Tíminn - 16.09.1994, Page 9
Föstudagur 16. september 1994
9
Rannveig Rist segir Opelinn vera bœbi lipran bíl og smart.
„Smart bíll" meb
mikib notagildi
í reynsluakstri Tímans er ab
þessu sinni þýski miliistærbar-
bíllinn Opel Vectra GL l,8i. Til
fulltingis vib reynsluaksturinn
var fengin kjarnakonan Rann-
veig Rist, en hún er deildarstjóri
framleibslu og umhverfisdeild-
ar Álversins í Straumsvík.
Rannveig ekur venjulega um á
sjálfskiptum Subaru Legacy og
henni fannst beinskiptingin
heldur síbri, af því ab hún var
vön hinu.
„Þetta er nokkub lipur bíll og
notagildið er meira heldur en ég
átti von á. Þetta er smart bíll, en
pláss og farangursrými er meira
heldur en ég bjóst vib. Plássið aft-
urí er einnig mikib, þannig að
það er þægilegt fyrir barnafjöl-
skyldu að ferðast í bílnum," segir
Rannveig.
Góbir aksturseigin-
leikar
Vectran var fyrst og fremst reynd
á malbiki, enda samgönguráö-
herra búinn aö malbika svo mikib
á kjörtímabilinu og menn þurfa
ekki lengur ab fara út af malbik-
inu á leiðinni Reykjavík-Húsavík.
Niðurstaðan er ab þetta er bíll
sem liggur verulega vel og skrikar
ekki hjól jafnvel í kröppustu
beygjum. Það segir ef til vill meira
en mörg orb ab lögreglan í Þýska-
landi skuli nota bíla af þessari teg-
und.
Abalsmerki þessa bíls eru öryggi
og styrkur. Áksturseiginleikarnir
eru mjög góbir, enda er bíllinn
smíöaður með akstur á hrað-
brautum Evrópu í huga. Bíllinn
fjabrar á gormum, sem eru sjálf-
stæðir fyrir hvert hjól. Þetta er
gamalreyndur búnabur, sem
kemur mjög vel út í þessum bíl.
Stýrið er vökvastýri með hraða-
tengdri þyngdarstillingu, þannig
að bíllinn léttist ekki í stýri við
það að ekib sé hraðar. Svörunin er
einstaklega góð og samband öku-
manns við veginn er ágætt.
Öryggi í fyrirrúmi
í bækling frá Opelverksmiðjun-
um segir að þeir leggi ekki metn-
ab sinn í að smíða stóra, kraft-
mikla og hraðskreiða bíla, heldur
vilji þeir byggja á þægindum og
öryggi. Það má til sanns vegar
færa, ab Vectra sé nokkuð örugg-
ur bíll. í því sambandi má nefna,
að bíllinn er með tvöfalda styrkt-
arbita í hurðum og styrkingar á
hornum bílsins. Hæbin á öryggis-
beltum er stillanleg bæði fyrir aft-
ursæti og framsæti, og á framsæt-
unum er sérstakur strekkjari á
móthaldinu þar sem öryggisbelt-
inu er smellt í ab neöan. Hún
virkar þannig að viö snöggt og
mikið átak smellur festingin sam-
an og togar í öryggisbeltið.
Hemlarnir eru diskar ab framan
og skálar ab aftan, meb hjálpar-
átaki frá vél og átaksstýringu milli
fram- og afturhjóla, eins og nú
tíðkast. Þeir eru öflugir og svara
vel, eins og tilraunir erlendra bíla-
blaða hafa sýnt framá, enda gildir
þar þab sama og um aksturseigin-
leikana, ab hönnunin er mibub
viö hraðakstur. Ástigið á hemlana
er reyndar nokkuð „djúpt" og
mátulega þétt. Þessi bíll er með
fimm gíra beinskiptingu. Skipt-
ingin er lipur og hnökralaus. Ef
yfir einhverju væri aö kvarta,
væri þab helst að plastib í hnúðn-
um á skiptistönginni sé full hart.
Þaö er þó auðvitað smekksatribi,
eins og svo margt annað.
Þessi bíll er í svipuðum flokki og
t.d. Volkswagen Vento, Mitsubis-
hi Galant og Toyota Carina. Ef til
vill er einna þægilegast ab bera
hann saman við Vento, af því að
það er einnig þýskur bíll og svip-
að búinn, en Vectra er þó heldur
stærri. Aksturseiginleikarnir eru
svipaðir, í báðum tilfellum mjög
góðir.
Drjúg hestöfl
Opel Vectra er hægt að fá með
fimm mismunandi vélum. Bens-
ínvélarnar eru 1,6 1, 1,8 1, 2,01 og
2,5 1 V6 vél, sem skilar 170 hest-
öflum. Þá er einnig í boði 1,7 I
turbo-dieselvél með millikæli. Sá
bíll, sem hér er til umsagnar, er
meb 1,8 1 vélinni. Hún skilar 60
kW eba 90 hestöflum og í akstri
virkar hún reyndar öflugri en töl-
urnar segja til um. Þessi vél er
fullt nógu stór fyrir bílinn og skil-
ar honum vel áfrarm
Góöir útispeglar
Innrétting bílsins er látlaus og
nokkuð smekkleg. Stýrishjóliö er í
smærra lagi, en vel bólstrað og
gefur gott grip. Það er kostur sem
við Rannveig tókum bæbi eftir,
ab stýrishjólib skyggir ekki á
mæla eba viðvörunarljós í mæla-
borbi. Vectra fær plús fyrir þetta
atriði. Annab, sem Rannveig
nefndi og reyndar aörir sem stigu
upp í bílinn, var hversu útispegl-
arnir eru vel heppnabir. Speglarn-
ir eru stillanlegir innanfrá. Þeir
eru ekkert sérlega fyrirferöarmikl-
ir, en veita samt sérlega gott út-
sýni aftur fyrir bílinn. í þeim er
ekki „dauður blettur", eins og
maður verður var við í speglum á
allt of mörgum nýjum bílum.
Meb „dauöum bletti" er átt við aö
ákveöiö svæði, yfirleitt í línu viö
afturhorn bílsins, sést ekki í hlið-
arspeglinum. Þetta hefur í verstu
tilfellum valdib árekstmm, þegar
fólk skiptir um akrein án þess að
horfa nógu vel í kringum sig.
Sæti aö aftan og framan eru tau-
klædd og fara vel með bílstjóra og
farþega. Stólarnir frammí eru
nokkuð háir og bæði setan og
bakið styðja vel viö. Hægt er að
stilla hallann á sætinu í heild,
sem er t.d. gott ef fjölskyldumeð-
limir eru mjög misjafnlega fót-
leggjalangir. Sætisstólarnir sjálfir
eru styrktir, en það er hluti af ör-
yggisbúnaði bílsins. í aftursætinu
fer vel um þrjár fullorðnar mann-
eskjur af venjulegri stærð og mjög
vel um tvo. Höfuðpúðar eru fyrir
tvo afturí og stór „hjónadjöfull",
sem hægt er að leggja niður í
miðjunni. Vegna þess að öku-
maður situr nokkub hátt, er út-
sýni gott og framrúöupóstarnir
skyggja lítið á, þótt þeir séu nokk-
ub sverir.
Mælaborbib í Vectra er einfalt,
smekklegt og abgengilegt. í þeim
bíl, sem vib Rannveig fengum til
re>mslu, eru mælar fyrir snún-
ingshraða vélar, ökuhraða, vatns-
hita og bensín. Á bensínmælin-
um er merktur inn lítrafjöldi, sem
er ágæt nýbreytni. í stokknum
fyrir mibju er síöan handhæg
stilling fyrir miöstöb, afturrúðu-
hitari, pláss fyrir útvarp, stafræn
klukka og mælir fyrir hitann ut-
andyra. Þessi hitamælir er nánast
aukaatribi, en mjög skemmtilegur
Hekla sýnir 1995-árgerbirnar
af Mitsubishi í sýningarsal fyr-
irtækisins á Laugavegi um
helgina. Ekki er um stórvægi-
legar breytingar ab ræba á
milli ára, ab sögn Finnboga
Eyjólfssonar, upplýsingafull-
trúa Heklu.
Sýningin stendur yfir á laug-
Mikib pláss fyrir
farangur
Eitt af þeim atriðum, sem Rann-
veig nefndi þessum bíl til hróss,
er gott pláss fyrir farþega og far-
angur, enda hefur bíllinn fengið
hrós fyrlr þetta notagildi í erlend-
um bílablöðum. Farangursrýmið í
skottútgáfunni er geysistórt, eða
heilir 530 lítrar. Fyrir „platzange-
bot", eða einfaldlega rými, fær
Vectran enda einkunnina 9 hjá
þýska bílablaðinu Auto-Bild.
Þessi bíll viröist hafa fáa galla. Þó
má nefna smáatriöi eins og að ör-
lítið glamrabi í stillanlegri fest-
ingu fyrir öryggisbelti aö aftan.
Enn fremur fannst okkur Rann-
veigu heyrast nokkuð hátt hljóð
frá mótor á háum snúningi. Þaö
kemur þó ekki heim og saman viö
uppgefnar hávaðamælingar frá
verksmiðjunni, en þær eru 73
desibil í venjulegum akstri. Ef lit-
ið er á hljóöeinangrun í vélarhús-
inu, sést einnig að hún er mjög
góð. Reynslan hefur sýnt að gang-
verk og drifbúnaður frá Opel er
sterkur og endingargóður, en bíl-
unum hætti til að ryðga hér áöur
fyrr. Það mun heyra sögunni til.
Eyösla er lítil mibab við stærð,
eða um 7 lítrar á hundraðið í
þjóðvegaakstri og um 10 lítrar
innanbæjar.
„Rússaheldur" bíll?
Önnur atriði, sem má nefna, er
að Opel-bílarnir eru með þeim
þjófheldustu sem framleiddir eru,
enda er stuldur á bílum vaxandi
vandamál í Vestur-Evrópu. í því
sambandi er skemmst ab minnast
frétta af því, þegar rússneski her-
inn var staðinn að því ab reyna að
smygla meb sér stolnum bílum,
þegar raublibarnir fyrrverandi yf-
irgáfu Þýskaland fyrir skömmu.
Þá fær Vectran hrós fyrir útlitið,
en þetta er óvenju fallegur fjöl-
skyldubíll. Þeir hjá Opel hafa
haldið að nokkru í séreinkenni
eldri bíla, sem sést m.a. ef vélar-
hlífin er skoðuð, en þar er breið
upphækkun í miöjunni, sem
margir þekkja frá eldri bílunum.
Umboðinu hefur gengib nokkub
vel að selja Opel á þessu ári, en
salan var í verulegri lægö þegar
Ingvar Helgason hf. keypti bíla-
deild Jötuns hf. (Samband ís-
lenskra samvinnufélaga). Verðið
er nokkub gott, eba tæplega 1,6
milljónir meb rybvörn, skrán-
ingu, víðóma útvarpi/segulbandi
og sex innbyggðum hátölurum. ■
ardag og sunnudag. P. Samú-
elsson hélt sýningu á nýjum
bílum frá.Toyota um síðustu
helgi, en þar bar hæst nýjan
smájeppa sem væntanlegur er
hingað til lands eftir áramót-
in. Þessi bíll hefur verið sýnd-
ur hringinn í kringum landib í
vikunni. ■
Hekla hf. meö sýningu um helgina:
Nýjar árgerbir af Mitsubishi
Rannveig Rist í
reynsluakstri á
Opel Vectra
1,8i GL
þó. Borinn saman við hitamæla á
ljósaskiltum í borginni, reyndist
hann alltaf réttur. Hann getur
verið gagnlegur til að vara við
hálku, þegar hitastigið dansar sitt
hvorum megin við núllið og jafn-
framt fróblegur að fylgjast meb.
Þannig kom t.d. í ljós á miöviku-
dagskvöld að hitastigið efst í Ár-
bænum var sjö gráðum lægra en
neðst í Vesturbænum.