Tíminn - 30.09.1994, Blaðsíða 5

Tíminn - 30.09.1994, Blaðsíða 5
Föstudagur 30. september 1994 5 Bréffrá Dóru Stefánsdóttur á Grœnhöfbaeyjum: Minningargrein um kofaræksni Fyrir nokkru voru síöustu kofarn- ir fyrir neðan blokkarvegginn hjá mér jafnaöir vib jörðu. Þegar þeir voru flestir, bjó í þeim á annað hundrað manns með geitur, svín, hænsni, hunda og ketti. Er ég kom hingab til eyjanna í febrúar- lok á þessu ári, var þegar búið að rífa hluta af kofunum. Eftir voru einir sjö og í þeim bjó ennþá heill hópur af fólki. Sérstaka athygli mína vöktu börnin, sem virtust stundum óteljandi. Aldrei kom ég inn í neinn af kof- unum. En utan og ofan frá séð getur hver þeirra ekki hafa verið mikið stærri en sæmilegt svefn- herbergi í blokkaríbúð á íslandi. Hvernig pláss var fyrir alla íbúana var mér því algerlega óskiljanlegt. Eitt kvöldið, þegar ég kom heim úr vinnunni, sá ég forseta bæjar- stjórnar á tali við íbúana. Ég hafbi heyrt að til stæbi að rífa kofana og þóttist nú vita ab brátt drægi að leikslokum. Og viti menn, þegar ég kom heim í há- degismat daginn eftir stóbu þrír vörubílar fyrir utan kofana og fólkið var ab hlaða á þá sínum veraldlegu eigum. Allt, sem hugs- anlegt var ab nýta, var tekið með. Jafnvel gamlar fúaspýtur, glugga- karmar, pappaspjöld, koppar og kirnur. Nágrannakona mín sagði að búið væri ab byggja yfir íbúa kofanna á öbrum stað og lét hún í ljós efa um ab not yrbu fyrir allt draslið. En ökumenn vörubíl- anna biðu þolinmóbir eftir að allt sem menn vildu taka með sér færi á pallana. Og ökumenn jarbýtanna biðu einnig. Ekki voru vörubílarnir fyrr lagðir af stað með allt dótið en jarðýturnar réðust á húsin og jöfnuðu þau við jörðu. Af svölun- um hjá mér var eins og að horfa á spilaborg falla. Ekki þurfti nema eitt spark frá tönn jaröýtu til að kofi félli algerlega saman. Ryk- mökkurinn þyrlaðist upp og há- vaðinn var ærandi. Um kvöldið voru bara rústir þar sem kofarnir höfðu fyrr staðið. Iðnir menn með sjálfsbjargarvið- leitni voru þegar farnir að leita að nýtanlegum múrsteinum, spýt- um og jafnvel járnplötum af þök- um. Morguninn eftir vaknaði ég vib hávaðann og sá snyrtilegar múrsteinastæður, ryðgaðar þak- plötur í hrúgum og allt sem kalla vera regla en undantekning. Vit- anlega hafa allir þessir stjórn- málamenn komist til áhrifa með þau orð á vörum, að þeir væru að þjóna föðurlandinu. Að vísu hafa þeir ekki hagað oröum sín- um svo formlega, að segja það berum orðum að þeir vildu þjóna föðurlandinu. En þannig hefur fólki verið ætlað ab skilja orð þeirra. Það, sem kallað er kosningasvik og ekki þykir stór- mál á landi hér, er því öllu alvar- legra mál en margur hyggur. Mál Guðmundar Árna Stefáns- sonar eru í raun mál stjórnkerfis- ins alls. Hib eina, sem skilur hann frá fjölmörgum öðrum stjórnmálamönnum þessa lands, er þab að hann kann ekki listina að fela. Þessi staðreynd nægir honum fráleitt til sýknu. En hún ætti að nægja til aö sýna kjós- endum fram á, að hér á landi er full þörf á pólitískri siðbót. Þegar öllu er á botninn hvolft, er ef til vill skemmri vegur milli Ítalíu og íslands en margur hyggur. Ítalía Svo er að heyra á ýmsum, ab þeim þyki mál þau, sem kennd eru við Guðmund Árna Stefáns- son félagsmálaráðherra, sæta nokkrum tíðindum. Hvernig má það vera, er spurt, ab stjórnmála- maöur, hvort heldur hann er í stöðu bæjarstjóra eða ráðherra, kemst upp með pólitíska spill- ingu, bæði í formi austurs á op- inberum fjármunum og einka- vinavæðingu á störfum í þágu hins opinbera? Svörin við öllum þeim spurn- ingum, sem settar hafa verib fram í þessa veru síöustu vikurn- ar, getur vart verið að finna í per- sónu Guðmundar Árna einni saman. Að vísu var hann þunga- vigtarmaður í bæjarpólitíkinni í Hafnarfirði, meðan hann gegndi þar störfum bæjarstjóra. En því fer fjarri, að hann hafi nokkru sinni vegið þungt í landsmála- pólitíkinni. Þvert á móti. Meira að segja var öllum ljóst, ab kosn- ing hans sem varaformanns Al- þýöuflokksins s.l. vor var eins og hver annar brandari. Það skiptir ísland? einfaldlega ekki máli hver er varaformaður flokks, sem hefur Jón Baldvin Hannibalsson sem formann. Því er það svo, að skoba verður þessi mál öll í víðara samhengi en fjölmiölar hafa fram til þessa gert. Geta menn t.d. ekki verið sammála um það, ab þegar ráð- herra þvingar embættismann til afsagnar, vegna meintra skatt- svika, og ræður hann svo til sér- verkefna á vegum rábuneytisins, þá sé eitthvað meira en lítib bog- ib ekki aðeins við vibkomandi rábherra, heldur það stjórnkerfi sem honum er ætlað að þjóna? Ég ætla ekki að fara að taka upp hanskann fyrir Gubmund Árna Stefánsson. í þroskuðu lýbræðis- þjóðfélagi myndi tíundu hluti þeirra ásakana, sem á hann eru bornar, nægja til afsagnar, reyn- ist þær sannar. Raunar eru sumar ásakanirnar þess eðlis, að víða í nágrannalöndum okkar þættu þær eiga fullt erindi fyrir dóm- stóla. En ekki á íslandi! Hvað veldur? SPJALL PJETUR HAFSTEIN LÁRUSSON Við skulum staldra við embætt- isveitingar og nýjasta afbrigði þeirra, þ.e.a.s. ráðningu ættingja ráðherra og flokksgæðinga í „sér- verkefni". Öllum má ljóst vera, að allar götur frá því fram- kvæmdavaldið fluttist inn í landið árib 1904 hafa fjölmargir stjórnmálamenn komist upp með þab, að haga ákvörðunum sínum í þessum efnum meb þeim hætti að augljóst er að sér- hagsmunir þeirra hafa ráðið ferðinni. Hagur föburlandsins hefur m.ö.o. orðið að víkja fyrir sérhagsmunum. Þetta háttalag hefur raunar verið nær því að Ungar stúlkur á fiskvinnslunámskeiöi sem haldiö var á Grcenhöföaeyjum. hér á eyjunum, jafnvel þó hann sé frá Brasilíu. Og íbúarnir, hvað um þá? Um daginn hitti ég eina af konunum sem búið hafbi í kofunum. Hún hafði stabib hágrátandi og horft á niðurrifið, en hafði nú tekib gleði sína að nýju. Sagbi að nýja húsið sitt væri mun þægilegra en það gamla og mikill væri nú munur ab blessuðu rafmagninu og því ab fá vatn rennandi í hverri viku frá bæjarfélaginu. Fyrir hana var þetta í fyrsta sinn á ævinni sem hún gat veitt sér að fara í sturtu, gera þarfir sínar í klósett og sjá til við ljós á kvöldin. Hún var samt ekki alsæl. Nú þurfti hún að útvega sér peninga til að borga húsaleigu, rafmagn, vatn og strætómiða. Vegalengdin til bæjarins hafbi aukist og ekki var lengur hægt að fara allra ferða sinna gangandi. Ekki er um stórar upphæöir að ræða í hvert sinn, en fyrir konu meb hennar efna- hag skiptir hver króna máli. Hún hafði misst það sjálfstæbi sem fylgir því að vera óhábur öðrum og geta séð sér og sínum börnum farborða meb landbúnaöi í smá- um stíl. Hún talaði um ab jafn- skjótt og barn það, sem hún ber undir belti, fæðist verði hún að fara að leita sér að vinnu. Hvar hún ætlar að finna hana veit hvorki hún né ég. mátti timbur í öðrum. Dagana þar á eftir fjarlægðu bæj- aryfirvöld smátt og smátt það sem eftir var og enginn gat nýtt. Og nú er engu líkara en aldrei hafi búið þarna nokkur maður. Jarövegurinn fyrir framan blokk- ina er ennþá örlítib dekkri en jarðvegurinn í kring, en annars sér engin merki neins. Ungir drengir eru búnir að hlaða saman nokkrum steinum á endum vall- arins og spila þar nú fótbolta í sumarfríinu. Háum rómi rífast þeir um hver megi „vera" Róm- aríó, sem eftir heimsmeistara- keppnina í fótbolta er þjóðhetja Enn verr fór fyrir öðrum íbúum kofanna. Eftir að þeir voru fallnir gerði herskari af heimilislausum kakkalökkum innrás í blokkina hjá mér, þar sem skjótrábir ná- grannar drápu þá með eitri strax og til þeirra sást. Hinar myndar- legu nágrannakonur mínar sáu um að sópa út líkunum, sem sum hver voru á stærð vib eldspýtu- stokka. Einn hundanna hafbi orbið eftir, sjálfsagt vegna elli sinnar og hrumleika. Fyrstu næt- urnar reyndi hann að gæta rúst- anna. En yngri hundar og bar- áttuglaðari töldu ab þarna væri svæði sem þeir þyrftu að helga sér. Nótt eftir nótt var nætur- kyrrðin því rofin af hundgá og spangóli. Þegar búið var að fjar- lægja síðustu leifar þessa fyrrver- andi þorps, misstu hundarnir áhuga á svæðinu. Hvað varð um þann gamla veit ég ekki. Ég sakna nágranna minna með öllu þeirra umstangi og hávaða. Þetta var hlýlegt fólk og elskulegt, sem sat oft úti undir vegg að spjalli, rétt eins og tíminn væri ekki til. Það verður gaman að fá hib fína torg, sem bæjarfélagiö ætlar sér aö láta gera, og ekki veit- ir af bílastæðum og vegi. Ekkert af þessu getur hins vegar komið í staðinn fyrir hlýleika mannlífs- ins. FÓSTUDAGS PISTILL ÁSGEIR HANNES HVENÆR DREPUR MAÐUR MANN? Svokallab fjölmiblafólk fer stundum mannavillt á sjálfu sér og oft meb hörmulegum afleibingum. Frétta- menn halda þá ab þeir megi festa fólk á krossa í nafni blabamennsku sinnar, af því þjóbin eigi einhvern rétt á ab fylgjast meb vibkvæmustu einkamálum manna. Þetta erfirra! Hér er ruglab saman einkamálum og þjóbmálum. Rétti blabamanns til fréttaritunar lýkur þar sem réttur borgarans til fribhelgi byrjar. Dapurlegasta skeib íslenskrar blabamennsku er tímabil Vilmundar heitins Gylfasonar. Þá var blaba- mannapassinn notabur ótæpilega til ab rybja brautina fyrir pólitískan frama og andstæbingar í stjórnmál- um voru miskunnarlaust festir á krossa. Samherjum var hins vegar skipulega hlíft við óþægindum. Fréttamennska af þessu tagi er ekki blabamennska, heldur hrein og bein atlaga: ofsóknarblaba- mennska. Sibferbib á bakvib ofsóknarblaba- mennsku í pólitík er ab velja sér sjálfur mótherja en ekki banda- menn. Rábast ab þeim meb hnúum og hnjám uns yfir lýkur. Láta einskis ófreistab til ab finna nýjan högg- stab á þessum mönnum meb réttu eba röngu. Freista þess þannig ab vinna andstæbinga þessara völdu fórnarlamba á sitt band og gera ab sínum eigin samherjum. Önnur tegund af ofsóknarblaba- mennsku er ab fylgjast náib meb fólki sem hefur hrapab í einhverja ógæfu. Birta reglulega nýjar upplýs- ingar um ógæfu þess og velta upp steinum umhverfis þab. Hér rugla blabamenn saman fréttaritun og svölun fýsna. Fréttamenn hafa eng- ar skyldur vib lesendur ab vaka yfir harmleikjum fólks í landinu. Þeim ber ekki heldur skylda til ab svala fýsnum þeirra neytenda, sem nær- ast á ógæfu fólks. Fréttamenn verba ab hafa karlmennsku til ab standast þá freistingu, eba láta þess annars getib í efniskynningu ab ekki sé um blabamennsku ab ræba, heldur fró- un á andlegum losta. Oft þjófstarta fjölmiblar á réttvís- ina og dæma borgarana seka á undan dómstólum. Þá verbur um- fjöllun fjölmibla ab hinni raunveru- legu refsingu og sjálfur dómurinn verbur eins konar hegningarauki, þegar hann er kvebinn upp. Sumir brotamenn hljóta þannig þyngri refsingu en abrir fyrir sama brot. Þab fer eftir hlut fjölmibla í hverju máli, og jafn slæmt er ab stytta réttvísinni leib og leggja stein í götu hennar. í öllu fólki er dregin markalína fyrir rétt og rangt og gott og illt. Allt of margir fara því mibur yfir mörkin og flestir þeirra hljóta makleg mála- gjöld. Annab hvort hjá dómstólum landsins eba hæstarétti fólksins á kjördegi. íslenskir fjölmiblar mega ekki feta í fótspor þeirra brotlegu og elta þá yfir strikib í leit ab lesefni eba lostasvölun. Enginn mabur er eyland hér á landi og öllum mönnum fylgirfjöl- skylda og frændgarbur. Breyskir menn eiga foreldra, sem daprir harma hlutinn þeirra í hljóbi, og jafnvel lítil börn sem ganga niburlút í skólann. Fjölmiblar hafa líka skyldu vib þá landsmenn. Alla getur hrös- un hent og rannsóknarblabamenn og fjölskyldur þeirra geta verib næst á dagskrá. Reynslan sýnir þó ab karlmennsku ofsóknarblaba- manna þrýtur, þegar böndin berast ab þeim sjálfum eba nánasta venslafólki.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.