Tíminn - 30.09.1994, Síða 9
Föstudagur 30. september 1994
9
Raunhœfur kostur í jeppabreytingum:
Range Rover með
Nissan-díselvél
Range Rover eru óumdeilanlega
með eina skemmtilegustu akst-
urseiginleika sem hægt er að fá í
jeppum. Gallar bílsins hafa hins
vegar reynst nokkrir. Mest hefur
verið kvartað undan of háu
verði, hárri bilanatíðni og of
mikilli bensíneyðslu.
Þetta hefur leitt til þess að Ro-
verinn er allerfiður í endursölu
og oft hægt ab fá notaða jeppa af
þessari tegund á góbu verði.
Þetta hefur leitt til þess ab jeppa-
áhugamenn hafa í auknum mæli
fariö út í ab breyta Rovernum.
Þar sem bíllinn er á sjálfstæðri
gormafjöbrun á heilum hásing-
um allan hringinn, er tiltölulega
aubvelt að hækka hann upp og
setja undir hann breiðari dekk.
Þá er eyðslan hins vegar orðin
vandamál.
Upp á síðkastið hefur færst í
vöxt ab menn setji 2,8 1 sex
strokka díselvélina frá Nissan í
Roverinn. Þessi vél passar að
mörgu leyti vel við jeppann, en
ódýrasti kosturinn er að halda
upprunalega gírkassanum og
BÍLAR
ÁRNI GUNNARSSON
smíða milliplötu á kúplingshús-
ið.
Sigurður Ingólfsson, bifvéla-
virki hjá bíla- og búvélaverk-
stæðinu Draga á Akureyri, er
einn þeirra sem hafa reynt þetta,
en hann setti notaða vél úr Niss-
an Laurel í Range Rover sem
hann átti. Hann hefur ekið Ro-
vernum með þessari vél í um tvö
ár og Iíkar vel. Siguröi fannst vél-
in full kraftlítil óbreytt og setti í
hana forþjöppu og millikæli.
Eftir þær breytingar er vinnslan
svipub og var í 8 strokka bensín-
vélinni, sem var í bílnum. Kost-
urinn við Nissanvélina er sá að
tiltölulega litlu þarf að breyta til
þess að koma henni fyrir undir
húddinu og einnig giskar Sigurb-
ur á ab hún sé svipuð ab þyngd
og upprunalega bensínvélin. Það
hefur í för með sér að ekki þarf
að styrkja fjöðrunarbúnaö undir
bílnum að framan.
Verð á nofubum díselvélum
af þessari tegund er mismunandi
eftir ástandi, en a.m.k. tvö fyrir-
tæki hafa flutt þær inn, yfirfarn-
ar og með ábyrgð. Hjá öðru
þeirra fengust þær upplýsingar
að án túrbínu kostaði vélin um
150 þúsund, en um 250 þúsund
með túrbínu. Nissan 3,3 1 dísel-
vélin með túrbínu kostar hins
vegar um hálfa milljón. isetn-
ingarkostnaðurinn er einnig
mismunandi, en Sigurður Ing-
ólfsson áætlar að tveir vanir
menn væru um 3 daga að setja
vélina niður og ganga frá henni.
Rekstrarkostnaöurinn er ab
sögn Sigurbar svipaöur og á
bensínbíl, sem eyðir 15 lítrum á
hundraðið, og er þá mibað við
bíl sem ekur á mælagjaldi. Einn
kostur vib þessar breytingar er
ótalinn, en hann er sá að menn
eru meb þeim nokkurn veginn
lausir við smábilanir, sem eru oft
tíðar á upprunalegu Range Rover
vélinni. ■
Mercedes-Benz kynnir nýtt og endurbcett fjallatröll:
Funmog nýtt tröll
frá Mercedes-Benz
Það hefur ríkt mikil hönnunar-
gleði hjá Mercedesverksmiðjun-
um í Þýskalandi, en þar hefur
fjöldinn allur af nýjum fólksbíl-
um verið kynntur undanfarin
misseri. Nýjasta útspilið er nýr og
þægilegri Mercedes Unimog.
Því miður höfum við næsta lítið
haft af Mercedes-fólksbílunum að
segja hér á landi, vegna þess
hversu dýrir þeir eru. Unimoginn
er þó vel þekktur, sér í lagi sem
björgunarsveitabíll, en einnig
hafa aðilar í ferðaþjónustu nýtt
sér kosti þessa fjallatrölls. Þetta
millistig dráttarvélar og jeppa
nýtur sín hvab best við mjög erf-
iðar aðstæður í torfærum, en Un-
imog hefur löngum þótt kraftlaus
og þægindalítill.
Nýlega kynnti Mercedes nýjan
Unimog, sem kallabur er
Funmog. Þetta farartæki er eftir
sem ábur ódrepandi í torfærum,
en þó þannig úr garði gert að jafn-
vel konur geta vandræðalaust set-
ið undir stýri. Mun fleiri þægindi
eru til staðar og jafnframt er
Funmoginn nútímalegri í laginu.
Bíllinn er með vökvastýri, styrktu
húsi, diskabremsum á öllum hjól-
um og fáanlegur með ABS-
Abbúnabur ökumanns er mun
betri.
Mercedes-Benz Funmog.
bremsukerfi. Hámarkshrabi er
108 kílómetrar á klukkustund.
Vélin er fimm strokka túrbódísil,
81 kW, 110 hestöfl, en hún hefur
verib notuð í sendibílalínuna frá
Benz. Enn sem fyrr er gormafjöbr-
un á öllum hjólum meb niðurgír-
un úti við hjólnaf. Eins og á eldri
gerðum er hægt að læsa fjórhjóla-
drifinu 100%. Gírarnir eru 16
áfram og 8 afturábak. Eigin þyngd
er 3700 kg, burðargeta 1200 kg og
hámarks dráttargeta hvorki meiri
né minni en 18 tonn.
Verð til almennings í fram-
leiðslulandinu er frá 140 þúsund
þýskum mörkum, eða um 4,5
milljónir króna. Þetta verð ætti að
vera sambærilegt fyrir bílinn
hingaö kominn. ■