Tíminn - 29.12.1994, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 29. desember 1994
fiiifalMMMIÍ
9
Völva Vikurwar:
Þjóðvaki og Fram-
sókn sigurvegarar
þingkosninganna
Hin dulmagnaba „Völva Vik-
unnar" bregöur ekki vana sín-
um um þessi áramót fremur
en endranær. Hún spáir Þjóö-
vaka stórsigri og Framsóknar-
flokknum mikilli fylgisaukn-
ingu, og segir þessa tvo flokka
verba fyrsta til stjórnarmynd-
unarvibræöna.
Um lyktir stjórnarmyndun-
ar að loknum kosningum spá-
ir völvan ekki, en lætur þó að
því liggja að Sjálfstæðisflokk-
ur, sem missi nokkur þingsæti
án þess að bíða hnekki, eigi
eftir að reyna að koma Fram-
sókn til við sig. Orðalag völv-
unnar er óljóst þegar hún seg-
ir í framhaldi af þessu að skip-
an ráðherra valdi óánægju.
„Mér sýnist einhverjir stjórn-
málamenn berja hraustlega í
borðið vegna þessa og jafnvel
hafa í hótunum að snúa baki
við þingflokknum," segir hún,
en þá er ekki ljóst hvort hún á
hér við þingflokk Framsóknar
eða Sjálfstæðisflokks. Hún
fullyrðir að núverandi ríkis-
stjórn haldi ekki velli, svo og
því að gífurlegt rót verði í
kringum kosningarnar.
Alþýðuflokkurinn geldur af-
hroð í kosningunum, að sögn
völvunnar. Hún spáir breyt-
ingum á forystu flokksins og
því að Jón Baldvin Hannibals-
son láti jafnvel af formennsku
í þeim flokki fyrir kosningar,
enda bíði hans álitlegt emb-
ætti vestanhafs.
Völvan spáir því að Alþýðu-
bandalag tapi tveimur eða
þremur þingmönnum í kosn-
ingunum, en um afdrif Kvenna-
listans segir hún ekkert.
Sibbótin heldur
áfram
Völvan spáir því að siðvæð-
ing í íslenskum stjórnmálum
haldi áfram á árinu sem fer í
hönd, enda sé almenningur
farinn að gera kröfu um að-
hald og geri sér nú grein fyrir
því að hann hafi ekki aðeins
vald til að ráða menn til starfa,
heldur einnig til þess að koma
þeim frá. Samkvæmt spásögn-
inni verða þrír stjórnmála-
menn teknir fyrir á árinu og
hrökklast einn þeirra frá eftir
að upp um hann kemst. Mest
gengur á í kringum þá rann-
sókn í aprílmánuði, eftir því
sem völvan segir, og veröur
það mál litlu fegurra en mál
Guðmundar Árna Stefánsson-
ar sællar minningar.
Siðbót í stjórnsýslu
og vibskiptalífi?
Hin fjölkunnuga kona spáir
því að rannsóknir á öllum
sviöum þjóðlífsins muni ein-
kenna árið 1995. Ekki síst
muni þessi rannsóknastarf-
semi beinast að spillingu í
stjórnsýslu, enda muni nú
koma rækilega á daginn að
embættismenn geti ekki verið
stikkfrí til eilíföar. Þá beinir
hún fránum sjónum sínum að
undirheimaöflum viðskipta-
lífsins, ss. Kolkrabbanum og
Smokkfisknum, og spáir því að
átök þessara ósýnilegu risa
verði áberandi og muni valda
hneyksli.
Önnur undirheimaöfl viö-
skiptalífsins fá líka að kenna á
siðvæðingarsvipunni, ef
marka má vöivuna, sem segir
að flett verði ofan af fíkniefna-
hring og komi þá í ljós að stór-
laxar tengist þar fjármögnun.
Batnandi afla-
brögð til sjós og
lands
Völvan spáir batnandi afla-
brögðum í flestum greinum
sjávarútvegs, en segir að ekki
nægi það til að bæta efnahags-
ástandið svo að gagni megi
koma fyrr en um næstu ára-
mót. Samkvæmt völvunni er
veiðivonin tryggari þar sem
erlendir ferðamenn em annars
vegar. Hún segir að þeir haldi
áfram að sækja til landsins í sí-
vaxandi mæli og þetta sé fram-
vinda sem reynist ekki jafn-
hvikult hnoss og sjávarfangið.
Fjölmiðlaflóran fá-
tækari
Völvan sér móta fyrir því aö
þekkt tímarit og fréttablað
verði samdrættinum að bráð á
árinu. Þá muni tvær útvarps-
stöðvar ramba á gjaldþrots-
barmi, en önnur þeirra muni
þó halda velli. Ríkisútvarpið
fær sinn skammt að vanda.
Völvan spáir því að Heimir
Steinsson taki pokann sinn af
sjálfsdáðum í kjölfar magn-
aðra deilna vegna uppsagnar
starfsmanns, en svo þoku-
kennd er þessi sýn völvunnar
aö hún þorir ekki að segja til
um það með vissu hvort út-
varpsstjóri dragi sig í hlé á ár-
inu 1995 eöa síðar... ■