Tíminn - 09.08.1994, Qupperneq 16

Tíminn - 09.08.1994, Qupperneq 16
Ve&rið í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland til Breibafjarbar og Subvesturmib til Breibafjarb- armiba: Vaxandi sunnan og subvestan átt og rigning síbdegis. Strandir og Norburland vestra, Norburland eystra, Norvestur- mib og Norbausturmib: Hægari subvestan og neldur bjartara í nótt. • Austurland ab Glettinqi, Austfirbir, Austurmib og Aust- fjarbamib: Sunnan og subvestan gola eba kaldi. Létts'kýjab. Þriöjudagur 9. ágúst 1994 • Vestfirbir og Vestfjarbamib: Sunnan og subvestan stinnings- kaldi og rigning síbdegis. • Subausturland og Subausturmib: Subvestan og vestan kaldi og léttskýjab austan til en skýjab á mibum vestan til. Útgerö Hágangs 2 var gert aö leggja fram 2,2 milljóna króna tryggingafé. Togarinn á heimleiö: Norömenn treystu sér ekki að kæra fyrir fiskveiðibrot Réttarsta&a Norömanna á Svalbaröasvæöinu viröist ekki vera meiri en svo aö þeir treystu sér ekki til aö kæra Hágang 2 fyrir ólögleg- ar fiskveiöar á svæöinu. Viö- búiö er aö þessi afstaöa Norömanna muni gera þaö aö verkum aö útgeröarmenn muni í vaxandi mæli senda skip sín til veiöa þar nyröra. Reynir Árnason, útgerðar- stjóri Hágangs 2, segir að norski saksóknarinn hefði í fyrstunni færst undan að svara því hvort skipstjóri togarans yrði kærður fyrir ólöglegar veiðar. Hann hefði hinsvegar hætt við það eftir að hafa ráð- fært sig við sérfræðinga norska ríkisins í hafréttarmálum. Reynir segir að þessi afstaða Norðmanna sé afar merkileg og hún vekji upp spurningar um réttmæti aðgerða norsku strandgæslunnar gegn skipum á Svalbarðasvæðinu, svo ekki sé meira sagt. Hann segir að aðgerðum Norðmanna hafi strax verið mótmælt, enda hafi menn aldrei viðurkennt yfirráð Norðmanna á svæð- inu. Aðspurður hvort útgerðin muni fara í mál við norska rík- ið vegna atburðarins og þess tjóns sem útgerðin hefur orbið fyrir, sagbist hann ekki geta svarað á þessu stigi málsins. Löngum og ströngum yfir- heyrslum yfir skipstjóra, stýri- manni og tveimur öðrum skipverjum lauk í gær og verð- ur réttað í máli stýrimannsins vegna meints skotárásar á norska sjóliða í byrjun næsta mánaöar. Útgerð skipsins var hinsvegar gert að greiða 2,2 milljónir króna í tryggingafé. Reynir sagbi í gær að togarinn mundi leggja úr höfn strax þá um kvöldið og halda til Is- lands til viðgerða. Eins og kunnugt er komu göt á skipið eftir fallbyssukúlur Norb- manna, auk þess sem þær ollu öðrum skemmdum um borð. Reynir segir að afstaða ís- lenskra stjórnvalda og þá eink- um sjávarútvegsráðherra hafi verið forkastanleg í þessu máli. Hann sagbi að það hefbi veriö með ólíkindum af ráð- herra að hafa trúað frásögnum Norðmanna þess efnis að ís- lenskir sjómenn hefðu skotið að norskum sjóliðum og stefnt lífi þeirra í hættu. Útgerðarstjórinn segir ab það hafi einnig verið alveg með ólíkindum ab ráðherrann skyldi hafa réttlætt það að Norðmenn skutu á Hágang 2 og þannig stofnað lífi ís- lenskra sjómanna í hættu. Þegar Hágangur 2 var tekinn og færður til hafnar var hann búinn ab vera á veiðum í norðurhöfum í hálfan mánuð og nam aflinn um 100 tonn- um af verkuðum saltfiski. Það samsvarar um 200 tonnum af þorski upp úr sjó. Björn Bjarnason, for- maöur utanríkismála- nefndar, dregur túlkun ráöuneytisins í efa: Máliö snýst ekki um Jakob Fram hefur komið yfirlýsing frá utanríkisráðuneytinu ab Jakob Frímann Magnússon sé dipló- mat og uppfylli skilyröi um að vera forstöðumaður íslenska sendiráðsins í London. Tíminn hafði samband viö Björn Bjarnason, formann ut- anríkismálanefndar, og spurði hvort þessi niðurstaða ráðu- neytisins breytti einhverju um hans afstöðu. „Mitt mál hefur ekki snúist um Jakob Frímann Magnússon heldur hefur það snúist um það aö ég tel það vera óþarfa að vera meb þessa leikfléttu, eins og ég hef orðab það, í sendiráðinu í London. Þetta breytir engu fyrir mig og ég leyfi mér að draga þessa túlkun ráðuneytisins í efa," segir Björn Bjarnason. ■ Fundur forsœtisráöherra og Halldórs Ásgrímssonar: Halldór Asgrímsson, formaö- ur Framsóknarflokksins, sagbi aö ekkert nýtt heföi komiö fram hvaö varöar haustkosningar á fundi sín- um meö forsætisráöherra. Þaö séu greinilega skiptar skoöanir milli stjórnarflokk- anna og hann telji því aö lík- urnar á kosningum hafi minnkaö. „Það kom ekkert nýtt fram í þessu samtali okkar að því er varðar haustkosningar. Það eru greinilega skiptar skobanir milli flokkana um málið og sá ágreiningur hefur ekki verið geröur upp, þannig að ég tel ab líkurnar á haustkosningum hafi minnkað. Ég vil hinsvegar fá kosningar en tel eðlilegt ab fjárlagafrumvarpið verði lagt fram fyrst, en ég geri mér ekki grein fyrir því hvað það tekur langan tíma," segir Halldór Ás- grímsson. Halldór sagði að forsætisráð- herra hefði ekki svarað þeirri kröfu Framsóknarflokks- ins ákvebið. Halldór ítrekabi nauðsyn þess ab uppýsingar um ástand og horfur í efna- hagsmálum lægju fyrir áður en gengið yrði til kosninga. En getur Halldór svarað því hvers vegna hann, sem fulltrúi stærsta stjórnarandstöðu- flokksins, var ekki kallaður fyrst til fundar við forsætisráð- herra, heldur Ólafur Ragnar Grímsson. Er þetta táknræn að- gerð forsætisráðherra vib að gefa í skyn hvern hann komi fyrst til með að hafa samband við, vib myndun nýrrar ríkis- stjórnar eftir kosningar? „Ég geri mér nú enga grein fyrir því, ég hef ekkert velt því fyrir mér. Þab getur þess vegna verið spurning um það í hvern nábist fyrst, ég veit ekkert um þab. Það getur vel verið ab ein- hverjir aðrir gefi því einhverja merkingu, en ég átta mig ekki á því," sagbi Halldór Ásgrímsson ab lokum. ■ Davíb Oddsson smeygir sér út úr stjórnarrábinu ígœrá meban fréttamenn spyrja jónu Valgerbi Kristjánsdóttur um fund hennar meb forsœtisrábherra. Stjórnarandstaöan og Alþýöuflokkurinn blása á þá röksemd aö framkvœmd kosninga sé betri í haust en í apríl: Líkur á kosningum minnka Davíö Oddsson forsætisráö- herra sagöi í gær eftir fundi meö Jóni Baldvini og stjórn- arandstööunni, aö líkurnar á haustkosningum heföu minnkaö verulega. Sú eindregna afstaða Alþýðu- flokksins gegn haustkosnsning- um vegur þungt, en Davíð hef- ur áður sagt ab hann muni ekki boða til kosninga gegn ein- dregnum vilja Alþýðuflokksins. Einnig kemur til að stjórnar- andstaða hefur blásið á þær röksemdir Davíðs, að fram- kvæmd kosninga í apríl yrði Verkamannafélagiö Hlíf í Hafnarfiröi. Engum dyrum lokað erfið. Það er því ljóst að líkurn- ar á haustkosningum hafa minnkað en endanleg ákvörð- un liggur ekki fyrir fyrr en á næstu dögum. ■ BEINN SIMI AFGREIÐSLU TIMANS ER 631*631 „Burtséö frá skoöunum okkar á einstökum mönnum þá vilj- um viö fá aö heyra hver tón- inn sé hjá hinum ýmsu verka- lýbsfélögum og fá þab fram hvaö heildarsamtökin ætli sér. Vib lokum engum dyrum og síst af öllu fyrirfram," seg- ir Siguröur T. Sigurösson, for- maöur Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirbi. Hjá Verkamannafélaginu Hlíf hefur ekki verið tekin afstaða til þess hvort farið verður í sam- flot meb ASÍ eða ekki í kom- andi viðræbum abila vinnu- markaðarins um nýjan kjara- samning. Eins og kunnugt er þá hefur formabur Dagsbrúnar þegar lýst yfir þeirri skoðun sinni ab næstu kjarasamningar félagsins verbi ekki gerðir undir leiðsögn og forystu ASÍ. Formaður Hlífar segir hinsveg- ar ab róttækar aðgerðir þurfi til ab rétta vib hlut lágtekjufólks- ins og segist vera mjög óánægður með þá launaþróun sem átt hefur sér stað á þjóðar- sáttartímanum. Hann segir ab á þeim tíma hafi laun ýmissa tekjuhærri hópa hækkab tölu- vert á sama tíma og láglauna- fólkið hefur ekki fengið neinar leiðréttingar á sínum kjörum. Þá gangi það ekki upp ab skuld- ir fólks skuli hækka í sífellu vegna vísitöluhækkana án þess að nokkrar bætur komi í stab- inn ■ Augljóslega óuppgerb- ur ágreiningur hjá stj órnarflokkunum

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.