Tíminn - 13.01.1995, Page 4

Tíminn - 13.01.1995, Page 4
4 Föstudagur 13. janúar 1S95 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: |ón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sfmi: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Mánaðaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Aðgát skal höfb Forræðisdeilur og afskipti opinberrá'aðila af þeim hafa verið mjög í sviðsljósinu. Almenningur fylgist gjörla með réttarhöldum og úrskurðum um forræði barna heima og erlendis. Oft eru það erlendir ríkis- borgarar sem deila um forræði barna sinna við ís- lenska maka eða barnsfeður eða -mæður. Geta þau mál orðið snúin og gjörðir deiluaðila oft ofbeldisfull- ar. Átök um forræði barna hér innanlands fara yfirleitt fram án afskipta fjölmiðla og það heyrir til algjörra undantekninga að aðstoðar lögreglu sé leitað til að framfylgja úrskurðum barnaverndarnefnda eöa ann- arra aðila sem svona málefni heyra undir. Nú færist mjög í vöxt að forræðisdeilur séu reknar í fjölmiðlum. Sjónvarp er einkar vel fallið til að koma viðkvæmum tilfinningamálum á framfæri. Myndir af elskulegum börnum, sem hrifin eru frá mæðrum sín- um af ópersónulegum opinberum nefndum og lög- reglunni, hreyfa við flestum áhorfendum. Nærmynd- ir af andlitum harmi þrunginna mæðra, sem sjá á eft- ir börnum sínum í hendur ópersónulegs og ósýnilegs valds, höfða til tilfinninga fremur en rökrænnar hugs- unar. Ekki spillir þegar skotið er inn myndum af hörkulegum lögreglumönnum og bílum þeirra á fleygiferð með vælandi sírenur. Þeir bútar eru sóttir í myndasöfn og að öllu jöfnu óviðkomandi þeim frétt- um sem um er fjallað. Maður í svelti vegna ósamkomulags við barnsmóð- ur sína og barnaverndaryfirvöld er kjörið fréttaefni í fásinninu og teygt og togað vikum saman á meðan það gefst og kviðstrengdur kroppurinn er hafður öll- um til sýnis, en fáum til yndisauka, enda ekki mein- ingin. Gallinn við svona fréttamennsku er að hún gefur ekki rétta mynd af atburðarás. Hún er einhliða og sýn- ir sjaldan eða aldrei annað en tilfinningaástand þess aðila sem telur með réttu eða röngu að á sér sé brotið. Fréttaflytjendur ganga oftast fram hjá meginatriöi svona mála, sem eru hagsmunir barna. Barnaverndar- nefndir og aðrir bærir aðilar, sem afskipti hafa af for- ræðismálum, eru skyldugir samkvæmt lögum að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi í öllum sínum gjörðum og úrskurðum. Þeim er einnig gert að virða nafnleynd og þagnarskyldu um afskipti sín af forræðismálum. Það eru framtíðarhagsmunir barna að þau ákvæði séu virt, og einnig foreldra og annarra sem koma að for- ræðismálum með einum eða öðrum hætti. Þegar fréttamiðlar setja málin upp eins og yfir standi kalt stríð milli foreldra eða foreldris, sem börn eru tekin frá, og yfirvalda, er sagan aldrei nema hálf- sögð. Og allir vita hve hálfsannleikur er varasamur. Forræðismál barna eru einn viðkvæmasti mála- flokkur sem opinberir aðilar þurfa að sinna. Þar verð- ur að taka tillit til lagaskyldna, tilfinninga og ýmissa aðstæðna, sem vega verður og meta í hverju einstöku tilfelli. Mál þessi eru því aldrei einföld og síst af öllu einhliða. Fjölmiðlar ættu að fara að öllu með gát, þegar fjall- að er um málefni af þessu tagi, og alls ekki að gera þau að æsifréttum. Fréttamenn mættu gjarnan hafa í huga, eins og aðrir sem að málefnunum koma, að leiða hugann fyrst og fremst að hagsmunum barna, en kasta rokufréttagildinu fyrir róða, þegar fjallað er um svo viðkvæm mál sem deilur um forræði barna eru. Síðan er ábyrgðarhluti að útmála barnaverndar- nefndir og aðra, sem gæta eiga hagsmuna barna sam- kvæmt landslögum, sem ofbeldisseggi. Það er sárt fyrir foreldra að missa forræði yfir börn- um sínum, og skal aðgát höfð í nærveru þeirra ekki síður en annarra sálna. Verbur flogib til Grænlands? Þab viröist ekki nokkur skortur á uppákomum á stjórnarheimilinu og nær daglega er landsmönnum bobiö upp á nýtt leikrit. í gær var þaö Hafnarfjöröur og í dag er þaö Hafnarfjöröur II. þáttur en auk þess hefur hafiö göngu sína nýr farsi, nefnilega deilan viö kanad- íska sjávarútvegsráöherrann. Aöalleikararnir í nýja farsanum eru þeir Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson sem koma fram út á viö — gagnvart umheim- inum — eins og þeir tilheyri sitt hvorri þjóöinni en ekki eins og þeir séu báöir íslendingar hvaö þá aö þeir séu í sömu ríkisstjórninni. Kanadískur afleikur Sjávarútvegsráöherra Kanada lék ljótan afleik meö samnings- gerö sinni gagnvart Norömönnum og hefur núnánast beöist velvirö- ingar á því. Jón Baldvin sagöi hins vegar í hádegisfréttum útvarps í gær aö iörun væri ekki nóg og hann myndi hreint ekki tala viö þennan Kandamann fyrr en hann heföi séö iörun hans í verki. Ekki veit Garri hvaöa verklega iörun dygöi Jóni, kannski aö kanadíski ráöherrann gengi á heitum kolum, í þaö minnsta viröist Jóni ekki nóg aö hann hafi boöist til aö gera sams konar samning viö íslend- inga og hann geröi viö Norö- menn. Davíö Oddsson hefur nú bland- aö sér í þessi mál meö fööurlegum hætti og tilkynnti aö allir heföu rétt fyrir sér í málinu. Davíö segir utanríkisráöherra gera rétt meö því aö lýsa frati á Þorstein fyrir aö taka á móti hinum erlenda gesti. Þorsteinn hefur líka rétt fyrir sér meö því aö taka á móti hinum er- lenda gesti og lýsa í leiöinni frati á Jón Baldvin. Forsætisráöherra læt- ur heldur ekki sitja viö oröin tóm heldur ákveöur aö hætta viö aö fara á ráöstefnu sjávarútvegsráöu- neytisins meö Kanadamanninum, þótt þaö sé um leiö vitaö aö hon- um heföi aldrei dottiö í hug aö fara á slíkt fiskiþing. En þessi óvenjulega þróun á málinu dregur athyglina líka aö því aö þetta er hreint ekki í fyrsta sinn sem ráöherra hunsar opin- bera heimsókn erlends gests til ís- lands. GARRI Eins og þegar Peres kom Davíö Oddsson hefur oft rifjaö upp heimsókn Peresar til íslands hér fyrir nokkrum árum en þá mættu leiötogar stjórnarand- stööuflokka ekki í samkvæminu sem honum voru haldin en sögö- ust hafa haft öörum hnöppum aö hneppa. Davíö hefur þó af ein- hverjum ástæöum ekki munaö eft- ir aö nefna til sögunnar sjálfan ut- anríkisráöherra lýöveldisins sem ekki mætti til móttökuhátíöar fyr- ir Peres og gaf þar með í skyn aö hann teldi aö fara hefbi átt eins aö með Peres og hann vill aö fariö verði með kanadíska sjávarútvegs- ráðherrann. Þegar Peres kom hér, hittist svo á Jón Baldvin taldi sig þurfa ab fara á ómissandi fund með grænlenskum jafnaöarmönn- um og fór því áleiðis til Grænlands þegar Peres kom, þrátt fyrir aö ófært væri með flugi þangað. Ut- anríkisrábherrann komst þó til ísafjarðar og ákvað aö bíöa flug- færis þar, frekar en að bíða flugfær- is í Reykjavík. Þessi misheppnaða Grænlandsför Jóns Baldvins varö mjög fræg, ekki síst fyrir þaö hve forsætisráherra gagnrýndi stjórn- arandstæöinga hart fyrir aö hitta ekki Peres á sama tíma og Davíð minntist ekki oröi á aö utanríkis- rábherrann, sem margir töldu ein- sýnt aö heföi veriö aö koma sér undan fundi með Peres. Þab er athyglisvert aö heyra þaö núna, eftir að Jón Baldvin hefúr lýst skoðunun sínum á heimsókn kanadíska sjávarútvegsráðherrans aö menn eru farnir að spyrja hver annan: „Ætli það veröi flogið til Grænlands?" Trúlega er þetta nýj- asta orðatiltækiö í íslenskunni í dag og sýnir hversu lifandi málið er. Garri Vettvangskönnun eba telefax Alþingi var að störfum milli jóla og nýárs, en eftir áramótin var gert hlé og nú eru þingmenn upptekn- ir viö aö svara spurningum um hvað fríið sé langt. Þessar spurn- ingar um frí kunna að fara í taug- arnar á einhverjum, en ég er löngu orbinn ónæmur fyrir þeim. Þing- hléö eftir áramótin reyni ég fyrir mitt leyti að nota eftir föngum til ferðalaga um Austurland, eftir því sem vebur og færö leyfa. Mér finnst þetta hluti af starfi mínu sem þingmaður og nauðsyn bera til aö heyra augliti til auglitis sjón- armiö fólks og fylgjast með fram- gangi mála í hinum ýmsu byggö- arlögum. Telefax og sími Ég las dálk í DV á dögunum, sem heitir Skiptar skoðanir. Þar lét Pétur Blöndal, sem sækist eftir þingsæti fyrir Reykvíkinga, þá skoðun í ljós aö þetta þinghlé væri einber óþarfi. Þingmenn ættu aö vinna eins og annaö fólk, og landsbyggbarmenn gætu tekið tæknina í þjónustu sína og notað síma og telefax til samskipta við kjördæmi sín. Ég verö aö segja að það er nokk- ur fílabeinsáferö á þessum sjónar- miðum. Sími, telefax og síma- fundir eru góð tæki til samskipta, enda hef ég fyrir mína parta notaö öll þessi hjálpartæki í mínu starfi sem þingmabur. Hins vegar kemur tæknin aldrei í stað persónulegra samskipta, hve góö sem hún verö- ur. Þaö hlýtur Pétur Blöndal aö læra, ef hann kemst á þing. Gráir og guggnir menn yfir þykkum lagafrumvörpum, sem aldrei kom- ast á vettvang til þess að hitta venjulegt fólk, en sitja niðri á Al- þingi í tíu og hálfan mánuð á ári og fara á sólarstrendur í sumarfrí- inu, þeir eru ekki sú framtíðarsýn Á víbavangi sem ég vil sjá um starf þingmanna. Hins vegar heyrast oft raddir um það að þingiö eigi aö starfa á sumr- in, utan einn til einn og hálfan mánuö. Fundir í þinghléinu Landsbyggðarþingmenn nota janúarmánuð yfirleitt til fundar- halda, eba einfaldlega til þess aö feröast um og hitta fólk á förnum vegi eða forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana. Hitt er svo annað mál aö janúar er ekkert endilega hent- ugasti mánuöurinn til feröalaga og ólíkt þægilegra væri í mörgum til- fellum ab sitja í Alþingi á þessum tíma. Hins vegar hefur þessi hefð skapast og þau kaflaskipti, sem verba í þinghaldinu um áramótin, eru notuð til þess aö gera hlé á. Vetrarvibhald vega Þaö er hins vegar svo að þing- menn, sem ferðast á þessum tíma, verða þess oft áskynja á sínum eigin skrokki hvaö landsmenn eiga við aö búa í samgöngumál- um. Þar er oft ekki allt sem sýnist. Tiltölulega góö tíö getur þýtt gler- hála vegi, sem þarf sannarlega góð tæki og varfærni til þess aö fara meö öryggi. Fjallvegir milli byggðarlaga eru oft ekkert árenni- legir einmitt á þessum tíma, þótt snjór sé ekki til trafala. Til þess aö tryggja greiðar samgöngur al- mennings milli byggðarlaga þarf aö endurmeta vetrarviðhald Vegageröarinnar og sandbera eða. salta á varasömum stööum. Þetta eru einföld sannindi, sem blasa viö augum þegar fariö er út á veg- ina. Ein ferð um Fjarðarheiöi eða Oddsskarö í fljúgandi hálku, svo dæmi séu tekin, er miklu áhrifa- meiri heldur en að fá telefax inn á skrifstofu til sín í Alþingi um mál- iö. Starf Alþingis Það má vel vera að fundir Al- þingis veröi lengdir í framtíðinni, og fundir standi lengra fram á sumar og hefjist fyrr á haustin. Þaö er skipulagsatriði. Það veröur hins vegar vonandi aldrei svo, aö þing- mönnum verði aldrei ætlaöur tími til þess aö fara um landið og sjá með eigin augum hvernig lífið gengur fyrir sig. ]ón Kr.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.