Tíminn - 28.10.1994, Page 10
10
Föstudagur 28. október 1994
Markús Á. Einarsson
veöurfrœöingur
Fæddur 5. mars 1939
Dáinn 20. október 1994
Markús Á. Einarsson veður-
fræöingur er fallinn frá, langt
um aldur fram. Um hann
geymi ég góöar minningar frá
þeim tíma (upp úr 1980) sem
ég átti viö hann mikilvægt
trúnaöarsamband um mál-
efni, sem viö höföum áhuga á
aö fengi skipulega umfjöllun,
en var eigi aö síöur umdeilt,
ekki síst í okkar eigin hóp. Hér
er átt viö þá nauðsyn að end-
urskoða þágildandi útvarp-
slög, ræða nýskipan útvarps-
mála, horfa til framtíðar í því
efni án allra byltingahug-
mynda, sem vel mátti búast
við að létu á sér kræla. Sem
menntamálaráðherra á þeirri
tíð var mér málið skylt, en
Markús var útvarpsráösmaður,
fróður og áhugasamur um út-
varpsmál almennt og hafði
sínar hugmyndir um líklega
þróun þeirra mála eins og þá
var komið.
Þegar ég tók við starfi
menntamálaráðherra í febrúar
1980, við allóvenjulegar pólit-
ískar kringumstæður, gerði ég
það fljótt upp við mig að með-
al brýnustu viðfangsefna
minna hlyti að vera að vekja
smíði þjóðarbókhlöðu úr þeim
dvala, sem hún hafði lagst í,
eina ferðina enn, og vinna að
úrbótum á málum Ríkisút-
varpsins, bæta rekstrarfjár-
stöðu þess og leysa þann hnút
sem nefndafargan fjárveit-
ingavaldsins hafbi knýtt bygg-
ingu útvarpshússins. Þótt
óneitanlega væri við ýmsa úr-
tölumenn að stríba um fram-
gang þjóöarbókhlööumálsins,
leystist það farsællega, svo að
smíði bókhlöðunnar miðaði
vel þessi ár, enda vib að styðj-
ast ákvæði í stjórnarsáttmála
um að hraða byggingunni.
Málefni Ríkisútvarpsins
reyndust um margt örðug við-
fangs. Átti það við um hvort
tveggja: 'tekjuöflunarþörf
vegna almenns rekstrar og
byggingarmál útvarpshússins,
sem voru í algerri lægð. Tekju-
öflunarþörfina tókst ab leysa
með viöunandi samkomulagi í
stjórnarsamstarfinu. Hitt kost-
aði átök að koma smíði út-
varpshússins svo á skrib, að
um munaði. Það lukkaöist eigi
að síður, enda tók bygging út-
varpshússins fjörkipp um ára-
mót 1980-81, sem entist lengi.
En að fleiru var að hyggja ab
því er tók til málefna Ríkisút-
varpsins.
Þótt ég vildi fara hægt í sakir,
fannst mér einsýnt að sá tími
nálgaðist að RÚV yrbi ekki aö-
eins að auka fjölbreytni starf-
semi sinnar, sem vissulega var
á döfinni, heldur búa sig und-
ir óhjákvæmilega breytingu á
högum sínum, að því er varð-
aði einkarétt Ríkisútvarps til
útvarpsstarfsemi. Því var tíma-
bært að menntamálaráðherra
hefði frumkvæði að því að láta
endurskoða útvarpslög. Vib
engan mann átti ég nánara
samstarf en Markús A. Einars-
son um þab, hvernig að því
verki skyldi staðiö. Ég fór fram
á það við hann, að hann tæki
að sér formennsku í nefnd,
sem ég hugðist skipa til slíkrar
endurskoðunar. Hann var fús
til þess, enda gerbi ég honum
grein fyrir því ab ég mundi
ekki setja nefndinni ströng
fyrirmæli um efni endurskoð-
unarinnar, nefndin skyldi að
því leyti til hafa rúmar hend-
ur, en þess væri vænst að hún
hraðaði störfum og skilaði af
sér ítarlegu áliti. Markús var
mér sammála um að nefndin
yrbi þannig sett saman, að
stjórnarandstaðan ætti sína
fulltrúa í henni samkvæmt til-
nefningu, að útvarpsstjóri
væri nefndarmaöur, svo og
formabur útvarpsráðs. Til setu
í nefndinni völdust ágætir
menn.
Útvarpslaganefnd var form-
lega skipuð 23. sept. 1981 og
lauk störfum um miðjan októ-
ber 1982. Nefndin skilaði ítar-
legum tillögum í formi frum-
varps til nýrra útvarpslaga
ásamt greinargóðri skýrslu eft-
ir Markús um skipan útvarps-
mála í nálægum löndum.
Nefndarálitið ber með sér ab
t MINNING
samstarfið í nefndinni hefði
verið gott og fullur vilji fyrir
því af hálfu fulltrúa flokkanna
ab álitið gæti stuðlað að sam-
komulagi á Alþingi um ný-
skipan útvarpsmála, þar sem
ab vísu væri losað um einka-
rétt Ríkisútvarpsins, en eigi
síður gengið út frá því ab Rík-
isútvarpið yrði áfram þunga-
miðja útvarpsstarfsemi í land-
inu.
Ég hafði fullan hug á því að
flytja þetta fmmvarp sem
stjórnarfrumvarp, en um það
náðist ekki samkomulag með-
al stuðningsliðs ríkisstjórnar-
innar. Þar á meðal reyndist
megn andstaða gegn frum-
varpinu í Framsóknarflokkn-
um, okkur Markúsi til sárra
vonbrigða.
Þótt svona tækist til um afdrif
frumvarpsdraga útvarpslaga-
nefndar 1981-82, standa verk
hennar fyrir sínu. Skipan
hennar var tímabær og markar
að sínu leyti skil í sögu út-
varpsmála. Til þessarar nefnd-
arskipunar og starfa hennar
má rekja upphaf þess að ráða-
menn brygðust rétt við vib-
horfum sem uppi voru í út-
varpsmálum og bentu til þró-
unar sem í augsýn var. Að vísu
má nú sjá eftir nokkra reynslu,
ab margt mætti betur fara í ís-
lenskri útvarpsstarfsemi. En
endurbætur í þeim efnum fel-
ast ekki í því að taka upp
einkaréttarstefnu í þágu Ríkis-
útvarpsins. Það er liðin tíb.
Þetta rifjast upp fyrir mér á
dánardægri Markúsar Á. Ein-
arssonar. Hann var maður,
sem kunni vel til verka, þar
sem hann tók á því.
Eftirlifandi eiginkonu hans
og fjöiskyldu sendi ég hug-
heila samúbarkvebju.
Ingvar Gíslason
Ágætur félagi úr röðum fram-
sóknarmanna í Hafnarfirði er
fallinn frá á besta aldri. Hans
vilja Framsóknarfélögin í
Hafnarfirði minnast með
þakklæti og virðingu. Ekki
verður hér rakinn æviferill né
saga Markúsar úr erli dagsins,
aðrir munu verða til þess. Aft-
ur á móti vilja Framsóknarfé-
lögin í Hafnarfirði minnast
Markúsar fyrir óeigingjarnt og
fórnfúst starf fyrir þeirra hönd
um árabil.
Fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar í Hafnarfirði árið 1974
var leitað til Markúsar um ab
hann skipaði 2. sæti á fram-
boðslista Framsóknarflokks-
ins. Fyrsta sæti skipaði þá
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir,
sem féll frá langt um aldur
fram á síðasta ári. Úrslit kosn-
inganna voru stórsigur fyrir
framsóknarmenn, sem fengu
þá 699 atkvæði og munaði
litlu að Markús næði kjöri sem
annar maður. Sem varamaður
í bæjarstjórn tók Markús virk-
an þátt í störfum sem lutu að
stjórn bæjarins, átti sæti í
náttúruverndarnefnd og sat
fundi í bæjarstjórn í forföllum
aðalmanns eins og lög gera
ráð fyrír.
Við bæjarstjórnarkosning-
arnar 1978 leiddi Markús list-
ann og var kjörinn í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar, þar sem
hann átti síðan sæti næstu 8
árin. Þar kom Markús fram af
vilja og festu, var raungóður
þeim sem til hans leituðu og
kaus jafnan að fylgja góðum
málefnum fremur en ákveðn-
um kennisetningum. Er vitað
að andstæðingar hans í pólit-
íkinni mátu orð hans og skoð-
anir mikils.
í vetrarkosningunum 1979
ákvað Markús að gefa kost á
sér til Alþingis og skipaði 2.
sæti á lista Framsóknarflokks-
ins í Reykjaneskjördæmi.
Flokkurinn náði einum manni
kjörnum og sem varaþing-
maður átti Markús þess kost
að sitja á Alþingi um tíma.
Flutti hann þar m.a. þings-
ályktun um byggingu nýs út-
varpshúss. Þá sat Markús í
miðstjórn Framsóknarflokks-
ins 1974-1978 og var formaö-
ur markmiðanefndar Fram-
sóknarflokksins 1977-1978.
Eftir að Markús ákvab að gefa
ekki lengur kost á sér í fram-
boð til bæjarstjórnar var hann
eftir sem ábur sá ráðgjafi, sem
við helst leituðum til varðandi
ýmis bæjarmál og starfsemi fé-
lagsins. Var hann ætíð tillögu-
góður og hollur í ráðgjöf og
lagði m.a. til mikið efni í blað
okkar, Hafnfiröing.
Framsóknarflokkurinn í
Hafnarfirði hefur ekki átt bæj-
arfulltrúa síðan Markús átti
þar sæti. Þrátt fyrir ab fjöldi
bæjarbúa styðji málstab okkar,
er eitthvað sem vantar á til að
markmiðið náist. Ef til vill er
það annar mabur í anda Mark-
úsar. Um það skal ekkert full-
yrt, en hitt má öllum vera ljóst
að fyrir lítinn félagsskap er
hver maður dýrmætur og þá
ekki síst þeir sem í forystunni
standa og hafa yfir ab rába
þekkingu og reynslu sem
byggja má á. Einn af þeim
mönnum var Markús Á. Ein-
arsson. Hann átti auðvelt með
að færa hugsanir sínar í ritað
mál og skapaði sér m.a. nafn
sem slíkur, auk þess sem hann
varð afar vinsæll meðal þjóð-
arinnar fyrir fágaba framkomu
og greinargóða framsetningu
veburfrétta í sjónvarpinu. An
efa minnast hans flestir sem
slíks. Markús var mikið prúð-
menni og vann sína pólitísku
sigra á góðum málflutningi og
vönduðum vinnubrögðum,
en hvorki skrúðmælgi né per-
sónulegu poti. Gætu abrir þar
af lært.
Við hlið hans í ofangreindum
félagsmálum stóð ávallt kona
hans, Hanna Sesselja Hálfdan-
ardóttir, og mátti treysta á lið-
sinni hennar þegar þess var
leitað. Framsóknarmenn í
Hafnarfiröi hafa misst mikið
bakland við fráfall Markúsar
Á. Einarssonar og skarð hans
verður vandfyllt. Hvert skal nú
leita ráða og hver verður sam-
nefnarinn?
Á aðalfundi Framsóknarfélag-
anna í Hafnarfirbi, sem hald-
inn var sl. þriðjudagskvöld,
gekk í ræðustól virtur heiðurs-
maður úr röðum okkar, Eiríkur
Pálsson frá Ölduhrygg, og
minntist Markúsar. Þar sagði
hann m.a.:
„Þeir menn, sem oftlega
koma fram í sjónvarpi, verða
ósjálfrátt heimilisvinir þeirra
er á sjónvarp horfa. Þeir eru að
sjálfsögðu misgeðþekkir, þó
þeir hafi allir til síns ágætis
nokkuð. Áhorfandinn gefur
þeim ósjálfrátt sínar einkunn-
ir. Þeir, sem greina frá veðurút-
liti, eru ekki undanskildir. Þeir
færa og fréttir, oft daglega, og
þær að sjálfsögðu breytilegar.
Einn þessara manna var Mark-
ús Á. Einarsson veðurfræðing-
ur. Hann kom einkar vel fyrir.
Gjörvulegur ásýndum, mál-
rómur þægilegur og framsetn-
ing glögg og greinileg. Hann
bauð af sér einstaklega góðan
þokka og varð því heimilisvin-
ur sérstakur. Þá er mér barst til
eyrna að hann væri fús til að
gefa kost á sér í framboð fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar
hér í Hafnarfiröi á sínum tíma,
fagnaði ég því innilega. Hér
var réttur maður á réttum stab.
Framboð hans tryggði og fylgi
flokksins og var Markús bæjar-
fulltrúi hans árin 1978-1986.
Því starfi gegndi hann af hinni
mestu prýði. Setti sig vel inn í
málin. Vann af samviskusemi
og glöggri heildarsýn. Hann
naut virðingar og trausts ekki
aðeins sinna flokksmanna,
heldur og samstarfsmanna
annarra flokka hvar í fylkingu
sem þeir stóðu. Þá er hann lét
af því starfi, varð skarð fyrir
skildi mikið og vandfyllt. Við
hörmum fráfall þessa einkar
velgerða, hlýja og trausta
manns, sem nú hefur vikið af
vettvangi dagsins allt of
snemma. En eitt sinn skal hver
deyja og þegar heilsan er þrot-
in, er hvíldin lausn úr vanda.
Hér er góður maður genginn,
en slíkum mönnum getur, þá
er allt kemur til alls, ekkert
grandab hvorki lífs né liðnum.
Vib syrgjum nú sérstakan öðl-
ingsmann og þökkum störf
hans og dvöl hér með okkur
og biöjum honum blessunar í
eilífðarljósi annarrar tilveru.
Konu hans og börnum vott-
um við okkar dýpstu samúð.
Góður Guð blessi þau og varð-
veiti og gefi þeim styrk í þeirra
miklu sorg."
Framsóknarfélögin í Hafnar-
firði gera þessi orð Eiríks Páls-
sonar að sínum.
Gub blessi minningu Mark-
úsar Á. Einarssonar.
Framsóknarfélögin
í Hafnarfiröi
If
Útför móöur okkar
Jónasínu Tómasdóttur
frá Mibhóli, Sléttuhlíb
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 28. október kl. 15.00.
Hreinn Sveinsson
Tómas Sveinsson
if
Móbir mín
er látin.
Guörún Auöunsdóttir
frá Stóru-Mörk
i.
Áslaug Ólafsdóttir
Absendar greinar, afmælis-
og minningargreinar
sem birtast eiga í blaðinu þufa ab hafa borist ritstjóm blaðsins,
Stakkholti 4, gengið inn frá Brautaholti, tveimur dögum fyrir
birtingardag, á disklingum vistað í hinum
ýmsu ritvinnsluforritum sem texti, eða WlWÍWlWW)-
vélritaðar. sími (91) 631600