Tíminn - 31.08.1994, Qupperneq 3
Mi&vikudagur 31. ágúst 1994
3
Tilboö í Hvalfjaröargöngin opnuö. Stjórnar-
formaöur Spalar:
Líklegt að
gongin
verði gerð
Þrjú tilbob bárust í gerb jarö-
ganga undir Hvalfjörö en þau
voru opnuö á stjórnarfundi
Spalar á Akranesi í gær. Gylfi
Þóröarson, stjórnarformaöur
Spalar, sagöist eftir opnun til-
boöanna telja líklegt aö göng-
in yröu aö veruleika.
Tilboðin voru frá: Hagvirki/
Kletti hf., NCC International
A/B og EEG Henrikssen Anlegg
A/S upp á samtals 3,750 millj-
arða. ístaki, E. Phil & Son og
Skanska upp á 2,805 milljarða
og Nortaki sf., sem er Krafttak
og NOCON, upp á 2,750 millj-
aröa. Áætlun verktaka er tæp-
lega 3,3 milljarðar. Tilboð Nor-
taks er fráviks tilboð, þ.e. ekki
að öllu leyti í samræmi við út-
boðsgögn. Inn í það tilboð vant-
Útför Eiríks
Kristóferssonar
skipherra var gerb frá Hallgríms-
kirkju í gœr. Fjölmenni var vib at-
höfnina en hér sést hvar yfirmenn
hjá Landhelgisgœslunni bera kist-
una úr kirkju. Utförin var á vegum
ríkisstjórnarinnar.
ar fjármagnskostnað og segir
Gylfi Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Spalar, að trúlega sé sömu
sögu að segja af tilboði ístaks.
Helstu forsendur útboðsins
voru m.a. að göngin skuli vera
5,8 km löng með tveimur ak-
reinum auk klifurakreinar að
norðanverðu. Göngin verði lýst
upp með natrium ljósum með
25 metra millibili og loftræst
með 40 viftupörum. í botni
ganganna skal vera þró sem geti
rúmað 2ja sólarhringa leka og
meb 500 metra millibili er gert
ráð fyrir neyðarsíma og sjúkra-
kassa við útskot í göngum.
Slökkvitæki skulu vera með 250
metra millibili. Þá er gert ráð
fyrir að sett verði útvarps-, far-
síma- og talstöbvaloftnet í
göngin og umferöaljós sem
stöðvi umferð í göngunum ef
vegurinn teppist t.d. vegna
ákeyrslu.
Gylfi Þórðarson segir að næstu
tvær til þrjár vikurnar muni
vinnuhópur skoða tilboðin og
samræma þau og býst hann við
að niðurstaða hans muni liggja
fyrir um 20. september. ■
Áhugasamir íslendingar kynna sér sértilbob Flugleiba á söluskrifstofunni í Hótel Esju í gœr. Tímamynd cs
Lœgsta verö til Bandaríkjanna á sértilboöi Flugleiöa í haust kynnt:
Biðrabir við söluskrifstofur
í fyrradag settu Flugleiðir á
markaö sértilboö á feröum til
Baltimore, sem gefur þeim,
sem feröast á þessari leiö vest-
ur um haf fram til 9. septem-
ber, færi á fargjaldi sem er frá
21.200 kr. ef tveir og tveir
feröast saman. Þetta eru
sennilega ódýrustu ferðir til
Bandaríkjanna frá upphafi.
Áhugi íslendinga á tilboðinu er
greinilega mikill og hafa símar í
söludeild hringt látlaust frá kl.
átta í gærmorgun. Þegar starfs-
fólk söluskrifstofunnar að Hótel
Esju opnaði skrifstofuna í gær
hafði þegar myndast töluverö
röb fyrir utan. Rétt fyrir kl. 10
höfðu.230 manns verið bókaðir
á sértilboðinu.
Ekki aukin útgjöld á fjárlögum á milli ára:
Þeir sem eyddu mest
þurfa að skera nibur
Vinnu viö útgjaldahliö fjár-
laga var aö mestu lokið á ríkis-
stjórnarfundi í gær. Tekiö er
miö af fjárlögum yfirstand-
andi árs og þau rábuneyti sem
fara verulega yfir á þessu ári
verba aö sýna fram á mestan
sparnaö á því næsta. Ríkis-
sjóöshallinn á aö vera talsvert
undir 9 milljöröum.
Útgjöld ríkisins á þessu ári
verða talsvert hærri en gert var
ráð fyrir á fjárlögum. í fjárlaga-
vinnunni fyrir næsta ár var gert
ráð fyrir að ná niður útgjöldun-
um þannig að þau verði lægri á
næsta ári en gert var ráð fyrir í
fjárlögum yfirstandandi árs. Það
þýðir að sögn fjármálaráðherra,
að þau ráöuneyti sem fara veru-
lega yfir á þessu ári verða að
skera niður talsvert af útgjöld-
unum vegna þess að þau útgjöld
sem fóru framyfir á þessu ári
munu einnig gera það á því
næsta, verði ekki gripið til sér-
stakra aðgeröa.
„Við stefnum að tveimur meg-
inmarkmibum," sagði Friðrik
Sophusson. „Annars vegar að
útgjöldin hækki á milli ára,
þ.e.a.s. á milli frumvarps og fjár-
laga. Hins vegar að draga úr
hallanum og taka þannig fyrsta
skrefið í átt til þess að ná hon-
um algerlega niður, þannig að
halinn verði talsvert undir 9
milljörðum króna, en í fjárlög-
um yfirstandandi árs er hallinn
9,6 milljaröar."
Tekjuhlið fjárlaga verður tekin
fyrir á næsta fundi ríkisstjórnar-
innar, en að sögn fjármálaráð-
herra er þar nánast eingöngu
um reiknivinnu að ræða.
Málefni 4.500 fjölskyldna til meöferöar hjá Félagsmálastofnun í fyrra:
Um 11. hver borgarbúi á vegum
Félagsmálastofnunar í fyrra
Hátt í 9 þúsund Reykvíkingar,
eba nær 11. hver borgarbúi,
var í hópi skjólstæöinga Fé-
lagsmálastofnunar Reykjavík-
ur í fyrra. Liöurinn „fjárhags-
abstoö" hækkaöi um 52% frá
árinu áöur, í um 530 milljónir
króna, eba tæpan þribjung af
heildarútgjöldum stofnunar-
innar.
Málafjöldi hjá Félagsmálastofn-
un óx um 38% milli ára. Hlut-
fallslega fjölgaði barnlausum
hjónum/sambýlisfólki mest
(57%). i beinum tölum fjölgaði
einhleypingum langmest, eða
um 760 manns, úr 1.580 í 2.345,
sem er 48% fjölgun. Einhleyp-
ingar undir verndarvæng Félags-
málastofnunar em þannig tvö-
falt fleiri en einstæöir foreldrar,
en þeim fjölgaði um 20% milli
1992 og 1993. Einstæöir foreldr-
ar sem leita til fjölskyldudeildar
voru um 1.170 í fyrra, en það er
31% af öllum einstæöum for-
eldmm í borginni. Allar þessar
tölur em fengnar úr ársskýrslu
Félagsmálastofnunar fyrir árið
1993. Unnið var aö rúmlega
4.500 málum á vegum stofnun-
arinnar á árinu. Ef reiknaöur er
fjöldi einstaklinga sem stendur
að baki þessum málafjölda em
þeir sagðir a.m.k. um 7.900, auk
þess sem upplýsingar um fjöl-
skyldustærð vanti í nær 50 mál-
um. Þá er málafjöldi unglinga-
deildar enn ótalinn. „Vitað er ab
einstaklingsfjöldi í unglinga-
deild er nærri tölunni 1.000. An
unglingadeildar er einstaklinga-
fjöldinn sem kemur við sögu hjá
F.R. 7,7% af íbúafjölda borgar-
innar. Að unglingadeild meðtal-
inni fer þetta hlutfall í 8,6%,"
segir í skýrslunni.
Málefni barnafjölskyldna eru
ekki langt yfir þribjung af mála-
fjölda Félagsmálastofnunar. Auk
1.170 einstæðra foreldra (með
samtals rúmlega 1.700 börn) em
640 hjón/sambýlisfólk með
börn (um 1.100 börn) meðal
skjólstæðinga. í þeim hópi fjölg-
aði um 35% frá árinu áður, eða
miklu meira en einstæðum for-
eldrum fjölgaði á sama tíma. En
þegar litið er til þess að hátt í
60% borgarbúa eru hjón eða
sambúðarfólk og börn þeirra, er
alveg ljóst að hlutfall skjólstæð-
inga Félagsmálastofnunar er
mjög lágt í þessum hópi. Megin-
hluti þeirra sem eru undir
verndarvæng stofnunarinnar
tilheyrir hinum 40% borgar-
anna; þ.e. fjölskyldum ein-
stæöra foreldra og öðrum ein-
hleypum og fráskildum. . ■