Tíminn - 21.12.1994, Page 1

Tíminn - 21.12.1994, Page 1
BLAÐ II 21. DESEMBER 1994 íslenski lífeyris- sjóöurinn, sem er í vörslu Landsbréfa, er einn svokallaöra séreignalífeyris- sjóöa s undanförnum árum hefur það færst í vöxt að launþegar greiði í sér- eignalífeyrissjóði, sumir ein- göngu og aðrir til viðbótar við framlag sitt í hina lögbundnu starfsgreinalífeyrissjóði, sem eru sameignarsjóðir. Einn þeirra er íslenski lífeyrissjóður- inn, sem er í vörslu Landsbréfa hf. Kristján Guðmundsson, markaðsstjóri Landsbréfa, seg- ir sjóðinn standast fyllilega samkeppni við aðra séreigna- sjóði og góður árangur hafi náðst í ávöxtun. Sjóðurinn var stofnaður í árslok ársins 1989 og fjórfald- aðist stærð hans á síðasta ári. Óttar Guðjónsson sjóðsstjóri segir sjóðinn frá stofnun hafa náð betri ávöxtun en aðrir sambærilegir sjóðir, þrátt fyrir að hafa fylgt íhaldssamri fjár- festingarstefnu. Ástæðu þess að betri ávöxtun hefur náðst hjá íslenska lífeyrissjóbnum segir Óttar vera ab virkri sjóðs- stýringu hafi verið beitt. „Við höfum vakað yfir tækifærum á markaðnum, sem aðrir virðast ekki hafa notfært sér ab sama skapi," segir Óttar. Hann legg- ur áherslu á nauðsyn þess að bjóða góða og örugga ávöxtun, þar sem það sé meginástæða þess ab fólk greiði í séreignalíf- eyrissjóðina. Allar greiðslur sjóbfélaga í sjóðinn eru séreign viðkom- andi, en ekki sameign eins og í almenna lífeyrissjóðakerfinu. Þetta þýðir að sérhver sjóðfé- lagi í séreignalífeyrissjóði á sjálfur það sem hann hefur greitt inn og hefur verið ávaxt- að í sjóðnum. „Þess vegna bendum við á séreignasjóð eins og íslenska lífeyrissjóbinn sem möguleika fyrir fólk að fá viðbótartekjur við það sem það fær úr sameignarlífeyrissjóðn- um," segir Óttar. 10% iðgjaldib, sem greitt er í sameiginlegu sjóðina, skiptist í fimm hluta. 6% fer í ellilífeyri, 2,3% í makalífeyri, 1,2 í ör- orkulífeyri, 1% í barnalífeyri og 0,4% í kostnað. Til að þessi 6%, sem fara í ellilífeyri, dugi og miöaö er við 6% ávöxtun allan tímann, sem er góð ávöxtun í dag, þarf viðkom- andi að byrja að greiða í lífeyr- issjóð 27 ára og greiða alveg til 67 ára aldurs. Hins vegar er óvarlegt ab gera ráð fyrir þetta hárri ávöxtun. Ef ávöxtunin verður lakari, þarf ab byrja mun fyrr að greiða í sjóðinn. Forráðamenn íslenska lífeyris- sjóðsins líta því svo á að það 10% framlag, sem lagt er í sameignarlífeyrissjóbina, sé ekki nægilegt og því þurfi fólk að tryggja afkomu sína betur. Að þessu gefnu segir Óttar að þeir leggi áherslu á að fólk greiði í sameignarlífeyrissjóð- ina, þar sem það njóti trygg- ingaþáttarins, en greiöi auka- framlag í séreignalífeyrissjóð til að tryggja sömu tekjur í ell- inni og það hafði fyrir. Hann segir ennfremur ab fólk nýti sér þennan möguleika ekki nægilega mikið og það þurfi að vekja fólk til umhugsunar um þessi mál. Það gilda ákveðnar reglur um greiðslu lífeyris úr sjóðn- um. Almenna reglan er að sjóðfélagar fái greitt úr sjóðn- um á minnst tíu árum, en þó séu undantekningartilvik þar sem þeir fá greitt á skemmri tíma. Sama gildir um greiðslur ef sjóöfélagi fellur frá, en inn- eign erfist eins og aðrar eignir. Um hver mánabamót er sjóðurinn gerður mjög ná- kvæmlega upp og ársfjórð- ungslega fá sjóðfélagar sent yf- irlit um inngreiðslur og út- greiðslur, auk ávöxtunar og eignasamsetningu sjóðsins. Sjóðfélögum er einnig sent uppreiknað dæmi um hvernig inneign þeirra muni líta - út þegar til útborgunar kemur. Kristján Gubmundsson segir þab hafa verið vandamál á meðan hér ríkti óðaverðbólga, að almenningur hugsaði til skemmri tíma í fjármálum. Með auknum stöbugleika í efnahagslífinu hafi umræba um skipulag fjármála orðib heilbrigðari og almenningur orðið meðvitaðri um mikil- vægi lífeyrismála. Það er bundið í lög að öllum er skylt að greiða í lögbundinn starfsgreinasjóð, en Kristján bendir á að fjöldi einstaklinga eigi ekki aðild að lögbundnum sjóðum. Sem dæmi um þab má nefna marga sjálfstæða at- vinnurekendur og notfæra margir þeirra sér þjónustu ís- lenska lífeyrissjóðsins til að tryggja sér lífeyri í framtíðinni. Eignir sjóbsins eru að mestu leyti bundnar í ríkistryggðum verðbréfum, eða um 90%. Þetta er hluti af þeirri íhalds- sömu fjárfestingarstefnu, sem getið var um hér að framan og hefur gefið góða raun fram til þessa. Óttar segir að mjög æskilegt sé að sjóðfélagar fái sjálfir að ráða meiru um hvernig fé þeirra er ávaxtað í sjóðnum og hjá mörgum sé vilji fyrir því. Þab er eðlilegra að sjóðfélagi, sem á eftir að greiða í jafnvel áratugi, vilji og geti tekið meiri áhættu en t.d. sextugur mað- ur, sem mun nota lífeyri sinn innan fárra ára. Þab hefur komið fram vilji stjórnar ís- lenska lífeyrissjóðsins að skipta sjóðnum í tvær deildir, innlend og erlend bréf, og það væri þá val sérhvers sjóðfélaga hvernig hann dreifði áhættu sinni á milli þessara tveggja deilda. Ávöxtun erlendu bréf- anna sveiflast meira en þeirra innlendu, en gefa ab meðaltali meiri ávöxtun. Það er hins vegar tregða í stjórnkerfinu til að leyfa þessa tilhögun og það hefur ekki komið til fram- kvæmda. Ástæbuna megi að einhverju leyti rekja til nýs frumvarps, sem er í undirbún- ingi en hefur enn ekki verib lagt fram. Óttar segir þróunina virðast verða þá að í nýjum lögum um lífeyrissjóði verði ekki gert ráb fyrir að séreignasjóðirnir verði fullgildir lífeyrisjóðir, heldur standi fyrir utan það kerfi. Það, sem sjóðfélagar greiði í þá, verði fyrst og fremst viðbótar- framlag og verði óháð því 10% framlagi, sem þeir greiða í lög- bundna starfsgreinasjóbi. „Þab er því eðlilegt að við hjá ís- lenska lífeyrissjóðnum höfum tekið upp þá stefnu. Það er hægt ab færa rök fyrir því að menn eigi að greiða í sam- tryggingarsjóði, en þeir þurfi ab vera nægilega stórir. Einnig má færa rök fyrir því ab 10% framlagið sé ekki nóg og því munu séreignasjóöirnir, eins og íslenski lífeyrissjóðurinn, eiga vaxandi hlutverki að gegna." ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.