Tíminn - 09.08.1994, Síða 11

Tíminn - 09.08.1994, Síða 11
Þri&judagur 9. ágúst 1994 11 KRISTjAN GRIMSSON Fram og Þór skildu jöfn í síöasta leik 12. umferbar í 1. deild karla í knattspyrnu: Leikmenn ekki á skotskónum Mér fannst við eiga leikinn en það vantaði bæði heppni og kraft til að klára þau fjölmörgu færi sem við fengum. Við lékum ekki sérstaklega vel en vonumst þó til að þetta sé allt á uppleið hjá okkur," sagði Ormar Orlygs- son, fyrirliði Þórs, en lið hans gerði 1-1 jafntefli við Fram á að- alleikvangi Laugardalsvallar á sunnudagskvöldið. Þetta var að- eins annað stig Þórs á útivelli í sumar. . Háll og blautur Laugardalsvöll- ur var helsta ástæða þess að leik- Ríkharöur Dabason skorabi mark Fram, sitt fimmta í sumar. Molar... ... Sheffield Wednesday keypti rúmenska varnarmanninn Dan Petruscu frá ítalska félaginu Genoa og er kaupverðið tæpar tvær miljónir bandaríkjadala. Hinn 26 ára gamli Petruscu gerði. fjögurra ára samning við Mið- vikudagsliðið. Lesendur minnast þess sjálfsagt að Petruscu var annar þeirra er brenndi af víti í vítaspyrnukeppninni gegn Svíum í 8-liða úrslitum HM. ... Paul Ince, hjá Man.Utd, hafa verið gefnir úrslitakostir. Annað- hvort skrifar hann í snarheitum undir 2. ára samning við félagið er yfirgefur það hið snarasta. Launakröfur Ince þykja miklar og háar og sögöu forráðamenn Man. Utd að þeir væru búnir að ganga eins langt og þeir gætu og nú væri boltinn hjá Ince. Þá snýst vandamálið líka um ágóða- leik sem Ince vill að verði spilað- ur fyrir sig eftir fimm ár. ■ menn Fram og Þórs voru ekki á skotskónum en fjöldi færa leit dagsins ljós. Leikurinn var því mjög opinn en þó var ekki mik- iö um laglegt samspil. Ágúst Ól- afsson, Helgi Sigurðsson og Guömundur Steinsson fengu allir dauðafæri í markalausum fyrri hálfeik til ab skora fyrir Fram en tókst ekki frekar en Guðmundi Benediktssyni og Bjarna Sveinbjörnssyni hjá Þór. En það voru ekki liðnar nema tvær mínútur af seinni hálfleik þegar boltinn lá í neti Þórs. Rík- harður Daðason fékk þá bolt- ann í miðjum vítateig Þórs, lék á Ólaf Pétursson og renndi bolt- anum auðveldlega í netið, en það var Guðmundur Steinsson sem hafði gefiö á Ríkharð. Tíu mínútum síðar jöfnuðu Þórsar- ar. Eftir gott upphlaup upp hægri kantinn gaf Bjarni Svein- björnsson sendingu út til Árna Þórs Árnasonar sem þrumabi í netið af stuttu færi. Bæði lið fengu síban hvort daubfæri fyrir sig þegar Ásbjörn Jónsson hjá Fram og Bjarni Sveinbjörnsson hjá Þór komust einir í gegn en frábær markvarsla kom í veg fyrir að skorub yrði mörk. Guð- mundur Steinsson átti síðasta skotib sem fór í slá og yfir og var það síðasta færi leiksins. Um- deilt atvik átti sér stað undir lok leiksins þegar sending kom inn á markteig Fram þar sem vamar- maður heimaliðsins virtist senda beint á Birki í markinu sem greip boltann. Þórsarar vildu óbeina aukaspyrnu en fengu ekki. Ormarr, fyrirliði Þórs, sagði vib Tímann eftir leik- inn að þetta væri ein af þeim lobnu reglum sem erfitt væri við að eiga viö og þær væru ekki til ab auka hróbur dómaranna. Ágúst Ólafsson var geysiörugg- ur í Fram-vörninni og átti nán- ast alla bolta sem hann reyndi við. Birkir bjargabi oft í markinu og Hólmsteinn var frábær í fyrri hálfleik en dalaði í þeim síðari. Þá kom Steinar Guðgeirsson vel út í stöðu aftasta varnarmanns. Hjá Þór lék Guðmundur Bene- diktsson langbest en fær litla hjálp frá samherjum sínum, þó helst Bjarna Sveinbjörnssyni sem alltaf er hættulegur. Þá var vörn Þórs langt í frá sannfær- andi. ■ Nú er Ijóst aö Valdimar Kristófersson leikur ekki meira meö Stjörnunni í sumar eftir óhapp í hestaferö: Góbur eftir 6 mánuði Stjarnan á í mikilli fallbaráttu í 1. deild karla í knattsyrnu og er sjálfsagt aðalástæðan sú að margir leikmanna liðsins hafa verið meiddir. Valdimar Krist- ófersson er einn þeirra og um helgina meiddist hann enn meira þegar hann brá sér á hestbak með félögum sínum í Stjörnunni og það er nú ljóst að hann leikur ekki meira með félaginu á þessu tímabili. Valdimar er annar lykilmaður- inn sem leikur ekki meira meö í sumar því Bjarni Benedikts- son varð að draga sig í hlé í sumar eftir meiðsli í einum af fyrstu leikjunum. Þá hafa Ing- ólfur Ingólfsson og Valgeir Baldursson ekki getað beitt sér á fullu eftir meiösli. „Þab slitnaði hjá mér ístaðið og það varb til þess að það kom mikill hnykkur á löppina þegar ég datt og vöðvafestingarnar í nára tognuðu enn meira. Meibslin í sumar hafa verið einmitt á þessum stað og þetta varð einungis til að gera þau verri. Ég var hjá sérfræbingi á sunnudag og hann ráðlagði mér ab taka 4-6 mánaba hvíld. Það er reyndar hægt að fara í aðgerð vegna þessara meibsla þar sem teygt yrði á vöövanum sem nær niöur í læri. Svona aö- gerð fylgir þriggja mánaða hvíld strax á eftir. Éins og mál- in standa núna býst ég við því ab fara í aðgerð í stað þess að hvíla mig allan þennan tíma. Sumarið er allavega búið hjá mér og eru það gífurleg von- brigöi. Maður kom hingaö til gamla félagsins og hafði góðar hugmyndir vegna sumarsins en síöan lítið getað verið meb. Þetta er mikið áfall fyrir mig og klúbbinn held ég líka," sagði Valdimar við Tímann. ■ Bebeto fetar í fótspor Romarios Bebeto, framlínumaðurinn í brasilíska landsliöinu og hjá spænska libinu Deportivo Cor- una, fetaði í fótspor Romarios hjá Barcelona og lengdi sumar- fríið sitt og neitar þar af leiðandi að mæta til æfinga á réttum tíma, en keppnistímabilið hefst von bráðar. Forráðamenn Coruna eru æfir vegna þess máls og einn úr stjórninni lofaði höröum refs- ingum í garb Bebetos sem varb nýlega faðir. Bebeto sagði vib Einkunnagjöf Tímans 1= mjöq lélegur 2= slakur 3= í meoallagi 4= qóbur 5= mjög góbur 6= frábær Fram-Þór 1-1 (0-0) Einkunn leiksins: 3 Lið Fram: Birkir Kristinsson 5, Steinar Guðgeirsson 4, Valur F. Gíslason 2, Ágúst Ólafsson 5, Þorbjörn A. Sveinsson 2 (Sigurþór Þórarinsson á 84. mín), Haukur Pálmason 2, Guðmundur Steinsson 3 (Ás- björn Jónsson á 66. mínútu 3), Hólmsteinn Jónasson 4, Kristinn Hafliðason 3, Helgi Sigurðsson 3, Ríkharöur Daðason 4. Lið Þórs: Ólafur Pétursson 4, Árni Þór Árnason 3, Júlíus Þór Tryggvason 4, Birgir Þór Karlsson 2, Þórir Áskelsson 2, Lárus Orri Sigurðsson 3, Páll Gíslason 2 (Hlynur Birgisson á 85. mín.), Dragan Vitorovic 4, Ormarr Örlygsson 3, Guð- mundur Benediktsson 5, Bjarni Sveinbjörnsson 4. Dómari: Gísli Guðmundsson 3. D E I L D Staban í 1. deild karla ab afloknum 12. umferbum Akranes ..12 8 3 1 22- 5 27 FH ......1263 3 11- 7 21 Keflavík ..124 7 1 22-14 19 KR ......12 4 4 4 17-10 16 Valur....12 4 4 4 17-20 16 Fram ....12 3 6 3 18-19 15 ÍBV......12 3 5 4 14-16 14 Þór .....1225 5 18-22 11 UBK .....12 3 2 7 11-26 11 Stjarnan .12 1 5 6 10-22 8 Markahœstir: Bjarni Sveinbjörnsson Þór 9 Mihajlo Bibercic ÍA 9 Óli Þór Magnússon ÍBK 8 Nœstu leikir: 12. ágúst KR-ÍBV, ÍBK- Stjarn- an, Þór-ÍA, UBK-FH, Valur- Fram. fjölmiðla aö hann hefði ekki tekið frí frá knattspyrnu í fjögur ár og nú væri kominn tími til þess og eyöa einhverjum tíma meb fjölskyldunni. Af Romario er þab að frétta að hann lengdi sumarfríib sitt enn Bebeto gerbi líkt og Romario, fé- lagi hans í brasilíska landslibinu, og tók sér nokkurra vikna frífrá knattspyrnu sem gerbi forrába- menn Deportivo La Coruna œfa. meira og var haft eftir Johan Cruyff, þjálfara Barcelona, að Romario væri jafnvel falur ef einhver ætti jafnvirði eins mil- jarðs íslenskra króna til að borga fyrir hann. Molar. . . ... Gu&mundur Steinsson, í Fram, var elsti leikmaöurinn á vellinum gegn Þór á sunnudag en hann er fæddur árið 1960. Valur F. Gísla- son og Þorbjörn Atli Sveinsson, einnig úr Fram, voru hinsvegar þeir yngstu á vellinum, fæddir áriú 1977 og aldursmunurinn á köpp- unum því 1 7 ár! ... Framarar ættu ekki að hafa áhyggjur af andlegu hliðum leik- manna sinna í framtíðinni því í lið- inu eru tveir verðandi sálfræðing- ar, þeir Haukur Pálmason og Hólmsteinn Jónasson, sem eru að jjúka námi í sálarfræði viö Háskóla Islands. ... Ásbjörn Jónsson lék sinn fyrsta 1. deildarleik með Fram á sunnu- dag og var óheppinn að skora ekki úr sinni fyrstu snertingu í leiknum. ... Þórsarar hafa ekki riðið feitum hesti á útivöllum til þessa en jafnt- eflib gegn Fram var aðeins annað stig libsins á útivelli í sumar. ... Stjarnan er á botni 1. deildar þessa stundina sem oft ábur í sum- ar en til ab auka sjálfstraust og samkennd leikmanna var brugbib á þab ráð aö fara meb leikmenn liðsins í hestaferb um helgina. ... Þorvaldur örlygsson er sagður á leib til Wolves frá Stoke sam- kvæmt fréttum enska blabsins Sunday Sport. Graham Taylor er þjálfari Úlfanna en hann er fyrrum framkvæmdarstjóri enska lands- liösins. ... Guðmundur Torfason hefur skipt yfir í 3. deildarlib Doncaster í ensku knattspyrnunni en hann hefur leikib meb St. Mirren og St. johnstone í Skotlandi undanfarin 5 ár. Guðmundur gerbi 5 ára samn- ing vib félagib og mun m.a. þjálfa varaliö libsins. ... Nurnberg og Feyenoord kom- ust ab samkomulagi um helgina um leigu á tvíburunum Arnari og Bjarka Gunnlaugssonum til fyrr- nefnda libsins. Hollenska knatt- spyrnusambandið á þó eftir að samþykkja herlegheitin. Leigu- samningurinn er til eins árs og hljóbar upp á 12 miljónir íslenskra króna fyrir þá bába. ... Eric Cantona var rekinn af velli í vináttuleik gegn Glasgow Rangers á laugardag. Utafreksturinn kostar Cantona örugglega nokkra leiki meö Man. Utd í byrjun tímabilsins sem hefst annan laugardag. ... Jurgen Klinsmann tókst ekki ab skora í æfingaleik meb Tottenham gegn Watford er endabi 1-1 en þetta var fyrsti leikur hans fyrir fé- lagib. ... Kenny Dalglish, framkvæmda- stjóri Blackburn, kom inn gegn Ab- erdeen í vináttuleik en hann er orbinn 43 ára. Skoska liöib sigrabi 1-0. ... Claudio Caniggia sem nýlega kom úr 13 mánaba keppnisbanni vegna kókaínneyslu er á förum til Benfica í Portúgal frá ítalska félag- inu AC Roma samkvæmt fréttum ítalskra blaöa. Samningurinn hljóbar upp á 4 milljónir dollara og fær Caniggia 630 þúsund dollara í árslaun. Everton í Englandi var á höttunum eftir argentínumannin- um á tímabili. ... Middlesboro, sem Bryan Rob- son stýrir, mætir fyrrum stóriibi Burnley í fyrsta leik libanna í 1. deild ensku knattspyrnunnar á laugardag. Oldham mætir þá Charlton og Sheff. Utd mætir Wat- ford. Þorvaldur Örlygsson og fé- lagar í Stoke mæta Tranmere á heimavelli. ... Werder Bremen sigraði Bayern Múnchen 3-1 í framlengdum leik og teljast því meistarar meistar- anna í Þýskalandi. ... Damon Searle, velskur lands- libsmabur í knattspyrnu 21. árs libsins, féll á lyfjaprófi sem hann gekkst undir eftir bikarúrslitaleik félagslibs hans, Cardiff, í maí. Se- arle verbur vafalaust dæmdur í langt bann og leikurinn leikinn ab nýju. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.