Tíminn - 02.12.1994, Blaðsíða 16
Veöriö í dag (Byggt á spá Ve&urstofu kl. 16.30 í gær)
• Su&urland, Faxaflói, Su&vesturmió og Faxaflóamió: Subaustan
stinningskaldi. Dálítil rigning eba súld.
• Breibafjörbur og Breibafjarbarmib: Vaxandi austanátt. Rigning
meb köflum.
• Vestfirbir og Vestfjarbamib: Austan stinningskaldi og rigning í
fyrstu en hvassvibri síbdegis.
• Strandir og Norburland vestra og Norbvesturmib: Hægari sub-
austan og úrkomulítib.
• Norburland eystra, Austurland ab Clettingi, Norbausturmib og
Austurmib: Sunnan stinningskaldi og skúrir seinni partinn.
• Austfirbir og Austfjarbamib: Sunnan stinningskaldi og skúrir.
• Subausturland og Subausturmib: Sunnan stormur og rigning í
fyrstu en lægir þegar líöa tekur á daginn.
Ingimundur Sigfússon.
Ingimundur
sendiherra
í Bonn?
Innan ríkisstjórnarinnar er nú
hart bitist um hver eigi að veröa
sendiherra í Bonn, eftir aö
Hjálmar W. Hannesson lét af því
starfi til aö veröa sendiherra í
Peking. í ráöi var aö Þröstur Ól-
afsson, aöstoöarmaöur utanríkis-
ráöherra, tæki viö sendiráðinu en
skv. heimildum Tímans er ólík-
legt aö af því veröi. Davíð Odds-
son forsætisráöherra er sagður
leggja ofuráherslu á að Ingi-
mundur Sigfússon, fyrrverandi
Hekluforstjóri, ræðismaður Spán-
ar og formaður fjármálaráðs
Sjálfstæöisflokksins, veröi gerður
aö sendiherra í Bonn, en utanrík-
isráöherra lýöveldisins mun ekki
vera hrifinn af þeirri hugmynd. ■
Þórir Ein-
arsson næsti
Félagsmálarábherra skipaöi
Þóri Einarsson prófessor í
embætti ríkissáttasemjara í
gær, aö höföu samráöi viö Al-
þýöusamband íslands,
Vinnuveitendasamband ís-
lands og Vinnumálasamband
samvinnufélaganna.
Skipunin gildir til næstu fjög-
urra ára, frá og með 1. janúar
1995. Þórir tekur viö embætt-
inu þann dag en þá lætur Guö-
laugur Þorvaldsson af embætti
vegna aldurs. ■
Haraldur Böövarsson
vinsœll á hlutabréfa-
markaöi:
Öll ný hluta-
bréf seldust
í byrjun síöasta mánaöar
hófst sala á hlutabréfum í fyr-
irtækinu Haraldur Böövars-
son hf. á Akranesi. Bréfin
seldust öll á þrem vikum, 80
milljónir aö nafnveröi á
genginu 1,63, eöa 130,4 millj-
ónir króna.
Margir hluthafa sem fyrir
voru juku hlut sinn, auk þess
sem nýir bættust í hópinn. Af-
koma fyrirtækisins hefur farið
batnandi síðustu 3 árin og er
hin brattasta í ár, rúmlega 77
milljóna króna hagnaöur fyrstu
8 mánuöina. Fyrirtækiö er
stærsta atvinnufyrirtæki Vest-
urlands meö um 300 manns í
vinnu. ■
Meö frjálsu vali um þátttöku í almenna lífeyrissjóöakerfinu telur Gubjón Hansen
tryggingafrϚingur:
Skref stigiö áratugi
aftur í tímann
„Valfrelsi í sambandi viö
þátttöku í hinu almenna
heildarkerfi (lífeyrissjóö-
anna) vekur spurningu um
hvert menn vilja stefna. Vib-
brögb lífeyrissjóbanna hlytu
aö vera þau ab iögjöld yröu
mishá, m.a. eftir kynferöi og
inngöngualdri og sporna
þyrfti viö aöild óæskilegra
einstaklinga og hópa. Meö
slíkri þróun gæti aö mínum
dómi verib stigib skref ára-
tugi aftur í tímann í íslensku
þjóbfélagi."
Þetta segir Guðjón Hansen
tryggingafræðingur m.a. í sam-
tali við Sal-fréttir, sem spurðu
hann álits á tillögum Verslun-
arráösins og fleiri aðila um að
gefa aðild að lífeyrissjóðunum
frjálsa, þannig að launþegar
gætu valið hvaða lífeyrissjóð
þeir greiddu iðgjöld til. Guð-
jón bendir á að engin glögg
skil séu í löggjöfinni milli
skyldusjóða og frjálsra lífeyris-
sjóða hér á landi. Þetta hafi
leitt til þess að einn tali í aust-
ur og annar í vestur þegar rætt
sé um valfrelsi einstaklinga til
aðildar að lífeyrissjóðum. Sé
um að ræða viðbótarsjóði við
hið almenna lífeyrissjóðakerfi
sé valfrelsi bæði eðlilegt og
sjálfsagt. En allt annað eigi við
þegar menn ræði um valfrelsi í
sambandi við þátttöku í al-
menna lífeyrissjóðakerfinu,
sem áður segir. ■
Nýtt Bítlaœöi
Nýja tvöfalda Bítlaplatan sem inniheldur 56 lög sem hljóbrituö voru hjá BBC íupphafi sjöunda ára-
tugarins kom í verslanir um mibjan dag ígœr. Valdimar Óli Þorsteinsson, verslunarstjórí hjá Skífunni,
sagbi ab geisladiskurinn hefbi rokib út og svo virtist sem mikill spenningur vœri mebal fólks vegna út-
gáfunnar. Hann telur ekki ótrúlegt ab Bítlaplatan verbi jólagjöfin í ár, mibab vib fyrstu vibtökur, en
diskurinn kostar 2.999 krónur.
Trésmiöafélag Reykjavíkur mótmcelir tillögu um sérstakt
holrœsagjald:
Pyngjan rís ekki
undir meiri sköttum
„Þótt um ágætismál geti ver-
iö ab ræöa þá telja menn ab
skattheimtan sé komin í þau
mörk ab þab sé ekki verjandi
aö halda áfram á þeirri
braut. Þess í stab verba menn
aö halda sig innan ramma
núgildandi tekjustofna,"
segir Sigurjón Einarsson hjá
Trésmibafélagi Reykjavíkur.
Á félagsfundi í Trésmiðafé-
lagi Reykjavíkur í gær var
harðlega mótmælt%þeirri til-
lögu meirihluta borgarstjórnar
að leggja á sérstakt holræsa-
gjald. Fundurinn skorar á
borgarstjórn að hætta við fyr-
irhugaðan skatt enda sé þarna
á ferðinni viðbótar skattlagn-
ing.
Þess í stað leggur fundurinn
til að borgarstjórn afli aukins
framkvæmdafjár með hagsýni
og sparnaði.
Sigurjón segir að á fundin-
um hafi komið sú skoðun að
skattbyrðin sé orðin það mikil
að það sé ekki endalaust hægt
að leggja á skatta fyrir öallt
sem gert er. Hann segir að mik-
il ólga sé meðal félagsmannna
TR út af skattamálum og þeirri
skattbyrði sem lögö sé á al-
menning.
Eins og fram hefur komið
þá hyggst borgarstjórn auka
álögur á eigendur fasteigna í
borginni með árlegu holræsa-
gjaldi sem nemur um 0,15% af
heildarfasteignamati. Gert er
ráð fyrir aö þessi skattheimta,
sem er nýjung í Reykjavík,
muni auka fasteignagjöld
hvers heimilis um 10- 30 þús-
und krónur á ári og skila borg-
arsjóði 550-600 milljónum
króna á ársgrundvelli.
Bókmenntaverölaun
Noröurlandaráös 1995:
Einar Már og
Álfrún tilnemd
Einar Már
Einar Már Guð-
mundsson og
Álfrún Gunn-
laugsdóttir eru í
hópi þeirra 11
norrænu rithöf-
unda sem út-
nefndir eru til
bókmennta-
verðlauna
Norðurlandaráðs árið 1995. Verð-
launin, 3,5 milljónir króna, verða
afhent sigurvegaranum í Reykjavík
28. febrúar á 46. fundi Norður-
landaráðs, en mánuði áður kveður
dómnefndin upp úrskurð sinn í
Helsinki.
Það er fyrir bókina Englar al-
heimsins sem Einar Már fær sína
tilnefningu, en Álfrún fyrir Hvatt
að rúnum. Tveir íslenskir rithöf-
undar hafa hlotið verðlaunin, þeir
Ólafur Jóhann Sigurbsson 1976 og
Thor Vilhjálmsson árið 1988. ■
BEINN SIMI
AFCREIÐSLU
TÍMANS ER
631 • 631