Tíminn - 21.12.1994, Síða 11

Tíminn - 21.12.1994, Síða 11
MiOvikudagur 21. desember 1994 ®*mpíw 11 Gleðileg jól farsœlt komandi ár Þökkum starfsfólki og viðskiptavinum gott samstarf á liðnum árum SAUÐARKROKI - HOFSOSI - VARMAHLIÐ - FLJOTUM ört þessi árin, hafði víst ekki mikla húshjálp. Þarna stundubu allir sjóinn. Ég var látinn vitja um flotlínu þegar ég staekkaði. Það fékkst oft töluverður fiskur á flotlín- ur á þeim ámm. Svo kom fermingin. Það var mikill viðburður þá. Vöðlvík- ingar voru flestir í Fríkirkju- söfnubinum. En ég fermdist í Hólmakirkju. Skólagangan mín var vetrartími hjá Guðna á Karlsskála. Samt varb ég „efstur" þegar raöaö var við ferminguna og hef sjálfsagt verið upp með mér af því undir nibri. Helsti keppinautur um efsta sætið var frá Eskifirbi og hafði verið í barnaskóla. Aðstandendur hans voru sárir yfir þessu. En við strákarnir urbum aldavin- ir. Frá Stóru-Breiðuvík fór ég nokkru eftir ferminguna og þá til Solveigar systur í Vöðlavík og litlu síðar fluttist ég með föður mínum til Sandvíkur og reri með honum á litlum ára- báti. — Sandvíkin er auövitað fyrir opnu hafi. En þar má þó lenda nokkuð lengi. Og ekki man ég teljandi hrakninga hjá Sandvíkingum. „Gullkistan" Kistan er um 42 mílur undan landi, má þó leggja allt út í 48-50 mílur. Þetta fiskimið var á þeim ár- um sannarleg gullkista, hver sem nú hefur fundið þab nafn. En eins og ég sagði tel ég að Jakob Jakobsson hafi fundið þetta fiskimið fyrstur manna. Af öðmm þeim gömlu sjósóknurum er mér ekki síst minnisstæður Tómas Sigurbs- son sem var mikil aflakló fram á elliár. Dag eftir dag var róið á þetta mið meb svona fjórtán 6 strengja bjób og ekki fátítt að fá allt ab skippund á bjóðið, eintómur rígaþorskur. En sóknin í Kistuna var ekki óslitin sigurganga. Okkur er sjálfsagt minnisstætt Ölfu- veðrið, öllum sem þá voru á sjó. Ég kom að landi með þeim seinustu. Bylgjan var seinust því hún var svo gang- treg. Það vom margir á bryggj- unni þegar vib komum, þar á meðal Konráb Hjálmarsson. Hann sagbi þegar hann heils- aði mér: „Ég var aldrei hrædd- ur um þig, frater." Og var hressilegur að vanda. Ég vissi þó ekki hvort þetta kom frá hjartanu. En þab hafa fleiri komið í Kistuna en vélbátar Austfirö- inga. Eitt haustib til dæmis eyðilögðu enskir togarar hana gersamlega. Að því lá sú saga að Árni nokkur Byron kom á skipi sínu til Norðfjarðar og lenti á fylliríi meb nokkrum kunningjum úr landi. Þeir sögbu honum yfir skálunum allt um aflabrögð heimabáta. Þegar Árni Byron lét úr höfn hélt hann beint í Kistuna. Togarana dreif ab og urbu allt að 40, settu út bauju og tog- uðu sem óbir væru. Bátarnir urbu hreinlega frá að hverfa, þar var hvergi hægt að leggja línu. Árni fyllti skip sitt á tveim dögum 280-300 tonn. Hann sigldi fram hjá einum heima- bátnum, kastaði til hans streng og batt við vínflösku, grenjaði kvebjuorb í kallar- ann. Sá hafði ekki geb til að þiggja gjöfina. Tilgangslaust var að leggja í Kistuna síðar um haustið. Þar fékkst ekki bein úr sjó það ár. í Ósnum Hornafjarðarósinn? Víst verður hann ljótur stundum. Og oft vont að átta sig á hon- um. Við vorum eitt sinn að koma að margir bátar. Áttin var suðlæg og mikið brim. Flestir sneru frá. Mér sýndist þó vel farandi og lagði til. Við fengum mikið ólag. Báturinn stóð alveg fastur á útsoginu. Lúgurnar reif af lestinni. Tölu- vert af fiski skolaðist út og nokkuð af línu. Þó náðum við inn fyrir án frekari óhappa. Svaían lagði einnig til og slapp betur. Hún var létt en við vorum með 12 skip- pund. Öðru sinni stóð þó enn tæp- ar. Það var á pálmasunnudag. Margir áttu beitt en leist ekki á Ósinn. Ég taldi þó fært fyrir Sleipni og lagbi til. Það var bullandi útfall. Er ekki að orð- lengja það að við fengum brot á okkur. Bjóðunum var raðað á dekkið. Þau sópuðust fyrir borð og línan festist hér og þar í bát og reiða. Allt fylltist svo alófært varð á'skammri stundu. Vib héldum því aust- ur með, komum vib á Djúpa- vogi og símuðum til Horna- fjarðar, héldum síban heim til Norðfjarbar. Annars held ég mig hafa komist í mesta tvísýnu á logn- kyrru Iágnætti í Gerpisröstinni á kænunni með pabba. Við höfðum dregið hann handóðan um fallaskiptin. Með suðurfallinu ýfðist röstin svo að við gátum ekki annað en haldið í horfinu og ausib eftir mætti. En straumurinn bar okkur út úr ósköpunum og allt fór vel. Mér þótti mikils um vert að hitta Jón Benjamínsson þó ekki væri nema örskotsstund. Hann var einn þeirra sem ríkulega jós af nægtabrunnum fiskimiðanna fyrir Austurlan ii á fyrri hluta þessarar aldar, orðlögð aflakló. Hann hábi sína lífsbaráttu á tvennum vígstöðvum, á hafi úti og á sjúkrabeði. Hann var enn ósigraður þegar ég hitti hann í plastinu á Reykjalundi. Var að Ijúka sinni vakt þann daginn. ■ SleipnirSU 382. af sjó og vélin stoppaði á stundinni. Ég reif upp báðar hurðir á stýrishúsinu til þess að létta á því þrýstinginn. Bát- inn rak hart út og út fyrir skerin. Við settum út tvö akk- eri. Sumir fóru að dælunum en aðrir reyndu að ná inn draslinu sem hékk við bátinn og var stórhættulegt ef vélin kæmist í gang. Allt var gert, sem hægt var, á milli ólag- anna. — Bergþór Hávarðsson var þá mótoristi hjá mér og fór strax niður þótt þar væri nærri óvinnandi fyrir sjó. Með fádæma snarræði tókst hon- um að koma vélinni í gang áður en það var um seinan. Bátinn hafði, meðan þessu fór fram, rekið nær landi og fast ab brimgarðinum þó aldrei yrbi ég var vib að hann tæki niðri. Við hjuggum á festarnar og náðum okkur frá landi. Hann hafbi ausið upp sjónum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.