Tíminn - 21.12.1994, Side 15
Mi&vikudagur 21. desember 1994
ÍNÉM
15
ur frönskumaöur. Var hann
nú beðinn að ræða málið í
síma við Frakkann. En Sigur-
jón sagði, að það væri svo
langt síðan hann hefði talað
frönsku, að hann yrði að
„hita sig upp", þ.e. fá hress-
ingu af einhverju sterku áður
en hann legði í Frakkana. Síð-
an var keyptur koníakspeli,
því að koníak var talið eiga
best viö í þessu falli. Þegar
pelinn var orðinn hálfur og
Sigurjón líka, þreif hann sí-
mann og var nú ekki lengur
hikandi. Þegar hann hafbi
sagt „Bonjour" með vibeig-
andi nefhljóði, kom undrun-
ar- og næstum skelfingarsvip-
ur á andlitið og hann sagði:
Hvað, Magnús, ert þetta þú?
Hafði þá Magnús G. Jónsson,
menntaskólakennari og að
hluta starfsmaður í sendiráb-
inu, svarað í símann og leystu
þeir tollamálið á íslensku,
franskan óþörf og Sigurjón
fullur í embættisnafni til
einskis.
Pétur Hjaltested var gamall
Reykvíkingur og þekkti fjölda
manns. Hans kynslóð var sem
óðast að safnast til feðra
sinna, og fór Pétur mjög oft
niður í dómkirkju til að vera
við jarðarfarir, og var sagt, að
hann hefði geymt pípuhatt-
inn sinn í kirkjunni. Annar
stjórnarráðsmaður sótti líka
mjög jarðarfarir síðar. Það var
síra Jón Skagan, fyrrum sókn-
arprestur að Bergþórshvoli.
Hann starfaði hjá ríkisféhirði
og ríkisbókhaldi, eftir að
hann lét af prestsembætti. Sr.
Jón var vinsælt prúðmenni og
var oft bebinn að jarðsyngja
eða hann þurfti að vera við
jarðarfarir gamalla sóknar-
barna og annarra kunningja.
Bað hann Magnús ríkisbókara
títt um leyfi til slíkra ferða.
Magnús veitti leyfi, en loks
fannst honum keyra úr hofi
og svaraði einni leyfisbeiðn-
inni þannig: Já, já, farðu að
jaröarförinni og bíddu svo
bara eftir þeirri næstu.
Gömul kunningjakona,
Dómhildur Briem, kom einu
sinni frá dómkirkjunni í frem-
ur örgu skapi, sagðist hafa
ætlab ab jarbarför, en þá var
ekki farið að jarða nokkurn
lifandi mann, sagði hún. —
Þekktirðu þessa konu vel, sem
þú varst að tala um? spurðum
vib. Já töluvert, svaraði hún,
vib kynntumst við jarðarfarir.
Dómhildur var greind og
skemmtileg. Þegar hún var
ung stúlka var hún fengin til
þess að kenna krökkum í
heimasveit sinni, Álftafirði.
Pabbi spurði hana nokkru eft-
ir að hún hóf kennsluna,
hvernig gengi. Jú, sæmilega
ennþá, en góbi læknir, ég
kvíði svo fyrir deilingunni.
Auk hinna venjulegu starfa
í fjármálaráðuneytinu, sem ég
hef lauslega drepið á, var ég
eins konar einkaritari ráðherr-
ans og annaðist alls konar fyr-
irgreibslu fyrir kjósendur hans
í Suður-Múlasýslu, m.a. að út-
vega lán í sjóðum og í bönk-
um, útvega eða framlengja
víxla, rekast í alls konar mál-
um hjá hinum mörgu
skömmtunar- og útdeilingar-
skrifstofum þessara fátæktar-
tíma, hvort sem þær hétu
Gjaldeyris- eða innflutnings-
nefnd, Nýbyggingarráð, Fjár-
hagsráb eba hvab það nú var,
því að venjulega skiptu þessar
stofnanir um nafn við hver
stjórnarskipti, en eðlið hélst
óbreytt, hvort sem þeim var
stjórnað af framsóknar- eða
sjálfstæðismönnum eba öðr-
um.
Fyrsta orð sem barn mælir
er mamma, en fyrsta orð sem
nýr ráðherra segir er bíll. Á
erfiðleikatímunum fyrir, um
og fyrst eftir heimsstyrjöldina
síðari var ákaflega erfitt að fá
leyfi til að kaupa jeppa eða
aðra bíla. Sérstakar nefndir út-
hlutuðu leyfum í þessu skyni
og ekki nóg með það, heldur
gekk þetta einu sinni svo
langt að einn fjármálaráðherr-
ann úthlutaöi sjálfur kössun-
um utan af bílunum og
myndaðist löng biðröð í fjár-
málaráðuneytinu af væntan-
legum kassaeigendum. Munu
menn hafa notað kassana við
sumarbústaðasmíði.
Rétt fyrir einar kosningar
sendu margir frambjóðendur í
tilteknu kjördæmi kjósanda
einum, sem nokkur óvissa var
um, hvernig kjósa myndi,
svofellt símskeyti: Tókst að
útvega þér lánið. — Maðurinn
varb auðvitað ægiglaður og
hefur sjálfsagt þakkað öllum
frambjóðendum vel fyrir sig,
þótt hann hafi naumast getað
kosið þá alla. Hitt er svo ann-
að mál, að enginn þessara
manna útvegaði honum lán-
ið, heldur starfsmaður ráð-
herra.
Á árinu 1939 var myndub
svokölluð Þjóðstjórn. Voru
ráðherrarnir úr Framsóknar-
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokki,
fimm alls, tveir frá hvorum
fyrsttöldu flokkanna, en einn
frá Alþýðuflokki. Þessi stjórn
leysti af hólmi hreina flokks-
stjórn Framsóknarflokksins,
en í henni áttu sæti Hermann
Jónasson, Eysteinn Jónsson
og Skúli Guðmundsson. Skúli
hafði einungis verið ráðherra
rúmt ár, þegar Þjóðstjórnin
var mynduð og vék hann þá
úr ráðherrastóli. Við það tæki-
færi orti hann:
Ég sat eitt ár, en sumir voru skemur,
því sceti það er regni og vindum háð,
þó er ég fús að þoka fyrir þremur,
sem þrá að komast upp í Stjómarráð.
Þegar ráðherramir-voru orb-
inir fimm var ekki lengur rúm
fyrir þá alla í stjórnarráðshús-
inu. Fjármálaráðuneytið flutti
í Arnarhvál og hinn nýi fjár-
málaráðherra, Jakob Möller,
settist þar ab. Einnig flutti Ey-
steinn Jónsson þangað sem
vibskiptamálarábherra, en
viðskiptamálaráðuneytið var
stofnað vib þessa stjórnar-
myndun, að mestu klofið út
úr fjármálaráðuneytinu, en
ekki var gerð nein lagabreyt-
ing í þessu sambandi. Vib
þessa flutninga rýmkaðist að
sjálfsögðu í stjórnarráðshús-
inu.
Gleðileg jól-
Óskum starfsfólki
okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári
með þökk fyrir f?að liðna
KAUPFELAG BORGFIRÐINGA
B orgarnesi
farsœlt komandi ár