópskv átak gegn kyn- þáttafordómum og því vilja Norðurlöndin leggja sitt af mörkum. Hugmyndin er að vera meb öfluga útgáfu- og fræbslustarfsemi fyrst og fremst í skólum og reyna þannig ab ná til ungs fólks og skólanema. Vib yfirstjórn svona verks taki sérstakur stýrihópur sem skipabur yrbi einum fulltrúa frá hverju Norburlandanna. Stýrihópurinn fær til rábstöf- unar um 66 milljónir íslenskra króna. Einnig er gert ráb fyrir því ab hann fái hugmyndir frá þessari nefnd Gunnars Berge sem vann ab undirbúningi málsins og ábendingar hvern- ig eigi ab nálgast unga fólkib. En ab öbru leyti fer þessi stýri- hópur alfarib meb ábyrgbina á þessu átaki," sagbi Sighvatur Björgvinsson. Sighvatur segir ab þetta séu ekki miklir peningar þó að þab virbist vera þab á íslenskan mælikvarba, en vonar ab þetta eigi eftir ab skila sér í bættum samskiptum við nýbúa á Norburlöndunum. ■ næstu ríkisstjórn. Til þess eru ýmis form en aðalatriðið væru efnislegir samningar," segir Ólafur í Mannlífi. í morgun- þætti á Rás 2 í gær taldi Ólafur dræm vibbrögb Framsóknar og Kvennalista ekki endilega gefa til kynna ab slíkt samstarf væri fyrirfram daubadæmt og taldi ab þróunin í Alþýbuflokknum ab undanförnu hefði jafnvel enn hvatt til tilraunar af þessu tagi. Evrópumálin hafi verib tekin allt öbrum tökum af Jó- hönnu og hennar stuðnings- mönnum en Jóni Baldvini og bandalag við þann arm Al- þýbuflokks félli að þessari hug- mynd. Hér eru þeir tónlistarmenn sem munu koma fram á þjóbhátíö. Fyrir miöri mynd er Árni johnsen sem veröur kynnir. Á myndinni eru einnig forráöa- menn Þórs sem halda hátíbina. Tímamynd, sbs Þjobhatib i Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina: Allt stefnir í góða stemmningu Mikib verbur um dýrbir a þjob- hátíb í Vestmannaeyjum um komandi verslunarmannahelgi undir lok þessa mánabar. Nokkrar af vinsælustu hljóm- sveitum landsins koma þar fram en fyrst og fremst er þab mabur sem er manns gaman. Þetta kom fram í máli forsvars- manna þjóbhátíbarinnar á blabamannafundi sem haldinn var í Eyjum á mibvikudaginn. íþróttafélagib Þór heldur hátíb- ina í ár. „Það er búib aö ganga frá ráön- ingu allra skemmtikrafta og undi- búningsvinna í dalnum er hafin af fullum krafti. Stóri og litli dans- pallarnir eru komnir upp svo og sölubúöir. Þá eru brennuvargar farnir að taka til við fyrirtæki í bænum," sagði Árni Johnsen, kynnir þjóöhátíöarinnar á blaöa- mannafundinum. Stærstu núm- erin á þjóðhátíö veröa hljóm- sveitirnar SS-Sól og Vinir vors og blóma, en sú síðarnefnda hefur skotist upp á stjörnuhimininn með ógnarhraba á undanförnum misserum. Á litla danspallinum verður það Upplyfting sem sér um f jöriö. Þá munu minna þekkt- ar hljómsveitir koma fram á tón- leikum tvisvar á dag, þjóbhátíðar- dagana; frá föstudegi til sunnu- dags. A kvöldvökur er búið að ráða skemmtikrafa sem eru Magnus Olafsson, Raddbandið, Eyþór Arnalds og unnusta hans Móeiður Júníusdóttir og loks nikkuspilarinn Örvar Kristjáns- son. Þjóðhátíð byggist ekki hvað síst á föstum póstum í dagskránni sem eru á sínum stað frá ári til árs. Þannig verður - samkvæmt venju - vegleg brenna á föstudagskvöld- inu, á laugardag veröur flugelda- sýning, ein sú glæsilegasta sem sést hefur hérlendis og á sunnu- dagskvöldinu verður varbeldur og brekkusöngur sem Árni Johnsen stjórnar. Verður þar ef til vill sungib þjóbhátíbarlagið, Út við sund og eyjar, sem er eftir Gísla Helgason við texta Guðjóns Whie. Var það hlutskarpast í sam- keppni um þjóðhátíöarlag en alls voru send inn þrettán lög þetta árið. Áriö í ár er hið 120 sem þjóðhá- tíð er haldin. Fyrst var hún haldin árið 1874 þegar Eyjamenn kom- ust ekki á þjóðhátíðina á Þing- völlum. Þá slógu þeir upp sinni eigin þjóbhátíb og það hafa þeir gert æ síban. Fólk á öllum aldri af fastalandinu hefur fjölmennt alla tíö á hátíðina og svo verður einn- ig í ár ef marka má fyrirspurnir. Verb aðgöngumiða í ár er 6.500 kr. og er það sama ár og tvö und- anfarin ár. Sigurður Bogi Sœvarsson Ekki tekið gjald fyrir simsvarann í lesendabréfi í gær var spurt hvort Póstur og sími græddi á því ab láta símsvara á þá far- síma sem ekki næst samband vib vegna þess ab slökkt er á þeim þegar þeir eru utan þjón- ustusvæbis eba allar rásir upp- teknar. Svarib er einfalt; ekkert gjald er tekib þegar menn fá samband vib þennan símsvara. Margir farsímanotendur slökkva alltaf á símanum þegar þeir bregöa sér frá til að spara rafmagn. Þaö er liöur í þjónustu Pósts og síma aö láta þá vita sem eru aö reyna að hringja í far- síma, ab ekki þýöi aö hringja út, annaö hvort sé slökkt á síman- um eba að hann finnist ekki innan þjónustusvæðisins. Einn- ig kemur símsvarinn á, ef álag er svo mikib að engar farsímarásir eru lausar þá stundina. Þegar Póstur og sími setur sameigin- lega símsvörun á númer í staf- ræna kerfinu sem hefur verið breytt, eru ótengd eða lokuð, þá gildir það sama; ekki er tekið gjald fyrir þær hringingar. Blada- og upplýsingafnlltr. Pósts og síma. Ekki var nú elskan mjög áberandi gagnvart félags- hyggjunni þegar Alþýbubandalagib myndabi meiri- hluta meb Sjálfstœbisflokknum í Hafnarfirbi. Cubmundur Árni Stefánsson: Ótímabærar hugleibingar „Þetta eru ótímabærar hugleið- ingar hjá Ólafi Ragnari og ég vil segja það í þessu sambandi að for- maður Alþýðubandalagsins mætti líta sér nær í þessu sambandi. Ekki var nú elskan mjög áberandi gagnvart félagshyggjunni þegar Alþýðubandalagið myndaöi meirihluta með Sjálfstæðisflokkn- um í Hafnarfirði nú eftir kosning- ar," sagði Guðmundur Árni Stef- ánsson. „Hvað þessa hugmynd varðar, þótt hún komi úr hörðustu átt, er ekkert úr vegi að skoða hana þeg- ar þar að kemur. Þab eru átta mánuðir til kosninga og ýmislegt á eftir að gerast á þeim tíma. Við eigum eftir að takast á við vanda- söm verkefni eins og fjárlagagerð- ina og nýja kjarasamninga. Ég hygg að ríkisstjórnin muni fara í þau verkefni og hvernig úr þeim spilast verður tíminn að leiba ljós. Svo er það náttúrulega þekkt í stjórnmálum að ýmis mál koma upp á, sumt eru menn sammála um og annað ekki, eins og gengur en það er engin ástæða að reikna með haustkosningum á þessu stigi málsins. Ég man það fyrir ári á sama tíma að þá var spáð haust- kosningum, um haustib var spáð kosningum fljótlega upp úr ára- mótum og fljótlega upp úr ára- mótum átti að kjósa á sama tíma og til sveitarstjórnar og svo gerð- ist þab ekki þannig að þá á að kjósa í haust. Þá átti að kjósa í haust af því að ríkisstjórnin hefði staðið sig svo illa en nú á að kjósa í haust af því aö ríkisstjórnin hef- ur staðið sig svo vel og það eru björt tíöindi. Maður er búinn að heyra allar kenningar og fara hring eftir hring í þessu," sagði Gubmundur Árni Stefánsson að lokum. ■ Álíka alkóhólmagn selt á 2. ársfjórbungi í ár og í fyrra en val á drykkjum snarbreyst: Sala bjórs aukist um 26% en minnkaö um 24% á brennivíni Tölur ÁTVR sýna ab 5% meira magn af alkóhóli seldist fyrri helmingi ársins en í fyrra. Val á drykkjum hefur á hinn bóginn breyst gífurlega milli ára. Sala á bjór hefur aukist um rúmlega fjórbung (26%) milli ára, úr 2,5 milljónum lítra fyrstu 6 mán- ubina í fyrra upp í 3,2 milljónir lítra í ár. Hlutfall bjórsins í heildarsölu hreins alkóhóls hef- ur aukist úr rúmlega 32% í tæp- lega 39% mllli ára. Samanlögö sala allra annarra drykkja minnkaði hins vegar um rúmlega 5%. Sá samdráttur allur og meira til hefur oröib á sterku drykkjunum, sem allir seljast nú minna en í fyrra. Mestur er þó samdrátturinn í sölu á brenni- vini, um 24%. Athygli vekur að brennivínssala virðist hafa hrun- ið síöustu þrjá mánuðina. Sala á vodka hefur einnig minnkað um 10% og um 15% á sénever þaö sem af er ársins. Ætla má að þess- ar þrjár tegundir gætu átt í einna mestri samkeppni við þá áfengis- framleibslu og sölu sem fer fram- hjá ÁTVR. Rauövínssala hefur aftur á móti aukist nokkub (8%) og sala ann- arra léttra vína nokkru minna. Samkvæmt söluyfirliti hafa landsmenn drukkið um fjórðung- inn af öllum sínum bjór á veit- ingahúsum. Hlutfallið er þó enn- þá hærra í ýmsum öbrum tegund- um. Þannig hafa veitingahúsin keypt (og væntanlega seld) um 41% allra líkjöra, 34% bittera, 31% af hvítvíninu, fjórðunginn af öllu freyðivíni, rauövíni, kon- íaki, viskíi, gini og rommi. Á veit- ingahúsin fer hins vegar mjög lít- ib hlutfall af sérríi og séníver. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.