Tíminn - 12.10.1994, Blaðsíða 1
SÍMI
631600
78. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Miðvikudagur 12. október 1994
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
191. tölublað 1994
Rœkjuframleiöendur sviknir um 10 milljónir kr. til
markaössetningu á kaldsjávarrcekju:
Veröj öfnunar s j óöur
tekinn í að minnka
ríkissjóðshallann
í fjáraukalögum fyrir yfir-
standandi ár er gert ráb fyrir
aö eftirstöövar úr Veröjöfnun-
arsjóöi sjávarútvegsins veröi
notaöar til aö lækka rekstrar-
útgjöld ríkissjóös, en eftir-
stöövar sjóösins nema ríflega
200 milljónum króna.
Athygli vekur aö ríkisstjórnin
hyggst ennfremur ekki standa
við þau lög sem Alþingi sam-
þykkti í maí sl. um Verðjöfnun-
arsjóðinn þess efnis aö Félag
rækju- og hörpudiskframleið-
enda fái 10 milljónir króna úr
sjóönum til markað'ssetningar á
kaldsjávarrækju.
Samkvæmt því sem næst verö-
ur komist hyggst ríkisstjórnin
skera niöur framlög sín til Haf-
rannsóknastofnunar um 200
milljónir króna og færa sam-
svarandi upphæö úr eftirstöðv-
um Verðjöfnunarsjóös yfir til
stofnunarinnar.
Heimilin í landinu þurfa strax aö fá launahœkkun
vegna spádóma um hœkkun skammtímavaxta. VM5Í:
Hækkun launa
til langs
„Heimilin í landinu þyrftu nú
þegar aö fá launahækkun og
þá ekki síst vegna þessara spá-
dóma um hækkun skamm-
tímavaxta. Þannig ab viö þurf-
um hækkun launa til langs
tíma," segir Björn Grétar
Sveinsson, formaöur Verka-
mannasambands íslands.
Hann segir að eitt helsta vanda-
mál heimilanna sé vextirnir og
telur að vextir af skammtíma-
lánum heimilanna séu ekki lág-
ir. Þá mundi umræðan um
nauðsyn á hækkun skammtíma-
vaxta nokkru áöur en vinna að
gerö næstu kjarasamninga hefst
af krafti, gefa mönnum innsýn í
þær kostnaðarhækkanir sem
ráðgert er að velta yfir á launa-
tíma
fólk. Hann segir að það sé í sjálfu
sér ágætt að menn séu það
hreinskilnir að tala hreint út um
þessa hluti í tíma.
Á ráöstefnu um efnahagshorfur
og áhættustjórn sem haldin var
í fyrradag á vegum íslandsbanka
sagði Sigurður B. Stefánsson,
framkvæmdastjóri Verðbréfa-
markaðar íslandsbanka, að
nauösynlegt væri að hækka
skammtímavexti til að viðhalda
trú manna á efnahagsstefnu rík-
isstjórnarinnar. Aðrar ástæður til
hækkunar væru m.a. vegna
hækkandi vaxta á alþjóðlegum
mörkuðum, óvissa vegna
ógerðra kjarasamninga og hugs-
anleg þensla í efnahagslífinu.
Rigning og rok settu mark sitt á gærdaginn hjá þeim sem eru í útivinnu. Slíkt kemur þó ekki aö sök ef
réttu skjólfötin eru til stabar og hann kvartaöi ekki verkamaöurinn sem var viö vinnu sína uppi á Ártúnshöfba í
Reykjavík. í dag er spáb vœtu og vindi subvestan og vestan lands en minni úrkomu annars stabar. Tímamynd cs
íslendingasögurnar gefnar út á ensku:
Á þriðja tug þýðenda að
störfum um allan heim
íslenskt forlag, Bókaútgáfa
Leifs Eiríkssonar, er ab láta
þýöa allar íslendingasögurnar á
ensku og standa vonir til þess
aö heildarverkið komi út síbla á
árinu 1995. Forlagib er meö
milli 20-30 manns, austan hafs
og vestan og jafnvel í Ástralíu, í
vinnu vib þýbingar og yfirlestur
sagnanna, en vibamikil sam-
ræming þessa starfs fer fram um
Internet.
Hér er um einkaframtak aö ræöa,
en þeir sem standa ab Bókaútgáfu
Leifs Eiríkssonar em Jóhann Sig-
urðsson, Friöþjófur Eyjólfsson
endurskoðandi og Sigurður Viðar
Sigmundsson kennari á Laugum.
Ritstjóri verksins er Viðar Hreins-
son en auk hans vinna Robert Co-
ok, Bernard Scudder og Keneva
Kunz aö undirbúningnum.
„Við sitjum hér á heimsbók-
menntum án þess aö hafa mögu-
leika á að koma slíkri þjóðarger-
semi á framfæri viö aörar þjóðir,"
segir Jóhann Sigurðsson í samtali
við Tímann. „Heita má aö ekki
komi svo málsmetandi útlend-
ingur hingað til lands að honum
séu ekki sýnd handritin, en ef
hann langar til að kynnast inn-
takinu er það alls ekki tiltækt.
Reyndar hafa fáeinar sögur komið
út á erlendum málum, en þar er
ekki um neina aðgengilega heild
að ræða eins og hér veröur. Við
leggjum alla áherslu á að vanda
svo til þessa mikla verks sem kost-
ur er, og erum raunar sannfærð
um það að það uppfylli ýtrustu
kröfur," segir Jóhann Sigurösson.
Um það hvenær þetta starf hófst
og hver hafi staðiö straum af
kostnaði hingað til segir Jóhann:
„Sjálft undirbúningsstarfið hefur
tekið mörg ár, en það var fyrir
tæpu ári aö byrjað var á þýöing-
unum. Útgáfan stendur sjálf
straum af kostnaði en hefur þó
notib fyrirgreiðslu og velvilja af
hálfu aðila sem hafa skilning á
mikilvægi málsins. Má þar nefna
Stofnun Sigurðar Nordals sem
hefur verið okkur innanhandar
með ýmislegt, t.d. rábningu á
fólki, og svo Búnaðarbankann
sem hefur fjármagnað þá vinnu
sem þegar hefur þurft ab greiða
með lánveitingum. Opinberir
styrkir hafa ekki komið til enn
sem komið er, en vonir standa þó
til þess að svo verði einhvern-
tíma." ■
Unglingaheimili ríkisins:
Lagt niður
í frumvarpi til nýrra laga um vernd
barna og ungmenna sem afgreitt
var í gær frá ríkisstjórn til þing-
flokka er m.a. gert ráð fyrir því að
Unglingaheimili ríkisins verði lagt
niður. í stað Unglingaheimilisins
er ætlunin aö setja á fót nýja stofn-
un, Barnaverndarstofu, sem fari
með daglega stjórn barnaverndar-
mála. ■
Vantraust á morgun?
Vantrauststillagan sem búist var
við á Alþingi á morgun kemur lík-
lega ekki fram fyrr en í dag. Þing-
flokkar stjórnarandstöðunnar
vildu ræöa málið í sínum hópi ábur
en tillagan yröi borin upp og fram-
sóknarmenn funda ekki fyrr en í
dag. Enn er ekki ákveðið hvort til-
lagan verbur borin upp í samein-
ingu en stjórnarandstaðan mun
ekki vilja láta eggjunarorð forsætis-
ráðherra hafa áhrif á það hvenær
tillagan verbur borin upp. ■