Tíminn - 08.07.1994, Side 7

Tíminn - 08.07.1994, Side 7
UOQ r 'il.M fi nir\chid?í\3 Föstudagur 8. júlí 1994 7 Þorkell bjarnason, hrossaræktarrá&unaut- ur Búnaðarfélags is- lands, stjórnaöi kyn- bótasýningum og dómum í fyrsta sinn á fjórbungsmóti á Gaddstaðaflötum fyrir 33 ár- um. Landsmót hestamannafé- laga um síðustu helgi var hið 10. í röðinni þar sem hann hefur setið sem dómari. Þor- kell var valinn af stjórn L.H. 1958 til þess að sitja í kynbóta- dómnefnd á landsmóti það ár. „Ég er búinn að lifa tímana tvenna í hestamennskunni og er alténd einn af þeim sem geta dæmt um þab af eigin raun hvort hrossin eru betri og hversu mikið þau eru betri en þau voru hér áður fyrr," segir Þorkell. „Á næsta landsmóti, sem Landssamband hestamanna og Búnaðarfélagið halda í sameiningu á Þingvöllum 1962, er ég orðinn ráðunaut- ur. Það hef ég verið allar götur síðan. Þetta er níunda lands- Vægiö á tölti tvöfaldaö — Það er mikil breidd í kynbót- unum, eins og þú orðar það rétti- lega. Það er líka orðinn mjög breiður hópur sem stundar hestamennskuna og sér ekki kyn- slóðabil í því. En hvar finnst þér að megi taka á varðandi kyn- bœtumar á noestu árum? „Fyrir átta árum tvöfölduö- um við vægið á tölti í einkunn til þess að ná því skarpar fram. Núna, átta árum seinna, finnst okkur að það sé að skila ár- angri. Það er ekki nokkur vafi að nú getum vib sýnt hóp af úrvals tölturum, ganghreinum og rúmum. Við verðum aðeins að breyta dómskalanum og áherslum á einkunnavæginu, til þess að reyna að kalla fram þab þýb- ingarmesta. Við höfum gert þab meb háls og herðar og fótagerð, í staðinn fyrir rétt- leika fótanna, sem við teljum þýðingarmeira. Þetta á allt að Ifgjj|Sj|l Þorkell ab lýsa dómum. Tímamyndir PS Kári Arnórsson rœöir Wð Þorkel Bjarnason, hrossarœktarráöunaut Búnaöarfélags íslands: Þrjátíu og þrjú ár í forystu ræktunarmála mótið þar sem ég er formaður dómnefndar og ég verð að segja það alveg eins og er, að ég næ varla upp í nefið á mér fyrir monti." Glæsileg kynbótahross — Það er almannarómur á landsmótinu nú, að það hafi í raun ekki sést glœsilegri kyn- bótahross. Menn eru undrandi yfir því hvað framfarimar hafa verið miklar og örar. Hvað segir þú um það? „Það er augljóst. Ræktunar- starfið hefur verið að skila sér hægt og bítandi. Að vísu hefur aldrei verið um neinar stór- framfarir að ræöa, en þetta er orðinn langur tími og sá nú ekki til mikilla framfara lengi vel. Þær hafa þó orðiö greini- legri eftir því sem árin hafa lið- ið og nú eru margir undrandi. Ég get alveg viðurkennt að ég er einn af þeim, þó að ég hafi verið við dómstörf í margar vikur í vor og hafi vitað að hverju dró. Auðvitað vissi ég það sem var að gerast að mestu leyti, en sé litið á út- komuna hér, er ekki hægt að kalla þetta annað en byltingu. Slík er breiddin í þessu og slík- ur fjöldi. Hér ábur fyrr þóttist maður góður að hafa eitt dágott hross í hverjum flokki. Það fylgdi því svo einhver hópur sem var yfirleitt miklu síðri. Þá gat maður státað af tveimur til þremur góðum kynbótahross- um eftir hverja stórsýningu. Ef maður lítur á þetta í heild núna, þá veit maður varla hvaða hross á ab nefna, því að topphestarnir í hverjum flokki eru yfirleitt ekki nema ein- hverjum kommum ofar en næsti-hestur."...... HE£TA- MOT KARI ARNORS- SON skila sér smátt og smátt í fram- tíðinni. Það er feiknarlega mikið starf framundan. Við sjáum greini- legan árangur í auknum hæfi- leikum hrossanna. Þegar ég fer að skoða mitt starf í hnotsk- urn, finn ég það að upphaflega var ég afskaplega áhugasamur um ganghæfnina. Auðvitab var maöur ekki beint að skil- greina töltið til þess ýtrasta, eins og gert er núna með góð- um árangri. Gangtegundirnar hafa batnað og þetta hefur allt saman þróast í rétta átt. Ég var mikið orðaður við skeið í byrj- un og menn voru bæði að lofa það og lasta. Ég hef haldið mínu striki og sé ekkert eftir því. Þab er í mínum huga alveg greinilegt að þessi þáttur hefur tekist mjög vel og er að skila sér núna. Ef við notuðum hrossin ekki til reiðar, heldur litum einungis á þau með til- liti til byggingar, þá mundum við sjá of marga galla. Rábu- nautar hafa verið að benda á að nú þurfi menn að snúa sér í auknum mæli að byggingar- þáttunum, en það er mikið og erfitt framtíðarverk. Það er í órafjarlægð ab við náum að fullkomna ræktunina. Ef við skoðum erlend hesta- kyn, sem er búið að rækta í mörghundruð ár, sjáum við ab þeirra hestar eru miklu sam- stæbari. Erlendis hefur verið lögð höfuðáhersla i. bygging.- Þorkell heibraöur á landsmótinu um síbustu helgi. una. Auðvitað hafa menn ræktað þætti eins og gang og geðslag líka, en maður sér miklu samstæðari hross hjá öðrum þjóðum heldur en hér á íslandi. Þetta er verkefni framtíðarinnnar. Þarna er óþrjótandi verk framundan fyrir kynslóbir af ráðunaut- um." Mikilvægi góörar reiö- mennsku „Það væri fásinna af mér sem foringja í ræktunarstarfi, að ætla ab fara að berja mér á brjóst og segja: „Sjáib hvað ég og bændur erum búnir að gera með ræktun og vali á kynbóta- gripum" og minnast ekki á knapa eða reiðmenn. Hross geta verið kostum búin, þó enginn hafi hugmynd um það ef .engino .kann. að.r.íða .þejm.. Þetta þarf allt að fylgjast að. Það var það skemmtilega við þetta í upphafi, þegar hesta- mennskan var hafin til virð- ingar á ný, að þetta góða sam- starf skyldi takast á milli Landssambands hestamanna og Búnaðarfélags íslands. Hvað væru góðir hestar, kost- um búnir, ef enginn kynni á þá? Hvers virði væru eðal- vagnar ef ekki væru til vegir og enginn gæti sett þá í gang og ekið þeim? Þetta er málið. Reiðmennskuna og ræktunina þarf að þróa saman og það hef- ur Búnaðarfélaginu og Lands- sambandinu tekist mjög vel." Gildi stórmóta — Hvaða gildi hafa samkomur eins og síðasta landsmót, bœði fyrir starf ykkar sem vinnið að rœktunarmálum, fyrir hesta- mennskuna almennt og ekki síð- ur fyrir bændur gagnvart sinni framleiðslu? „Glæsileg stórmót hafa geysi- legt gildi. Undirstaðan er að koma meb gób hross, en gleði- gjafinn er að fá alla þessa áhorfendur. Það er auðvitað til ánægju að ríba út á sinni heimagötu. En að geta stofnað til landsmóts fjórða hvert ár, þar sem kemur svo mikill mannfjöldi að langt er til jafn- að, það er náttúrlega það gleðilega við þetta. Aðsókn að stóðhestasýningum í Gunnarsholti og smærri mót- um út um allt land og áhugi fólksins í brekkunni á stórmót- um eins og þessu, sýnir okkur best hversu marga aðdáendur hesturinn á. Þessu fólki er full alvara og það er þetta samspil á milli ræktanda, knapa og áhorfanda sem gefur stórmót- um eins og landsmótinu á Gaddstaöaflötum gildi." ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.