Tíminn - 04.01.1995, Page 2
2
Mi&vikudagur 4. janúar 1995
Tíminn
spyr...
Er lýbræbisþróun í Rússlandi í
hættu?
Ingibjörg Haraldsdóttir
rithöfundur:
Menn greinir auðvitað á um hvort
sá mafíukapítalismi sem virðist ríkja
í Rússlandi bjóði upp á mikið lýð-
ræði og hvort þar eigi sér yfirleitt
stað einhver þróun í átt til þess sem
kallað er lýðræði á Vesturlöndum.
Persónulega hef ég aldrei litib á
Jeltsín sem boðbera lýðræbis, mér
sýnist á athöfnum hans og ummæl-
um að hann vilji vera stórrússnesk-
ur einræðisherra. Valdarán af ein-
hverju tagi er ekkert ólíklegra en
eitthvað annað við þær stórhættu-
legu aðstæbur sem nú eru komnar
upp, eftir innrásina í Tsétsjenju. Ég
efast ekki um aö herför Rússa þang-
ab á eftir að hafa skelfilegar afleið-
ingar, bæbi fyrir fólkib í Rússlandi
og friðinn í heiminum.
Karl Th. Birgisson ritstjóri:
Já, ef þetta dæmalausa klúður í
Tsétsjenju heldur áfram. Það sem
lýðræbi í Rússlandi þarf á að halda
er áframhaldandi þróun í átt til
markaðsbúskapar. An hans er lýb-
ræðið merkingarlaust. Forsenda
markaðsbúskapar er pólitískur stöð-
ugleiki sem fæst ekki nema Rúss-
neska ríkjasambandið haldi velli.
Það er ótímabært að ræða um frek-
ari sjálfstjórn einstakra lýðvelda á
þessum tímapunkti. Það býður
heim júgóslavnesku ástandi með
tilheyrandi hryllingi.
Gylfi Þór Magnússon, fram-
kvæmdastjóri markaðsmála hjá
Sölumiöstöb hraðfrystihúsanna:
Ég held að Iýöræöisþróunin verði
ekki stöðvuð en breytingarnar eru
svo miklar í landinu ab erfitt er að
gera sér grein fyrir hver þróunin er
hverju sinni. Svona örum breyting-
um fylgja miklir vaxtarverkir þjóð-
félagslega. Viö höfum litið á Rúss-
land sem eitt af okkar viðskipta-
löndum í framtíðinni, en þótt
ástæða sé til að hafa áhyggjur af því
að þróunin verði ekki eins lýðræö-
isleg og vonir stóbu til og rekstrar-
umhverfið eins og nauðsynlegt er í
heilbrigbum milliríkjaviðskiptum,
þá er búið að opna leiðina til vest-
urs og ég hef ekki trú á því að lýð-
ræðisþróunin verði stöbvuð héðan
af.
Páll Pétursson frá Höllustööum sér fram á aö þurfa oð berjast fyrir fyrsta
sœtinu á listanum í keppni Wð vin og samherja, Stefán Guömundsson:
Veit að ég er mað-
ur ekki vinalaus
Alþingismennirnir Páll Péturs-
son frá Höllustöbum og Stefán
Gubmundsson frá Saubárkróki
munu keppa um fyrsta sætib í
prófkjöri Framsóknarflokksins
á Norburlandi vestra, sem
fram fer um abra helgi. Páll
hefur setib á Alþingi síban
1979.
„Ég vona nú að ekki þurfi ab
koma til neinna stórillinda hjá
okkur Stefáni Guðmundssyni,
vini, félaga og samherja til
margra ára," sagði Páll Pétursson
á Höllustöðum í samtali við
Tímann í gær. Þá var Páll á Sauð-
árkróki á ferðalagi um kjördæm-
ið til að hitta fólk ab máli. Páll
sagðist ekki hafa trú á öðru en að
prófkjörið leystist vandræða-
laust.
Páll var spurður hvort rétt
væri að hann hygðist ekki taka
annað sætið, yrðu úrslit próf-
kjörsins á þann veg.
„Ég hef nú ekki haft í neinum
hótunum um að taka ekki ann-
að sætið. Hitt er svo annab mál
ab ef mér verður hafnað af kjós-
endum þá er þaö ef til vill ekki í
þágu flokksins að setja mann í
annaö sætib hafi einhver veru-
legur hluti kjósenda viljab losna
við mann. Þá yrði listinn veikur.
Annars er rétt að taka þab fram
ab annaö sæti á listanum er gull-
tryggt þingsæti ef menn
sprengja það ekki í loft upp í
innbyrðis illindum."
Ekki kvaðst Páll vita ástæður
þess að nú væri boðib fram gegn
honum í fyrsta sætið. Heyrst
hefur sú skýring að sumum þyki
Páll orðinn um of mikill Reyk-
víkingur.
„Ég er nú ekki rétti maðurinn
til ab útskýra þab, en ab ég sé
orðinn Reykvíkingur er mikill
misskilningur. Ég er bóndi á
Höllustöðum og hef svo sem
ekkert losað mig þaðan. Ég er
giftur ágætri konu í Reykjavík og
tel mér þaö mjög til tekna á allan
hátt, og líka pólitískt. Þaö er
ómetanlegt að eiga konu sem er
topp-pólitíkus og auk þess ráða-
Austurbœjarskóli / Reykjavík:
Skólastjóri fer í
Áslaug Brynjólfsdóttir, Austurbæjarskóla til fram-
fræðslustjóri í Reykjavík, vís- haldsmebferbar í mennta-
abi í gær máli skólastjóra málarábuneytinu, en stjórn-
mínu gamla sæti á listanum. Ég
tel mig hafa meiri vigt með því
að vera ekki niðurlægður af kjós-
endum og betri aðstöðu til að ná
fram þeim málum sem ég er ab
berjast fyrir eba láta til mín taka.
Annars eru örlög mín í valdi
kjósendanna og ekkert annað að
gera en ab hlíta þeirra dómi. Ef
þeir meta það sem maöur hefur
verið að gera og binda einhverjar
vonir við að maður geti eitthvab
gert í áframhaldinu, þá þarf ég
engu ab kvíða. Séu þeir óánægð-
ir munu þeir fá einhvern ann-
an," sagði Páll á Höllustöðum.
Páll sagði að hann væri að
hitta fólk í kjördæmi sínu. „Ég
kvarta ekki yfir móttökunum, og
veit að ég er ekki maður vina-
laus. Ég finn stuðning. En ég hef
nú svosem komið hér fyrr,"
sagði þingmaðurinn aö lokum. ■
Páll Pétursson.
góð," sagbi Páll Pétursson.
„Ég vil auðvitað berjast fyrir
Bcendasamtökin sameinast:
Tvöföld stjórn
fram aö Bún-
abarþingi
Um áramótin voru Búnabar-
félag íslands og Stéttarsam-
band bænda sameinuð í ein
heildarsamtök bænda. Miklar
umræður hafa verib um þab
mál mebal bænda á undan-
förnum árum en liðin eru rétt
50 ár frá því ab Stéttarsam-
bandib var stofnab vib hlið
Búnaðarfélagsins til þessa ab
fara meb verðlags- og kjara-
mál stéttarinnar.
Það var í júní 1933 að stjórn-
ir Búnabarfélags íslands og
Stéttarsambands bænda ákváðu
að hefja viðræður um samein-
ingu samtakanna í ein heildar-
samtök, sem betur gætu þjónað
hagsmunum bænda í breyttu
starfsumhverfi. Fjölmargar
ályktanir höfðu þá borist frá
bændafundum víðsvegar um
land þar sem hvatt var til sam-
einingar. Sett var á laggirnar
nefnd skipuð þremur mönnum
frá hvorum abila og fékk hún
þab hlutverk að kanna grund-
völl fyrir sameiningu samtak-
anna.
Með sameiningu BÍ og SB í
ein heildarsamtök verð boð-
leiöir einfaldari og grundvöllur
skapast til samræmdari og
skjótari ákvarðanatöku en þeg-
ar fjallað er um málið innan
tvennra samtaka. Jafnframt
skapast grundvöllur fyrir skýr-
ari verkaskiptingu milli heildar-
samtakanna og grunneininga
þeirra en verið hefur innan fé-
lagskerfis BÍ og SB. Forustuenn
hinna nýju samtaka vonast til
ab aukin hagkvæmni náist meb
eindöldun í yfirstjórn og hag-
ræðing verði í skrifstofuhaldi
samtakanna. ■
Haukur Halldórsson og Jón Helga-
son handsala samkomulagib um
sameiningu Búnabarfélagsins og
Stéttarsambands bœnda í gær.
leyfi
unarúttekt hafbi þá farib fram
á skólanum á vegum Fræbslu-
skrifstofunnar. Skólastjórinn,
Alfreb Eyjólfsson, fór hins
vegar í tímabundib leyfi frá
störfum í gær á meban málið
er afgreitt í rábuneytinu.
í gær var fræðslustjóra afhent
einróma áskorun frá öllum
þorra kennara og starfsmönn-
um Austurbæjarskóla um að
þeim þætti ekki viðeigandi að
skólastjórinn væri í starfi á með-
an svona stæði á, en þessi áskor-
un var samþykkt á kennara- og
starfsmannafundi í fyrrakvöld.
Erindi höfðu einnig borist til
Fræðsluskrifstofu í þessa veru
frá foreldrafélagi skólans.
Skólastjórinn hafði boðað
kennara til fundar í skólanum
kl. 13:00 í gær en enginn mætti
á þann fund.
Þab var í kjölfar þessa að
ákveðið var að skólastjórinn
færi í tímabundið leyfi frá og
með gærdeginum.
Ekki fengust í gær upplýsing-
ar um hvað hefði komið út úr
stjórnunarúttekt Fræðsluskrif-
stofunnar þar sem málib væri
nú í höndum ráðuneytisins.
Þessi málsmeðferö verður til
þess að skólastarf verður meb
eðlilegum hætti í dag, en stað-
gengill skólastjórans mun taka
við starfi hans til bráðabirgða. ■