Tíminn - 13.01.1995, Síða 6
6
illUltMi
Föstudagur 13. janúar 1995
Leibrétting á umfjöllun um
„holrcesagjaldsvísitöluna":
Ekki bara í
Reykjavík,
heldur Stór-
Reykjavík
Vísitöludeild Hagstofunnar
óskaöi eftir ab komib yrbi á
framfæri leibréttingu á upplýs-
ingum sem Tíminn fékk þar s.l.
þribjudag. Upplýsingarnar voru
á þá leib ab híutur fasteigna-
gjalda í húsnæbislib fram-
færsluvísitölunnar mibabist vib
fasteignagjöld í Reykjavík.
Hið rétta er, aö sögn deildar-
stjóra, að þessi liður breytist í takt
við fasteignagjöld á höfuðborgar-
svæðinu — þ.e. „Stór-Reykja/ík".
Enda hefði holræsagjaldið valdið
enn meiri hækkun á framfærslu-
vísiölunni en 0,23%, ef Reykjavík
ein væri inni í grundvellinum.
Samkvæmt þessu stendur þab
enn, að breytingar holræsagjalda
eða annarra fasteignagjalda á Ak-
ureyri, ellegar í öðrum sveitarfé-
lögum utan höfuðborgarsvæðis-
ins, hafa engin áhrif á vísitölur
ellegar skuldir landsmanna. Hins
vegar mundi t.d. hækkun hol-
ræsagjalda í Kópavogi hafa áhrif í
þessa veru.
Þab eru þó fyrst og fremst Reyk-
víkingar sem sitja í súpunni að
þessu sinni. Því ekki er nóg meb
að íbúðareigendur þar þurfi nú að
byrja að borga frá 5-15 þúsund
krónur í holræsagjald á ári, held-
ur leiðir það^aftur til beinna
hækkana á skuldum þeirra. Þann-
ig mun t.d. höfuðstóll 5.000.000
kr. húsbréfáláns hækka kringum
4.000 kr. í febrúarbyrjun, sökum
holræsagjaldsins. ■
Vegagerb ríkisins tekur tœknina í sína þjónustu:
Tölva sem sýnir færö
og ástand vega
„Mönnum þykir þetta mjög
„áhorfslegt". Þetta sýnir miklu
betur ástand veganna en t.d.
bara texti. Þetta er beinlínu-
tengt, þannig ab allar breyting-
ar, sem hver og einn verkstjóri á
landinu gerir hjá sér, koma um
leib fram á tækinu.
Þegar t.d. snjómoksturstækin
koma eöa fara, kemur mynd og
fer á skjánum. En við erum ennþá
að velta fyrir okkur ýmsum mögu-
leikum. Þab er t.d. ákveðiö tákn
fyrir snjókomu, en hins vegar er-
um við ekki með neitt fyrir skaf-
renning. Þetta tákn þýbir annað
hvort snjókoma eða skafrenning-
ur, en það þarf ekki að fara saman.
Þab getur verið skafrenningur án
þess að það sé snjókoma, þannig
ab það er spurning hvort bæta á
við ákveðnu tákni fyrir skafrenn-
ing," sagði Birgir Guðmundsson,
umdæmisverkfræbingur Vega-
gerðarinnar í Borgarnesi, í samtali
vib Tímann um tæknibúnab sem
Vegagerðin hefur tekið í notkun.
Vegagerðin hefur tekið tæknina
í sína þjónustu og er komin vel á
veg með tölvubúnab, sem sýnir
færð og ástand vega eins og það er
á hverri stundu. Á Hyrnunni í
Borgarnesi, olíustöð Esso, hefur
verið settur upp skjár sem sýnir
ástand allra aðalvega á íslandi, og
segir Guðmundur Ingimundar-
son, yfirmaður stöðvarinnar, að
skjárinn sé mikið notaður af fólki
sem á leið um.
C uömundur Ingimundarson viö skjáinn góöa, sem notiö hefur mikilla vinscelda hjá feröalöngum.
Birgir sagði að þeir hefðu verið
aö þróa þetta verkefni og það væri
í rauninni ennþá á tilraunastigi.
„Við höfum átt svolítið í vand-
ræbum með þetta. Skjárinn hefur
slökkt á sér á nóttunni, dottið út
og ýmislegt annað hefur gerst."
„En þetta gefur ýmsa möguleika
varðandi uppiýsingar til almenn-
ings í framtíbinni. Þegar við erum
komnir yfir þessa.þarnasjúkdóma,
þá er meiningin að bjóða almenn-
ingi þessi forrit. Þá munu þessar
upplýsingar vera opnar hverj-
um sem hafa vill," sagði Birgir.
Segja má að þessi tækni gefi
óendanlega möguleika til upplýs-
inga, t.d. fyrir erlenda ferbamenn
og aubvitað ekki síst fólk sem er á
ferö að vetrarlagi.
Alþjóölegar rannsóknir á íslandi
I. I hátíðarræðum um mannauð, sér-
þekkingu og hátæknivinnu á íslandi
er bent á margt mikilvægt sem ráða
mun úrslitum um framtíð efnhags
okkar á næstu öld. í ræöunum er líka
stundum bent á að íslendingar geta
hýst erlenda sérfræðinga, kennt er-
lendum mönnum og nýtt landið og
umhverfið til alþjóðlegra rannsókna
og fræöslu. Hér eru aðstæður eða fyrir-
bæri sem nýtast til slíks. Minna fer fyr-
ir framkvæmdum í þessu efni.
II. Undanfarin ár hafa nokkrar mikil-
vægar alþjóðlegar ráðstefnur verið
haldnar hér, íslenskir sérfræðingar
taka þátt í alþjóðlegum verkefnum og
a.m.’:. tvær stofnanir eru reknar hér
sem flokkast undir alþjóblegar
kennslu- eða rannsóknastofnanir:
Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna og
Norræna eldfjallastöðin. Báðar hafa
þær sannað gildi sitt og bætt ímynd ís-
lands. Þær hafa skilað þekkingu í al-
þjóðlegan fræðasjóð og aukiö orðstír
landsins. Tengsl stofnananna við sér-
stöðu íslenskrar náttúru og sérþekk-
ingu íslenskra vísinda- og tækni-
manna er augljós.
III. Menn á Raunvísindastofnun Há-
skólans, Veðurstofu, hjá Landgræðsl-
unni, Rannsóknastofnun landbúnað-
arins og leikmenn hafa drepið á hug-
UM-
ARI TRAUSTI
GUÐMUNDSSON
HVERFI
myndir um fleiri alþjóðlegar stofnan-
ir á íslandi. Gætu sumar þeirra reynd-
ar átt við stofnanir á öðrum sviðum
en vísindum, t.d. eftirlits- eða þjón-
ustustofnanir. Á vísindasviðinu hafa
menn einkum augastað á náttúru-
fræðum. Hérlendis má finna margvís-
legar abstæður eða fyrirbæri á
litlu landsvæði, sem ella þyrfti aö
Ieita uppi vítt og breitt um heim-
inn. Innviðir þjóöfélagsins eru þróab-
ir og vegalengdir til tækniheimsins
stuttar.
IV. Hreyft hefur verið við a.m.k.
þremur áhugaverðum hugmyndum.
I fyrsta lagi hefur rannsóknarstöð í
jarðvegsfræbum boriö á góma. Þar
gætu menn aukið vib þekkingu á ferl-
um jarðvegsrofs og veðrunar. Hér á
landi er kalt umhverfi, snör skipti
frosts og þíðu, eldfjallajarðvegur
og mikið vatns- og vindrof. í öbru
lagi hafa menn nefnt jöklarann-
sóknir af ýmsu tagi, en hér eru t.d.
góðar aðstæður til þess að skoða af-
komujökla, framhlaupsjökla, eld-
virkni undir jöklum, jökulhlaup, jökl-
unarsögu síðustu 15.000 ára o.fl. í
þribja lagi gæti starfað hér stofnun á
svibi vebur- og haffræði og fest í sessi
rannsóknir á norðurljósum og ósoni,
sem þegar eru hafnar, auk rannsókna
á lægðamyndun, hafstraumum og
djúpsjávarmyndun, svo fátt eitt sé
nefnt.
V. Erlent fjármagn til vísinda á íslandi
getur bætt úr sárum fjárskorti til rann-
sókna og menntunar og stuðlab að
því að fleiri íslenskir sérfræðingar en
ella gætu starfað hér heima. Hættunni
á ab íslendingar missi við þab frum-
kvæði og stjórnun í hendur annarra
verður best mætt með því að haga
skipulagi hins alþjóðlega starfs líkt og
gert er við jarðhitaskólann og eld-
fjallastöðina: þ.e. stór hluti starfs-
manna er íslenskur og framkvæmda-
og skipulagsstjórnin einnig. Fjármagn
til reksturs stöðva sem þessara er alla
jafna fengið úr sjóöum alþjóðlegra
samtaka eða stofnana. Á næstu árum
á að láta reyna á hvaða kosti við
höfum, til viðbótar við stórauknar
fjárveitingar hér heima til vísinda og
mennta, til þess að gera landið að
alþjóðlegu fræðasetri. ■