Tíminn - 21.12.1994, Síða 10

Tíminn - 21.12.1994, Síða 10
10 Mibvikudagur 21. desember 1994 VuflV itk^tt itf l^tí l^tt IWIWW kom svo Sveinn og afhenti bréfiö og allt féll í ljúfa löb. Þótt svo færi í þetta sinn, þá heyröi ég sárasjaldan um þaö talaö aö Sveinn væri ekkí til staöar á þessum eöa hinum póstinum þar sem menn nú þurftu á honum aö halda í þaö og þaö skiptiö. Og haföi ætíö nægan tíma aö tala viö fólk og afgreiða erindi þess. Ég gat raunar aldrei merkt að það væri á honum asi. En hann Slegiö á létta strengi: Helgi Seljan, V.H., Karvel Pálmason og Sigurbur jónsson. var nokkuð hraðstígur. Endurkoma Þaö er dálítið sér á parti að koma til starfa á fyrrum vinnustað eftir ellefu ára fjar- veru. Jafnvel þótt þar ríki grónar heföir. Jafnvel þótt maður hafi stöku sinnum litið inn og gripið í verk. Af sjálfu leiðir að manna- skipti veröa á Alþingi íslend- inga viö þrennar eða fernar al- þingiskosningar. Og búiö var aö fjölga þingmönnum (1959) um átta í sextíu. Ég átti tólf ár framundan á þingi og er óhætt aö segja aö mér bættust margir nýir samferðamenn þann spottann. I gamni og alvöra Ef grannt var skoðaö hafði eitt og annað, varöandi þinghald- iö og þingmennskuna, tekið nokkrum breytingum frá því ég sat á þingi hiö fyrra sinni. Færri þingmenn bjuggu nú á hótelum, launakjör höfðu skánaö og aðstaða til starfa, sem áður var engin utan þing- sala, stóö til bóta. Þingmenn, sem ekki gegndu ráðherra- störfum ellegar réöu yfir sér- stakri vinnuaðstöðu úti í bæ vegna annarra starfa, fengu nú afnot af herbergi með skrifborði og síma. Þó ekki hver einstakur einn fyrst í stab heldur voru tveir eða þrír þingmenn saman um slíkar vistarverur. í annan stað sýndist mér fjölmiðlar og raunar fleiri gefa alþingismönnum meiri gaum en áður og óska nærveru þeirra af ýmsum tilefnum. Allt frá gleðimótum til kirkjulegra athafna við hátíðleg tækifæri. Ríkisútvarpib var með uppá- tæki í þá veru að fá þingmenn til að slá á léttari strengina. Þannig plataöi Sjónvarpið til dæmis þrjá ráðherra til að syngja dægurlag eftir einn þeirra, Matthías A. Mathiesen fjármálaráðherra. Auk hans tókum við Halldór E. Sigurðs- son þátt í þessu gríni, hvorug- ur sérlega söngvinn. En undir- leikarinn, Magnús Ingimars- son, sléttaði úr hrukkunum. Löngu áður vorum við Helgi i Seljan og Karvel Pálmason teknir í sjónvarpsþátt að segja brandara úr félagslífi og frá fleiru í átthögum okkar — og taka lagið. Ekki veit ég iengur hvort sá þáttur var orsök eða afleiðing þess að Karvel og Helgi tóku að skemmta á stofnunum aldraðra og hressingarhælum sjúkra með gamanmálum og söng við undirleik Sigurðar Jónssonar tannlæknis og pían- ista. Helgi orti og Karvel tók á sig gervi kátlegra persóna. Gerðu þeir félagar mikið að þessu um árabil og nutu óskiptrar hylli áheyrenda. Stöku sinnum kvöddu þeir mig til fylgdar við sig. Reyndi ég þá að tína eitthvað til — og skemmti mér svo konunglega að sjá og heyra félaga mína fara á kostum og skynja gleði viðstaddra. Allt heyröi þetta til græsku- lausu gamni og kryddi í tilver- una. Hins ber og að geta sem raunar var ekki nýtt ab all- margir alþingismenn hafa reynst libtækir við reglulega listsköpun og listtúlkun, eink- um í máli og tónum. d^öfeum félagömönnum bontm, starfðliöi og lanbðmönnum öUum (Sltöilcgrajfóla og fatðæfð feomanöi árs meö þöfefe fprir þaö, ðemeraö liöa Ka upfélag Hún ve tninga Blönduósi - Skagaströnd Jón Benjamínsson Jón fæddist á Ýmastöðum í Vöðlavík 22. júlí 1881. For- eldrar hans voru Benjamín Jónsson bóndi og Ólöf Stef- ánsdóttir kona hans. — Jón brá upp örfáum svipmyndum frá uppvextinum: Ég var ekki hár í loftinu þeg- ar ég fluttist að Stóru-Breiðu- vík til Sæmundar bónda og konu hans. Þar var ágætt að vera. Ég vandist flestum störf- um, já, meira að segja kom fyrir að ég bakaði kleinur og pönnukökur fyrir húsmóbur- ina. Hún hafði mörgum börn- um að sinna og þeim fjölgaði Stóra nefndin Guðmundur Hagalín taldi þá þingmenn allsvesæla sem aldrei komust upp í Efri deild! Og ég segi ab sá þingmaður sem ekki hefur setið í fjárveit- inganefnd þekki ekki þing- störfin — nema að hluta. Fjár- veitinganefnd var fjölmenn- ust þingnefnda og hélt flesta fundi. Langa og stranga því til hennar komu í raun umbobs- menn allra landsmanna með obbann af því sem vantaði! Unnið var að fjárlagagerðinni í skorpu frá hausti til jóla, fundir fyrir hádegi alla virka daga, undirnefndir mörg kvöld. Ég var þrjá vetur í þessari nefnd nefndanna. Geir Gunn- arsson í Hafnarfirði var for- maður þennan tíma. Hann var drjúgur verkstjóri og hafbi auk þess sérþekkilega gott Iag á að lífga upp á alvarleg og allt að tyrfin viðfangsefni. Allir urðu samt fegnir tíu-kaffinu meb kanelsnúðum og öðru bakkelsi frá Þórdísi — og brugðu á léttara hjal. Oft hef ég undrast með sjálf- um mér hvað utanþingsmað- urinn Jónas Svafár skáld yrkir nærri fjárlögum íslenska ríkis- ins þegar hann kveður: Ríkissjóður mannaböm vaxa úr grasi og grasið sprettur úr mold til að fá styrk úr ríkissjóði ungir menn lesa erlendis graenjaxlinn af skilningstrénu til að fá styrk úr ríkissjóði gamlir menn ganga í bamdóm og þorskurinn gengur í netið til að fá styrk úr ríkissjóði ef höfðingjamir hafa bein í nefinu til að hneigja höfuðið oggefa upp tekjumar — Ég lærði þetta góðlátlega en beinskeytta kvæði og flutti fjárveitinganefnd yfir kaffibollum á skammdegis- morgni. jón Benjamínsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.