Tíminn - 02.12.1994, Page 9

Tíminn - 02.12.1994, Page 9
ISKNSIA AUGlfSINGASTOFAN HF. Spennan í þessari mynd er slík að áhorfandinn fær (klaka)sting fyrir hjartað. Michael Douglas og Sharon Stone í nístandi spennutrylli. Sýnd á nýársdag. Mynd sem þú verður að sjá - ef þú þorir. Það er spurning hvort myndlykillinn ræður við að afrugla þessa óborganlegu gamanmynd um hvernig á ekki að halda jólin. Chevy Chase í essinu sínu! Sýnd á Þorláksmessu. Góð með kæstri skötu. Frábær gamanmynd um veðurfræðing sem vaknar morgun einn og það er sami dagur og var í gær. Og það gerist aftur, og aftur og aftur... Aðalhlutverk: Bill Murray (hreint útsagt frábær). Sýnd á jóladag. Mynd sem þú verður að sjá. Önnur jólin í röð týnist Kevin litli og nú erhann aleinn í New York. Og þar sem Kevin er þar eru ósvikin ævintýri. Sýnd á annan í jólum. Örugglega fyrir alla (nema viðkvæma skúrka). Bastian finnur dularfulla bók og fyrr en varir er hann orðinn þátttakandi í ótrúlegu ævintýri. Sýnd á jóladag. Örugglega fyrir alla í fjölskyldunni. ICRBÉP TONAEÍD 1-JolskyldubiO MiggQC ONU LMUR NEMO L I T L I Jólasaga m' f? tU. Méé Óskarsverðlaunamynd Ef þú ætlar aðeins að sjá eina virkilega góða mynd um jólin þá skaltu sjá þessa. Aðalhlutverk: Al Pacino og Chris O’Donnel. Sýnd á jóladag. Mynd fyrir þá sem velja aðeins það besta! Gullfalleg teiknimynd með íslensku tali um Nemó litla sem ferðast ásamt íkornanum sínum inn í Draumalandið. Sýnd á nýársdag. Fyrir káta krakka. Prúðuleikararnir með sína eigin útgáfu af hinni sígildu jólasögu um aurapúkann Skrögg eftir Charles Dickens. Sýnd á annan í jólum. Mynd sem Kermitfroskur mælir með. Ein frægasta og besta mynd allra tíma enda var hún tilnefnd til níu Óskarsverðlauna og hlautfern. Sýnd á nýársdag. Mynd sem þú verður að sjá. Sígild stórmynd með James Stewartfrá árinu 1946. Sýnd á aðfangadagskvöld kl. 21. Mynd sem þú verður að sjá. Nýtt áskriftartímabil hefst 12. desember. QsWftf t Dl ATT

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.