Tíminn - 08.07.1994, Page 8
8
Föstudagur 8. júlí 1994
IÞROTTIR • KRISTJÁN GRÍMSSON • ÍÞROTTIR
Hvaö orsakar slakt gengi Valsmanna til þessa í Trópídeiidinni?
Sœvar Jónsson, fyrrum leikmaöur Vals:
„Eins og menn
nenni
Reykjavíkurstórveldið Valur á
þessa dagana í miklum erfiö-
leikum í Trópídeildinni í
knattspyrnu og er aðeins með
8 stig og nálægt botninum.
Þessi staða liðsins kemur á
óvart miðað við hvað sterkir
leikmenn eru í liðinu. Þar
nægir að nefna Guðna Bergs-
son, Atla Helgason, Steinar
Adolfsson, Ágúst Gylfason,
Eið Smára Guðjohnsen, Krist-
ján Halldórsson og markvörð-
inn Lárus Sigurðsson. Tíminn
innti gamla Valsmenn, sem
fylgst hafa með liðinu í sumar,
álits á gengi liðsins.
Grímur Sæmundsen, sem lék
með Val í fjöldamörg ár, varð
fyrstur fyrir svörum. „Ég held
að strákarnir þurfi bara að
spila meira saman sem liðs-
heild. Mér fannst eins og á
móti UBK hafi Valsmenn
vantaö alla trú á það sem þeir
voru að gera. Ég er annars
grautfúll yfir því að sigur
fékkst ekki gegn Blikum, því
þeir eru ekki meö það sterkt
lið. Ég veit þaö að ef við hefð-
um náð að skora fyrst, þá
heföum viö unniö þennan leik
vegna þess að Blikar þoia ekki
slíkt mótlæti.
Þetta er ekki spurning um
getuna, því Valur er með
sterkt lið; ég held að þetta sé
þessu
frekar spurning um andlegu
hliðina. Þeir þurfa bara að taka
sér tak hvað varðar einbeit-
ingu og virkilega fara í leikina
til að vinna. Því má ekki
gleyma að margir nýir strákar
eru í liðinu og það þarf hrein-
lega bara meiri tíma til slípa
liðið saman. Þeir misstu af
mikilvægri slípun sem Reykja-
víkurmótið var og þurfa því
aðeins meiri tíma. Liðið er
ómótað ennþá. Kristinn
Björnsson þjálfari er enn að
finna réttu blönduna og prófa
menn í ýmsar stöður. Það er
ekki til í mínum huga að Krist-
inn verði látinn fara og það
væri alveg út í hött af hálfu
Valsmanna. Ég er sannfærður
um að hann finnur rétta takt-
inn og liðið skili þeim árangri
seinni part mótsins sem búist
er viö af því. Af þeim 30 stig-
um, sem eftir eru í pottinum,
myndi gamall Valsari eins og
ég sætta mig við 75% árangur
(22-23 stig). Við leikum gegn
KR næst og ég er bjartsýnn og
spái okkur 1-0 sigri á KR-vell-
inum," sagði Grímur Sæ-
mundsen.
Sævar Jónsson lagöi skóna á
hilluna hjá Val í fyrra. „Mér
finnst ákaflega einkennilegt
ab eftir átta umferðir í deild-
inni sé ekki búið að finna rétta
liðið sem á að byrja inná. Það
er eitthvab að ef menn vita
ekki hvernig á ab stilla upp lið-
inu eftir 8 leiki í 1. deild. Þab
segir sig sjálft að þeir sem eru
að spila þekkja þarafleiðandi
ekki inn á hver annan, því það
er alltaf verið að hringla með
stöburnar í liðinu. Þetta er
ákveðið örvæntingarmerki frá
minni hálfu séð. Ef þú trúir á
eitthvað, þá heldur þú því
áfram þangað til það smellur
saman! Ég er búinn að sjá alla
leikina nema einn og mér
finnst hreint út sagt liðið ekki
vera að spila neinn fótbolta.
Liðið nær ekkert saman og því
kemur þetta út eins og menn
séu að spila hver í sínu horni,
sem er m.a. afleiðing þess ab
þab er verið að rokka með
stöðurnar í liðinu. Það hafa fá-
ir í Valsliðinu í dag gaman af
því sem þeir eru að gera. Ég get
alveg fullyrt það þegar ég sé þá
spila, það vantar alla glebi í
mannskapinn og það er eins
og menn nenni þessu ekki.
Þetta er lið sem á ekki að berj-
ast við fall í 2. deild, því það er
þab sterkt á pappírnum. Ég get
ekki séb að það verði annað
upp á teningnum hjá Val en
barátta um fallið, nema það
verði einhverjar breytingar,"
sagði Sævar Jónsson. ■
Heimsmeistarakeppnin í handbolta 1995:
Danir bjartsýnir
Gubjón Svansson skrifar frá Danmörku
Dönum líst vel á riðilinn sem þeir
koma til með ab leika í á HM í
handbolta hér á íslandi, sem fer
fram á næsta ári. Þeir telja mjög
góöa möguleika á aö veröa meöal
fjögurra efstu liöa í riölinum, sem
í eru m.a. annars Frakkland og
Þýskaland, og þar meö tryggja
sæti sitt í 16-liöa úrslitunum.
Danir eru bjartsýnir eftir aö hafa
náö fjóröa sæti í Evrópukeppn-
inni í Portúgal í sumar og ætla sér
stóra hluti á íslandi næsta vor.
Meö þessum góöa árangri í Portú-
gal tókst dönsku landsliösmönn-
unum aö narta í hæla landsliös-
kvenna hvaö vinsældir lands-
manna varöar, en öfugt viö þaö
sem tíökast á íslandi, eru þaö
handboltakonurnar sem baöa sig
í sviösljósinu í Danaveldi vegna
góös árangurs á síöasta HM-móti
kvenna. ■
Hvaða fjölmiðlar
eru málsvarar
félagshyggjunnar?
Hugsaðu þig um!
mmm
- félagshyggjublaðið. Sími 631-600
>
■faiUEtO^L1
Sœvar Jónsson, sem hérsést íleik meb landsliöinu, erekki mjög
ánœgöur meb hvernig stabib er ab málum hjá Val þessa dagana.
Burrel bætti
metið í lOOm
Hinn 27 ára gamli bandaríski
spretthlaupari Leroy Burrel
bætti heimsmetiö í 100 metra
hlaupi á stigamóti alþjóða
frjálsíþróttasambandsins í
Lausanne í Sviss á miðviku-
dagskvöld. Hann hljóp vega-
lengdina á 9.85 sekúndum og
var þetta í annað sinn sem
hann bætir metið í 100 metra
hlaupi. Gamla metið átti Carl
Lewis, sem hann setti árið
1991 á HM í Tókíó og var einu
sekúndubroti meira, 9.86. „Ég
var sannfærður um að ég færi
hratt og tókst það," sagbi Burr-
el eftir hlaupið og bætti því
við að hann hefði á tilfinning-
unni að hann gæti hlaupið að-
eins hraðar.
Annar í hlaupinu var Ezina frá
Nígeríu á 9.99, en Dennis Mitc-
hell var þriðji, einnig á 9.99
sekúndum. Metið er sætur sigur
fyrir Burrel, því hann náði ekki
lágmarki fyrir EM í Stuttgart í
fyrra og var þá fjarri góðu
gamni í 100 metrunum. ■
8-liba úrslit bikarkeppni kvenna:
ÍBA í undanúrslit
Kvennaliö íþróttabandalags Ak-
ureyrar tryggði sér sæti í undan-
úrslitum bikarkeppni kvenna
með því að leggja Sindra að velli
í 8-liða úrslitum. Ragnhildur
Pálsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir
og Þorbjörg Jóhannsdóttir skor-
uöu sitt markið hver í 0-3 sigri.
UBK er einnig komið áfram eft-
ir 0- 4 sigur á Stjörnunni, en síð-
artalda liðið lék til úrslita í bik-
arnum í fyrra. Olga Færseth
gerbi tvö mörk og Kristín Lilja
Dabadóttir einnig tvö mörk.
KR-stúlkur unnu Hött 1-5 og
UBK vann
Breiðablik sigraöi Val í Trópí-
deildinni á miövikudag, 1-3,
að Hlíöarenda. Grétar Stein-
dórsson og Lazorik gerbu
mörkin í fyrri hálfleik, en Sig-
urbjöm Hreiðarsson minnk-
aöi muninn á 88. mínútu og
Arnar Grétarsson skoraði
þriöja mark Blika.
gerbi Helena Ólafsdóttir m.a.
tvö mörk fyrir KR.
Valur burstaði Leiftur á Ólafs-
firði 0-17. Þær sem gerbu flest
mörk Vals voru Ásgerður Ingi-
bergsdóttir og Erla Sigurbjarts-
dóttir, báðar meb 4 mörk. ■
I kvöld
Knattspyrna
2. deild karla
Selfoss-HK ........kl. 20
KA-ÍR .............kl. 20
3. deild karla
Dalvík-Höttur.......kl. 20
Haukar-UMFT ........kl. 20
Reynir S.-Víðir.....kl. 20
BÍ-UMFS ...........kl. 20
Völsungur-Fjölnir ..kl. 20
4. deild karla
Ökkli-Leiknir.......kl. 20
SM-Magni............kl. 20
KS-Þrymur .........kl. 20
Einherji-Sindri.....kl. 20
KVA-Huginn.........kl. 20