Tíminn - 08.07.1994, Side 10
10
Föstudagur 8. júlí 1994
Taiwan undirbýr um-
sókn um aöild ab S.þ.
Taipei, Reuter
í skoðanakönnun sem fram-
kvæmd var af Gallup fyrir stjórn-
völd í Taiwan, í sjö helstu iðnríkj-
um heims, kemur fram að yfir
helmingur aðspurðra var fylgj-
andi því að Taiwan ætti fulltrúa
hjá S.þ. á ný.
„Það má lesa úr svörum íbúa
helstu iðnríkja heims, ab þeir eru
mjög fylgjandi umsókn okkar um
abild aö S.þ," sagði varafram-
kvæmdastjóri upplýsingaskrif-
stofu stjórnar Taiwan, Yeh ien-
hsing hershöfðingi.
Könnunin sem var framkvæmd í
Bandaríkjunum, Kanada, Japan,
Bretlandi, Ítalíu, Frakklandi og
Þýskalandi sýndi að á milli 47.4
og 64.7 af hundraði aðspurðra
voru fylgjandi umsókn Taiwan
um að fá aftur aö taka sæti sitt hjá
Sameinuðu þjóðunum sem Kína
tók yfir árið 1971.
Kína hefur litið á Taiwan sem
óaöskiljanlegan hluta landsins
frá lokum borgarastyrjaldarinnar
árið 1949, og hefur frá árinu 1971
beitt sér gegn öllum tilraunum
þjóðernissinna á Taiwan til að fá
inngöngu í S.þ. Taiwan hóf her-
ferð sína fyrir inngöngu í S.þ. á
síðasta ári og vonast til aö fá aðild
aö nýju innan þriggja ára. Árið
1993 felldi allsherjarráb SÞ tillögu
10 ríkja þess efnis aö viöurkenna
bæri sjálfstæbi Taiwan til að
tryggja því aðild að Sameinuðu
Þjóðunum. ■
Spenna milli Bandaríkjanna og ESB á leibtogafundinum á Ítalíu:
Bandaríkjastjóm vill
aukib vibskiptafrelsi
Brussel, Reuter
Evrópusambandið hefur fengið
vísbendingar um að Bandaríkja-
stjórn ætli að nota fund leiðtoga
sjö helstu iðnríkja heims til að
leggja til aukið frelsi í heimsviö-
skiptum. Þetta fullyrðir heimild-
armaöur Reutersfréttastofunnar í
Brussel.
Fulltrúi innan framkvæmda-
stjórnar ESB, sem ekki vildi láta
sín getið, segir hættu á að slík
krafa gæti gert að engu mikla
vinnu framkvæmdastjórnarinnar
við að tryggja innbyrðis sam-
komulag aöildarríkja sambands-
ins um áframhaldandi viðræður
um frelsi í heimsvibskiptum nú
eftir ab Úrúgvæ-lotu GATT-við-
ræðnanna er lokið.
„Viðhorf okkar er það sama og
Japana, nefnilega að fullgilda
Úrúgvæ-lotuna og koma Alþjóöa-
viðskiptastofnuninni, WTO, til
starfa. Allt sem flækir málið er
tímaskekkja," sagði heimildar-
mabur fréttastofunnar.
Taliö er að Clinton Bandaríkja-
forseti vilji nota tækifærið á leið-
togafundinum og sýna Banda-
ríkjaþingi að áfram verði haldib á
braut frjálsari heimsviðskipta þó
að Úrúgvælotunni sé lokið. Þann-
ig vonast hann til ab fá nýja
GATT-samninginn samþykktan í
báðum deildum þingsins. ■
Reykingar dýrkeyptar
Atlanta, Reuter
Reykingar Bandaríkjamanna kost-
ubu heilbrigbiskerfi þjóðarinnar um
50 milljarða bandaríkjadala á síð-
asta ári eftir því sem formælandi
heilbrigbisráðuneytisins þar í landi
greindi frá í gær. Þessi upphæö
samsvarar því aö kostnaður heil-
brigðiskerfisins af hverjum sígar-
ettupakka se rúmir tveir dolllarar
eða um 140 íslenskar krónur. Upp-
lýsingarnar eru byggbar á skýrslu
stofnunar til eftirlits og forvarna
sjúkdómum. Taliö er að þessar nib-
urstöður auki líkurnar á að Clinton
Bandaríkjaforseti fái þvi framgengt
að hækka skatta á reyktóbaki og þá
sérstaklega sígarettum. ■
yf
»
Biliö brúaö
Reuter
Nýlega var dráttarbátur fenginn til ab draga Salhosbrúna frá Lonevogi þar
sem hún var smíbub til Bergen. Brúin er 1246 metra löng og byggb á 10
fljótandi steypueiningum og 11 stálkössum. Henni er œtlab ab brúa bilib
milli Knarvíkur og Stinistoe en hingab til hefur ferja gengib á milli þessara
staba.
Þjóbverjar viburkenna ósigur
Bonn, Reuter
Þýska stjórnin hefur viðurkennt
að Bretum hafi tekist að koma í
veg fyrir að Jean-Luc Dehaene,
forsætisráðherra Belgíu, taki við
starfi Jacques Delors sem forseti
framkvæmdastjómar Evrópu-
sambandsins.
„Það er engin spurning, við
verbum að finna nýjan fram-
bjóðanda," sagði Klaus Kinkel,
utanríkisráðherra Þýskalands, í
gær við fréttamenn.
Á fundi leiðtoga ESB-ríkjanna á
Korfú í lok júní greiddu öll ríki
sambandsins Dehaene atkvæði
sitt að Bretlandi undanskiidu
sem beitti neitunarvaldi til að
koma í veg fyrir kjör belgíska
forsætisráðherrans. ■
Bridqe
UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON
Silfurstigamót
BSÍ um helgina
Næsta silfurstigamót BSÍ fer
fram laugardaginn 9. júní og
hefst kl. 12.00. Skráning og
nánari upplýsingar eru á skrif-
stofu BSÍ fyrir hádegi í síma 91-
619360.
13 skrýtnir slagir
„Þetta er ljótt spil," sagbi aust-
urspilarinn svekktur í spili 14
sl. sunnudagskvöld í sumar-
bridge. Ofanritaður er sam-
mála því. En ekki er það leiðin-
legt. Subur gaf og allir voru á
hættu:
* ÁC96
y ÁDT864
4 xx
* 7
N
S
A KT74
V S2
^ ÁKD7
* 865
Þetta gæti verib úrspilsþraut í
4 spöðum en raunveruleikinn
var allur annar og óhuggulegri:
Þannig gengu sagnir:
Suöur Vestur Norbur Austur
1« pass 2 v pass
2* pass 4* pass
4 ♦ pass 5* pass
6« allir pass
(Norður fer og fær sér kaffi)
NS spila precision, tvö hjörtu
voru sterk (!?), 4 lauf splinter
og 5 spaðar áskorun. Einhverra
hluta vegna tók suöur henni
og því varð hin vafasama
slemma að veruleika.
Útspil »3 (3ja 5.)
Hvemig er best ab spila?
Það er freistandi að svína
hjartanu en lauftapslagurinn
gæti horfið ofan í tígulinn og
því er sennilega best að stinga
upp hjartaás, taka tvo efstu í
spaða og síöan þrisvar tígul óg
kasta laufi í blindum.
Sagnhafi dagsins drap
með ás og fékk hjartakónginn
í. Þá spilaði hann hins vegar
strax tígli, gosinn hjá austri og
nían hjá vestri. Þá kom tígul-
kóngurinn og lítið hjá bæöi
austri og vestri. Síðan drottn-
ingin og eftir smáhik kastar
vestur laufi og gerir með því
mistök. Vörnin fær a.m.k einn
slag ef hann trompar. Laufi er
kastaö úr blindum og spaðaí-
feröin næst á dagskrá.
Vestur byrjaði með 4-lit í
hjarta, hann átti aöeins tvo
tígla og hefur sýnt eitt lauf. Af
hverju trompaði vestur ekki
tígul? Líklega vegna þess að
hann á spaðadrottninguna,
sennilega þribju. Þá er einnig
til einföld regla sem hægt er ab
beira gegn ákveðnum mönn-
um; spili þeir ekki út trompi
eftir sagnir sem þessar eiga þeir
eitthvað í íitnum. Sagnhafi
svínar því á gosann og það
gengur. Þá kemur ás og kóngur,
drottningin í hjá vestri og
hjarta. Gosinn á síaginn og síð-
an er hjarta trompað heim, tí-
gull trompaður og 13 slagir í
húsi. (Norður kemur aftur ab
borðinu, sér 13 slagi og segir:
„Já, fékkstu 13, ég var að
spá...") Allt spilið:
A ÁC96
V ÁDT864
4 xx
* 7
A Dxx
V G9xx
♦ 92
* KT83
N
V A
S
* XX
V K
4 CTxxx
4 ÁCxxx
* KT74
V S2
4 ÁKD7
* 865
Óstuðið á AV var algjört. Út-
spilið gaf í raun tvo slagi, því
þab upplýsir hjartastöðuna og
gefur möguleika á laufniður-
kastinu. Síðan dottar vestur
þegar þriðja tíglinum er spilað
og auk þess finnur sagnhafi
spaðadrottninguna. En samt
held ég að sagnir NS séu þab
ljótasta við borðið og merkilegt
nokk (sem sýnir hvað íslend-
ingar eru sagnglaðir) voru þrjú
önnur pör í slemmunni. Tvær
Nú fer spennan abeins ab aukast í Bikarkeppni BSÍ en stigahœstu
sveitirnar eru nú mcettar til leiks eftir yfirsetu í 1. umferb. Sveit Björns
Theódórssonar kemst jafnan langt og varb t.d. í 2. sœti árib 1993.
þeirra stóbu slétt en ein fór
niður. Svo voru sumir sem fóru
niður á 4 spöbum!
Bikarkeppni BSí
Ábur óbirt úrslit úr
Bikarkeppni BSÍ:
Sveit Roche, Reykjavík, vann sveit Hall-
dórs Aspar, Sandgeröi, 127-63.
Sveit Karls G. Karlssonar, Sandgeröi,
vann sveit Þrastar Ingimarssonar, Kópa-
vogi, 89-60.
Sveit Ólafs Steinasonar, Selfossi, vann
sveit Brynjars Olgeirssonar, Tálknafiröi,
120-67.
Sveit Estherar Jakobsdóttur, Reykjavík,
vann sveit L.A. Café, Reykjavík, 93-33.
Sveit Sigmundar Stefánssonar, Reykja-
vík, vann sveit Gunnars P. Hallgríms-
sonar, Höfn, 152-52.
Sveit Sparisjóös Siglufjaröar vann sveit
Haraldar Sverissonar, Reykjavík, 176-58.
Sveit Georgs Sverrissonar, Reykjavík,
vann sveit Þórólfs Jóssonar, Húsavík,
144-78.
Búið er að draga í aöra umferð
og spila eftirtaldar sveitir sam-
an:
Georg Sverrisson, Rvík,-Guömundur
Ólafsson, Akranes
Sparisjóöur Keflavíkur, Suöurnesjum-
Karl. G. Karlsson, Sandgeröi
Sigmundur Stefánsson, Rvík.-Jósep
smiöur, Reykjavík
Anna ívarsdóttir, Rvík.-Glitnir, Rvík
Guöjón Stefánsson Borgarnesi-Magnús
Magnússon, Akureyri
Björn Theódórsson, Rvík-Landsbréf.
FBM, Rvík-Ólafur Steinason, Selfossi
SPK, Rvík.-S. Ármann Magnússon, Rvík
VÍB, Rvík-Sparisjóður Siglufjaröar
Dan Hansson, Rvík- Tryggingamiöstöö-
in, Rvík.
Halldór Sverrisson, Rvík-Birgir Ö. Stein-
grímsson, Rvík.
Hjólbaröahöllin Rvík-Roche, Reykjavík
Ragnar T. Jónsson, Ísafirbi-BSH, Húsav.
Gunnarstindur, Stöðvarfiröi-Kjöt og
fiskur, Hafnarfiröi
Esther Jakobsdóttir, Rvík-Eövarö Hall-
grímsson, Bessastabahr.
Halldór Svanbergsson, Rvík-Agnar Ara-
son, Rvík.