Tíminn - 21.12.1994, Qupperneq 16
16
Dekurdrengur á dreifbýlisbomsum:
Gób saga um sam-
skipti manna og dýra
Dekurdrengur á dreifbýlisbomsum eftir
Hildi Einarsdóttur. 110 bls., útg. Fróbi.
Hildur Einarsdóttir, sem kunn
er fyrir ritstörf og blaða-
mennsku, hefur nú sent frá sér
barnabókina Dekurdrengur á
dreifbýlisbomsum. Söguhetjan
er drengurinn Tindur, sem er
sendur í sveit þegar ærsl hans og
uppátæki á götunum í Reykja-
vík keyra úr hófi. Hann er svo
heppinn að eiga nokkuð skyn-
sama foreldra, sem átta sig á því
að strákurinn muni hafa gott af
því að kynnast öðru en hjóla-
brettaleikjum og hangsi á torg-
um og gatnamótum, og þekkja
auk þess bónda sem telur sig
hafa eitthvað við slíkan sumar-
mann að gera, þótt bændur af
því tagi muni vera fremur sjald-
séðir nú orðið.
Söguþráðurinn er ekki marg-
slunginn, og til að spilla ekki
ánægjunni fyrir væntanlegum
lesendum verður hann ekki ra-
kinn hér. Þaö er hins vegar í frá-
sögur færandi að þessi saga er
sögö af nærfærni og næmum
skilningi á því gildi sem um-
gengni við skepnur hefur fyrir
mannfólkið, ekki síst þegar það
er í mótun eins og söguhetjan,
hann Tindur.
Tindur kemur í sveitina eins
og hver annar álfur út úr hól, og
má heita að hann viti ekki hvað
snýr aftur eða fram á ketti. Með
góðra manna hjálp er hann þó
fljótur að átta sig á samhengi
hlutanna í þessu framandlega
umhverfi og bítur bara á jaxlinn
þegar tilraun hans til að losna
undan því aö stinga út úr fjár-
húsi fær engar undirtektir.
Tindur kynnist jafnaldra sín-
um, bóndasyni á næsta bæ sem
gengur svo ötullega fram við
búskapinn að hann er farinn að
skáka föður sínum. Gústi þessi
verður Tindi fyrirmynd, og er
skemmst frá því að segja aö
borgardrengurinn hefur fundið
kröftum sínum viðnám áður en
sumarið er hálfnað og unir sér
hið besta í sveitinni.
í bókinni segir frá hesti, mikl-
um stólpagrip, sem verður fyrir
slysi og fótbrotnar svo illa að til
greina kemur að farga honum.
Oll meðferð á skepnunni er eins
og best verður á kosið, enda
tekst að græða meinið þótt aldr-
ei verði hesturinn jafngóður.
Það er einmitt þessi afstaða til
skepnunnar, sem mér finnst
BÆKUR
Að sjálfsögðu
Svanur
Þetta er þriðja bókin um
Svan. í þessari bók lýkur Svanur
öðrum bekk, en er ekki viss um
að hann vilji fara í þann þriðja.
Hann er nefnilega búinn að
læra flest sem hann þarf að
kunna og í þriðja bekk er senni-
lega bara upprifjun. Þessi bók
kitlar hláturtaugarnar ekki síður
en hinar fyrri, en bækurnar um
grallarann Svan eru eftir sömu
höfunda og metsölubækurnar
um Bert.
Bókin kostar 1.280 kr. og er
134 bls. Útgefandi er Skjaldborg
hf. ■
BÆKUR
ÁSLAUG RAGNARS
gefa sögunni um dekurdreng-
inn sérstakt gildi, og víst er þessi
fallega frásögn um samskipti
manna og dýra nokkur sárabót
þeim sem áttu bágt meö að trúa
augum og eyrum er sannar sog-
ur bárust af fótbroti annars
hests fyrr á þessu ári. Það er líka
athyglisvert hve vel Hildi tekst
að segja frá nánu sambandi
manna og dýra á hispurslausan
og hressilegan hátt, og er óhætt
að fullyröa að þessi barnasaga sé
bæði holl og skemmtileg lesn-
ing. ■
Hildur Einarsdóttir.
Óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og gœfuríks komandi árs
með þökkfyrir góð samskipti á
árinu sem er að líða
Ingvar Helgason hf. sendir engin dagatöl
fyrir þessi jól, en notaði andvirði þeirra til kaupa
á 300 hangikjötslærum og gaf þau til
Mæðrastyrksnefndar.
Ingvar
Helgason hf. vélasala
Saavarhöföa 2, SÍMI 91-674000.
lic. Híi>
> t